Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 1
128 SÍÐUR
STOFNAÐ 1913
226. tbl. 71. árg.
SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Yfirmaður herafla Bandaríkjanna:
Hætti við heim-
sókn til Chile
Sutiafo, 17. DÓTember. AP.
JOHN A. Wickham hershöfðingi, yf-
irmaður herafla Bandaríkjanna, sem
boðið hafði verið að koma til Chile
um síðustu belgi og fylgjast með her-
æfingum, hctti við ferðina til að láta
í Ijós óánægju bandarískra stjórn-
valda með framkvæmd herstjórnar-
innar á lögum um neyðarástand. Er
þetta haft eftir ónafngreindum
heimildarmönnuum í Santiago.
Heimildarmennirnir segja, að
Pinochet, leiðtoga herstjórnarinn-
ar, hafi verið greint frá því, að
Bandaríkjastjórn væri mjög ósátt
við neyðarlögin og framkvæmd
þeirra, en varnarmálaráðuneyti
Chile og sendiráð Bandarikjanna í
Santiago hafa ekkert viljað um
málið segja.
I vikunni sem leið hvatti utan-
ríkisráðuneytið í Washington til
þess að stjórn og stjórnarandstaða
í Chile reyndu að ná samkomulagi
um að endurreisa lýðræði í land-
Skæruliðar í E1 Salvadon
Tilboð um ein-
hliða vopnahlé
WaHhinglon, 17. nóvember. AP.
EINN af forystumönnum skæruliða í El Salvador sagði í gær, að hann og
menn hans væru tilbúnir til að gera vopnahlé ef yfirmenn stjórnarhersins
fcllust á það. Duarte, forseti, hefur boðað nýjar viðræður við skæruliða í
desember nk.
Guillermo Ungo, sem stýrir
pólitískum armi skæruliðahreyf-
ingarinnar, sagði á fundi með er-
lendum fréttamönnum, að hreyf-
ingin hefði samþykkt að leggja
einhliða niður vopn um stundar-
sakir ef gengið yrði að vissum
skilyrðum, sem hann nefndi ekki
BBC:
Sjónvarpar ekki
fegurðarsamkeppni
frekar. Sagði hann ennfremur, að
skæruliðar hefðu áhuga á að taka
á einhvern hátt þátt í sveitar-
stjórnarkosningunum, sem haldn-
ar verða í landinu í mars nk. Ungo
vildi þó ekki svara því hvort form-
legt vopnahléstilboð yrði sett
fram í viðræðum skæruliða við
stjórnvöld, sem fyrirhugaðar eru á
næstunni.
Jose Napoleon Duarte, forseti
E1 Salvador, sagði í gær, að við-
ræður við skæruliða yrðu teknar
upp aftur í desember en ráðgert
hafði verið, að þær yrðu seinni
hluta þessa mánaðar. Sagt er, að
skiptar skoðanir séu innan stjórn-
arinnar um þessar viðræður en
Duarte vildi ekkert um það mál
segja.
Skokkað í kvöldkyrrðinni.
Ljósm. Ól.K.M
Sveltandi Afríkubúum verður
að hjálpa til sjálfsbjargar
að öðrum kosti verður enginn
endir á neyðaraðstoðinni
Loadoa, 17. flórefliber. AP.
Forráöamenn BBC, breska
ríkisútvarpsins, skýrðu frá því í
gær, að ákveðið hefði verið að
hætta að sjónvarpa frá fegurðar-
samkeppni, þar sem slíkar sýn-
ingar væru tímaskekkja á öld
jafnréttis og nánast móðgandi.
Ákvörðun þessi kemur til
framkvæmda eftir að sjón-
varpað hefur verið frá úrslita-
keppninni um fegurstu stúlku
Bretlands í janúar á næsta ári.
Tilkynning BBC er birt degi
eftir að helsti keppinauturinn,
óháða sjónvarpsstöðin ITN,
sjónvarpaði keppninni um kjör
Ungfrú heims. Talið er að um
500 milljónir manna í 20 lönd-
um hafi fylgst með þeirri út-
sendingu.
Sameifluóu þjóAuflum, 17. BÓTomber. AP.
AFRÍKUBÚAR horfast í augu vió
hungur og harðrétti, sem setja
munu alvarlegt mark á það fólk,
sem nú er aö vaxa upp i álfunni.
Kom þetta fram hjá talsmanni
Barnahjálparsjóós SÞ, sem sagði,
aö farsælla væri ef vestrænar
þjóóir notuðu aðstoóina til að
hjálpa fólkinu til sjálfsbjargar í
stað þess að gefa því mat um
stundarsakir.
Bert Denmers, talsmaður
Barnahjálparsjóðs SÞ, sem
kom frá Eþíópíu í vikunni,
sagði, að vestrænar þjóðir
hefðu verið svo uppteknar af
eigin efnahagskröggum, að þær
hefðu ekki sinnt neyðarkalli
Eþíópíumanna og annarra
þjóða fyrr en allt var komið í
eindaga. Sjö milljónir manna
syltu heilu hungri og líklega
gæti ekkert orðið flestum
þeirra til bjargar úr því sem
komið væri. Sagði Denmers, að
200 af 500 milljónum manna í
Afríku hefðu orðið fyrir búsifj-
um af völdum þurrkanna, sem
væru þeir mestu í rúma öld.
Bert Denmers kom í búðir,
sem SÞ hafa komið upp í fjöll-
um Eþíópíu, og segir af því
dapurlegar sögur. Á þessum
slóiðum fer hitinn niður undir
frostmark á nóttunni og fólkið,
aðframkomið af vannæringu,
hrynur niður eins og flugur á
hverri nóttu. Sagði hann, að ef
þróunarhjálpinni yrði ekki ger-
breytt myndu vestrænar þjóðir
að verða að koma til hjálpar
reglulega á nokkurra ára
fresti.
Bert Denmers leggur til, að í
stað þess að gefa fólkinu aðeins
mat verði því borguð laun fyrir
að hjálpa sér sjálft, leggja vegi,
reisa hús og planta út trjám.
Fyrir launin gætu menn greitt
fyrir matinn og hefðu það ekki
lengur á tilfinningunni, að þeir
væru bara ósjálfbjarga öreig-
ar.
Denmers sagði, að enn vant-
aði mikið á að neyðarhjálpin
kæmi að fullum notum. Lyf
vantaði og ýmsa hversdagslega
hluti aðra, sem nauðsynlegir
væru til að fólkið gæti notað
matinn, sem því væri gefinn.
Hann nefndi sem dæmi, að þótt
fólkið úðaði í sig korninu létist
það unnvörpum úr hungri
vegna þess, að það gæti ekki
lengur melt það.