Morgunblaðið - 03.08.1984, Side 22

Morgunblaðið - 03.08.1984, Side 22
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST1984 22 Blómaskálinn Vín: Veitingarekstur við Hrafnagil Akureyri, 30. iúlt. '—* „AÐSÓKN að þessum nýja stað okkar hefur verið miklu meiri og jafnari en við reikn- uðum með, þannig að Akureyr- ingar og ferðafóik virðast kunna að meta það sem við bjóðum upp á,“ sagði Hreiðar Hreiðarsson, sem ásamt konu sinni, Þórdísi Bjarnadóttur, opnaði 20. júlí sl. nýjan blóma- skála við Hrafnagil í Eyjafirði, um 12 km frá Akureyri. ur eins og er tæplega 100 manns í sæti. Hreiðar sagði að byrjað hefði verið á byggingu skálans, sem er um 550 fermetrar, í október sl. og opnað hefði verið 20. júlí, eins og áður segir. Hann gat þess að hann hefði notið ómetanlegrar aðstoðar Valdimars Valdimarssonar, mat- reiðslumanns, og konu hans, Þur- íðar Árnadóttur, við uppbyggingu og fyrirkomulag veitingareksturs- ins. Ekki er að efa, að Akureyr- ingar eiga eftir að fjölmenna inn að Hrafnagili, og segja má að þarna hafi þeir eignast „Eden“ líkt og Sunnlendingar eiga í Hveragerði. rj. Blómaskálann nefna þau Vín, en þau hjón reka jafnframt gróðrar- stöðina Vín örlítið norðar í firðin- um, neðan Kristness. í þessum nýja skála verða seld blóm og garðyrkjuafurðir, auk þess sem stór veitingaskáli er þar, sem tek- Blómaskálinn Vfn við Hrafnagil í Eyjafirði. Ljósm. Mbl. GBerg Þórdís Bjarnadóttir, Valdimar Valdimarsson, Þuríður Árnadóttir og Hreiðar Hreiðarsson. Sextugur: Ingimar Sigurðs- son Kópavogi í dag er sextugur drengskapar- maðurinn Ingimar Sigurðsson í Kópavogi, Hraunbraut 41, sonur Kristínar J. Jónsdóttur og Sigurð- ar Jóhannessonar. Ingimar Sigurðsson fæddist 3. ágúst 1924. Hann kynntist snemma á lífsæfinni örðugum fjárhag en naut þess að eiga for- eldra sem settu ofar veraldlegum efnum hin andlegu gæði og grunn- inn til sómasamlegs lífs. Það hefur sannast á Ingimari að hann hefur notið trausts sam- ferðamanna sinna enda starfar hann sem verkstjóri hjá Vegagerð ríkisins — og hefur gegnt fjöl- mörgum trúnaðarstörfum, sem samferðamenn hans hafa falið honum. Hann hefur numið járnsmíði og voru honum m.a. fal- in ábyrgðarmikil störf fyrir stétt- arbræður sína. Þá er ekki úr vegi að geta þess að Ingimar var einn af stofnend- um Lionsklúbbsins MUNINS og einn af fyrstu formönnum hans starfsveturinn 1972—1973. Hann var einn af þeim er fyrstum var falin gerð stofnskrár Hjúkrunar- heimilis aldraðra í Kópavogi — enda bar hann það málefni í hjarta sínu og vann þar fölskva- laust að framgangi þess, enda er nú svo komið að Hjúkrunarheimili aldraðra í Kópavogi er glæsileg staðreynd að Kópavogsbraut 1 — málefni sem hann og aðrir Kópa- vogsbúar báru fram til sigurs — dæmigert um fórnfúst vinnu- framlag og farsællega unnin störf. Síðastliðinn starfsvetur hefur Ingimar Sigurðsson verið svæðis- stjóri á svæði 7 í Lionshreyfing- unni á íslandi og kaus umdæmis- stjóri hans, Svavar Gests, hann LION fyrir apríl 1984 fyrir það að hann lagði mikla rækt við hið yfir- gripsmikla svæðisstjórastarf. Mér er ljúft að minnast vinar míns Ingimars, sem mikils mannvinar og ber þar sérstaklega hæst aðdáun barnabarna minna á honum, en sjaldan veit ég meiri ánægju hjá þeim en þegar þau heimsækja hann. Klúbbbræður þínir í Lions- klúbbnum MUNIN senda þér ein- lægar afmæliskveðjur. Með kærum Lionskveðjum, Stefán Trjámann Tryggvason Metsölublad á hverjum degi! ÞARF BILLIIMN ÞINN Á HRESSINGU AÐ HALDA AÐ AFLOKINNI VÆTUTÍÐ? GAS BOOSTER BENSIN- BÆTIRINN SÉR UM ÞAÐ 0,35 I duga í hverja 100 I og árangurinn verður þýðari gangur, auðveldari gangsetning, betri nýting eldsneytis því efnið eyðir alls kyns óhreinindum í eldsneytiskerfinu. FÆST Á SHELL-BENSÍNSTÖÐVUM Skeljungur hf T M Y N SUÐURLANDSBRAUT 2 S. 82219 í HÚSI HÖTEL ESJU Þú fylgist með litmyndum þlnum framkallast og kóplerast á 60 mlnútum. Framköllun sem ger- ist vart betri. Á eftir getur þú ráófært þig vió okkur um útkomuna og hvernig þú getur tekiö betri myndir. Opið frá kl. 8—18.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.