Morgunblaðið - 17.08.1984, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984
25
Sovétmaðurinn Droov
er efstur á HM í skák
Skák
Karl Þorsteins
Nú þegar 3 umferöir eru eftir á
heimsmeistaramóti unglinga undir
20 ára í skák hér í Kiljava í Finn-
landi, hafa línur þegar skýrst tölu-
vert. Sovétmaðurinn Dreev, tvö-
faldur heimsmeistari undir 16 ára,
trónir einn í efsta sæti með 8 vinn-
inga af 10 mögulegum.
I síðustu umferð átti hann í
höggi við hinn sovéska keppand-
ann á mótinu, 011 að nafni, og
sigraði Dreev heldur auðveld-
lega. Reyndar eru margir, bæði
keppendur og aðstoðarmenn, á
þeirri skoðun að um þau úrslit
hafi verið samið fyrirfram.
Einnig þykir það undarlegt að
landar geti teflt saman svo seint
í mótinu að úrslit skákar þeirra
geti ráðið úrslitum mótsins.
Slíkt er einmitt mjög sennilegt
nú þar sem Dreev hefur þegar
teflt við alla hættulegustu and-
stæðinga sína. Nóg um það. I
öðru sæti eins og stendur er
Daninn Curt Hansen með 7,5
vinninga en á hæla honum, í
3.-5. sæti, fylgja þeir Georgiev
(núverandi heimsmeistari undir
20 ára), Tékkinn Stohl og undir-
ritaður, Karl Þorsteins, með 7
vinninga.
Síðan síðasti pistill birtist
hafa skipst á skin á skúrir í tafl-
mennskunni hjá mér. í 6. umferð
átti ég í höggi við Georgiev frá
Búlgaríu og stjórnaði hvítu
mönnunum. Lentu þeir menn
mínir fljótlega í þrengingum
enda er þekking heimsmeistar-
ans í byrjunum afburðagóð. Eft-
ir því sem umhugsunartími
minn minnkaði, sem hann gerði
ansi ört, virtist Georgiev fara að
spila meira upp á að fella and-
stæðing sinn á tíma en að hugsa
um raunveruleg vandamál stöð-
unnar. Slíkt kann ekki góðri
lukku að stýra, og vaknaði Búlg-
arinn því upp við vondan draum
er mér tókst að ljúka tilskildum
leikjafjölda og koma skákinni í
bið með létt unnið tafl. Skákin
fór síðan raunar í bið á ný en það
reyndist auðvelt verk að hala inn
vinning úr því. Curt Hansen frá
Danmörku var andstæðingur
minn næsta dag. Riðu íslend-
ingar ekki feitum hesti frá þeirri
viðureign og tapaði undirritaður
eftir að skákin hafði farið í bið.
Var ég því búinn að hleypa
helstu andstæðingum mínum V%
vinningi upp fyrir mig á stiga-
töflunni þegar ég settist við reit-
ina 64 andspænis Sovétmannin-
um Dreev í upphafi 8. umferðar.
Nú átti að seíja sig dýrt og kom
á daginn að ég gerði þau mistök
að ætla mér um of í stað þess að
sætta mig við örlitla stöðuyfir-
burði. Mátti ég bíta í það gall-
súra epli að tapa eftir að hafa
ekki getað fylgt eftir mannsfórn
sem hleypti skákinni upp. Má
e.t.v. einnig kenna þreytu um,
því 3 undangengnar skákir höfðu
allar farið í bið auk þess að vera
mjög erfiðar. Andstæðingar
mínir í 9. og 10. umferð, þeir
Sandstrem frá Svíþjóð og Hickl
frá V-Þýskalandi, reyndust mun
þægilegri viðureignar og tókst
mér að sigra þá báða öruggega.
Ég læt hér fljóta með skák mína
úr 6. umferð gegn heimsmeistar-
anum Georgiev frá Búlgaríu.
Hvítt: Karl Þorsteins
SvarL- Kyril Georgiev (Búlgaríu)
1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. Rf3
Bb4+, 4. Bd2 — c5, 5. g3? (Fram-
rás svarta c-peðsins er algengari
eftir framhaldið. 3. — b6, 4. g3
— Bb7, 5. Bg2 — c5. Ég gætti
þess nú ekki að svartur er ekki
tilneyddur að beina skákinni í
þann farveg, heldur lumar á
snjallri áætlun.) 5. — Db6!
(Hugmynd svarts er einfaldlega
að vinna peð með 6. — cxd4 og
halda því til streitu.) 6. a3 —
Bxd2+, 7. Dxd2 — Rc6, 8. dxc5 —
Dxc5, 9. e3 (Þó byrjunartafl-
mennska hvíts sé ekki til eftir-
breytni er staða hans ekki jafn
slæm og ætla mætti.) 9. — 04),
10. Rc3 — b6, 11. b4 — Dh5, 12.
Be2! (Hvítur hyggur á sóknarað-
gerðir á kóngsvæng og hér þjón-
ar biskupinn því hlutverki betur
en á g2-reitnum.) 12. — Bb7, 13.
e4! (Hvítur er aftur kominn í
leikinn. Það var eftirtektarvert
að nú fyrst virtist andstæðingur
minn þurfa umhugsunar við því
leikir hans höfðu hingað til kom-
ið rétt eins og á færibandi.) 13.
— Hfc8, 14. Hgl! (Leikur með
tvíþætta hugmynd. Hann undir-
býr framrás g-peðsins og í fram-
haldinu 14. — Re5, 15. Rxe5 —
Dxe5,16. f4 — Dc7 er e-peð hvíts
ekki lengur hreyfihamlað sökum
hróksins á hl.) 14. — a5? (Ein-
föld yfirsjón eða hvað? 14. —
Re5 var hið eðlilega framhald)
15. g4! — Dg6 (15. - Rxg4,16. b5
var einnig ófullnægjandi.) 16. b5
— Rxe4 (Mannstap var óumflýj-
anlegt. Hvita staðan er að sjálf-
sögðu unnin, en sökum tíma-
skorts er framhaldið ekki teflt
eins og best væri á kosið.) 17.
Rxe4 — Rb4 (Andstæðingi mín-
um sem venjulega er rólegheitin
uppmáluð leið greinilega ekki
sem best í þessari stöðu og var
farinn að ókyrrast og jafnvel
berja á klukkuna.) 18. axb4 —
axb4, 19. Hdl — Bxe4, 20. Re5 —
Df6, 21. Rxd7 — Dd8, 22. Dxb4?
(Hræðilegur leikur sem kastar
yfirburðunum á glæ í einu vet-
fangi. 21. Hg3 vinnur auðveld-
lega.) 22. — Bc2! (Svartur vinnur
nú skiptamun gjörsamlega að
óþörfu.) 23. Dd2 — Bxdl, 24.
Dxdl — Dc7 (24. - Ha7, 25. Re5
— Df6, 26. Dd4 var annar mögu-
leiki.) 25. Hg3 — h6, 26. c5!? —
bxc5, 27. b6 - Df4, 28. Dbl (Ekki
28. b7? - Db4+.) 28. - Dd6, 29.
Hd3 (29. b7 hefði e.t.v. verið ráð-
legra en að hleypa svörtu drottn-
ingunni í hvítu peðin, þó vinning-
urinn liggi ekki lengur á lausu.) 29.
— Dxh2, 30. b7 — Dhl+, 31. Bfl
— De4+, 32. Be2 — Dhl+, 33. Bfl
— De4+, 34. Kdl — c4 (34. —
Dxg4 var annar möguleiki og vafa-
laust ekki síðri, en andstæðingi
mínum var meira umhugað að gefa
mér engan tíma til umhugsunar en
að finna sterkustu leikina.) 35. f3
— Dc6, 36. bxc8=D4+ (36. Hd4
var sterkara) 36. — Hxc8, 37.
Hd4 — c3? (37. — Hd8! ynni ein-
faldlega mann.) 38. Kc2 — Dxf3,
39. Del — Ha8, 40. Bc4 (Hvítur
átti einungis örfáar sekúndur
eftir á klukkunni er hann náði 40
leikja markinu.) 40. — Dg2+, 41.
Kxc3 - Ha3+, 42. Kb4 (Skákin
fór hér í bið og má fullyrða að
hvíta staðan sé unnin, þó það
taki sinn tíma að innbyrða vinn-
inginn.) 42. — Db2+, 43. Kc5 —
Ha8, 44. Rb6 — Hb8, 45. Da5 —
Df2, 46. Dd2 — Dgl, 47. Ddl
(Hvítur verður að varast gildr-
una 47. Kc6? — Hxb6+, 48. Kxb6
— c5 með jafnteflisstöðu.) De3,
48. Dd3 — Df2, 49. De2 — Dg3
(49. — Dgl, 50. De5 var engu
skárra.) 50. Kc6 — Dgl, 51. De6
— He8 (Báðir keppendur voru nú
aftur komnir í mikið tímahrak
og er leikið sem hendi er næst.)
52. Kb7 — Dal, 53. Db5 — Dhl+,
54. Dc6 — Hb8+, 55. Kc7 — Dgl,
56. Dd6 — Hf8, 57. Rd7 - Ha8,
58. Rb6 — Hf8, 59. Rc8! (Riddar-
inn er á leið á c6-reitinn þar sem
hann brýtur niður allt mótspil
svarts auk þess sem hann nú set-
ur einfalda gildru fyrir svartan.)
59. - Dcl?? (59. - g6, 60. Re7+
— Kg7, 61. Rc6 var þvingað þó
úrslitin hefðu vafalaust orðið
sömu.) 60. Dxf8+! og svartur
gafst upp enda er hvíta drottn-
ingin friðhelg sökum hróksmáts
ád8.
—
Pað er flókið og kostnaðarsamt mál að rífa I sundur og hreinsa
bensínkerfi bílsins í hvert skipti sem útfellingarefni taka að
hamla eðlilegum gangi vélarinnar. Pess vegna lögðu
vísindamenn Shell hart að sér við leit á bætiefni \ bensín sem
annars vegar hreinsaði burt útfellingarefnin sem setjast í
blöndunga og ventla ocj hins vegar hefur engin áhrif á aðra
eiginleika bensínsins. Utkoman varð ASD.
Að loknum 20 viðamiklum tilraunum, eftir að hafa ekið 497
mismunandi bílum í samtals um 5 milljón km, birti Shell
niðurstöður sínar um áhrif ASD bensínsins:
• Útfelling í blöndunga mlnnkað að meðaltali um 60%.
• Útfelling á ventla minnkaði að meðaltali um 70%.
• Kolmonoxíð (CO) í útblæstri minnkaði að meðaltali
um 15%.
• Bensíneyðsla mlnnkaði að meðaltali um 4% í bílum
með óhreint bensínkerfi en um 1 % í nýrri gerðum bíla.
• ASD hefur engin skaðleg áhrif á bensín með eða án
annarra bætiefna.
Skeljungur h.f.
Við vinnum fyrir þig!
úm'- ■ T^ktu eftir merkinu á næstu bensínstöð Skeljungs.