Morgunblaðið - 10.08.1984, Side 4
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1984
Rætt við
Helga Gíslason myndhöggvara
Texti: Hildur
Einarsdóttir
„Ég vil í verkum mínum
gefa skúlptúrnum hreyf-
ingu, sitt sjálfstæða líf, sem
byggir á hinum formrænu
og tilfinningalegu tengslum
við manninn og verk hans,
en skilur sig frá hinum ytri
raunveruleika, því þekkj-
anlega og nærtæka.“ Þann-
ig kemst Helgi Gíslason
myndhöggvari að orði í
sýningarskrá er hann lét
gera í tilefni einkasýningar
sinnar á Kjarvalsstöðum á
síöastliönu ári.
Hann heldur áfram aö spinna vlö þessar
hugleiöingar sínar þar sem viö sitjum í
vinnustofu hans í Vogarselinu og tölum um
verk hans.
„Form og efni eru órjúfanleg í högg-
myndinni,” segir hann. .Éftir aö óg fór aö
vinna myndir mínar í brons, en ég haföi
unniö í steinsteypu áöur, þá breyttust
myndirnar aö inntaki. Þær uröu margræð-
ari og myndhugsun mín opnaöist. Bronsiö
er líka athyglisvert efni aö þvi leyti aö þaö
ber í sér andstæður sínar þaö er í senn
mjúkt og sveigjanlegt, en hefur þó hörku
málmsins, er létt í umfangi sínu en þungt f
eöli sínu. Svo á þetta efni sína sögu “trad-
ition” og þaö gefur því líka gildl."
Þannig talar Helgi um höggmyndir sínar,
sem umkringja hann þöglar en segja samt
sögu af innra lífi þar sem aö andstæðurnar
togast á líkt og í efninu sjálfu. Þær lýsa
léttleika og iöandi lífi og þaö er jafnvel eins
og sumar þeirra vilji hoppa af stallinum,
sem þær standa á. Aörar tjá tómleika og
vonleysi.
„Ég hef áhuga á manninum, hann er lífiö
sjálft,“ segir Helgi, jjegar blaðamaöur
imprar á þessum hugsunum sínum. „Ég
reyni aö túlka hlnar mannlegu tilfinningar
Ljóam. Arni Sœberg.