Morgunblaðið - 17.08.1984, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984
Walter Mondale á
kosningaferðalagi
Memphis, 15. ájfÚHt. AP.
WALTER
Mondale, for-
setaframbjód-
andi demó-
krata í Banda-
ríkjunum, hélt í
gær í tveggja
daga kosninga-
ferð til Suður-
ríkjanna. Hóf
hann för sína
með loforðum um að efla herstyrk
Bandaríkjanna á sviði hefðbundinna
vopna fram yfir kjarnorkuvopn og
hét að endurskipuleggja yfirher-
stjórn landsins, ef hann yrði kosinn
forseti.
Mondale lagði áherzlu á þá stað-
hæfingu, að Reagan forseti hefði
orðið til þess að veikja herstyrk
Bandaríkjanna með því að leggja
megináherzlu á kjarnorkuvopn.
Sagði hann, að það væri mikil
spurning, hvort Bandaríkjamenn
réðu yfir hernaðarmætti, sem
væri í samræmi við það, „sem við
borgum fyrir hann“.
Mondale hugðist heimsækja
Kentucky í dag en fara síðan til
Arkansas og Tennessee. Reagan
sigraði með naumum meirihluta í
öllum þessum ríkjum f forseta-
kosningunum 1980.
Dularfullur hlut-
ur finnst í Ohio
Leifar af sovézkri eldflaug?
Fairborn, Ohio, 16. igúsl. AP.
DULARFULLUR hlutur úr málmi
fannst í gær á afviknu svæði í Ohio,
einu af Miðvesturríkjum Bandaríkj-
anna. Hlutur þessi var sýnilega hluti
af eldfiaug, sem notuð hafði verið til
þess að skjóta upp sovézkum
geimhnetti á braut umhverfis jörðu.
Skýrði Ron Joy, talsmaður banda-
ríska flughersins, frá þessu í dag.
Hlutur þessi var sívalur í lögun
og bar áletrun á rússnesku.
Fannst hann þremur dögum eftir
að sovézk geimflaug hafði gefið
frá sér ljósmerki, er hún kom inn í
gufuhvolf jarðarinnar. Samkvæmt
samningi frá 1968 eiga Sovétmenn
rétt á að fá hlut þennan afhentan.
Joy kvaðst hins vegar ekki vita,
hvort þeir ættu eftir að krefjast
hans.
Það lá við stórslysi á Vesturport-brautarstöðinni í Kaupamnnahöfn, þegar
10.000 lítrar af bensíni fossuðu úr niðurgröfnum bensíngeymi, sem orðið
hafði fyrir skemmdum af völdum vinnuvéla.
Kaupmannahöfn:
Sprengihætta
í Vesturporti
UM TÍU þúsund lítrar af bensíni
streymdu fram á Vesturport-
brautarstöðina í Kaupmannahöfn
í síðustu viku og ollu gífurlegri
sprengihættu.
Var það aðeins fyrir snðr
handtök lögreglu og slökkviliðs,
sem tókst að afstýra stórslysi,
að sögn danska blaðsins Politik-
en.
Leki kom að gömlum, niður-
gröfnum bensíngeymi, þegar
vinnuvélar voru að grafa fyrir
leiðslum. Lögregla og slökkvilið
lokuðu þegar í stað aðliggjandi
götum, og lestarferðir voru
stöðvaðar. —
Málið er í rannsókn.
194 saknað eftir
að bát hvolfdi
Kuala Lumpur, 15. ágúst. AP.
194 ER saknað eftir að bát frá Indó-
nesíu hvolfdi skammt fyrir utan
Borneo-eyju.
Alls voru 200 manns með bátn-
um, sem auk heldur var hlaðinn
timbri. Sex var bjargað af sjó-
mönnum, sem voru á veiðum ná-
lægt slysstaðnum.
:4
Komin til Suez
Egypzkur sjóliði virðir fyrir sér brezkan tundurduflaslæðara, sem kominn er til Súezflóa og taka mun
þátt í hreinsunaraðgerðum þar.
Persaflóastrfðið:
skipum nem-
millj. dollara
Tjón á
ur 500
Loodon, 15. ágúst AP.
ÍRAN og írak hafa ráðizt á 81 skip á
Persaflóa síðan stríðið milli ríkjanna
brauzt út fyrir fjórum árum og hafa
tryggingaðilar orðið að greiða meira
en 500 millj. dollara vegna þeirra
skipskaöa, sem orðið hafa. Árásir á
kaupskip og olíuflutningaskip hafa
aldrei verið tíðari en nú, en á þessu
ári hafa alls 38 skip orðið fyrir
fiugskeytum í loftárásum eða rekizt
á tundurdufl.
írak hefur lýst yfir ábyrgð sinni
á mun fleiri árásum en íran. Hafa
írakar heitið því að eyða Kharg-
eyju, aðalolíuútflutningshöfn ír-
ana, til þess að koma í veg fyrir
frekari olíutekjur, en þær eru
grundvöllurinn undir stríðsrekstri
þeirra.
Tryggingaaðilar víða um heim
halda því fram, að útgerðarfyrir-
tæki olíuskipanna, sem tekið hafa
þá áhættu að fara til Persaflóa,
hafi ekki tapað fé. Þvert á móti
hafi mörg þessara fyrirtækja
grætt stórfé vegna snarhækkandi
farmgjalda og þá einkum eftir að
írak reyndi að loka höfnum í íran
í marz sl.
Farmgjöld fóru á ný lækkandi í
júlí og hafa haldizt óbreytt síðan
þrátt fyrir tíða skipskaða i síðustu
viku. Síðast varð flutningskipið
Cebu frá Singapore fyrir spreng-
ingu í vélarrúmi. Gerðist það á
sunnudag, er skipið rakst á tund-
urdufl fyrir utan Bandar Khom-
eini.
Tilboðin berast til
Mary Lou Retton
('harleston, VeHtur-Virj;iníu, 16. ágúst. AP.
MARY Lou Retton, fimleikastjörn-
unni ungu, sem vann hug og hjörtu
landa sinna með frammistöðu sinni á
Ólympíuleikunum, standa nú allar
dyr opnar. Virðist gullmedalían henn-
ar vera sömu náttúru og Draupnir,
sem gat af sér nýjan hring jafn höfg-
an hverja níundu nótt.
„Á 72 klukkustundum hafa okkur
borist 70 tilboð," sagði John Tra-
etta, umboðsmaður Mary Lou, „en
við ætlum þó ekki að hrapa að
neinu." Meðal tilboðanna er að
Mary Lou komi fram í sjónvarps-
þáttum og jafnvel, að saminn verði
sérstakur þáttur fyrir hana. Bóka-
útgefendur vilja, að hún leggi nafn
sitt við bækur um fimleika og sum-
ir hafa áhuga á að gefa út ævisögu
hennar, sem yrði þá líktega bara
lítið kver því að Mary Lou er aðeins
16 ára gömul.
Síðustu dagana hefur Mary Lou
skreytt forsíður tímaritanna
„Newsweek", „Time“ og „Sports
Illustrated", komið fram í kunnum
sjónvarpsþætti, „Tonight Show“,
og hitt Reagan, forseta. önnur
fyrirtæki bíða svo eftir því í langri
lest, að henni þóknist aö auglýsa
vöru þeirra en Mary Lou ætlar að
vanda valið og kynna aðeins það
besta og aðeins það, sem við á. Ekki
t.d. áfengi eða tóbak.
Frumkraftur náttúr-
unnar er aöeins einn
- segja vísindamennirnir sem fundu sjötta kvarkinn
VÍSINDAMENN við Evrópsku rannsóknastöðina í öreindaeðlisfræði, Cern,
hafa fundið T-top kvarkinn, sem þeir hafa leitað að um hríð. Hefur talsmaður
að nú séu allir hornsteinar náttúr-
stöðvarinnar þau orð um uppgötvunina,
unnar kunnir.
í fyrra fundu vísindamenn við
rannsóknastöðina fiseindina og
Omega-ögnina og var það merk-
asta uppgötvun í 25 ár í þá átt að
skýra út frumeðli efnisins. Fundur
T-top kvarksins er ekki minna
virði og sagði Roger Anthoine,
talsmaður Cern, að „fræðileg
mynd af gerð alls efnis I alheimi
er nú fullkomnuð".
T-top kvarkurinn er einn af
hornsteinum efnisins en vísinda-
menn höfðu sagt fyrir um, að þeir
væru 12 talsins. sex kvarkar og
sex létteindir. Áður höfðu fimm
kvarkar fundist og fundur þess
sjötta virðist staðfesta kenningar
þeirra. Kvarkar og létteindir
mynda frumeindina, atómið, sem
er síðan grunneining alls efnis að
öðru leyti. Kvörkunum fimm, sem
áður fundust, hafði verið gefið
nafn og heita þeir „Upp“, „Niður",
„Skrítni", „Þokki“ og „Botn“.
Uppgötvun vísindamannanna
við Cern er ekki síst mikilvæg
fyrir það, að hún styður þá kenn-
ingu, að í náttúrunni sé aðeins
einn frumkraftur að verki. Til
þessa hafa eðlisfræðingar hallast
að því, að þeir væru fjórir: Þyngd-
arkrafturinn, sterki kjarnakraft-
urinn, sem heldur prótónunum