Morgunblaðið - 10.08.1984, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 10. ÁGÚST 1984
63
W H"1
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 11—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Sjálfs er höndin hollust
Sigurjón Jónsson, Asparfelli 12,
skrifar:
Eins og kunnugt er, hafa komm-
ar löngum iðkað það að skrifa
lofgreinar hver um annan þar sem
fram hefur verið sett á innfjálgan
hátt, að leiðtogar þeirra allir og
liðsmenn séu allir snillingar yfir-
burðamenn að gáfum og starfs-
hæfni. Raunar einnig að góð-
mennsku, enda þótt á enga menn á
jarðríki hafi sannast aðrar eins
sakir, sbr. Stalín sál., sem um var
ort í Animal Farm eftir Orwell:
„Friend of the fatherless,
Fountain of happiness,"
o.s.frv.
_ MT. 3o. ......
Svavarersúp-
erintellíg ent
j SiðsM. þillur Þ,nfi,ír v„
,‘*rr Þt' »»uu \m*
■urmcnn ivrggjj flollu
Sv..„ „
,, 2”
ZJ
Sj*** ">Mt "Ivri.W
** ‘7 »wnn vioni ckl.
Cittrra
m. 1,,!,^
l*f"sðarofl
spssa'Eíss;
°dnifynr hbviöurvrri f,4kt
**« var mcrgur mihini
Þ.^“um VHV'ðum v.ðuviu
!“v'"n',reken<Jum i,| ^ ■ ’
fðu helr
NTólk. Mr, 'k'.i t**4*! hreyii tnOH
r fbúA, - ■ rnnN 'ekrö uppTfl
,v , , *** Ærla að hafa al|. i,ih.i
'ynd, ráAa við að þc„, “y,,,IN*
«o®-
1 * tkfinur- -a
Hólgreinin um Svavar Gestsson, sem við er átt í bréfinu.
Já, hann var sannarlega vinur
föðurleysingjanna og uppspretta
hamingjunnar.
Enn halda kommar uppteknum
hætti: Að skrifa hástemmt lof
hver um annan og það svo, að í
fornöld hefði slíkt orðaval verið
kallað háð en eigi lof (?). Þá er
reynt af alefli að koma framleiðsl-
unni í andstæðingablöðin, þvi að
það vita kommar, að fáir taka
mark á því sem birtist í Þjóðvilj-
anum, jafn oft og hann hefur verið
staðinn að beinum lygum. Grunur
leikur og á því, að kommaleiðtog-
arnir iðki það að skrifa um sig
sjálfa, þegar samherjarnir slapp-
ast við skriftirnar. Sem sagt:
Sjálfs er höndin hollust. Hefur
þetta oft þekkst á stílnum, þar
spara þeir nú ekki lofið um eigin
snilld.
Dæmi: í NT (Tímanum) kom 30.
maí sl. nafnlaus hólgrein um
Svavar Gestsson (ásamt mynd af
„formanninum"). Eigi var höfund-
ur greinarinnar nafngreindur, en
hins vegar birt nafnnúmerið
21%—9818. Sama greinin birtist
svo í DV 5. júní og í Þjóðviljanum
einnig 5. júní. í Þjóðviljanum var
greinin þó ómerkt með öllu, enda
hafa þeir vafalaust farið nærri um
það, hvar höfundarins væri að
leita?
Nú er eftir pylsuendinn, og þar
er rúsínan: Samkv. upplýsingum
Þjóðskrár (Hagstofu) er þetta
nafnnúmer, 2196—9818, ekki til.
Þetta númer hafa því kommar bú-
ið til???
Af þessum dæmum geta menn
séð vinnubrögð komma; þeirra ær
og kýr.
Hitt er svo furðulegt, að ábyrg
blöð skuli gleypa við svona fram-
leiðslu, án þess að athuga, hvort ast úr „austanáttinni“.
um hugsanlegar falsanir gæti ver- Virðingarfyllst, með þökk fyrir
ið að ræða, því að við öllu má bú- birtingu.
Alúðlegt starfslið
Paul V. Michelsen skrifar:
Velvakandi góður!
Mig langar hér til að koma á
framfæri þakklæti mínu til starfs-
fólks Landakotsspítala.
Þannig er, að ég þurfti að gang-
ast undir mjög hættulega hjarta-
skurðaðgerð og annaðist mig Sig-
urgeir Kjartansson ásamt öðrum
sérfræðingum og hjúkrunarliði.
Það má kallast hreint kraftaverk
hve allt tókst vel. Allt starfsliðið
var stórkostlega hjálplegt og hlý-
legt í viðmóti og get ég ekki nóg-
samlega þakkað því fyrir það.
Sendi ég hér með öllum á
Landakotsspítala mínar hjartan-
legustu kveðjur og þakkir fyrir
góða aðhlynningu. Guð blessi ykk-
ar starf í framtíðinni.
Þess virði að
vera áskrifandi
Helga Óskarsdóttir, Njarðvíkum,
skrifar:
Kæri Velvakandi!
Eftir að hafa lesið fyrsta hefti
tímaritsins „Storð“ á þessu ári tel
ég ástæðu til að stuðla að því að
sem flestir fái tækifæri til að lesa
þetta blað, sem með uppbyggingu
sinni stuðlar að sem þroskavæn-
legustum lestri, færðum í nútima-
búning.
Blaðinu tekst að flytja lesend-
um sinum valið efni, sem veitir
ánægju hinum ólíkustu lesendum,
og birtist það í útdráttum úr is-
lenskum bókmenntum ásamt ýms-
um öðrum, i máli og ægifögrum
myndum. Með þessum skrifum vil
ég einnig láta í ljós þakklæti til
forráðamanna tímaritsins fyrir
merkilegt framlag. Ég tel það
virkilega þess virði að vera áskrif-
andi og eiga slíkt timarit sem hef-
ur gildi.
Þessi sýnishorn sem ég hef
nefnt hér styrkja það álit mitt að
blaðið sé mjög gott og meira en
það. Segja má að okkar islenska
þjóð standi og falli með bók-
menntum sem þjóðin hefur geymt
um aldir og gert hafa hana fræga
um víða veröld. Því er mikilvægt
að halda og varðveita kjarna ís-
lenskrar tungu og sögu, og hefur
umrætt timarit, Storð, greinilega
haft það að leiðarljósi.
Þessir hringdu . . .
Heilsulindin
Bláa lónið
BJ. hringdi og hafði eftirfarandi
að segja:
„Mig langar til að beina þeirri
spurningu til landlæknis eða
þeirra sem geta svarað því, hvort
Bláa lónið hafi einhverja þýðingu
fyrir gigtar- og kölkunarsjúkl-
inga?
Nú hef ég aðeins heyrt talað um
Bláa lónið sem heilsulind fyrir
sjúklinga sem þjást af exemi, en
leikur forvitni á að vita hitt.“
Gefið því gaum
sem þið kaupið
Þórdís hringdi og hafði eftirfar-
andi að segja:
„Mig langaði til að benda fólki á
að athuga vel hvaða ávexti það er
Bláa lónið í Svartsengi.
Fólk ætti að mati bréfritara að
skoða gaumgæfilega ávexti og
grænmeti sem það er að kaupa.
að kaupa í verslunum hér.
Þannig var að um daginn keypti
ég fjöldann allan af ávöxtum i
einni af verslunum borgarinnar og
tjáði stúlkan mér að þeir væru all-
ir nýir og ferskir. Ég er nú vön að
grandskoða ætfð það sem ég er að
kaupa, en í þessu tilviki var ég á
mikilli hraðferð og gaf mér ekki
tfma til að skoða ávextina nánar.
Þegar hins vegar heim var kom-
ið, uppgötvaði ég, mér til ómældr-
ar gremju, að ávextirnir voru allir
meira og minna óþroskaðir og
óætir með öllu.
Þvf áminni ég fólk um að vera á
varðbergi fyrir slíku þegar farið
er út að versla.“
Afmælisþakkir
Hjartans þakkir sendi ég vinum mínum, félagssystrum
og aUri fjölskyldu minni fyrir hina miklu vinsemd sem
mér var sýnd á afmælisdaginn minn, þann 1. ágúst.
Lifið öll heil. , „ _ ,
Margret E. Schram,
Vesturgötu 52, Reykjavík.
MEÐ ÆVIAGRIPUM
UM 460 HAFNFIRÐINGA
Þessi bók verður gefin út í tveim bindum. Fyrra
bindið kemur út í október, en hið síðara næsta
vor. Þeir, sem óska eftir að gerast áskrifendur, fá
bækurnar á sérstöku afsláttarverði, kr. 988.- fyrir
fyrra bindið. Áskrift tilkynnist eigi síöar en 15.
ágúst undirrituðum útgefanda, simar 50764 og
51874 á venjulegum skrifstofutíma.
Árni Gunnlaugsson,
Austurgötu 10, Hafnarfirði.
VISA kynnir vöru
Qg pjónustustaöi
FATAVERSLANIR — FJÖLSKYLDU:
Bombey, Reykjavíkurvegi 62,
Hafnarfirði 91-54600
Domus, vöruhús, Laugavegi 91 91-12723
Egill Jacobsen, Austurstræti 9 91-11116
Embla, Strandgötu 29, Hafnarfirði 91-51055
Eyjabær, Vestmannabraut 29—30,
Vestmannaeyjum 98-1509
Faco, Laugavegi 37 91-12861
Fataval, Hafnargötu 31, Keflavfk 92-2227
Flóin, Laugavegi 21 91-19274
Vesturgötu 4 91-19260
Gallerí, Ráöhústorgi 7, Akureyri 96-26515
Gatsby, Kaupangi, Mýrarvegi,
Akureyri 96-26565
Geysir, Aöalstræti 2 91-11351
Hagkaup, Skeifunni 15 91-686566
Hilda, Bolholti 6 91-81699
Hjartað, Strandgötu 31, Hafnarfirði 91-53534
(sbjöminn, Borgarbraut 1, Borgarnesi 93-7120
Karnabær, Glæsibæ, Álfheimum 74 91-45800
Laugavegi 20 91-45800
Laugavegi 66 91-45800
Nýbýlavegi 4, Kópavogi 91-45800
Kaupfélag Hafnfirðinga,
Strandgötu 28, Hafnarfirði 91-50224
Miðvangi 41 91-50292
Kaupfélag Suðurnesja,
Hafnargötu 61, Keflavík 92-1075
Kóda, Hafnargötu 17, Keflavík 92-4440
Krakkar, Laugavegi 51 91-13041
Leikhólmi-Fatadeild, Hafnargötu 18
Keflavík 92-3610
Les Prjón, Skeifunni 6 91-685611
Mikligarður, Holtagörðum 91-83811
Nesval, Melagötu 11, Neskaupstað 97-7707
Portið, Kirkjubraut 6, Akranesi 93-2270
Ragnar Sverrisson hf.,
Gránufélagsgötu 4, Akrueyri 96-23599
Skemman, Skeiði, ísafiröi 94-4024
Torgið, Austurstræti 10 91-27211
Viktoría, Laugavegi 12 91-14160
Vinnufatabúðin, Laugavegi 76 91-15425
Vörumarkaöurinn, Ármúla 1A 91-686113
Verslió meó V/SA