Morgunblaðið - 24.08.1984, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
Fló FEF á laugar-
dag í Skeljanesi
Girnnar Helgi Hálfdánarson, Fjárfestmgarfélaginu:
Vaxtabreytingarnar hafa
gleymst í kjaraumræðunum
VEGNA mikillar aAsóknar á flóa-
markadi FEF um síðustu helgi, og
sakir þess að mikið hefur bætzt
við af varningi verður flóamarkað-
urinn aftur í Skeljanesi 6, á laug-
ardag 25. ágúst frá 2—5 e.h. Mik-
ið af fatnaði verður til sölu og er
sérstaklega gott úrval af barnaföt-
um og tízkukjólum frá öllum tím-
um og á allar stærðir og gerðir.
Engin flík er seld á hærra verði en
40 krónur, að því er segir í frétta-
tilkynningu frá FEF.
Húsgögn, heilleg og þénug,
ódýr og af ýmsu tagi verða á
boðstólum, borizt hefur mikið af
lampaskermum, skrautvörum,
og leikföngum o.fl.
Eins og áður hefur komið
fram verður Fréttabréf FEF til-
búið um mánaðamótin og þá
sent skuldlausum félagsmönn-
um. Afmælisritið sem kemur út
í nóvember, hið vandaðasta að
gerð verður einnig sent skuld-
lausum félagsmönnum þegar
þar að kemur. Meðal efnis í af-
mælisritinu má nefna greinar
eftir Vigdísi Finnbogadóttur,
forseta íslands, Vigdísi Gríms-
dóttur, kennara og rithöfund,
Jóhönnu Sigurðardóttur, alþm.,
viðtöl við einstæða foreldra,
greint er frá byggingar- og bún-
aðarsögu Skeljanesshússins,
greinar eftir börn einstæðra for-
eldra og fleira og fleira. Ritið
verður prýtt fjölda mynd úr
starfi FEF. Lumi einhverjir fé-
lagsmanna á skemmtilegum
myndum, sem henta í ritið þigg-
ur ritnefndin þær, svo og aðrar
hugljómanir með þökkum. Rit-
stjóri afmælisritsins er Jóhanna
Kristjónsdóttir, form. FEF og
aðrir í nefndinni eru Birna
Karlsdóttir, Guðnv Kristjáns-
dóttir, Kristjana Asgeirsdóttir,
Sigrún Þórðardóttir og Þorbjörg
Oddgeirsdóttir.
„ÁHRIFIN á peningamarkaðinn
verða margvísleg, en sumra þeirra
verður þó ekki vart fyrr en frá líður.
Ahrif, sem nú þegar er farið að gæta,
eru auðvitað stórbætt staða spari-
fjáreigenda, en þeir eiga nú um að
velja aukið úrval sparnaðarkosta á
hagkvæmum kjörum, sem eru með
þeim bestu, sem gerast í heiminum.
Kjör lántakenda hafa hins vegar
versnað talsvert í bili,“ sagði Gunn-
ar Helgi Hálfdánarson, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingarfélagsins
hf. þegar blaðamaður Morgunblað-
sins innti hann eftir áliti hans á því
hvaða áhrif aukið frjálsræði í vaxta-
málum og vaxtahækkanir inn- og út-
lána hafi á efnahagslífið.
„Þessar ráðstafanir draga úr
ásókn eftir lánum og minnka
eyðslu. Þó er hugsanlegt, að þess-
ara áhrifa gæti ekki að fullu fyrr
en eftir áramótin, þar sem mörg
fyrirtæki og einstaklingar hafa nú
þegar tekið ákvarðanir um útgjöld
og fjárfestingar ársins. Ljóst er
þó, að áhrifin munu draga úr
þeirri þenslu, sem illu heilli, hefur
verið haldið uppi hér á suðvest-
urhorninu að undanförnu.
í þeim kjaraumræðum, sem átt
hafa sér stað að undanförnu, hef-
ur að miklu leyti gleymst sú stóra
kjarabót, sem sparfjáreigendur
hafa fengið á síðastliðnum mán-
uðum. Þetta er fólk í öllum starfs-
greinum á aldrinum um og yfir 40
ára, en margir úr þessum hópi
hafa með hjálp verðbólgunnar náð
að borga upp fasteignir sínar og
hafa því getað lagt fyrir fé. Hinir,
sem eru eða hafa keypt fasteignir
að undanförnu á þeim erfiðu kjör-
um, sem nú bjóðast á fasteigna-
markaðinum, fá hins vegar litla
sem enga hjálp frá verðbólgunni
og koma því umræddar vaxta-
hækkanir afarilla við þá. Ljóst er,
að lenging lánstíma verður að
koma til, annars er hætt við að
þessi vandi endurspeglist i kaup-
kröfum. Hér er ef til vill enn einn
boltinn, sem er hjá ríkisstjórn-
inni.“
— En hver verða langtíma
áhrif vaxtabreytinganna?
„Langtímaáhrifin ættu að koma
fram í auknum sparnaði, sem síð-
an gæti leitt til lækkunar vaxta.
Þá er ljóst, að þessar breytingar
geta haft áhrif á rekstur banka-
og sparisjóða. Ég er ekki sann-
færður um, að þessir aðilar viti
allir, hvaða áhrif hin nýju vaxta-
kjör hafi á afkomu þeirra, né er ég
sannfærður um hæfni þeirra allra
til að standa í samkeppni. Afleið-
ing þessa gæti því orðið sú, að
nafnið „banki“ byði ekki upp á
sama öryggi og áður.
Hvort umræddar vaxtabreyt-
ingar skili þeim efnahagslega
árangri, sem vonast er eftir, er þó
algjörlega háð ríkisstjórninni og
Ríkissjóði. Þannig verða vextir að
fá að gegna þvi lykilhlutverki sínu
að slá af óarðbær fyrirtæki og
leyfa fjármagninu að leita til bet-
ur rekinna fyrirtækja og nýrra
arðbærra verkefna. Mikilvægi
þessa ættu allir að skilja, en arð-
bær atvinnurekstur er forsenda
þess, að hér verði greidd mann-
sæmandi laun í framtíðinni og að
verðbólga verði hófleg.
Atvinnurekendur kvarta sumir
undan háum vöxtum, en ég held að
enn fleiri kvarti undan fjármagn-
inu, sem ekki fæst. Það er stað-
reynd, að fátt er jafn skaðvænlegt
í rekstri fyrirtækja eins og sífellt
óöryggi við öflun rekstrarfjár og
fjárfestingarlána. Slíkt ástand
hamlar gegn markvissum áætlun-
um um rekstur fyrirtækja og hag-
ræðingu. Ef háir vextir stuðluðu
að auknu framboði lánsfjár, er
ekki ólíklegt, að jákvæðu áhrifin
yrðu víða mun meiri en þau nei-
kvæðu, alla vega hjá þeim fyrir-
tækjum, sem eru nægilega arðbær
og hafa skilyrði til vaxtar.
Hætt er þó við að vegna forrétt-
indaaðstöðu einstakra fyrirtækja
og atvinnugreina geti þessi róður
orðið þungur þannig að vöxtunum
verði hreinlega ýtt út í verðlagið
og/eða óarðbærum fyrirtækjum
haldið gangandi með styrkjum og
forréttindafyrirgreiðslu. Slíkt er
að sjálfsögðu verðbólguhvetjandi
og mun hamla gegn bættum lífs-
kjörum í landinu. Þá er Ríkissjóð-
ur stóra spurningin. Ef hann
hyggst yfirbjóða áfram aðra
sparnaðarkosti í landinu, er ljóst,
I Atvinnuhúsnæöi
■I 160 fm viö Smiöjuveg.
| Viö Sólvallagötu
I® Parhús, kjallari og 2 hæöir. 4
svefnherb. m.m. Laus strax.
m Ýmsir möguleikar. Geta verið
| tvær íbúðir. Verð 3,3 millj.
að vextir munu haldast lengi háir
með þeirri afleiðingu að Ríkissjóð-
ur einn hefði efni á (með aukinni
skattheimtu) að slá lán. Slíkt
háttarlag leiddi til stóraukinnar
hlutdeildar ríkisvaldsins í
atvinnulífinu."
— Hver verða áhrifin á verð-
bréfaviðskipti?
Það er ljóst að verðbréf hafa nú
fengið aukna samkeppni frá bönk-
unum, sem kann að leiða til minni
veltu til skamms tíma litið. Meiri
óþægindum veldur þó ómarkviss
framkvæmd Seðlabankans á nýju
vaxtastefnunni. óvissa um túlkun
vaxtaákvæða hefur valdið óöryggi
og óvissu á markaðinum, en slíkt
ástand er versti óvinur verðbréfa-
viðskipta.
Ef hægt er að gefa sér þá for-
sendu, að jafnvægi skapist á fjár-
málamarkaðinum hér á landi, er
ljóst að þá mun verðbréfamarkað-
urinn ná því innan fárra ára að
skipa ekki ósvipaðan sess og hann
gerir t.d. á hinum Norðurlöndun-
um, en það þýddi margföldun frá
núverandi stærð,“ sagði Gunnar
Helgi Hálfdánarson að lokum.
Vogahverfi — Raöhús
Raöhús meö innbyggöum bíl-
skúr, ca. 220 fm. 4 svefnh., góö
stofa m.m. Gðð kjör möguleg.
Laust eftir samkomulagi.
* Góðan daginn! co
68-77-6
FASTEIGISIAIN/IIOLUIM
Sverrir Kristjánsson
Hús Verslunarinnar 6. hœö.
Lögm. Hafsteinn Baldvlnseon hrl.
Hjallabraut Hafnarffirðí
Til sölu ca. 100 fm mjög björt og vönduö 3ja herb.
endaíbúö á 4. hæö. Þvottaherb. innaf eldhúsi. Stór-
kostlegt útsýni.
Smyrilshólar
Til sölu ca. 120 fm 5 herb. falleg íbúö á 1. hæö ásamt
bílskúr (4 svefnherb.). Parket og flísar á gólfum.
Hef kaupanda aö góöri séreign í góöu hverfi aem n»st skóla.
4 svefnherb. nauösyn, íbúöin þarf aö losna fljótl.
Góóar greiöslur í boói.
| Sumarbústaöur — Sumarbústaöur
'.] viö Skorradalsvatn á úrvaisstaö. Þarfnast lagfæríngar. ■
Lögmenn Hjalti Stemþóraaon hdl„ Gústaf Þór Tryggvasaon hdL
Alftahólar + bílskúr — 3ja herb.
Falleg 80 fm íbúö á 1. hæð. 20 fm bíiskúr. Nýleg teppi, frábært
útsýni. Verö 1850 þús.
Engihjalli — 3ja herb.
Glæsileg 97 fm íbúö á 5. hæö. Verð 1700 þús.
Hraunbær — 3ja—4ra herb.
Falleg 90 fm íbúö á 3. hæö + herb. í kjallara meö aögangi að
snyrtingu. Ný teppi. Ákv. sala. Verö 1750 þús.
Hraunbær — 3ja herb.
Falieg 90 fm íbúö á 2. hæö. Toppeign. Verö 1650—1700 þús.
Háaleitisbraut — 2ja herb.
Gullfalleg 70 fm íbúö á 1. hæö. Verö 1600 þús.
Vantar
4ra herb. íbúölr í Seljahverfi, Neöra-Breiöholti.
Vantar allar stæröir og geröir eigna á skrá. Skoöum
og verömetum samdægurs.
Gimli
Þórsgötu 26, 2. hæó. Sfmi 25099.
Árni Stefónsson viðskiptafr.
Góö 4ra herb. íbúö.
Filipp^eyjar«Taiwa~
I Farandaíerðinni til Filippseyja
verður aðeins gist á fyrsta ílokks
hótelum. Þess vegna látum við
gististaði eins og þessa íara íramhjá
okkur í íerðinni.
Hop$ Kop$*Kipa
Brottför I 21. desember
Brottför n 28. desembez
Ifaiandi
Vesturgötu 4 - sími: 17445.
Sérfræðingar í spennandi sumarleyfisferðum