Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 15

Morgunblaðið - 24.08.1984, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 15 Hulda Valtýsdóttir, formaöur Skóg- rektarfélags íslands. Erla ívarsdóttir, formaður Skóg- rektarfélagsins Mðrk i Kirkjubej- arklaustri. störfuðu margir í skógræktinni sem stóðu í eldlínunni í þjóðfélag- inu.“ „Það er mikil þörf á þessum að- alfundum," sagði Erla ívarsdóttir, sem er formaður Skógræktarfé- lagsins Markar á Kirkjubæjar- klaustri. „Það er mjög lærdóms- ríkt að hitta aðra víðs vegar að af landinu með ólíka reynslu. Við er- um mjög ánægð yfir því að fá alla þessa góðu gesti i heimsókn, það er mikil lyftistöng fyrir héraðið." Skógræktarfélagið Mörk er með tvær girðingar nú á Hunkubökk- um og i Hörgslandi. Erla sagði að félagið byggist við að fá nýja girð- ingu og taldi hún að áhuginn myndi eflast mikið við það. Félag- ið verður 40 ára nú í haust og eru í því um 65 félagar. Skógrækt á Markarfljótsaunim Á fundinum var lögð fram til- laga þar sem skorað var á Skóg- rækt ríkisins að kanna á hvern hátt megi koma upp stórfelldum víði-og asparskógi á Markarfljóts- aurum. Helstu vandkvæði eru þau að Markarfljótsaurar eru í eigu margra aðila. Á fundinum var einnig sam- þykkt að fela nefnd að endurskoða starfshætti Skógræktarfélags ts- lands og aðalfundi þess. Var lagt til að skógræktarþing yrði haldið annað hvert ár. Á fundinum var lagt til að að- ildarfélögin í samvinnu við Skóg- rækt ríkisins, efni til víðtækrar birkifræsöfnunar á þessu hausti í þeim tilgangi að sá birki í gróð- urvana og örfoka land þar sem lönd eru friðuð. Vaxandi áhugi á skógrækt „Við skógræktarfólk verðum vör við vaxandi áhuga á skóg- og trjá- rækt hér á landi, bæði meðal stjórnvalda og almennings og fögnum því,“ sagði Hulda Valtýs- dóttir í samtali við blaðamann. „Segja má að ákveðin þáttaskil hafi orðið þegar samþykkt var á alþingi í vor breyting á lögum um skógrækt þar sem kveðið er á um hvernig skógrækt getur orðið full- gild búgrein. Sömuleiðis fögnum við þeirri ákvörðun forsætisráð- herra að minnast 40 ára afmælis lýðveldisins með sérstöku átaki i skóg- og trjárækt og skipun nefndar með fulltrúum þingflokka ásamt fulltrúa frá Skógrækt ríkis- ins, Skógræktarfélagi (slands og Sambandi íslenskra sveitarfélaga, sem fjalla á um framkvæmdir í þvi sambandi. Innan vébanda Skógræktarfélags íslands eru áhugamannafélög víðs vegar um land, sem starfa i náinni sam- vinnu við Skógrækt rikisins. Það samstarf er mjög mikilvægt fyrir alla sem hlut eiga að máli og við treystum því að svo muni áfram verða. Skóg- og trjárækt er ákaflega fjölþætt málefni og skiptist í nokkra höfuðþætti. I fyrsta lagi hinn eiginlega nytjaskóg. Þá mætti nefna útivistarskóga að ógleymdri skjólbeltarækt sem er mjög mikilsverður þáttur og þyrfti að leggja meiri áherslu á. Með trjárækt er aðallega átt við ræktun trjáa í þéttbýli og loks er ótalinn sá þáttur sem stefnir að því að klæða landið trjágróðri til að skýla landinu fyrir veðri og vindum. Segja má að skóg- og trjárækt á íslandi hafi slitið barnskónum, nú eigum við reynslu og þekkingu i sjóði okkar og er þar fyrir að þakka framlagi Skógræktar ríkis- ins sem starfar á vísindalegum grunni. Sömuleiðs þann reynslu- sjóð sem fengist hefur með starf- semi áhugamannafélaganna. Nú blasa við okkur óunnin, en heillandi verkefni, sem skógrækt- arfélögin með Skógrækt ríkisins að bakhjarli eru reiðubúin að tak- ast á við.“ Tómas Ingi Olrich, formaður Skóg- ræktarfélags Eyfirðinga. vistarsvæði á Akureyri. (Jtivist- arsvæðið er um 300 hektarar. Við höfum kannski þá sérstöðu meðal skógræktarfélaganna að við erum bæði á landbúnaðarsvæði og þéttbýli." Á aðalfundinum lagði Skóg- ræktarfélag Eyfirðinga fram til- lögu um starfssvið Skógræktar ríkisins og skógræktarfélaganna. Hvað felur þessi tillaga í sér? „Við viljum að skógræktarmál verði tekin til endurskoðunar og reynt verði að skilgreina verka- skiptingu milli skógræktarfélag- anna og skógræktar ríkisins. Við viljum að skógrækt ríkisins hafi forgöngu um allt rannsóknarstarf og leiti t.d. að erlendum trjáteg- undum til að reyna hér og hún á að móta skógræktarstéfnuna. Skógrækt ríkisins á líka að hafa yfirumsjón með bændaskógunum. Skógræktarfélögin eiga aftur á móti að ala upp plöntur og gróð- ursetja, þannig á að virkja heima- menn. Skógrækt ríkisins er með plöntuuppeldi núna og við líka, þeir aftur á móti geta selt plöntur á niðurgreiddu verði sem okkur er hins vegar ekki unnt. Við viljum að skógræktarfélögin taki þessa starfsemi í sípar hendur." • ■ ' i »- i 'i ' II ' 1 ■ ■' ‘ Hægt aö skógklæða landið án þess að friða það algjörlega Rætt við Ingva Þorsteinsson, magister SÍÐAN árið 1980 hafa staðið yfir tilraunir í tveimur af fegurstu skóglendum landsins, á Hall- ormsstað og á Stálpastöðum í Skorradal. Tilraunirnar hafa mið- ast að því að kanna hve mikil áhrif sauðfjárbeit hefur á skóg- lendi landsins. Rannsóknastofnun landbún- aðarins stóð fyrir þessum rann- sóknum í samvinnu við skóg- rækt ríkisins. Ingvi Þorsteins- son, sem hefur staðið einna mest að rannsókninni, skýrði í erindi sínu á aðalfundi skóg- ræktarfélagsins á laugardag frá niðurstöðum þessara rann- sókna. Tilrauninni lýkur nú í haust og hefur þá staðið í 5 ár. „Við þurfum ekki að halda henni áfram, við erum búnir að eyði- leggja nóg,“ sagði Ingvi þegar blm. hitti hann að máli og spurði hann um rannsóknina. „Rannsóknin fór fram í bestu skóglendum landsins, þar sem gróður er algjörlega óspilltur. Alitið hefur verið að beitin hafi útrýmt skógunum sem voru hér, þó það komi auðvitað fleira til eins og skógarhögg og tíma- bundnar sveiflur í veðurfari. Ýmsir búfjárræktarmenn hafa legið okkur á hálsi fyrir að vera með staðhæfingar sem aldrei hafi verið sannaðar. Tilraunin átti að ganga úr skugga um hvernig sauðfjárbeit fer með skóglendi. Ingvi Þorseinsson, sem hafði um- sjón með rannsókninni í Hall- ormsstað og Skorradal. birki. Skaðinn er mestur vegna þess að skógurinn endurnýjar sig ekki. Barrplöntur, sem náð höfðu lámarkshæð, sluppu aft- ur á móti óskaddaðar. Sumar- beitin orsakar ekki skemmdir á eldri trjám sem hafa náð 3—4 metra hæð, þau eru ekki skemmd. í öðru hólfinu, sem var þyngra beitt, örlaði fyrir jarð- vegseyðingu og ef svipuðu beit- . >. x vM ý’: • 'I- v. /' '-ý« x' - Á þessari mynd sést mismunurinn á bláklukku, eftir því hvort hún var á svæði þar sem fjárbeit var, eða utan girðingarinnar. I hólfi 120 var töluvert beitarálag en mun meira í hólfi 130. Núna eru 1.250 ferkm. lands- ins skógivaxnir, en talið er að um 25—30 þús. hafi verið það þegar landið byggðist." — Hve stórt svæði tókuð þið fyrir í Hallormsstaðaskógi? „Við beittum á 10 hektara svæði og skiptum því niður í 2 hólf með mismunandi miklu beitarálagi. Það sem við sjáum á þessum stutta tíma sem til- raunirnar hafa staðið yfir, er að það hefur orðið algjört hrun á vissum plöntutegundum, sér- staklega blómjurtum sem prýða skóglendi. Þegar tilraun- in byrjaði voru blómtegundir um 30 að tölu en eru einungis um 15 nú. Öllum trjánýgræð- ingi hefur verið ýtrýmt og því enginn endurhýjun á víði og -r-rr- arálagi væri haldið í hólfunum myndi grasið hverfa að mestu og lélegri plöntur taka við og síðan jarðvegseyðing. Við sjúm að aðeins á 4 árum hefur orðið mikil breyting á skóginum og hvað þá ef sauð- fjárbeit er í áratugi eða í aldir. Þetta gróðurríki sem er hér núna er ekki eðlilegt gróðurfar landsins heldur afleiðing beit- __ U ar. — Hvernig getur skógrækt og beit farið saman? „Það getur farið saman á þeim forsendum að ekki sé vetrarbeit, það þarf að friða land í 15—20 ár þegar skógur- inn er orðinn gamall og gefa þannig ungviðinu tækifæri. .i b . iti Beitarálag má heldur ekki vera of mikið. Þessi tilraun var ekki gerð til þess að athuga hvernig hægt er að beita á 1.250 ferkm. heldur til þess sjá hvernig hægt er að skógklæða landið án þess að friða það algjörlega. Skóglendi er líka margfalt betra beitar- land en skóglaus úthagi. Til þess að þetta geti gerst getur bóndinn t.d. skipt landinu niður í reiti og friðað einn reit í einu Það verður að bíða kannski í 10—15 ár áður en hægt er að fara að beita á þann reit. Síðan er hægt að taka næsta reit við hliðina á honum og friða hann. Með þessum hætti er hægt smám saman að skógklæða stórt svæði." — Var mun meiri fallþungi þeirra dilka sem komu frá Hallormsstað? „Við ofbeittum þetta svæði og því var hann ekki meiri en í meðallagi. En í Stálpastaða- skógi var fallþungi um 19—20 kg enda var enginn ofbeit þar og skógurinn skemmdist ekk- ert. Markmiðið með hóflegri beit er að halda gróðurjafnvægi með háu beitargildi. Síðan má aldrei beita svo mikið að þetta jafnvægi raskist. Gróðurástand landsins er mjög slæmt eða um 4—5 hektarar fyrir hverja lambá. Það ætti að vera vanda- laust að 4—5falda þessi beit- argæði og minnka svæðið í 1 he fyrir lambá. Ef ég leyfi mér að vera svolítið bjartsýnn þá segi ég að á 10—20 arum ætti mark- inu að vera náð. Það er hægt með skipulegri og hóflegri beit. Þetta tel ég vera þá einu raun- hæfu leið fyrir landið í heild, því sannleikurinn er sá að við höfum ekki efni á öðru en t.d. að alfriða stór svæði. Beitiland getur aldrei verið blómum prýtt, það getur einungis verið það á friðuðum svæðum, þess í stað verða grös ríkjandi og því gróðurlendi eigum við að við- halda." — Er mikill hljómgrunnur meðal bænda fyrir þessum hugmyndum? „Þó að rýrnun gróðurlendis hafi verið mikil, hefur undan- farið stefnt í rétta átt, sem stafar af landgræðsluaðgerðum og fækkun sauðfjár. Mér hefur fundist að bændur hafi á þessu mikinn skilning. Það þarf að styrkja þá til að koma á skipu- lagi í landnýtingu og það þarf að vera skipulag á öllum fram- kvæmdum. Nytjaskógar geta vaxið ágætlega hér og það þarf að breyta þessum hefðbundna landbúnaði. Það er ekki hægt að skógklæða landið án sam- vinnu við bændur." — Hættið þið að beita núna í haust í skóginum? „Við friðum núna annað hólf- ið og sjáum þá hve langan tíma það tekur að gróa upp að nýju. Það sem vakti mesta furðu hjá okkur er hve stuttan tíma það tók sauðkindina að eyðileggja skóginn. En við vitum að það tekur oftast lengri tíma að byggja hluti upp en að rífa þá ■ ] niður." —— ,.„í *, ■ f ? 11 * Ht': VM* *« 'V

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.