Morgunblaðið - 24.08.1984, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 24. ÁGÚST 1984
Magath stjóri
Frá Jóhanni Inga Gunnarssyni, fréttaritara
Mbi. í Kiel:
GERT hefur verið heyrinkunnugt,
að vestur-þýski landsliðsmaöur-
inn Felíx Magath muni taka viö
framkvæmdastjórastöðunni hjá
Hamburger Sportverein er
Gunther Netzer segir henni lausri
árið 1986. Er búið aö samnings-
binda Magath til ársins 1991.
HSV hefur æft af kappi fyrir
komandi knattspyrnuvertíð, lók
síðast við spænska 1. deildarliðið
Valencia ytra. Reiö HSV ekki feit-
um hesti frá þeirri viðureign, tap-
aði 1—5.
é i
• Felix Magath
SEBASTIAN Coe, millivega-
lengdahlauparanum fræga, tókst
ekki ætlunarverk sitt á frjáls-
íþróttamótinu í Zllrich í Sviss í
fyrrakvöld. Hann hafði lýst því yfir
að hann ætlaöi sér að fella
heimsmet landa síns Steve Ovett
í 1500 metra hlaupi. Það tókst
honum ekki þrátt fyrir gott hlaup
og sigur í því.
Þaö var góöur hraöi í hlaupinu,
en „héri“ Coes hætti heldur
snemma aö halda uppi hraöanum
og fékk hann því ekki þá hvatningu
til aö spretta úr spori sem hann
haföi óskaö sér. Hann sigraöi þó í
hlaupinu á 3:32,39 mínútum, en
heimsmet Ovetts er 3:30,77, þann-
ig aö Coe var alls ekki fjarri því aö
gera betur. í 2. sæti varö Banda-
ríkjamaöurinn Steve Scott á
3:33,46, en heimamaöurinn Pierre
Deleze varö þriöji á 3:33,69.
Brasilíumaöurinn Joaquim Cruz
reyndi á hinn bóginn aö hnekkja
heimsmeti Coes í 800 metra
hlaupi. Hann hljóp mjög vel og
vann hlaupiö, en metiö féll ekki,
Cruz hljóp á 1:42,34, metiö
1:41,80.
Viggó í Aston Villa?!
Viggó Sigurösson í Aston Villa?
Síöast er viö vissum lék hann
knattspyrnu meö Ármanni í 3.
deild og er all langt síöan þaö var.
Því brá okkur í brún er viö rákum
augun í mynd þessa í breska
knattspyrnuvikuritinu Match, en
myndin fylgdi umfjöllun um nokkra
leikmenn 1. deildarliösins fræga
Aston Villa. Best aö upplýsa þaö
strax, aö þetta er ekki Viggó Vík-
ingur, heldur tvífari hans, velskur
piltur aö nafni Eamon Deacy og er
sá efnilegur bakvöröur sem streö-
ar viö þaö aö komast í aðalliö Ast-
on Villa. Þaö er óneitanlega svipur
meö þeim Eamon og Viggó . ..
Stórgóður árang-
ur hjá KR-strákum
Ein sjómíla er 1852 metrar. Ef þú syndir 200 metra á dag í níu daga ertu búinn aö
synda tæpa eina sjómílu. Hvaö næröu aö synda margar sjómílur fyrir Island til 30.
nóvember? — Markmiöiö er aö synda tvo hringi í kring um jörðina.
Norræna sundkeppnin hefur nú
staðiö yfir í rúma 2 mánuöi eöa frá
1. júní og henni lýkur 30. nóvem-
ber nk.
Takmarkiö er aö fá 25.000
manns til aö synda 200 metra. Nú
hafa 12.500 manns synt og er
vegalengdin um 14.000 mílur.
Kringum hnöttinn eru 26.470
mílur og nú er sú vegalengd hálfn-
uö, ef viö hugsum okkur aö allir
færu boðsund.
Markmiöið er aö komast 2
hringi á þeim 6 mánuöum sem
Norræna sundkeppnin stendur yf-
ir.
Bæjakeppni er milli:
Selfoss — Húsavíkur — isafjaröar
Njarövíkur — Sandgerðis
Dalvíkur — Ólafsfjaröar
Vestmannaeyja — Keflavíkur
Sundiökun er heilsuvernd og
hvetjum viö alla til aö stunda sund
sér til heilsubótar.
Munið aö taka þátttökuspjöld
og skila í hverjum mánuöi afrifum
sundmiöanna.
• KR-ingarnir sigursælu.
HNATTSUND
íslensku þjóöarinnar
1984
Nú syndum við 26.470
sjómílur í kring um
jörðina
4. fiokkur KR gerði góða ferö til
Danmerkur fyrr í sumar þar sem
liðið tók þátt í miklu knattspyrnu-
móti með þátttöku liða aöallega
frá Danmörku og Vestur-Þýska-
landi. KR-ingar geröu sár lítiö
fyrir og komust í úrslit, en töpuðu
þar naumlega fyrir liöi Frede-
rikstad eftir vítaspyrnukeppni.
KR-ingar mættu vestur-þýska
liöinu Neustadt i fyrsta leik sínum
og varö jafntefli, 1 — 1. Næstu þrjá
leiki vann KR meö miklum yfir-
buröum, Herslund frá Danmörku
10—0, Helsinge frá Danmörku
6—0 og Föllenslev frá Danmörku
14—0. Síöasti leikurinn í riölinum
var gegn vestur-þýska liöinu Hag-
en og uröu KR-ingar aö vinna til aö
komast í undanúrslit. Þaö hafðist,
KR sigraöi 2—1.
KR mætti danska liöinu IF 32 í
undanúrslitum og varö úr hörku-
viðureign sem KR maröi sigur á
eftir vítaspyrnukeppni, 7—6. Var
þá leiðin í úrslitaieikinn greið og
þar mætti KR-liöiö sterku dönsku
liöi aö nafni Frederiksborg. Eftir
venjulegan leiktíma var staöan
jöfn, 0—0, og höföu KR-ingar þó
fengið ákjósanleg tækifæri til aö
skora og gera út um leikinn sér í
hag. Þaö varð ekki, framlenging
gaf engin mörk og danska liöiö
haföi svo sigur, 5—4, eftir víta-
spyrnukeppni.
Heimsmetin héldu
velli í Ziirich
Arnór skoraði fallegt
mark í fyrsta leiknum
ARNÓR Guöjohnsen skoraði fal-
legt mark og eitt af 9 mörkum
Anderlecht, er liðið vann Racing
Jet hvorki meira nó minna en
9—2 á útivelli í fyrstu umferð
belgísku deildarkeppninnar f
knattspyrnu sem fór fram í fyrra-
kvöld. Arnór lék með í síöari hálf-
leik og var það sjötta mark liðs-
ins sem hann skoraöi, en staöan í
hálfleik var 4—2 fyrir Anderlecht.
Mörk Anderlecht skoruðu annars
Czerniatinski og Grun sem skor-
uöu tvö hvor, eitt hver geröu þeir
Scifo, Frank Arnesen, Arnór, Van
Der Bergh og Vercauteren. Úrslit
leíkja uröu þessi:
Lokeren — FC Meclin 1 — 1
Standard — Waregem 3—2
Beveren — Beerschot 3—1
Cercle Brugge — FC Liege 0—0
Lierse — FC Brugge 0—2
Antwerpen — St. Niklaas 2—2
Kortrijk — Waterschei 0—0
Searing — Ghent 3—3
Racing Jet — Anderlecht 2—9
Arnór Guðjohnsen skoraöi fallegt mark fyrir Anderlecht.
Mótherjar Skagamanna, Bever- | Skagamenn geta vitaö hverju þeir
en, byrja tímabiliö vel þannig aö | eiga von á, sterkum mótherja.