Morgunblaðið - 03.08.1984, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984
25
Náttúruvemdarfélag Suðvesturlands:
Fuglalíf Tjarnarinn-
ar og íslensk skordýr
Náttúruverndarrélag Suðvesturlands fer ekki í ferð laugardaginn 4. ágúst
en vill benda áhugasömum náttúruunnendum, sem heima sitja á höfuðborg-
arsvaeðinu um verslunarmannahelgina, á hið fjölbreytta fuglalíf Tjarnarinnar
og sýningu á íslenskum skordýrum í Norræna húsinu.
A Tjörninni eða í nágrenni henn-
ar hefur verið hægt að sjá eftir-
taldar tegundir: Stokkönd, garg-
önd, duggönd, skúfönd, æðarfugl,
grágæs, sílamáf, hettumáf, kríu,
tjald, stelk, hrossagauk, sandlóu,
heiðlóu, þúfutittling, starra, skóg-
arþröst, auðnutittling og máríerlu.
I anddyri Norræna hússins hefur
verið komið fyrir sýningu á ís-
lenskum skordýrum. Sýningin er á
vegum Náttúrufræðistofnunar ís-
lands og mun standa til 13. ágúst.
Ýmsir erfiðleikar eru því sam-
fara að sýna íslensk skordýr, þar
sem flestar tegundanna eru smáar
og því oft lítill munur á tegundum
sjáanlegur með berum augum. öll
dýrin á sýningunni eru þurrkuð og
sett á nálar. Mörg skordýr er ekki
hægt að meðhöndla þannig og
verða aðeins varðveitt í vökva. Af
þeim sökum eru ýmsar gerðir ekki
sýndar, sem annars eru áberandi I
íslensku skordýrafánunni.
Skordýrunum hefur verið komið
fyrir í fimm borðum. í tveimur
þeirra eru ýmis skordýr úr ís-
lenskri náttúru. I þeim eru fiðrildi
og bjöllur mest áberandi, enda auð-
veldast að sýna tegundir þeirra
ættbálka. Þar eru einnig dægur-
fluga, steinfluga, skortítur, netv-
ængja, vorflugur, æðvængjur og
tvívængjur. í öðru borði eru ýmis
skordýr úr híbýlum, bæði meindýr
og skaðlaus dýr. Sumar tegund-
anna eru aðeins sýndar á myndum,
þar sem ómögulegt er að sýna ein-
tök af þeim við þessi skilyrði. Þá er
borð með ýmsum erlendum skor-
dýrum sem borist hafa til landsins,
ýmist með vindum eða varningi. Að
síðustu er borð með búum geitunga
og hunangsflugna ásamt tilheyr-
andi dýrum.
I sambandi við sýninguna vill
NVSV minna á tvær ferðir sem fé-
lagið fór í ágúst í fyrra í ferða-
röðinni „Náttúrugripasafn undir
berum himni". í fyrri ferðinni fór
NVSV fyrstu skordýraskoðunar-
ferð fyrir almenning sem vitað er
að farin hafi verið hér á landi undir
leiðsögn sérfræðings, en seinni fer-
ðin var viku seinna undir nafninu
„Skordýr og trjágróður“. (Þessi
„ferð“ var að vísu fyrirlestur enda
„farin“ þegar áliðið var sumars og
fá af þeim dýrum sem fjallað var
um voru enn á kreiki eins og segir í
kynningu.)
Þessar ferðir eins og aðrar í
þeirri ferðaröð fórum við til að
vekja athygli á stöðunni í bygg-
ingamálum Náttúrugripasafns Is-
lands. Þá fundum við hve margir
söknuðu þess að geta ekki séð
skordýr í sýningarsal náttúrugrip-
asafnsins, sem er til húsa í hinu
þrönga og óhentuga húsnæði við
Hlemm.
Eftir rúma viku, laugardaginn
11. ágúst, byrjar NVSV sína þriðju
ferðaröð og munum við kynna hana
næstkomandi föstudag. Við höldum
svo áfram ferðaröðinni „Umhverfið
okkar" til skiftis við hina nýju.
(Frá NVSV)
Bær Höfðaströnd:
Tvísett
í kartöflu-
garðinn
B«, Hörðaströnd. 31. júlí.
ÞOKUSÚLD hefur verið hér að
undanfórnu og því lítill þurrkur
enda er ísinn í nágrenni og andar
mjög köldu af norðri af ísnum.
Margir bændur eru þó búnir að
hirða upp fyrri slátt og eru jafnvel
byrjaðir á seinni slætti.
Kartöfluuppskera verður víða
góð og veit ég til að á einum stað
var sett niður fyrsta maí, en 26.
júlí var nokkuð tekið upp af
ágætri uppskeru. Á sama stað
var þá aftur sett niður í
tilraunaskyni og telja menn
fróðlegt hvort þar verði hægt að
ná uppskeru svona seint á
sumri.
Laugardaginn 28. júlí var hús-
ið, sem verið hefur í byggingu í
Drangey, tekið í notkun og fyrst
sofið í því þá nótt. Eins og ég hef
getið um áður lagði Skagafjarð-
arsýsla til efni í húsið, en Jón
bóndi á Fagranesi og synir hans,
sem hafa eyjuna á leigu, hafa
komið húsinu upp. Húsið er
tyrft á þaki, mjög vel frágengið
og fellur vel inn í landslag
Drangeyjar, enda stendur það á
góðum stað á eynni.
Eitthvað hefur verið um það
að ferðafólk hafi heimsótt
Drangey í sumar. _ Björn
SKYGGNU-
FILMU-
FRAMKÖLLUN
s antöS9>í!í
A
r
samkvæmt ttröng-
ustu gæðakrötum
(ilmuframleiöenda:
EKTACHROME,
ILFOCHROME.
FUJICHROME,
AGFACHROME
Sparið
allt að 20%
meö framköllunar-
ávísunum sem aöeins
fást hjá okkur.
Ath. í sumar höfum
viö opiö kl. 9—17.
LAUGAVEG1178 SÍMI81919
NÝ
SANIXRS
TÓMATSÓSA
Eftír margra ára vöruþróun,
með bestu faanleg hraeftií og ótal
bragðprófenir hefur okkur tekíst að
ftamleíða fytsta flokks tómatsósu,
sem nó feest á kynníngaiverðí.
Veljum íslenskt.
€ Sanitas
♦
■*
tet