Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 27

Morgunblaðið - 03.08.1984, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. ÁGÚST 1984 Skarphéðinn Magn- ússon - Minning Fæddur 16. febrúar 1921 Dáinn 26. júlí 1984 Mig langar að minnast bróður míns með örfáum orðum. Skammt er milli lífs og dauða er sagt. Eng- um dettur þó í hug að dauðinn sé nálægur þeim sem hraustir eru og hafa alla tíð verið. Guð einn ræður dauðastund þótt mannleg hönd reyni af fremsta megni allt til að halda í lífsneistann. En höggið verður meira á þá nánustu sem eftir lifa, ef andlát ber að, með þeim hætti sem varð þegar bróðir minn Skarphéðinn lést, hraustur, glaður að degi til og fram á kvöld en dáinn fyrri part nætur. Hann kvaddi okkur Katý og litlu Pálínu Ósk með kossi á sunnudag vegna þess að hann ætlaði að fara dag- inn eftir og vera í burtu eina viku með konu sinni á Laugarvatni, til hvíldar og skemmtunar. Fréttin barst á fimmtudagsmorgun eins og reiðarslag. Hann sem var hraustastur af okkur systkinun- um, og kenndi sér einskis meins. Ég gat ekki trúað þessu. Hann hafði farið fyrir örfáum árum í hóprannsókn hjá Hjartavernd af því honum var boðið að koma og þá reyndist allt í besta lagi, og þótti alveg sérstakt að hann skyldi aldrei hafa legið svo mikið sem einn dag á spítala. Þó man ég eftir einu skipti sem hann var talinn sjúklingur um hríð þá 11 ára, en hann tolldi ekki í rúmi því hann fann engan lasleika og enginn sá að hann væri veikur, en tvö systk- ina hans yngri, Einar þá 8 ára og ég 6 ára, vorum meira veik, með skarlatsótt og öll í sóttkví í nokkr- ar vikur og enginn mátti fara út. Hann sagði mér seinna að hann hefði ekkert verið veikur nema hvað einn flekkur hefði verið á fætinum en hefði verið ómögu- legur yfir að komast ekki út allan þennan tíma, en það hefði hjálpað mikið að pabbi spilaði og tefldi við okkur og hafði ofan af fyrir hon- um. Jafnvel fór í fótbolta við hann að mig minnir því stóra stofuborð- ið var tekið upp í rúm á meðan. Margt rifjast upp frá þessum ár- um. Ég átti marga bræður og var litla systir, yngst af hópnum og enginn furða þó eftir mér væri lát- ið þótt ég muni það ekki allt. Én alla vega höfum við Héðinn verið mjög samrýnd í gegnum ár- in, ekki síst eftir að dóttir mín fæddist en hún. var skírð Karítas Skarphéðinsdóttir. Það var lengi vonast eftir því að hann eignaðist telpu. Héðinn var einstaklega barngóður frá því ég man eftir mér og alla tíð. Honum þótti vænt um fósturbörn sín tvö ekki síður en sín eigin börn og einnig þeirra börn. Mér fannst hann halda upp á þau öll en mest hafði hann af Benedikt Bjarka að segja vegna þess að hann var hér á Islandi en hin tvö í Bandaríkjunum. Benni var sólargeislinn hans enda oft hjá afa og ömmu. Nú, svo var kominn einn enn sólargeisli og hefur hann verið skærastur sið- ustu tvö árin að ég held en það var Pálína ósk 2ja ára dóttir Karitas- ar og hennar manns Lárusar. Síð- asta gjöfin til hennar er óupptekin því hún á að fá hana þegar hún kemur i heimsókn næst og hafa hana þar, til að leika sér að eins og hann sagði. Þetta sýnir hvernig hann hugsaði um börnin. Hann hafði alltaf eitthvað fyrir þau sem komu í heimsókn. Skarphéðinn fæddist í Hnífsdal 16. febr. 1921 en þar bjuggu for- eldrar hans Karítas Skarphéð- insdóttir og Magnús Guðmunds- son nokkur ár en þau fluttu til ísafjarðar 1922 þar sem hann ólst upp. Hann fór mjög ungur á sjó- inn, fyrst á einn samvinnufélags- bátinn Auðbjörn, þar sem bróðir hans Þorsteinn var þá stýrimaður. Síðan fór hann á ýmsa báta og togara. Hann útskrifaðist úr Stýrimannaskólanum 1950. Eftir það var hann stýrimaður á skipum sem ég man nú ekki hvað heita. Nú síðast starfaði hann í Sunda- höfn hjá Eimskipafélagi íslands. Skarphéðinn giftist eftirlifandi konu sinni, Aðalheiði Sigurðar- dóttur, þann 6. júní 1953, hún mis- sti fyrri mann sinn á stríðsárun- um. Börn hennar og fósturbörn hans eru bæði gift. Sigrún Jóns- dóttir f. 14. nóv. 1938, gift Omer B. Kundak, þau búa f Dallas, Texas, og eiga tvö börn, öddu Cathaerine og Jón Ali. Sigurður Ægir Jónsson f. 20. mars 1943, giftur Helgu Guð- mundsdóttur þau eiga einn son Benedikt Bjarka sem fermdist í vor. Tvo syni eignaðist Skarphéð- inn með konu sinni, þeir eru: Magnús f. 6. ág. 1949, hann hefur búið með foreldrum sfnum, og Reynir f. 10. des. 1952, hann býr í Dallas, Texas, þeir eru báðir ógift- ir og barnlausir. Systkini Skarphéðins sem eftir lifa eru tvö hálfsystkini, Sófus á Akranesi og Hildur í Reykjavík og tvö alsystkini, Einar í Reykjavík og undirrituð. Ekki má ég ljúka þessum orðum án þess að minnas á áhugamál hans en það var knattspyrnan. Hann lét ekkert framhjá sér fara í sambandi við knattspyrnuna heima og heiman. Auðvitað var iBl, isfirska liðið, hans uppáhald, enda snerist hann fyrir þá sem í því eru eins og hann gat þegar þeir voru fyrir sunnan og kallaði þá „strákana sína". Héðinn bróðir var dóttur minni góður og er ég honum þakklát fyrir þá umhyggju og ást sem hann veitti henni frá því hún fæddist og alla tíð eins og faðir væri. Adda mágkona átti sinn þátt í því. Öddu og börnum hennar, Sigrúnu, Ægi, Magnúsi, Reyni og barnabörnum votta ég samúð mína. Pálína Magnúsdóttir f dag verður til grafar borinn frá Fossvogskapellu mágur minn, Skarphéðinn Magnússon, stýri- maður, Hraunbæ 92. Hann var fæddur í Hnífsdal 16. febrúar 1921, en ólst upp á ísa- firði. Foreldrar hans voru Karitas Skarphéðinsdóttir og Magnús Guðmundsson. Þau hjón eignuðust 10 börn. Það lætur að líkum að oft hefur verið þröngt í búi hjá svo barn- margri fjölskyldu á kreppuárum fyrir stríð. Um skólagöngu um- fram barnaskóla var ekki að ræða. Að vinna baki brotnu var hlut- skipti unglinga á þeim árum. Skarphéðinn var aðeins 15 ára, þegar hann bvrjaði sjómennsku á bátum frá Isafirði. Hann lauk prófi frá Stýrimannaskólanum í Reykjavík árið 1950. í rösk 40 ár starfaði hann á bátum og togur- um, sem háseti og síðar stýrimað- ur. Síðustu árin starfaði hann sem 27 verkamaður í landi m.a. hjá Eim- skipafélagi fslands. Skarphéðinn kvæntist 1948 systur minni, Aðalheiði, sem þá var ekkja eftir Jón Sigurgeirsson, stýrimann, sem fórst með togar- anum Max Pemberton á stríðsár- unum, með tvö ung börn, Sigrúnu, sem gift er í Dallas og Sigurð Ægi, sem er innheimtustjóri hjá Krist- jáni ó. Skagfjörð hf. Þau Skarp- héðinn eignuðust tvo syni, Magn- ús, vörubifreiðastjóra hjá ísbirn- inum hf., og Reyni sem er vöru- flutningaverktaki í Dallas. Skarp- héðinn var umhyggjusamur og góður heimilisfaðir og fóru stjúpbörn hans ekki varhluta af því. Þegar sjómennskunni lauk gafst loks tími til ýmissar tómstunda- iðju, sem ekki hafði verð unnt að sinna, eins og t.d. að fara á knattspyrnukappleiki og ferðast. Sem unglingur hafði Skarphéðinn ekki átt þess kost að stunda knattspyrnu, vegna sjómennsk- unnar. Á seinni árum lét hann sig ekki vanta á neinn knattspyrnukapp- leik, sem máli skipti hér í Reykja- vík. Þá voru og sumarleyfi notuð til að kynnast landinu. Á hverju sumri fóru þau hjónin með tjald sitt og gistu alla helstu merkis- staði landsins í sveit og við sjó. Þá fóru þau nokkrum sinnum til Bandaríkjanna til að heimsækja börn sín tvö, sem búsett eru í Dall- as í Texas. Þessara ferðalaga nutu þau í ríkum mæli. Þau voru á ferð, stödd að Laugarvatni er kallið kom, fyrirvaralaust. Tími til að kveðja og þakka gafst ekki. ótal ánægjulegar minningar frá liðnum árum leita á hugann. Að leiðarlokum þakka ég Skarphéðni vináttu og ánægjulega samfylgd og ekki síst, hve hann var hlýr og góður við aldraða móður mína, sem hann var lengi samvistum við. Hann var drengur góður. Bless- uð sé minning hans. Ásberg Sigurðsson Brœðraminning: Olafur Sigurbergur Sigurgeirs- son og Sigurjón Sigurgeirsson Það er skammt stórra högga á milli í ættinni. Bræðurnir í Hlíð báðir látnir með rúmlega hálfs árs millibili. Okkur langar til að minnast þeirra í fáum orðum nú að leiðarlokum. Þeir bræður bjuggu félagsbúi að Hlíð, Austur-Eyjafjallahreppi, og var samstarf þeirra með eindæm- um gott. Báðir unnu ættjörð sinni og sveit og gat hvorugur hugsað sér annan samastað en Hlíð. Daprast ekki trú og tryggð traust og fegurð ástarinnar. Fann ég gleði, frið og dyggð, fól þér leyndarmál og hryggð. Eyjafjalla indæl byggð, unaðsheimur bernsku minnar. ((T.E.) Ljóð Rangæinga.) Ólafur Sigurbergur Sigurgeirs- son bóndi í Hlíð lést í Landakots- spítala 26. október 1983 eftir stutta en erfiða sjúkdómslegu. Bergur, eins og hann var alltaf kallaður, fæddist 3. mars 1916. Var hann þriðji í röð 10 barna hjónanna Sigurgeirs Sigurðssonar og Sigurlinu Jónsdóttur í Hlíð og komust niu þeirra upp. Faðir hans lést árið 1934. Var það mikill missir fyrir konu með stóran barnahóp, en þá voru fimm systk- inanna innan við fermingu. Kom það f hlut elstu barnanna ásamt móður þeirra að sjá heimilinu far- borða. Þá kom sér vel samheldni og hjálpfýsi þeirra hvert við ann- að eins og reyndar við alla sem þau hafa átt samskipti við. Hefur sú samheldni systkinanna í engu dvínað eftir að þau fóru að heiman og stofnuðu sínar eigin fjölskyld- ur. Á heimilinu var einnig móðir Sigurlínu, Þóranna Sveinsdóttir, og var hún mikil stoð þeirra því nóg var að gera. Hún dvaldi í Hlíð allt til æviloka, en hún lést 1948. Bergur stundaði vinnu utan heimilis eins mikið og mögulegt var því jörðin var lítil og gaf lítið af sér en munnarnir margir sem þurfti að metta. Aðallega var um sjósókn að ræða og þá frá Vest- mannaeyjum og reri hann 16 ver- tíðir. Ekki var þó fundið fé að fara á vertíð, því þá var engin kaup- trygging og kom það jafnvel fyrir, ef ekki fiskaðist, að hann kæmi snauðari heim en þá er hann lagði af stað. Þegar hann var á vélbátnum Ófeigi frá Vestmannaeyjum varð hann einu sinni svo lánsamur að bjarga mannslífum. Það var í vondu veðri að báturinn kastaðist á hliðina. Bergur og tveir aðrir menn voru á þilfari og tók þá alla út. Bergi tókst að komast aftur upp í bátinn og bjarga félögum sínum tveim um borð. Þegar eig- andi bátsins, sem var Jón á Hólmi, frétti af þessari björgun varð hon- um að orði: „Já, það munar um handtökin hans Bergs." Bergur var traustur og tryggur þeim sem hann umgekkst og öllum þeim sem áttu þvf láni að fagna að kynnast honum þótti vænt um hann. Hann bjó alla tíð i Hlfð og hvorki kvæntist né eignaðist börn, en börnunum í Hlíð var hann sem besti faðir og vinur hvort heldur það voru heimilisbörnin eða önnur sem þar dvöldu um lengri eða skemmri tíma. Er ekki að efa að þau minnast hans með hlýhug og þakklæti og þeirra bræðra beggja. Ungur frændi Bergs ber nafn hans og þótti honum mjög vænt um það. Sigurjón Sigurgeirsson var næstelstur þeirra Hlíðarsystkina, fæddur 9.6. 1914, og hafði nýlega haldið upp á sjötugsafmæli sitt er hann lést að heimili slnu að kvöldi dags hinn 17. júlí sfðastliðinn. Hafði hann fyrr á árinu fengið fyrirboða þess er koma skyldi, því hann var f tvfgang á þessu ári bú- inn að liggja á Landakoti. Sfðustu vikurnar dvaldi hann heima hjá ástvinum sínum. Sigurjón fór snemma að vinna. fyrst heima fyrir og fljótlega einn- ig utan heimilis eins og með þurfti og hægt var. Alla tíð var hann þó fyrst og fremst bóndi. Hann stundaði félagsstörf af miklum áhuga. Ungur gekk hann í Ung- mennafélagið og starfaði þar og þeir bræður báðir. Sveitarstjórn- armál lét hann og mikið til sín taka og sat í fjölda nefnda og fé- laga sem stuðluðu að bættum bú- skaparháttum og var hann í stjórn margra þeirra, meðal annars í hreppsnefnd. Sigurjón og Bergur voru allt frá æskuárum illa haldnir af astma (heymæði) sem ágerðist mjög síð- ustu árin og rændi þá starfsorku. Kom sér þá vel að eiga Geir bróð- ur þeirra að, en hann hefur alltaf verið boðinn og búinn að vinna heimilinu allt það gagn sem hann hefur getað. Sigurjón kvæntist eftirlifandi konu sinni, Guðrúnu Eirfksdóttur, 28. des. 1963 og reyndist dóttur hennar, Hugrúnu Kristfnu Helga- dóttur, í engu síður en sínum eigin börnum, en hann var mjög ástrík- ur faðir. Þau Guðrún og Sigurjón eignuðust þrjú börn sem öll eru í heimahúsum. Þau eru: Eirfkur Ingi, sem tók við hlut Bergs í búskapnum við fráfall hans, Sig- urlín Þórlaug og Sigurgeir Hlíðar. Hugrún er gift og býr í Hafnar- firði. Það er þung raun fyrir Guðrúnu og börnin að sjá á bak elskuðum eiginmanni og föður. Við teljum það gæfu okkar að hafa þekkt fólk eins og Berg og Sigurjón og viljum þakka af alhug þriggja áratuga kynni. Guð blessi minningu þeirra og styrki fjöl- skylduna f Hlíð og aðra vanda- menn. Þórhildur og Silla Birting afmælis- og minningargreina ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. í minn- ingargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíð- um Morgunblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Legsteinar granít - - marmari ^Kmíi i.f Opið kvöld Unnarbraut 19, Seltjarnarnesi, og helgar sími 620809 og 72818.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.