Morgunblaðið - 18.11.1984, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
7
Sýnir á
Mokka
16. nóvember opnaði Hrefna
Lárusdóttir sýningu á 29 vatns-
litamyndum i Mokkakaffi að
Skólavörðustíg. Hún er Reykvík-
ingur, búsett í Luxemborg og hef-
ur ekki sýnt hér á landi fyrr.
Þessa dagana sýnir hún einnig
acryl-málverk í Tríer í Þýzka-
landi. Sýningin f Mokka stendur
yfir í 3 vikur.
NemendaráÖ Stýrimanna-
skólans í Reykjavík:
Fagnar skýrslu
um öryggis-
mál sjómanna
NEMENDARÁÐ Stýrimannaskól-
ans í Reykjavík fagnar ný framkom-
inni ifangaskýrslu þingmanna-
nefndar um öryggismál sjómanna og
tillögum hennar, segir í frétt fri
nemendaráðinu.
Nemendaráð vill sérstaklega
þakka þann skilning á námsmál-
um sjómanna og aðstöðumun er
sjómenn búa við í þeim efnum og
kemur fram í skýrslunni og það er
svo sannarlega kominn timi til að
„mönnum með salt í hárum“ verði
gefinn kostur á að njóta skólakerf-
isins sem þeir hafa átt hvað
drýgstan þátt í að byggja upp.
Eins og nú er ástatt i þjóðfélag-
inu er sjómönnum gert erfiðara
fyrir um nám en flestum öðrum
stéttum í landinu. Þvi skorar nem-
endaráð SSR á Alþingi að standa
vel og dyggilega að þessu þjóð-
þurftarmáli. Því auðveldara sem
sjómönnum er gert að afla sér
menntunar, því meiri og haldbetri
menntun; því öruggara líf fyrir ís-
lenska sjómenn. Þeir eiga það
inni.
Sólbaðsstofu-
eigendur
ræða stöðuna
EIGENDUR sólbaðsstofa stla að
hittast á fundi á þriðjudagskvöldið
til að ræða þá stöðu sem upp er kom-
in í greininni í framhaldi frétta um
að óhófleg notkun sóllampa kunni
að valda húðkrabbameini.
„Það hefur orðið samdráttur hjá
öllum stofum en það er ofsagt í
Morgunblaðinu að hann sé
50—60% hjá öllum, það er hæsta
talan sem ég hef heyrt," sagði
Halldóra Helgadóttir, eigandi
tveggja sólbaðsstofa, í samtali við
blaðið.
„Við erum óánægð með þær full-
yrðingar sem fram hafa komið í
þessu máli að undanförnu og telj-
um þær órökstuddar. Ég held að
fólk sé farið að sjá þetta, enda hef-
ur aðsóknin aukist aftur á allra
síðustu dögum,“ sagði Halldóra.
SA BESTI VARÐ FYRIR VALINU
Adferðin var í sjálfu sér einföld: Við kynntum okkur alla
þekktustu skíðastaði Austurríkis og völdum síðan þann besta
EINSTÖK AÐSTAÐA
í Sölden færð þú á einum stað allt sem til þarf í frábæra
skíðaferð. Hvort sem þú ert einn á ferð, með
fjölskylduna eða í stærri hóp, uppfyllir Sölden allar þínar
kröfur - og heldur meira.
Umhverfið er heillandi og veðursæld mikil. Ótrúlega þétt
lyftukerfi teygir sig upp eftir hlíðunum og skilar þér í allt
að 3.100 m hæð. Brautimar eru vel merktar og allt lagt
upp úr því að hver maður finni brekkur við sitt hæfi.
Mörg hundruð skíðakennarar eru til taks, útsýnisstaðir,
veitingastaðir og hvíldarstaðir eru á hverju „strái“ og
dagurinn líður hratt, fullur af skemmtilegum atvikum, -
ævintýri líkastur.
FRÁBÆRT NÆTURLÍF
Þegar líður að kvöldi læturðu notalega þreytuna
líða úr skrokknum í sundlaugum, nuddpottum og
gufuböðum, og færð þér síðan hressingu á
huggulegum bar þar sem útsýnin til snæviþakinna
fjalla verður ógleymanleg í Ijósaskiptunum.
Kvöldið tekur síðan við í eldfjörugum Tírólabænum:
Veitingastaðir, diskótek, skemmtistaðir, nætur-
klúbbar og hressilegt götulíf gefur hverju kvöldi
nýjan lit og setur punktinn yfir i-ið í glæsilegri
skíðaferð.
SÖLDEN Á EKKI SINN LÍKAN - ÞVÍ GETURÐU TREYST
VERÐ FRÁ KR.
17.900
og mjög góðir greiðsluskilmálar að auki!
Gisting er fjölbreytt og við allra hæfi.
Ferðatilhögun gæti ekki veirð öllu þægilegri: Beint leiguflug til
Innsbruck og örstuttur akstur til Sölden.
Brottfarardagar: 26. janúar, 9. febrúar, 23. febrúar.
. -Xa VY\& _ _
V>'\ð
um'
Sö\deu
Samvinnuferdir - Landsýn
AUSTURSTRÆTI 12 - SÍMAR 27077 & 28899
Sbr. niðurstöður fjölmargra skíðasérfræðinga evrópskra tímarita. söluskrifstofa akureyrl skipagötu is - símar 21400 a 23727
r%2_ Askriftarsíminn er 83033