Morgunblaðið - 24.08.1984, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
5
Lóðaúthlutanir í Reykjavík 1984:
Á fímmta hundrað lóð-
um hefur verið úthlutað
Á borgarráðsfundi síðast-
liðinn þriðjudag var lagt
fram yfirlit yfir lóðaúthlutan-
ir í Reykjavík frá áramótum
til 15. ágúst, en alls hefur
verið úthlutað 413 lóðum
undir einbýlis-, rað- og fjöl-
býlishús, auk lóða undir 60
íbúðir í fjölbýli og 40 rað-
húsa. Mikil eftirspurn hefur
verið eftir lóðum og varð því
að gera 81 lóð fyrir einbýlis-
hús byggingarhæfar, en við
gerð fjárhagsáætlunar var
ekki gert ráð fyrir að það yrði
gert á þessu ári.
í Grafarvogi I (Reykjafold,
Logafold og Hverafold) er búið að
úthluta 140 einbýlishúsalóðum og
33 lóðum fyrir raðhús. Gatna-
gerðargjöld nema 64.424 þúsund
krónum. Úthlutun í Grafarvogi II
(Funafold) skiptist þannig að 37
lóðum fyrir einbýlishús hefur
verið úthlutað, en 20 fyrir raðhús.
í Grafarvogi III var úthlutað 77
einbýlishúsalóðum, en ennfremur
lóðum undir 60 íbúðir í fjölbýli til
verkamannabústaða og 40 lóðum
til raðhúsa. Gatnagerðargjöld
eru samtals 43.466 þúsund krón-
ur.
Alls hefur 21 lóð undir einbýl-
ishús og 33 fyrir raðhús verið út-
hlutað í Seláshverfi suður, og
nema gatnagerðargjöld rúmum
14 milljónum króna. í Jakaseli
hefur 20 lóðum verið úthlutað og
eru gatnagerðargjöld samtals 7,7
milljónir króna. Sex lóðum undir
12 parhús, 3 lóðum undir 33 rað-
hús og 24 íbúðir í fjölbýli og einni
undir íbúðir í fjölbýli (VR) hefur
verið úthlutað í Kringlumýri og
nema gatnagerðargjöld samtals
13.961 þúsund krónum.
f Bólstaðarhlíð hefur lóð undir
66 íbúðir í fjölbýli verið úthlutað,
og eru gatnagerðargjöld um 4
milljónir króna. Og í Stigahlíð
voru 21 lóð fyrir einbýlishús seld-
ar og var söluverð tæpar 35 millj-
ónir króna, en gatnagerðargjöld
202 þúsund krónur.
í greinargerð Hjörleifs Kvar-
an, skrifstofustjóra borgarverk-
fræðings, segir að svæði verka-
mannabústaða verði ekki gert
byggingarhæft á þessu ári, en
gatnagerðargjöld eru færð á bið-
reikning og munu koma til
skuldajöfnunar vegna þátttöku
borgarsjóðs í byggingu verka-
mannabústaða. Gatnagerðargjöld
af húsi aldraðra verslunarmanna
í Kringlumýri og samtaka aldr-
aðra við Bólstaðarhlíð koma ekki
til greiðslu en færast á biðreikn-
ing og koma til skuldajöfnunar
vegna þátttöku borgarsjóðs i
þjónusturými þessara bygginga.
Þá kemur helmingur gatna-
gerðargjalda vegna sölulóða í
Stigahlíð til greiðslu á árinu
1985, samkvæmt skilmálum sem
samþykktir voru í borgarráði
fyrr á þessu ári.
Starfshópur
stjórnarflokkanna:
Skoðar
sjóðakerfið
FORMGNN stjórnarflokkanna, þeir
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra og Þorsteinn Pálsson al-
þingismaður, hafa kvatt til liðs við
sig ýmsa menn til þess að vinna í
viðræðuhópura að einstökum mála-
flokkum, í tengslum við verkefna-
lista ríkisstjórnarinnar, sem nú er
unnið að, myrkranna á milli, sam-
kvæmt því sem forsætisráðherra
upplýsti blaðið í gær.
Einn starfshópurinn vinnur nú
að skoðun á þeim tillögum sem
liggja fyrir varðandi breytingar á
sjóðakerfinu og uppstokkun og í
tengslum við það, leiðir til nýsköp-
unar atvinnulífsins. Þennan hóp
skipa þeir Friðrik Sóphusson,
varaformaður Sjálfstæð-
isflokksins og Valur Valsson,
bankastjóri Iðnaðarbankans, fyrir
hönd Sjálfstæðisflokksins og fyrir
hönd Framsóknarflokksins eru
þeir Finnur Ingólfsson, aðstoðar-
maður sjávarútvegsráðherra og
Þorsteinn Ólafsson framkvæmda-
stjóri hjá Sambandinu.
Ráðstefna um
brjóstagjöf
ÁHUGAFÉLAG um brjóstagjöf og
Sjúkrahús Skagfirðinga, gangast
fyrír ráðstefnu í Varmahlíð í Skaga-
firði dagana 8. og 9. september nk.,
sem ber yfirskriftina „Brjóstagjöf á
íslandi“ og er öllum opin. Áhugafé-
lag um brjóstagjöf var stofnað f
Skagafirði og hefur nú starfað í tvö
ár. Aðalmarkraið félagsins er að
veita fræðslu og ráðgjöf um brjósta-
gjöf til þeirra sem þiggja vilja en
stofnendur og flestir félagsmenn,
eru mæður sem hafa haft böm á
brjósti, og vilja miðla af sinni eigin
reynslu og þekkingu.
Elisabeth Helsing mun flytja
fyrirlestur á ráðstefnunni en hún
er norskur næringarefnafræðing-
ur sem skrifað hefur mikið um
brjóstagjöf og ágæti hennar.
Marga Tome, dósent við Háskóla
íslands, hefur kannað brjóstagjöf
meðal íslenskra kvenna og mun
hún kynna athuganir sínar á
ráðstefnunni. Hörður Bergsteins-
son læknir og Sigríður Sigurðar-
dóttir sagnfræðinemi, munu ræða
um brjóstagjöf á íslandi á öldum
áður.
Auk þess munu tvær konur í
Áhugafélagi um brjóstagjöf segja
frá ráðstefnu um brjóstagjöf sem
þær sóttu í Bonn í júnímánuði sl.
Þá verður rætt um starfsemi
áhugafélagsins og samskonar fé-
laga, sem stofnuð hafa verið á
fleiri stöðum á landinu, og um
hugmyndina að sameiningu þess-
ara félaga í eina landshreyfingu,
að því er segir í fréttatilkynningu
Áhugafélags um brjóstagjöf.
Klingjandi kristall
rrz. N r
KOSl V rA J V. bO. DA
Bankastræti 10, Reykjavík, sími 13122.
í tilefni sýningarinnar
Heimiliö ’84 bjóöum viö
10% afslátt af öllum vörum.