Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
2
Skaðbrenndust
og misstu sjón
_ eftir sex mínútur í háfjallasól
„Ég fór ekki ad fínna fyrir neinu fyrr en ég var komin heim um kvöldió, þá
fór’ég að verða rauðari og rauðari, augun þrútnuðu, það fór að renna úr þeim
vatn og ég sá allt í móðu. Að lokum missti ég alveg sjónina og sá ekkert í þrjá
sólarhringa. Það fór alveg á sömu leið fyrir Birnu vinkonu minni, við
brunnum iíka báðar mjög illa og mér finnst sjónin hafa versnað eftir að ég
lenti í þessu, en það á kannski eftir að jafna sig,“ sagði Unnur B. Friðriks-
dóttir sextán ára nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, í samtali við
Morgunblaðið um helgina.
Þær Unnur og vinkona hennar,
Birna Haraldsdóttir, fimmtán ára,
urðu fyrir því að skaðbrenna af
völdum ljósalampa með fyrr-
greindum afleiðingum laugardag-
inn 10. þ.m.
„Við fórum saman suður í
Svartsengi í Bláa lónið, en Birna
er með psoriasis og fór til þess að
baða sig í lóninu,“ sagði Unnur.
„Þegar við vorum komnar upp
úr lóninu og ætluðum að fara að
skipta um föt í kvennaklefanum,
sáum við að beint á móti karla-
klefanum var opið herbergi og þar
inni ljósalampi með löngum per-
um alveg eins og eru í venjulegum
sólbekkjum. Ég er nýbúin að taka
tíu tíma í sólbekk svo að ég ætti að
vera orðin vön ljósum og við
ákváðum að prófa þennan lampa.
Það voru hvergi neinar aðvaran-
ir eða leiðbeiningar um notkun
lampans að sjá, nema lítill miði á
sjálfum lampanum. Á hann var
letrað eitthvað á dönsku, sem ég
skildi ekki, þó að ég skilji annars
dönsku alveg sæmilega.
Það vildi okkur til happs, að við
vorum ekki nema sex mínútur í
Ijósinu, þá kom mamma Birnu að
sækja okkur og var að flýta sér
svo við urðum að fara. Annars
hefðum við örugglega verið þama
miklu lengur því við fundum eng-
an hita og það hvarflaði ekki að
okkur að ekki væri allt með felldu.
En þetta hlýtur að hafa verið ein-
hvers konar háfjallasól, sterkari
en venjuleg ljós.
Þegar einkennin fóru svo að
koma í ljós, lá við að ég fengi
taugaáfall. Eg var svo hræðileg á
að líta, augun ofboðslega þrútin og
allt andlitið. Það er ekkert að sjá
mig núna, viku seinna, en fyrstu
dagana leit ég út eins og fílamað-
urinn í samnefndri biómynd. Sem
betur fer vorum við með hand-
klæði vafin utan um okkur þannig
að allur líkaminn er ekki skað-
brenndur. En núna er andlitið og
hálsinn á mér að steypast út i
graftarbólum, sem ég hef aldrei
haft áður.
Það sem við höfum þó mestar
áhyggjur af er sjónin. En við för- |
um báðar til augnlæknis á morg-
un. Það hefur ekki verið hægt fyrr
því augun voru svo þrútin. Birna
hefur reyndar ennþá meiri ástæðu
til að óttast um augun í sér en ég,
því hún hafði ekki góða sjón fyrir.
Ég hef hins vegar alltaf haft
góða sjón, en síðan þetta gerðist er
ég hætt að sjá á töfluna í skólan- :
um og þó sit ég á næst fremsta
borði í skólastofunni," sagði Unn-
ur.
„Ég ætla bara að vona að þetta
verði ekki til þess að ég þurfi að
nota gleraugu það sem eftir er
ævinnar."
Áhugí fyrir stóriðju-
fyrirtæki á Húsavík
... *_& '1 J jC 1 .mXi Kirrrrrf 4k at qAtI-
B/EJARSTJÓRN Húsavíkur hefur
sent iðnaðarráðherra og staðarvals-
nefnd fyrir stóriðju bréf þar sem
vakin er athygli á Húsavík með tilliti
til staðsetningar stóriðju. Bjarni Að-
algeirsson bæjarstjóri sagði í samtali
▼ið blm. Mbl. að þörf væri á að fá
þangað einhverskonar stóriðjufyrir-
tæki.
ýmsar upplýsingar sem safnað
hefði verið við undirbúning fyrir-
hugaðrar trjákvoðuverksmiðju en
áætlanir um uppbyggingu hennar
hefðu nú verið lagðar á hilluna.
Hluti þessara upplýsinga ætti að
geta komið að gagni við undirbún-
ing annarra atvinnufyrirtækja.
Aðspurður um hvort Húsvíkingar
vildu að álver yrði byggt á staðn-
um sagði Bjarni að þeir hefðu ekki
nefnt neina sérstaka tegund at-
vinnufyrirtækis. Sagði hann að
ekki hefðu komið upp andmæli
gegn stofnun trjákvoðuverksmiðju
á sínum tíma en of snemmt væri
að segja til um hvernig menn
tækju í hugmyndir um álver.
Verðlaunamynd Magnúsar úr fjölskyldumyndasamkeppni Mazda. Börnin
eru Silja og Ari Magnúsarbörn.
Hlaut verðlauii i
ljósmyndakeppni
Mazda-verksmiðjanna
MAGNÚS Hjörleifsson, Ijósmynd-
ari í Hafnarfirði, var einn tuttugu
Ijósmyndara sem hlaut verðlaun í
fjölskyldumyndasamkeppni jap-
önsku Mazda-bflaverksmiðjanna.
Þúsundir Ijósmyndara sendu
myndir í keppnina, að því er segir í
auglýsingu Mazda í bandaríska
fréttaritinu Time, þar sem verð-
launamyndirnar tuttugu eru birtar.
Tólf þeirra verða í almanaki
Mazda fyrir 1985, mynd Magnúsar
þará meðal.
„Ég tók þessa mynd í kvöldsól-
inni í september á heimkeyrsl-
unni að Bessastöðum," sagði
Magnús Hjörleifsson er blm.
hafði samband við hann. „Ég tók
myndina sérstaklega fyrir þessa
keppni og tók reyndar einnig
myndir við Straum en þeir hafa
verið hrifnari af þessari.“
Verðlaunin voru 3000 dollarar
eða nærri 100 þúsund krónur ísl.
Magnús hefur fengist við
myndatökur í tólf ár, lengst af
jafnhliða starfi sínu sem offset-
prentari, en er nú í fullu starfi
sem ljósmyndari hjá SAM-
útgáfunni. Hann hefur tvisvar
áður unnið verðlaun í alþjóðleg-
um ljósmyndasamkeppnum.
Myndir í fjölskyldumynda-
samkeppni Mazda bárust víðs-
vegar að úr heiminum, allt frá
íslandi til Papúa Nýju-Gineu.
Um áttatíu íslendingar sendu
myndir í keppnina og sendu að-
eins níu þjóðir fleiri myndir. Af
sigurvegurunum tuttugu eru tólf
Bandaríkjamenn.
„Það er ekkert að sjá okkur núna, en fyrstu dagarnir voru hræðilegir," sögðu
þær Unnur (tv.) og Birna, en myndin er tekin u.þ.b. viku eftir að þær brunnu
í Ijósalampanum við Bláa lónið.
Magnús Hjörleifsson Ijósmyndari.
Bjarni sagði að til staðar væru
INNLENTJ
Sjónvarpið
sýnir feg-
urðarkeppni
ÚTVARPSRÁÐ samþykkti á fundi á
föstudag með öllum greiddum at-
kvæðum gegn einu að kaupa til sýn-
ingar í sjónvarpi þátt frá keppninni
Ungfrú Heimur, sem fram fér í
London í vikunni.
Fulltrúi kvennalistans, Elín-
borg Stefánsdóttir, greiddi at-
kvæði gegn því að þátturinn yrði
sýndur. Kvaðst hún vera mótfallin
„kroppasýningum" eins og feg-
urðarsamkeppni yrði að teljast.
10 ár frá hvarfi Geirfínns Einarssonan
Hinir dæmdu allir lausir
Á MORGUN, mánudaginn 19.
nóvember, eru 10 ár liðin frá
hvarfi Geirfinns Einarssonar, sem
leiddi af sér umfangsmesta saka-
mál hér á landi, að minnsta kosti
á seinni tímum. Þrír menn hlutu
dóma í málinu árið 1980 — Sævar
Ciecelski, Kristján Viðar Viðars-
son og Guðjón Skarphéðinsson.
Sævar hlaut þyngsta dóm,
sem kveðinn hefur verið upp
hér á landi á seinni tímum, 17
ára fangelsi, Kristján Viðar
hlaut 16 ára fangelsisdóm og
Guðjón 8 ár. Þeir hafa allir af-
plánað sína refsingu, það er
helming refsivistar sinnar og
Dularfullt
mannhvarfl
Lögreglan biður uyn upplysingar
t.rirf lnnur F.lnar*»«i*
VID rrum búnir að ranmaka
þriia mál mjoc nákvæmlega. en
það hefur ekkert komið fram.
»em grlur *kýrl frrðlr Grirflnn*
lál fundar við manninn I llafnar-
búðinm Við hofum kannað alla
þrlll. f jármál »em annað. rn rkk-
erl hrfur humtð fram. *rm grfur
nr‘n> tMwniOn-'' «♦«»« »* *
FullvM er að það hafi verift karl-
maður »rm »purði efrir Gelrfinni I
simanum Utlu eílir tlmlallð yf»r-
Kaf Gcirfmnur heimili sltt og hef
ur rkki »é*l þar *lð*n Hann fór
akandi burt á hifretð *innl <V|»77
»em cr rauð Cortina árgrrð 1070
Hif rciftm fanntt á miðvikudðit þar
Fyrsta frétt Morgunblaðsins um hvarf Geirfinns Einarssonar birtist 23.
nóvember 1974.
eru nú á reynslulausn, sem kall-
að er. Guðjón lauk afplánun
sins dóms fyrir nokkrum árum,
Kristján Viðar í júní 1983 og
Sævar i apríl 1984.
í nóvember 1974 skýrði Mbl.
frá „dularfullu mannshvarfi" —
að Geirfinnur Einarsson úr
Keflavík hefði horfið og stæði
umfangsmikil leit að honum.
Ári síðar var Sævar Ciecelski
handtekinn ásamt ungri konu.
Nokkru síðar voru þrír menn
úrskurðaðir í gæzluvarðhald
vegna meintrar aðildar og sátu
þeir inni í nokkra mánuði. Þeir
voru saklausir.
Ekkert sakamál hefur vakið
jafn mikla athygli hér á landi
og „Geirfinnsmálið". Þrátt fyrir
víðtæka leit hefur lík Geirfinns
Einarssonar aldrei fundist.