Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 17.08.1984, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 1984 27 Nesinu. Og áhugi hans var sívak- andi á hverskonar veiðiskap eins og hrognkelsaveiðum, þyrsklings- veiðum, að ekki sé talað um sil- ungs- og laxveiði. Um árabil fyrir stríð átti hann hluta af Laxá í Kjós ásamt Eggert Kristjánssyni stórkaupmanni og fleirum. í kaffiboðum heima er mér minnisstæðast hvað hann og pabbi og aðrir frændur og vensla- menn af skipinu gátu án afláts og af óþrjótandi ánægju rabbað sam- an um veiðiskap og aflabrögð af öllu mögulegu tagi og veiðarfæri, fiskibáta, veðurfar og ástand sjáv- ar. Við systkinin stöndum í mikilli þakkarskuld við hjónin Snæbjörn og eftirlifandi konu hans, Sigríði, fyrir vináttu, tryggð og hjálpsemi við okkur og foreldra okkar alla tíð. Ég sendi henni og allri fjöl- skyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Við andlát Snæbjörns Tryggva Ólafssonar, frænda mins, finnst mér hafa lokið miklu ævintýri og meira en 40 ára glíma hans og áhafnar hans við Ægi konung sé dæmigerð íslensk Odysseifskviða okkar tíma. Ólafur Jensson í dag, föstudaginn 17. ágúst verður til moldar borinn tengda- faðir minn og mikill vinur, sóma- maðurinn Snæbjörn Tryggvi ólafsson. Kvaddur er með mikilli virðingu og þakklæti heiðursmaður sem ég var svo lánsamur að eiga að sam- ferðarmanni i hartnær 30 ár. f Snæbirni fóru saman flestir þeir mannkostir sem prýtt geta góðan dreng. Hann var greindur og úrræðagóður, einstaklega tryggur og áreiðanlegur. Sam- viskusemi og vinnusemi voru hon- um í blóð bornar. Hann var hjálp- samur í meira lagi og vildi öllum vel. Vegna mannkosta sinna vegnaði honum vel í þem störfum sem hann tók sér fyrir hendur. Hann var skipstjóri í tæp 35 ár. í því starfi var hann farsæll svo af bar, enda var hann afburða góður sjó- maður. Hann var fiskimaður góð- ur, veðurglöggur með afbrigðum og bar öryggi áhafnar sinnar mjög fyrir brjósti. Árið 1957 var hann heiðraður með verðlaunaveitingu úr Minningarsjóði systkinanna frá Hrafnabjörgum, fyrir lofsverða umhyggju um öryggi skipverja sinna. Öll störf sín bæði til sjós og lands, vann hann af einstakri alúð á sinn hljóðláta og farsæla hátt. Stærsta gæfuspor lífs síns steig Snæbjörn árið 1927, þegar hann kvæntist eftirlifandi eiginkonu sinni, Sigríði Jóakimsdóttur frá Brekku í Hnífsdal við ísafjarð- ardjúp. Reyndist hún honum eins góður lífsförunautur og frekast verður á kosið. Þeim hjónum varð átta barna auðið og eru sjö þeirra á lífi. Árið 1956 kynntist ég Sigríði og Snæbirni. Allar götur síðan hafa kynni okkar verið mér ómetanleg. Frá árinu 1975 hafa fjölskyldur okkar búið undir sama þaki. Börn og barnabörn okkar hjónanna urðu þeirra gæfu aðnjótandi að hafa ömmu og afa og langömmu og langafa á sama heimili. Á þess- um tæplega 9 árum voru sam- skipti okkar bæði góð og mikil og þá kynntist ég Snæbirni best. Frá þessum árum og reyndar fyrr, á ég margar góðar minningar, bæði í starfi og leik. Hin jákvæðu áhrif frá Snæbirni eru og verða mér og mínum ómetanleg. Á þessari kveðjustundu er mér efst í huga þakklæti fyrir allt sem Snæbjörn var mér. Ég þakka hon- um allar samverustundirnar og alla vináttuna, um leið og ég kveð hann og óska honum Guðs bless- unar í þeirri höfn sem hann hefir nú tekið. Þér Sigríður mín, börnum ykkar hjóna og öðrum vandamönnum votta ég mfna dýpstu samúð. Guðs blessun fylgi minningu um góðan dreng. Guðni Steinar Gústafsson í dag er við kveðjum vin okkar og tengdaföður, Snæbjörn Tryggva Ólafsson, langar okkur að minnast hans með fáeinum orð- um. Snæbjörn var fæddur að Gest- húsum á Álftanesi árið 1899, son- ur hjónanna Guðfinnu Jónsdóttur og Ólafs Bjarnasonar útvegs- bóhda. Þar sem Ólafur faðir Snæbjörns var mikill aflamaður og stundaði sjóinn stíft, var eðlilegt að hugur Snæbjörns beindist að sjósókn þegar í æsku, enda byrjaði hann snemma að róa til fiskjar með föð- ur sínum. Eftir barnaskólanám, lá leið Snæbjörns í Flensborgarskóla og síðan í Stýrimannaskólann og brautskráðist hann þaðan árið 1918, þá 19 ára gamall. Næstu tvo árin er Snæbjörn í farmennsku, en ræðst þá sem háseti og síðar stýri- maður á togarann „Jón forseta". Þessu næst er hann stýrimaður á togaranum „Baldri" frá Reykja- vík. Árið 1924 tekur hann við skip- stjórn á togaranum „Ver“ frá Hafnarfirði, þá aðeins 25 ára gam- all og er með hann til ársins 1934, er hann ræðst til útgerðarfélags- ins Alliance og tekur við togaran- um „Tryggva gamla“ sem hann stjórnar til ársins 1946. í upphafi nýsköpunar togaraflotans árið 1947, tekur Snæbjörn við togaran- um „Hvalfelli", þá nýju skipi. „Hvalfellið" er hann síðan með til ársins 1958, er hann hættir sjó- mennsku. Ekki sat Snæbjörn auðum hönd- um er í land kom, því þá hóf hann störf hjá Síldar- og fiskimjöls- verksmiðjunni hf. í Reykjavík og vann þar óslitið fram í ársbyrjun 1983, þá 84 ára gamall. Allan sinn skipstjórnarferil var Snæbjörn einstaklega farsæll skipstjóri og mikill aflamaður. Hann var einstaklega veðurglögg- ur og hefur það vafalaust verið sterkur þáttur í aflasæld hans og velgengni. Prúðmennska og góðvild voru helstu einkenni Snæbjörns, eng- inn kom meiri auðfúsugestur á heimili okkar en hann. Börnum okkar og barnabörnum var það einstakt lán að fá að kynnast afa sínum. Snæbjörn þreytti ekki lífs- hlaup sitt einsamall, því árið 1927 kvæntist hann eftirlifandi konu sinni, Sigríði Jóakimsdóttur, sem studdi hann ávallt til allra góðra verka, og í hennar hlut kom að annast stóran barnahóp á meðan Snæbjörn stundaði sjóinn. Heimili þeirra Sigríðar og Snæ- björns var alla tíð með miklum rausnarbrag og hjónaband þeirra einkar hamingjurikt. Sigríður er ættuð frá Hnífsdal, dóttir hjónanna Margrétar Krist- jönu Þorsteinsdóttur og Jóakims Pálssonar útvegsbónda. Snæbirni og Sigríði varð átta barna auðið, en eitt barna þeirra lést í bernsku. Afkomendahópur þeirra Sigríðar og Snæbjörns er orðinn stór. Um leið og við kveðjum tengda- föður okkar og þökkum honum samfylgdina, biðjum við Guð að blessa konu hans og afkomendur. Tengdabörn Snæbjörn Tryggvi Ölafsson, sem fæddist 2. apríl 1899 að Gesthúsum á Álftanesi, lést á Landakotsspítala 9. ágúst 1984. Snæbjörn eyddi sínum æsku- og uppvaxtarárum á Álftanesi og mun hafa byrjað sjósókn með föð- ur þar ungur að aldri. Snæbjörn lauk farmannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1918. Skipstjórn sína byrjaði hann árið 1924 og stundaði þá erfiðu atvinnu óslitið til 1958, eða í þrjátíu og fjögur ár. Munu ekki margir hafa leikið það eftir honum. Allan Minning - Guðni Svavar Kristjánsson Fæddur 20. nóvember 1954 Dáinn 7. ágúst 1984 Nú er genginn Guði á vald mæt- ur og kær vinur minn og frændi, Guðni, sonur Kristjáns bróður míns. Að okkur, sem eftir lifum, er harmur kveðinn. Guðni var, allt frá barnæsku, mér einkar kær. Og allar minn- ingar mínar um hann eru sveipað- ar gleði og hlýju, því ég fann og vissi, að þar fór góður drengur, sem hvarvetna gat sér gott orð og naut hylli og virðingar allra, sem kynntust honum. Hann var sjálfum sér og öðrum trúr. í starfi sínu kynntist hann auð- vitað margskonar fólki, sem nú, að honum látnum, lýkur á hann ein- róma lofsorði, og saknar þar manns í stað. Snemma ævi sinnar kynntist hann eftirlifandi konu sinni, Sól- eyju Gunnarsdóttur, og giftust þau ung að aldri. Þau eignuðust tvö börn. Allan sinn starfsaldur vann Guðni sem rafvirki. Og margir eru þeir, sem votta, að hvað eina, sem honum var falið að vinna, rækti hann með einstakri vandvirkni og trúmennsku. Það segir sig sjálft, að á svo skammri ævi vinna sér fæstir nokkuð til varanlegra minna. En gott er okkur, sem honum voru nákomin og sem mátum hann sem sannan mannkostadreng, að vita nú, við brottför hans, að okkur hefur í engu skeikað. Sagt er, að það þurfi sterk bein til að þola góða daga. En skyldi ekki líka þurfa sterk bein til að þola það áfall, sem í einu vetfangi leggur lífið, með öllum þess áætl- unum og vonum, í rúst. — Fyrir rúmum 5 árum lenti Guðni í bíl- slysi svo að nánasti förunautur óvissrar framtíðar verður hjóla- stóllinn. Eftir það varð heimili hans að Hátúni 12, hér í bæ. Manni, sem þannig er komið fyrir, verður fátt til yndisauka. — Én stöðugt samneyti hans við for- eldra sína og börn, var honum ósegjanlega mikils virði. Fór hann um hverja helgi til foreldra sinna og dvaldi þar. Þegar hann kvaddi mánudags- kvöldið þann 6. ágúst sl. datt eng- um í hug, að þetta væri hans hinsta kveðja, en að morgni var hann allur. Vitanlega verðum við öll að deyja. — Og nú er lokið þrauta- ferli frænda míns, en mínu lífs- hlaupi ólokið. En þegar þar að kemur, vonast ég til að finna hann hressan og glaðan. — Dauðinn má svo með sanni samlíkjast, þykir mér, slyngum þeim sláttumanni, er slær allt hvað fyrir er: grösin og jurtir grænar, glóandi og blómstrið frítt, reyr, stör og rósir vænar reiknar hann jafnfánýtt. (Hallgr. Pétursson) Að lokum þakka ég honum öll okkar samskipti. Haraldur Gíslason þennan tíma var hann í fremstu röð íslenskra togaraskipstjóra. Ég kynntist Snæbirni og fjöl- skyldu hans fyrst er ég giftist systursyni hans fyrir rúmum þrjátíu árum. Maðurinn minn áleit það ómetanlegan skóla fyrir sig að hafa verið stýrimaður og háseti hjá honum fjölmörg ár, því þar lærði hann hagsýni, stjórn- semi og aðgæslu ásamt ótalmörgu fleira sem að góðu haldi kom, þeg- ar Guðbjörn heitinn seinna tók við skipstjórn. Svo skemmtilega vildi til að þá unnu þeir saman hjá Síldar- og fiskimjölsverksmiðj- unni Kletti. Samvinna þeirra þar var með afbrigðum góð og enginn gladdist innilegar, en Snæbjörn þegar vel gekk og taldi í minn kjark, er á móti blés. Snæbjörn var afar traustur og góður maður og þegar slys og veikindi bar að höndum, var hann alltaf fyrsti maður að gefa öðrum styrk og hjálp. Þannig var hann t.d. fyrsti maðurinn sem heimsótti manninn minn, eftir hörmulegt slys, 5. mars 1969. Og enginn hefði betur sagt það sem segja þurfti við þess- ar aðstæður. Ég mun alltaf minn- ast þessara stunda með innilegu þakklæti og virðingu. Snæbjörn var mikill gæfumaður í einkalífi sínu, átti mjög góða konu, Sigríði Jóakimsdóttur frá Hnífsdal, og áttu þau 8 börn; 7 komust til full- orðinsára. Öll hafa þau komið sér vel áfram í lífinu og orðið foreldr- um sínum til sóma. Svo einkennilega vildi til að þrjú börn Snæbjarnar urðu ná- grannar okkar Guðbjörns á Álfta- nesi. Það eru mér vissulega ógleymanlegar stundir þegar þau, þessi ástúðlegu hjón, lögðu leiðir sínar um þessar kæru slóðir. Og ófáar voru ferðirnar sem hann gerði til að heimsækja börnin sín, sá maður þá hve mjög Snæbjörn hafði unnað æskuslóðum sínum. Að lokum þakka ég Snæbirni og Sigríði allar þær góðu stundir sem við hjónin áttum með þeim og fjöl- skyldu þeirra. Guð veri með þér, Sigríður mín, og veiti ykkur öllum aðstandendum hans styrk og stoð. Viktoría Skúladóttir + Útför móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, KRISTÍNAR HALLDÓRSDÓTTUR frá Öndveröarnesi, fer fram frá Selfosskirkju, þriöjudaginn 21. ágúst kl. 13.30. Jarösett verður í Kotstrandarkirkjugaröi. Halldóra Bjarnadóttir, Anna Bjarnadóttir, Bjarni K. Bjarnason, tengdabörn og barnabörn. t Eiginmaður minn, ÞÓRHALLUR SÆMUNDSSON, fyrrverandi bæjarfógeti á Akranesi, verður jarösunginn frá Akraneskirkju þriöjudaginn 21. ágúst kl. 14.30. Þeir, sem vildu heiöra minningu hins látna, vinsamlegast láti Sjúkrahús Akraness njóta þess. Fyrir hönd aöstandenda, Elísabet Guömundsdóttir. + Þökkum auösýnda samúö við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdafööurs og afa, SKARPHÉDINS MAGNÚSSONAR, Hraunbæ 92. Aóalheióur Siguróardóttir, Magnús Skarphóóinsson, Reynir Skarphóðinsson, Sigrún Jónsdóttir Kundak, Omer B. Kundak, Sig. Ægir Jónsson, Helga Guómundsdóttir og barnabörn. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vináttu viö andlát og útför JÓNATANS VALGARDSSONAR, Framnesvegi 17, Reykjavík. Margrót Jónsdóttir, Þórlaug Bjarnadóttir og systkini. + Þökkum innilega auösýnda samúö og vinarhug við andlát og jarö- arför bróður okkar, FLOSA HALLDÓRSSONAR frá Bakkafirði. Systkini hins látna. + Innilegar þakkir færum viö öllum þeim er sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför eiginkonu minnar, móöur okkar, tengdamóöur og ömmu, ÞORBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR, Keldulandi 11. Gísli Kristjánsson, Gísli Már Gíslason, Kristín Hafsteinsdóttir, Halldóra Gísladóttir, Eiríkur Líndal. Anna Gísladóttir, Kjartan örn Ólafsson og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.