Morgunblaðið - 24.08.1984, Síða 33

Morgunblaðið - 24.08.1984, Síða 33
MORGUNBLADIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984 33 og umræðurnar raunverulega snú- ist um, séu í raun réttri eiginlega hin veigaminni aukaatriði. Er þá nokkur ástæða til að trúa því, að Bandaríkjamenn muni láta ein- mitt það ráða úrslitum um sína helztu og dýrmætustu þjóðar- hagsmuni, hversu ánægðir þeir séu með frammistöðu Evrópu- manna? Það er erfitt að trúa því. En kæmi það hins vegar í ljós, að Vestur-Evrópa kysi, gagnstætt því sem ætlað er, að halda ekki uppi nokkurn veginn raunsærri stefnu í varnarmálum sínum, kynni hlut- deild Bandaríkjamanna að fá á svip, sem bæri fremur keim af ögrun og fæli í sér meiri áhættu en reyndin hefur verið fram til þessa. Þá kynni það að hafa á sér meiri skynsemdarblæ þetta með heimkvaðningu bandarísks her- afla frá Vestur-Evrópu og stefnu- breytingu Bandaríkjamanna á vit þeirra herfræðilegu valkosta, sem fyrir hendi eru að þeirra áliti. Það myndi að öllum líkindum einnig vekja spurninguna um alveg nýjar hliðar í sambúð risaveldanna, en það virðist á hinn bóginn hvorki gerlegt né tímabært eins og sakir standa. Rök fyrir Reagan? Því hefur verið haldið fram, að öldungadeild bandaríska þingsins hafi veitt Reagan forseta dipló- matískan byr undir vængina með því að láta í Ijósi þetta greinilega óánægju með frammistöðu ríkja Vestur-Evrópu eins og fram kom í afstöðu þeirra 41 öldungadeild- arþingmanns, sem greiddu at- kvæði með tillögunni. Ástæðan er sú, að Reagan geti nú sagt við ráð- amenn Vestur-Evrópu, að ef fram- lög ríkja þeirra til varnarmála aukist ekki og nái að minnsta kosti þriggja-prósenta markinu, muni þau öfl, sem þessa stundina eru minnihlutinn í bandaríska þinginu, geta styrkst og vaxið upp í að verða meirihlutinn. Vestur- Evrópa eigi því, með því að sýna lit í þá átt að auka fjárframlög sin til varnarmála, að geta verið Reagan forseta innan handar við að hafa taumhald á ástandi mála innan bandaríska þingsins og koma í veg fyrir að meirihluti myndist á þingi, sem sé fylgjandi einhliða heimkvaðningu banda- rísks herafla frá Vestur-Evrópu. Slíkir þankar geta svo sem haft ýmislegt til síns ágætis í því skyni að skýra nánar vissa aðferð við röksemdafærslu. En svo framar- lega sem við Vestur-Evrópubúar höfum á réttu að standa varðandi þá ályktun okkar, að það sé enn sem komið er í þágu þjóðarhags- muna Bandaríkjamanna að komið verði í veg fyrir, að Ráðstjórnar- ríkin vinni sér yfirburðastöðu og nái undirtökunum í Vestur-Evr- ópu, þá hefur slík röksemdafærsla vart nokkur áhrif á gang mála. Það sem umfram allt verður að koma fram er, að Bandaríkjamenn sjálfir geri það sæmilega lýðum ljóst, hverjir séu þessir banda- rísku þjóðarhagsmunir að þeirra eigin skilning, og hvernig þeirra skuli gætt. Sjái forseti Bandaríkj- anna sér ekki fært að sannfæra bandarísku þjóðina um, að megin- drættirnir í þeirri utanríkis- stefnu, sem Bandaríkin hafa hingað til fylgt, séu stöðugt í þágu bandarískra þjóðarhagsmuna, þá verður ekki annað sagt en að það sé ósköp lítið, sem Vestu-Evrópa út af fyrir sig getur gert í því máli. Ríkin í Vestur-Evrópu leggja þó, þegar öllu er á botninn hvolft fram sinn vissa drjúga skerf til varnarmála álfunnar. Ef málum er svo komið, að um- ræðurnar um þriggja-prósenta mörkin geti í raun og veru leitt til einhliða heimkvaðningar banda- Hsks herafla frá Vestur-Evrópu, þá verður að telja fulla nauðsyn á, að tekið verði til ítarlegrar athug- unar til hvers við séum eiginlega að burðast með Atlantshafs- bandalagið. Arne Olar Brundtland er aérfræð- iagur í öryggis- og afvopnarmálum vid Norsku utanríkismálastofnun- ina. Minning: Solveig Kolbeinsdótt- ir frá Skriðulandi Fædd 23. marz 1927 Dáin 5. ágúst 1984 Sennilega hefur drengskapar- hugtak fornnorrænnar menningar verið hjartagrónara vitund, skoð- un og vilja Solveigar frá Skriðu- landi en annað hið mikla, andlega mál, sem minnin geyma í íslenzkri þjóð- og sagnfræði. í reisn þess og falli mun hún hafa fundið ýtrustu frábrigði skáldamálsins um menn geðfelldrar hugkyrrðar sátta og góðhuga og svo óróans, er leiddi til ógæfuverka hefnda og holundar- sára. Lagði Solveig mikla rækt við islenzk fornfræði og var allt frá bernskudögunum norður í Kol- beinsdal handgengin sögunum, ekki sízt Grettlu og Sturlungu, af lestri Kolbeins föður síns, er flutti fram af þeim tilfinninga- og skilningsrómi, sem var mikill yfir málinu, og Kristins Sigurðssonar á Skriðulandi, afa síns. Áttu þau eina og óskoraða áhugaleið í þessu efni Kristinn og sonur hans og sonardóttir, óvenju sammerkta og eindregna, en kynslóðabil gaf ólík auðkenni frásagnar, ritstarfa og skólalærdóms. Munnleg framsögn var snilldarhæfi á hvíldarstaðnum Skriðulandi á erfiðri og viðsjálli gönguleið um Heljardalsheiði á tima Kristins og konu hans Hall- fríðar Jónsdóttur frá Efra Ási. Færi meira til ígrundunar sögu og ritunar, er þau Kolbeinn og Krist- ín kona hans Guðmundsdóttir frá Smiðsgerði bjuggu á Skriðulandi, þótt harðsóktar ferðir væru enn tíðar um Heljardalsheiði vegna viðgerða á símalínunni, sem þar var lögð í upphafi norður um land frá Seyðisfirði. Eftirlitsstöð var á Skriðulandi og skipti sköpum á svo afskekktum bæ, því að daglegt samband var við Svarfdælinga og nágrannastöðvar í Skagafirði. Koíbeinn vandist því snemma meðfram fyrri sögu og fornum háttum hreyfing hinnar nýju ald- ar og breytingum. Hélt hann veð- urathuganastöð í áratugi og varð það ásamt nálægð margra byggða í línunum í símaborðinu óbein hvatning til skoðunar nýrri tíðar sögu og samtímaviðburða. Hér skal ekki fjölyrt um ritstörf Kolbeins fræðimanns á Skriðu- landi, er lézt á sumrinu 1983, 92 ára, enda þótt getið skuli um minningargreinar hans um horfna samtíðarvini, vegna hins óvenju- lega næmis hans i skilningi á lífi og aðstæðum annarra, fágunar og glæsileika málsins, svo sem ljós- ast er af ritgerð hans um síra Benedikt prófast Vigfússon á Hól- um og ýmsum greinum í Skag- firzkum æviskrám. Solveig var fædd á Skriðulandi hinn 23. marz 1927, 11 árum eldri en Hallfríður systir hennar. Sig- urður bróðir þeirra lézt í bernsku, en fósturbróður áttu þær, Kolbein Sigurðsson úr Hjaltadal, er lézt ungur fjölskyldumaður á Akureyri fyrir fáum misserum. Allt um miseldri þeirra Skriðulandssystra og Kolbeins, var félag þeirra gott og vinfengi náið. Er söknuður Hallfríðar mikill eftir Solveigu, en foreldrar og fósturbróðir horfin burt á skömmum fresti. Áttu sam- SVAR MITT eftir Billy Giraham Úr djúpinu Foreldrar mínir hafa skilið, og ég á heima hjá ömmu minni, sem er orðin háöldrud. Ég er ekki við eina fjölina felldur og þarf á hjálp að halda. Ég er í hópi, sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna, og ég óttast, að við göngum of langt. Mig langar til að breyta Ifferni mínu, en ég hef ekki rekizt á neinn, sem getur lagt mér lið. Eigið þér ráð handa mér? Ég vildi, að ég gæti spjallað við þig augliti til aug- litis. Þú ert í hópi þeirra mörgu, sem ætluðu að „hressa sig“ á einu og öðru, en það dró þá niður í svaðið. En þú skrifar mér, predikara, og þá verður þú að fyrirgefa, að ég predika fyrir þér. Það er til kærleikur, kærleikur Guðs, handa þér og handa öllum hinum í hópnum. Guð elskaði þig svo heitt, að hann fórnaði sér þín vegna. Hann veit um allar syndirnar, sem þú hefur drýgt og að þær svipta þig hamingju, af því að þú fyllist sektarkennd. En hann lætur sér ekki nægja að þekkja þig og breytni þína. Hann hefur gert ráðstafanir vegna þín. Biblían segir okkur, að laun syndarinnar séu dauði — andlegur dauði — einangrun frá Guði. En Guð sendi son sinn til þess að deyja á krossinum, til þess að sýna þér fullkomna leið í burtu frá syndalífi þínu. Kristur dó fyrir þig á krossinum, og hið eina, sem þú þarft að gera, er að þakka honum fyrir það og trúa á hann sem frelsara þinn. Við lendum í miklum erfiðleikum, en Guð skilur okkur ekki eftir eina og yfirgefna. Þú kemst að raun um, að Kristur sem dó þín vegna, lifir nú þín vegna. Láttu hann verða vin þinn. Talaðu við hann, bið hann um hjálp. Bið hann að veita þér sigur, þegar freistingarnar sækja á. Gefðu honum tækifæri til að sýna mátt sinn, og þú finnur, að hann er lausnin, sem þú væntir og þráir. rýndar systurnar glatt og fallegt heimili í Reykjavík á stúdentsár- um Hallfríðar þar, en þá hafði Solveig lokið prófi í norrænum fræðum og var kennari við Kvennaskólann. Þetta voru starfskrafnir tímar en skemmti- legir í vonum og árangri. Foreldr- arnir voru um þær mundir á Sauð- árkróki, þar sem Kolbeinn vann að fræði- og skrifstofustörfum um sinn eftir 7 ára bókhaldsstörf hjá Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur- eyri. Búskap höfðu þau hjónin hætt á Skriðulandi árið 1955 og hefur bærinn síðan legið í auðn, ábyrgð símalínanna um Heljar- dalsheiði aflétt og mannaferð yfir fjallið alls engin, nema á bjartan sumardag. Fækkar þeim mjög, er minnast fræðaþularins á notaíegu kvöldi í Skriðulandsbænum, en oft voru þau minni rakin, er við skóla- bræður Hallfríðar vorum gestir þeirra systra í Tjarnargötu 43. Móttökurnar vöktu slíka ræðu, er fram voru bornir réttir íslenzkrar hefðar fyrri ára. Stóð Solveig fyrir risnu af þeirri aufúsu og mynd- arskap, sem ekki gleymist, en minnti á frásögur í Skagfirzkum æviskrám um Hallfríði og Krist- ínu á Skriðulandi. Það var ekki aðeins háskólalær- dómur kandidat Solveigar í ís- lenzkum fræðum, sem gaf sögunni líf og jafnvel óhagganlega mótun í hugum okkar gesta hennar, heldur framar öðru sá grunnur, sem hún byggði á frá Skriðulandi: Lestur- inn hreimmikli og hinn orðnæmi stíll, en fléttuð saman fortíð og nútíð, er aldir minna á eina örlagastund, líkt og Davíð frá Fagraskógi komst að orði í slíkri veru, vinur Skriðulandsfólks. — Þá var Solveig skelegg í félags- skoðun, einörð í vilja og snjöll í framsögn. Hún var gáfuð, lærð og mjög skemmtileg kona. Auk þess bar hún þess daglegt vitni, að hún var handgengin hinu forna nor- ræna drengskaparhugtaki, vildi standa um það vörð og efla í heið- ríkari huga vaxandi drengja. Hollur hefur slíkur kennari ver- ið í staðfestu og hlýju og þrekmik- il lundin til fræða og stoðar. Þá var það ómældur fengur nemenda Solveigar, hve glaðsinna hún var og góðvildin ríkuleg til að færa hvaðeina til betri vegar. Eftirlifandi manni sínum, dr. iuris Hafþóri Guðmundssyni, sveitunga sínum úr Hólahreppi, giftist Solveig hinn 17. ágúst 1963. Áttu þau 2 dætur, sem nú eru við tvítugsaldur, Önnu Benediktu og Kristínu Ragnheiði, og svo einka- soninn Sigurð Kolbein, sem aðeins 14 ára sér ástúðugri móður á bak. — Guðs gæfa i hinum beztu erfð- um beggja foreldra fylgi börnum Solveigar frá Skriðulandi fram á veg. Þeim, föður þeirra og móður- systur votta ég innilega samúð í þakklátri minningu fornrar vin- áttu. Ágúst Sigurðsson frá Mælifelli Jón G. Guðjónsson kennari — Minning í dag kveð ég vin minn, Jón G. Guðjónsson fyrrverandi kennara, hinstu kveðju. Mér verður hugsað til liðinna ára. Ég var svo lánsöm að kynnast þeim hjónum er þau fluttu í næstu íbúð við mig fyrir 15 árum. Ég hafði verið leið yfir því að missa það fólk sem þar hafði þá verið á undan. Ég fann brátt að annað gott fólk var komið í stað- inn, sem reyndist mér sem bestu vinir fram á þennan dag. Ég vil þakka Jóni fyrir hve hann átti alltaf hlý og falleg orð er ég átti í erfiðleikum. Hann gat ætíð gefið mér góð ráð sem hjálpuðu og dugðu og litið var með bjartari augum til næsta dags. Jafnvel í þungum veikindum hans gat hann gefið þaö mikið af sjálfum sér að maður fór glaðari af fundi hans. Varla hef ég kynnst traustari og betri manni og væri óskandi að fleiri væru til. Að lokum vil ég þakka Jóni og konu hans fyrir allar þær góðu stundir sem ég átti með þeim. Veri hann Guði falinn. Ég veit að Jón- ína hefur misst mikið, en Guð mun launa þér, Jónína mín, allt það sem þú hefur lagt á þig hina síðustu mánuði, til að létta Jóni stundirnar. Guð blessi þig og fjöl- skyldu þína. Edda Larsen María E. Helga- dóttir — Minning Mig langar að minnast vinkonu minnar Maríu með nokkrum kveðjuorðum. Hún lauk sinni jarð- vist 15. þ.m. á Borgarspítalanum eftir langvarandi veikindi. Við áttum margar samverustundir. Þá ræddi hún um hin duldu rök til- verunnar sem oss eru svo hulin. Hún trúði á hið góða, í von um að birti til. Það dimmdi mikið þegar þau hjónin urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa elsta son sinn. Efni- legan og elskulegan pilt í blóma lífsins. Én þau áttu eftir 2 drengi og eina stúlku, góð og efnileg börn, hún var vel studd af sínum trausta og duglega eiginmanni sem alltaf stóð við hlið hennar til hinstu stundar. Ég trúi því staðfastlega að Maju uppfyllist allar sínar óskir og þrár á nýjum brautum. Ég styð þá von mína með orðum Kahil Gibran „Trúðu á draum þinn, því hann er hlið eilifðarinn- ar. Því hvað er að deyja annað en að standa nakinn i blænum, og hverfa inn í sólina," Manni hennar og börnum sendi ég mínar hug- heilar samúðarkveðjur. Anna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.