Morgunblaðið - 17.08.1984, Side 4

Morgunblaðið - 17.08.1984, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 Innflutta grænmetið: Var á „neyðarleyfi“ og er að mestu selt GRÆNMETI það sem Eggert Kristjánsson & co. flutti inn í byrjun mánaðarins, og landbúnaðarráðu- neytið neitaði að árita innflutings- skjöl fyrir, var dreift í verslanir og að verulegu leyti selt áður en ráðu- neytið neitaði fyrirtsekinu um inn- flutning þess. í yfirlýsingu sem Morgunblaðinu hefur borist frá Gísla V. Einarssyni framkvæmda- stjóra hjá Eggerti Kristjánssyni kemur fram að grænmetið var af- greitt til fyrirtækisins á svokölluðu „neyðarleyfi", það fór strax í sölu og var að verulegu leyti selt þegar reynt var að fá áritun tollskjala. í yfirlýsingu Gísla kemur fram að fyrirtækið telur að ekki hafi verið settar þær reglur um inn- flutning grænmetis sem um var rætt að gert yrði sameiginlega af landbúnaðarráðuneytinu og við- skiptaráðuneytinu. Það hefði ör- ugglega verið aðalorsök þess að upp hafi komið misskilningur og mistúlkun á milli hlutaðeigandi aðila um framkvæmd mála. Segir hann að ekki hafi verið venja að veita innflutnings- og gjaldeyris- leyfi fyrir innflutningi á grænmeti og þar af leiðandi hafi bréf ráðu- neytisins frá 16. júlí ekki verið skilið þannig að verið væri að setja ákveðin tímamörk vegna innflutnings á nýju grænmeti, heldur eingöngu á kartöflum. Síðan segir orðrétt í yfirlýsing- unni: „Þegar fyrirtækinu barst bréf ráðuneytisins frá 16. júli 1984 voru engu að síður afturkallaðar allar pantanir til fyrirtækisins á nýju grænmeti, sem ræktað er hérlendis og hægt var að stöðva afgreiðslu á. Hinsvegar bárust fyrirtækinu tvær sendingar á grænmeti eftir þann tíma, og urðu þær síðar tilefni umræddra blaða- skrifa. Voru þær afgreiddar til fyrirtæksins á svokölluðum „neyð- arleyfum" eins og algengt er um viðkvæma matvöru, sem þolir illa geymslu. Getur varan þá farið strax í sölu, en tollskjöl eru af- greidd síðar. Svo var farið að í þessu tilviki en fjarvistir vegna sumarleyfa, bæði í fyrirtækinu og í landbúnaðarráðuneytinu, urðu þess valdandi að áritun á tollskjöl dróst og var loks hafnað. Var þá sölu vörunnar hætt. En birgðaat- hugun hefur síðar leitt í ljós að minna var eftir af grænmetinu en ætlað var í fyrstu, þegar áritun- inni var hafnað. Fyrirtækið verð- ur því ekki fyrir verulegu tjóni af þessum sökum, né heldur innlend- ir framleiðendur þar sem græn- metið var selt áður en framboðs á framleiðslu þeirra fór að gæta á markaðnum." Guðmundur Sigþórsson skrif- stofustjóri í landbúnaðarráðu- neytinu sagði, þegar álits hans á þessum áli var leitað, að ráðuneyt- ið hefði nýlega fengið upplýsingar um hvernig málinu væri komið og hefði það ekkert verið rætt 1 ráðu- neytinu. Kvaðst hann því ekkert geta um málið sagt, hann þyrfti fyrst að ræða það við ráðherra og fleiri. Sagði hann að grænmetis- innflutningur hefði haft áhrif á markaðinn, því það hefði tekið upp markað sem innlent grænmeti hefði annars setið að. Morgunblaðii/Árni Sæberg Við upphaf fundar þeirra Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra og Þorsteins Pálssonar formanns Sjálfstæðisflokksins í gær. Stjórnarflokkarnir: Vidræður halda áfram næstu daga „VIÐ MUNUM hittast tveir saman á fundi á nýjan leik á morgun, og eftir helgi reikna ég svo með að skriður komist á viðræðurnar," sagði Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokksins í samtali við blm. Mbl. í gær er hann var spurður fregna af fundi hans og Steingríms Hermannssonar forsætisráðherra í gær, þar sem þeir ræddu endurskoð- un stjórnarsáttmálans. Þorsteinn vildi ekki tjá sig efn- islega um viðræðurnar og þegar blaðamaður ræddi við forsætis- ráðherra, tók hann í sama streng, og sagði að þeir hefðu gert um það samkomulag að ræða ekki efnisleg atriði viðræðnanna við fjölmiðla. Að öðru leyti sagði Steingfimur að þetta hefði verið ágætur fund- ur, og það lægi nú ljóst fyrir hvað það væri sem setja þyrfti niður á blað og ganga frá. „Ég er bjart- sýnn á að við getum unnið þetta fljótt og vel og að niðurstöður liggi fyrir innan fárra vikna," sagði for- sætisráðherra jafnframt. Flugvélarflakið af Eiríksjökli: Borgfirðingarnir fengu flak og mótor % - flugmaðurinn kærður fyrir að þjófkenna loftferðaeftirlit og björgunarsveitamenn Mbl./RAX. Björgunarmenn við flak bresku flugvélarinnar á Eiríksjökli að morgni 22. júní sl. „MÁLINU er lokið hvað okkur varð- ar. Flugmaðurinn fékk í dag þau tæki úr vélinni, sem hann taldi sig geta notað aftur og lét okkur hafa afsal fyrir flakinu og mótornum,“ Norræna húsið: Herman Hebler sýnir grafíkverk LAUGARDAGINN 18. ágúst verð- ur opnuð í sýningarsölum Norræna hússins sýning á grafíkmyndum eftir norska myndlistarmanninn Herman Hebler. Herman Hebler er fæddur í Fredrikstad árið 1911. Hann stundaði m.a. nám í Essen árin 1937 til 39 auk þess sem hann fór námsferðir til ýmissa landa, einkum í Evrópu. Eins og ýmsir aðrir þekktir norskir listamenn hlaut hann fyrst viðurkenningu utan heimalandsins eftir að hafa búið við heldur kröpp kjör heima fyrir, en hann fékk verðlaun við Riverside museum í New York árin 1957 og 1958. Herman Hebler er einkum þekktur sem grafíklistamaður og vinnur mest í silkiþrykk, en sú tækni hæfir myndmáli lista- mannsins mjög vel. Hann hefur þróað ákveðna tækni í sambandi við þrykk sem gefur uppbygg- ingu myndflatarins meira líf. Á sýningunni í Norræna húsinu eru aðeins grafíkverk, en mál- verk Heblers minna um margt á silkiþrykk hans. Sýningin í Norræna húsinu verður opin daglega kl. 14—19 til sunnudagsins 2. september. (Úr frétUtilkynnini;u) sagði Þorsteinn Kristleifsson I Húsafelli, einn þeirra sem náði til byggða flaki bresku flugvélarinnar er brotlenti á Eiríksjökli í sumar. Eins og fram kom í Mbl. á miðviku- daginn hafði flugmaður og eigandi vélarinnar gert kröfu um að fá flakið og öll tæki, sem í því voru, framselt sér án þess að á móti kæmi nokkuð til þeirra, er björguðu því af jöklin- um. Hyggjast Borgfirðingarnir nú kanna hvort eitthvað í mótor vélar- innar sé nýtilegt. Flugmaðurinn, Michael Dukes, kom til landsins í fyrrakvöld og gerði sér ferð í Húsafell í gær- morgun, þar sem hann fékk afhent þau tæki er hann óskaði eftir. Áætlað andvirði þeirra tækja er um 300 þúsund krónur. Fyrr um morguninn hafði hann komið á skrifstofu Loftferðaeftirlitsins og fengið þar afhentan talstöðvar- búnað, sem rannsóknarnefnd flugslysa hafði fjarlægt úr flakinu á slysstað 21. júní sl. Neyðarsend- irinn úr vélinni, sem ekki hafði farið í gang við slysið, er enn í Ernst sigraði á í Gausdal með SKÁKMÓTINU í Gausdal lauk í gær, fimmtudag, með sigri Svíans Ernst sem hlaut 7 vinninga. Karlson, Svíþjóð, var í öðru sæti með sex og hálfan vinning. Guð- mundur Sigurjónsson, Margeir Pétursson, Bandaríkjamaðurinn Lein, Ungverjinn Sax og Tékkinn Jansa voru í þriðja til sjöunda sæti með sex vinninga hvor. Arn- rannsókn hjá tæknimönnum Pósts og síma. Á skrifstofu Loftferðaeftirlits- ins taldi Dukes sig sakna fleiri tækja úr flakinu og kom til orða- hnippinga þar á staðnum. Hvarf hann þá á brott en síðar í gær óskaði Grétar Óskarsson, fram- kvæmdastjóri Loftferðaeftirlits- ins, eftir því við Rannsóknarlög- reglu ríkisins að rannsakaður yrði „áburður Dukes þess efnis að Flugmálastjórn/loftferðaeftirlit og björgunarsveitir í Borgarfirði hafi stolið verðmætum (tækjum og búnaði) úr flaki flugvélarinn- ar“. Var sérstaklega óskað eftir því að málið yrði rannsakað á meðan Dukes væri staddur hér og áður en hann færi með einhver tæki og búnað úr landi. Þegar til átti að taka var flugmaðurinn á leið til Englands með áætlunarvél Flugleiða. Loftferðaeftirlitið hefur jafn- framt óskað eftir því við Lloyd’s tryggingafélagið í London, sem skv. upplýsingum Mbl. mun hafa greitt tryggingafé vélarinnar að fullu, að þurfa ekki framvegis að eiga samskipti við flugmanninn. — Þrátt fyrir itrekaðar tilraunir tókst blm. Mbl. ekki að ná tali af Michael Dukes í gær. skákmótinu sjö vinninga þór Einarsson hlaut fjóra vinn- inga, Árni Árnason þrjá vinninga og Guðmundur Halldórsson tvo vinninga, en hann á biðskák. Síðustu skákir mótsins voru tefldar í morgun og bar Margeir Pétursson sigurorð af Lein, en Guðmundur Sigurjónsson gerði jafntefli við Norðmanninn S. Agdestein.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.