Morgunblaðið - 24.08.1984, Síða 4

Morgunblaðið - 24.08.1984, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 Stálfélagið fái rík- isábyrgð en ríkið verði ekki hluthafi RÍKISKTJÓRNIN afgreiddi á fundi sínum í gær beiðni Stálfélagsins hf. um 45 milljón króna ríkisábyrgð, með þeim hætti að ákveðið var að leggja málið fyrir Alþingi þegar Al- þingi kemur saman, og jafnframt var samþykkt að hlutast til um að breyt- ingar verði gerðar á lögum sem í gildi eru og heimila ríkissjóði að ger- ast hluthafi og veita ríkisábyrgð, en þau lög hafa verið túlkuð þannig að ríkisábyrgðin sé bundin því að ríkis- sjóður sé hluthafi. „Ríkissjóður hefur ekki áhuga á því, í þessu tilviki, að gerast hluthafi að Stálfélaginu hf., en við erum hins vegar reiðubúnir að veita ríkisábyrgð, ef Alþingi heim- ilar það,“ sagði Steingrímur Her- mannsson, forsætisráðherra, er blm. Mbl. ræddi þetta mál við hann í gær, „og þess vegna þarf að breyta þessum lögum, þannig að heimilt sé eftir sem áður að veita ríkisábyrgð, án frekari þátttoku ríkisins í tilteknum fyrirtækjum." Talsmaður Stálfélagsins hf., sem blm. náði tali af í gær, sagðist fagna þessari niðurstöðu ríkis- stjórnarinnar, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið að svo stöddu. Eldspýtnafikt olli bruna Eldspýtnafikt fimm ára barns olli verulegum brunaskemmdum á risíbúð við Mávahlíð í Reykjavík í gærmorgun. Eldur varð laus og brann nær allt lauslegt inni í íbúð- inni. Þar býr kona með tveimur börnum sínum, sluppu þau öll ómeidd. Ríkisstjórnin áréttar mótmælin vegna loðnuveiðanna við Jan Mayen: Afstaða Norðmanna jafngildir veiðiheim- ildum á svæðinu ÍSLENZKA ríkisstjórnin áréttaði í gær fyrri mótmæli sín vió rfkisstjórn- ir Danmerkur og Noregs vegna loðnuveióanna á Jan Mayen-svæðinu. Sendiberrar íslands í Osló og Kaup- mannahöfn, Páll Ásgeir Tryggvason og Einar ÁgúsLsson, afhentu þessi nýju erindi í gær ríkisstjórnum við- komandi landa, en f þeim er þess getið að málið sé til hnjóðs norrænni samvinnu. í erindinu til Norðmanna er þess getið, að afstaða þeirra jafn- gildi því, að þeir hafi gefið veiðiheim- ildir á svæðinu. Erindi þessi eru sam- in í samvinnu við utanríkismáladeild- ir Alþingis. í erindinu til Dana eru ítrekuð vonbrigði yfir veiðum danskra og færeyskra skipa, samkvæmt heim- ild frá Efnahagsbandalaginu, og að þær skuli hafa haldið áfram austan miðlínunnar milli Jan Mayen og Grænlands og harmað að Danir skuli hafa fylgt fram af slíkri óbilgirni kröfum sínum til um- deilda svæðisins austan miðlínunn- ar. í því sambandi er rifjað upp, að þegar lögsaga íslands var færð út í 200 sjómílur, hafi henni ekki verið framfylgt nema að miðlínu gagn- vart Jan Mayen í byrjun og staðið svo um nokkurra ára skeið. Mál þetta hafi þróazt þannig, að íslenzk stjórnvöld telji það til hnjóðs nor- rænni samvinnu og óhjákvæmilegt sé, að ríkisstjórnir landanna taki höndum saman um að ná skjótri og sanngjarnri niðurstöðu. 1 erindinu til Norðmanna eru áréttuð fyrri mótmæli vegna þess, að ekki skuli vera haldið uppi raun- hæfri löggæzlu á Jan Mayen-mið- unum og tekið fram, að (slendingar geti að sjálfsögðu ekki unað slíku til lengdar, þegar mikilvægum hagsmunum þeirra á sameiginlegu nýtingarsvæði sé þannig stofnað í hættu. Þar er einnig áréttað, að þar sem afstaða Norðmanna jafngildi því, að veiðiheimildir hafi verið veittar á svæðinu, sé ekki hjá því komizt að halda fast við að afli Dana og Færeyinga verði dreginn frá 105.000 lesta kvóta Noregs. Rétt sé að það gerist þegar á þessu veiði- tímabili, þar sem hluti Noregs í heildarkvótanum nú sé mjög hár. Þá er bent á, að verði ekki farið svona að, muni þessar veiðar bitna á (slendingum og það sé bæði rang- látt og óviðunandi. Þar sem ekki hafi náðst samkomulag um fram- tíðarskiptingu heildarloðnukvót- ans, þrátt fyrir margítrekaðar til- raunir, sé nauðsynlegt að ríkis- stjórnir Islands og Noregs fjalli um málið. Það sé Ijósara en nokkru sinni fyrr hve brýnt er að fá niður- stöðu í deilunni um mörkin á svæð- inu milli Jan Mayen og Grænlands. (sland eigi aðild að því máli vegna hinna varanlegu nýtingarréttinda á Jan Mayen-svæðinu, sem kveðið sé á um í samkomulagi landanna um svæðið frá 1980. f \ l \ 1 m I i ! *-*• i ■ mmi J p a, vi Morgunblaðift/Júllus Á túninu á Möðruvöllum í Kjós (talið frá vinstri): Ingimundur Kárason, Árni Markússon, Rakel Jóhannesdóttir, Þorgeir Jónsson, Jón Þorgeir Sigurðsson og Jónmundur Jónsson. Kjalarnes og Kjós: Hamast við heyskapinn eftir þriggja vikna óþurrk „Þetta er búið að liggja flatt hérna í 20 daga og má vel nota í hross," sagði Gísli Ellertsson, bóndi á Meðalfelli í Kjós, þegar Morgunblaðsmenn litu við hjá honum í gær, þar sem hann var ásamt heimilisfólki sínu að hirða bagga á engjum við Laxá, svoköll- uðum Hrosshólma. Gísli sagðist ná öllu gamla heyinu inn og þeim 3.000 böggum sem hann hefði heyjað síðan á mánudag, ef hann héldist þurr á morgun, föstudag. Ætti hann þá einungis eftir að slá smá blett sem hann ætlaði að geyma til næsta þurrks. Gísli lét ekkert illa af sumrinu, sagði að hey- skapurinn hefði gengið ágætlega hjá sér. Hann hefði sett um helminginn í vothey, en auk þess væru túnin á Meðalfelli tiltölu- lega þurr, þannig að hann hefði alltaf komist strax af stað i þurrkunum. Sagði hann að vel hefði sprottið, aldrei hefði verið meira gras í sinni búskapartíð. Aðspurður um nágrannana sagði Gisli að þeim gengi mis- jafnlega. Sums staðar hefði ekk- ert verið slegið i þessum þurrk- kafla vegna bleytu. Hann sagðist oft hafa verið seinni með hey- skapinn en núna. Hér áður fyrr hefðu menn verið að þessu fram undir réttir. Breytir um á höfuðdaginn „Þetta er búið að vera heldur stirt, það finnst okkur. Ekki hef- ur komið nokkur þurrkdagur f þrjár vikur fyrr en í þessari viku,“ sögðu bræðurnir Þorgeir og Jónmundur Jónssynir á Möðruvöllum í Kjós, þegar þeir voru spurðir hvernig heyskapur- inn hefði gengið. Þeir voru þá ásamt vinnufólki sínu og gest- komandi að hirða hey af túni skammt frá bænum. Þorgeir sagði, að eftir rign- ingarnar væri varla hægt að komast um fyrir bleytu, hvorki um túnin né að hlöðunum. Þó sagðist hann búast við að þeir næðu töluvert miklu heyi inn þessa dagana og bjargaði það miklu, en ennþá meiri þurrka vantaði til að bjarga meiru. „Maður er að vona að það skipti um á höfuðdaginn (29. ágúst) og september verði betri. Það gerði það i fyrra. Maður verður að vera bjartsýnn, það skánar ekk- ert þó maður sjái bara svart,“ sagði Þorgeir. „Þetta hey er búið að liggja í görðum i þrjár vikur,“ sagði Þor- geir þegar talið beindist að hey- inu sem þeir voru að hirða og var auðsjáanlega orðið nokkuð hrak- ið. „Það getur svo sem verið verra, því það sér þó í grænt í því. Það vantaði aðeins einn þurrkdag fyrir þremur vikum þegar það var garðað,“ sagði Þorgeir einnig. Heyjað í hrossin „Þetta hefur gengið hálfbrös- uglega hjá okkur. Túnin eru orð- in svo blaut að við megum þakka fyrir að fara ekki með vélarnar niður úr,“ sögðu bræðurnir ólaf- ur G. og Reynir Jósefssynir á Hjarðarnesi á Kjalarnesi þegar þeir voru spurðir hvernig hey- skapurinn hefði gengið. Þeir voru hinir vígalegustu við hey- skapinn, en heyið á túninu var greinilega illa hrakið. Þeir sögð- ust vera frístundabændur, ættu heima í Reykjavík, en heyjuðu fyrir hrossin sín, sem þeir væru með í Hjarðarnesi. „Jú, þetta er búið að hrekjast i hálfan mánuð og við höfum ekki náð nema litlu af toppheyjum í sumar. Við höfum líka misst mikið af heyi af þessu túni, sem hreinlega hefur fokið i burtu í sumar. Við getum notað eitthvað af þessu í hestana, en einhverju verðum við þó að henda,“ sögðu ólafur og Reynir. Þeir sögðu að það sem þeir ættu eftir að slá væri orðið úr sér sprottið, en yrði að bíða þar til túnin þorn- uðu betur. Á engjunum á Meðalfelli í Kjós: Gísli Ellertsson (lengst til vinstri), Dagný Gísladóttir, Bjartmar Freyr Jóhannes- son og Steinar Gíslason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.