Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.10.1984, Blaðsíða 22
86 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. OKTÓBER 1984 „Ég veit ekkert hvernig fólk hagar sér í eyjunum núna“ Anna Kristín Björnsdóttir hef- ur líklega búið einna lengst núlif- andi íslendinga á eyjunum í Breiðafirði. Hún er fædd 4. júlí 1894 í Reykhólasveit, dvaldi tals- vert sem unglingur í Látrum, en flutti ásamt manni sínum, Svein- birni Péturssyni, í Skáleyjar upp úr 1920. Þar bjuggu þau i 26 ár, fluttu þá yfir í Svefneyjar og bjuggu þar í 20 ár, en þá fluttu þau í Flatey og bjuggu þar í 16 ár, eða þangað til Sveinbjörn lær- brotnaði í fyrra. í kjölfar þess urðu þau að yfirgefa eyjuna og setjast að í Stykkishólmi, þar sem Sveinbjörn er enn rúmliggjandi á spítalanum. Við heimsóttum önnu í litla húsið hennar í Hólminum. „Við keyptum þetta í fyrra á 215 þúsund og borguðum allt út. Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að það borgi sig ekki að skulda neitt,“ segir hún og býður okkur inn í litlu stofuna sem er full af stofu- blómum og krosssaumsmyndum. Húsið sem þau keyptu sér í Flatey var fyrsta húseignin þeirra þrátt fyrir langan búskap, en lengst af voru þau í vinnumennsku á eyjun- um. - Anna, þú hefur búið lengst af á eyjunum í Breiðafirði. Hefurðu ekki frá mörgu að segja? „Hvað ætli ég muni, ég er orðin svo gömul að ég er búin að gleyma öllu.“ - Þú lítur nú ekki út fyrir að vera orðin níræð, gætir vel verið rúmlega sjötug eftir útlitinu að dæma. „Ég get ekkert gert að því. Það eru allir að segja þetta við mig og ef fólk trúir mér ekki nefni ég bara ártalið.” - Það hafa fáir búið jafn lengi og þið í eyjunum ... „Það veit ég ekki, en það hafa fáir verið jafn lengi i hjónabandi og við. Fólk er alltaf að skilja bæði hér og annarstaðar. Það er líka farið að gifta sig áður en það er fermt.“ - Var það öðru vísi í þínu ung- dæmi? „Já, nú er hver einasta mann- eskja gift, bæði i eyjunum og eins uppi á landi.“ Það var lika miklu fleira fólk i eyjunum hér áður. Þegar við flutt- um fyrst í Skáleyjar voru þar fimm bæir. Ég ólst upp i stórum systkinahóp, við vorum svo mörg systkinin að okkur gat aldrei leiðst. Ég átti 9 systkini, var sú tíunda, nú er helmingurinn dáinn af þeim. Þegar ég var krakki var ég 4 vetur í Látrum, það voru t.d. um 30 manns sem frænka min skammtaði þar á einu heimili, og á eyjunni voru 2—3 aðrir bæir. Það sagði mér kona sem bjó með mér í Flatey, að þar hefði allt ver- ið fullt af fólki, jafnvel 2—3 fjöl- skyldur í hverju húsi og húsin öll uppljómuð með olíulömpum. En nú vill enginn búa nema í kaup- stöðum. Ég veit ekkert hvernig fólk hagar sér i eyjunum núna, en mér er sagt að það sé með öll þæg- „Mér þykir igætt að búa hér í Stykkishólmi, hef ekki vantist því betra." Anna Kristín fyrir utan húsið sitt í Hólminum. Vinaminni, fyrsta húsið sem þau Anna Kristín og Sveinbjörn eignuðust í Flatey. - Hvar hefur þér fundist best að búa? „Mér hefur allstaðar liðið vel. Ég kann ágætlega við mig hérna, ég hef eignast hér marga góða kunningja sem lita til min.“ - Varstu aldrei einmana á vet- urna i eyjunum? „Nei, þó Sveinbjörn hafi verið um 30 vertíðir á togurum, þá hafði ég börnin hjá mér, við tókum tvö fósturbörn, sem hafa verið okkur eins og við ættum þau. Annað býr nú i Reykjavik en hitt i Kópavogi. indi, jafnvel uppþvottavél hvað þá annað. Það fer meira að segja til útlanda héðan úr plássinu, eða svo hef ég heyrt.“ - Hefur þú farið til útlanda? „Nei, og ég hef aldrei komið i flugvél. Meðan ég bjó í Skáleyjum og Flatey skrapp ég þó stundum til Reykjavikur. - Hvað gerðuð þið ykkur til skemmtunar i eyjunum i gamla daga? „Ekkert, við vorum alltaf að vinna." - Er gott að búa hér á Stykkis- hólmi? „Mér þykir það ágætt, ég hef ekki vanist þvi betra." - Þú vilt ekki fá þér sjonvarp eða heimilisdýr til að stytta þér stundirnar? „Nei, það er þrennt sem ég vil ekki fá inn á mitt heimili: hundar, kettir og sjónvarp, i þessari röð. En ég er með sima, það vildi að ég tæki inn síma meðan ég bjó i Flat- ey og ég flutti hann með mér hingað.“ » „Fólk getur lifað hér góðu lífi ef það vill leggja Hinn bóndinn i Flatey heitir Svanhildur Jónsdóttir. Hún hefur verið í Flatey í 17 ár, þar af hefur hún búið ein sl. 7 ár. Svanhildur er úr Gufudalssveitinni, hún er með 60—70 kindur, og eftir sauðburð á vorin flytur hún þær yfir í Gufu- dalssveitina, en þangað er um 4 tima sigling úr Flatey með fjár- flutning á ltilum trillum. „Jú, þetta er frekar erfiður búskapur," segir hún um leið og það á sig" hún treður tóbaki i pipuna og kveikir í. Svanhildur er fjögurra barna móðir, börnin hennar eru 12, 15, 19 og 21 árs. í vetur verður þó aðeins einn sonur hennar heima, Tryggvi, auk Kristjáns Gunnarssonar úr Svefneyjum sem þar verður í vinnumennsku hluta vetrar, en Svanhildur gerir ráð fyrir að búa ein síðar í vetur. — Ert þú ekki ein fárra kvenna sem bera starfsheitið bóndi? Svanhildur, annar bóndinn f Flatey, isamt syni sínum, Tryggva.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.