Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUPAGUR 1& NOVEMBER I9&4
ur, spyr Gunnlaugur og horfir á
málverkin i vinnustofunni.
Það er erfitt að koma reglustiku
við þegar línurnar eru bognar,
annars myndi ég nota svoleiðis
reglustiku.
— En þú varst líka hjá Gunnlaugi
Sccving — hann hafði líka áhrif á
þig sem málara er það ekki?
Nei, Gunnlaugur hafði ekki
mikil áhrif á mig þó ég lærði
nokkuð af honum í tækni. Það
voru hugmyndir Þorvalds sem
höfðu áhrif og grófu um sig hjá
manni og gerðu strik i reikning-
inn.
— Ertu lengi að vinna hverja
mynd?
Já, yfirleitt er ég seinn — ég er
lengi að vinnna og oft er ég að
Ég veit það ekki, jú, það getur
vel verið. Þetta er náttúrulega
sköpun — það er allt málverk
sköpun.
— Og leit, segir Gunnlaugur.
Já, það er nátúrulega einhvers
konar leit. En ekki geri ég þó mik-
ið af því að skoða listaverkabækur
eða þess háttar. Mér finnst þær
fremur leiðinlegar. Það er líka
betra að vera í friði með það sem
maður er að gera — fyrir óvið-
komandi áhrifum, meina ég.
— Mér virðast andstæður ríkjandi
í þessum málverkum þínum og
togstreita, segir blm. Mbl.
Já, það eru andstæður. Það eru
láréttar og lóðréttar línur, — það
eru auðvitað andstæður. Og svart
og hvítt. En hvað á ég að segja.
ífum, það er ekkert fyrir mig. En
sumir vilja ekki skilja öðruvísi
myndir. Einu sinni þegar ég var
með sýningu kom til min maður
og spurði: „Er þetta allt uppúr yð-
ur?“ — Ég man ekki hvort ég
svaraði honum nokkru, en mér
fannst þetta góð spurning hjá
manninum.
— Gunnlaugur segir að málverkin
þín verki veki óróa hjá fólki — að
ein mynd eftir þig sem átti að hanga
uppi í Landsbankanum hafi verið
tekin niður vegna þess að starfsfólk-
ið þoldi hana ekki.
Já, þau eru ekki hvíldarlist.Eg
vil nota fáa liti og fáar línur — og
að engu sé ofaukið.
— Og þú ert ekki fagurkeri?
Jú, ég get verið það og er það
reyndar oft. En ég hef meiri áhuga
á innihaldinu.
— Þú fórst svo til náms í Dan-
mörku að loknu námi í Myndlista-
skólanum.
Já, þar var ég við akademíu og
svo í einkaskóla. Prófessorarnir
við akademíuna voru einkenni-
legir sumir. Flestir voru afgamlir
og einn meira að segja orðinn lit-
blindur af elli. Annar var einatt
að sneiða að franska málarnum
Léger, sem var einhver fremsti
málari síns tíma i Frakklandi. En
maður hætti fljótlega að taka
mark á þeim, þessum körlum.
— Enn einkaskólinn?
Ég var alveg ákveðinn i hvað ég
„Áhættan tekin" í eigu Samvinnu-
‘rygginga.
mála ofaní, mála yfir aftur og aft-
ur. öðruvísi vill þetta ekki ganga
fyrir mér. En þetta getur gefið
myndum aukið gildi — það gerir
að þær eignast sinn eigin æviferil
sem glittir í gegnum málinguna ef
vel er að gætt.
— Hefurðu ekki oft orðið hissa
á gömlum myndum eftir þig —
hvernig þær orka á þig, spyr
Gunnlaugur.
Nei, það held ég varla — og man
reyndar ekki til þess. Ég hef ekki
svo mikinn áhuga á myndum sem
ég hef málað, þær skipta mig litlu.
Já , stundum tek ég til handar-
gagns gamlar myndir eftir mig og
mála ofaní þær en það er þá af því
að ég hef aldrei verið ánægður
með þær.
— Þú málar mikið í svörtu og
hvítu.
— Hann vann einu sinni heilt ár
með allt í svörtu og hvítu og not-
aði aldrei lit. Er ekki erfitt að
mála myndir með svörtu og hvítu,
Karl?
Það getur verið snúið —
kannski þess vegna sem maður
gefur sig að því, af því að það
reynir á. Þetta er allt^el meint
sem ég geri.
— En þú gerir aidrei skissur?
Nei, ég geri aldrei skissur að
myndum. Stundum geri ég skissur
á eftir, en aldrei á undan. Það er
mín aðferð að láta myndina skap-
ast jafn óðum — það verður allt að
koma óvænt, það er jú ævintýrið
— að gerast óvænt.
— Og þetta er sköpun — þú
málar af köllun, köllun sem þú
verður að hlýða hvað sem í skerst,
segir Gunnlaugur.
Það er mjög erfitt að að færa liti
og form yfir í talað mál — verkið
verður að standa fyrir sinu. Mál-
verk er raunveruleiki — þar er
ekki verið að líkja eftir öðrum
hlutum.
— Mér finnst ég sjá nútímann í
málverkum þínum — geimskot og
nýjar víddir, segir Gunnlaugur.
Þú ert langt á undan þinni samtið!
Nei, það er ekki rétt. Það er ekk-
ert svoleiðis að finna i mínum
verkum — ég er í takt við sjálfan
mig, en ekki nútímann. Og það
Þýðir að ég er ekki á undan minni
samtið.
— Þú vinnur mikið er það ekki?
— Hann vinnur stundum 18
klukkustundir í beit og svo er hann
alveg útkeyrður, segir Gunnlaugur.
Að mála, það er að vinna og ekk-
ert annað, segir Karl. Málverkið
vcrður til í vinnunni og það er ekk-
ert nema vinna.
— Hvað varð til þess að þú gerðir
listmálun að ævistarfi?
Ég byrjaði 12 ára að mála og
vildi aldrei gera annað. Faðir
minn reyndi mikið til að gera eitt-
hvað úr mér, en það gekk ekki hjá
honum.
— Hvað byrjaðir þú að mála?
Ég málaði Skerjafjörðinn, him-
ininn og sjóinn. Þar ólst ég upp.
Og húsin — þau voru svo mynd-
ræn þessi gömlu hús.
— En svo hættir þú við motíf,
hvenær gerðist það?
Kannski tók maður ekki eftir
því hvernig það gerðist. Maður fór
að velta því fyrir sér hvort gulur
litur þyrfti endilega að vera hús-
gafl eða blár litur sjór.
Já, ég er löngu horfinn frá mót-
Málverkið „Himinn, hauður og
haT*. Gjöf dr. Gunnlaugs til Krabba-
meinsfélagsins. Á myndinni eru gef-
andinn og Halldóra Thoroddsen
formaður Krabbameinsfélagsins.
vildi læra og vildi ekki eyða tima i
annað. Ég var mjög heppinn með
kennara í einkaskólanum.
— En að námi loknu. Var ekki
lítið um peninga þegar heim kom?
Jú, það var mjög erfiður tími
hjá mér og mikið basl. Það fór
ekki að að rætast úr fyrir mér fyrr
en ég kynntist Gunnlaugi Þórðar-
syni, en síðan hefur mér gengið
þokkalega.
Mér hefur aldrei gengið að selja
myndirnar mínar. Gunnlaugur er
eiginlega sá eini sem kaupir af
mér. Stundum er þetta skoplegt.
Við fórum einu sinni með eina
myndina mína til kaupsýslumanns
— hann hélt víst að ég væri lands-
lagsmálari. Karlinn var ekki seinn
að hætta við kaupin þegar hann sá
myndina — en undanhaldið var
skipulagt fyrirfram, sem betur
fór.
— Hefur þér aldrei dottið í hug að
leggja listina á hilluna og fara út í að
græða peninga.
Þetta er það eina sem ég kann.
Mín vellíðan byggist á því að
mála. Það er allt sem ég óska mér.
— En er starfið ekki einmanalegt
á köfium?
Nei, ég finn góðan félagsskap
innan um liti og form. Þetta starf
er mér nóg.
Viðtal: Bragi Óskarsson
31
ÁRAMÓT I KAUPMANNAHÖFN:
Skemmtileg 6 daga ferð 28. des. Gist er á SAS Royal, fyrsta flokks
hóteli í hjarta borgarinnar. Innifalið er: Flug, gisting m/morgunverði og
verðið er aðeins kr. 11.200,- (í tvíbýli).
VEISLA Á GAMLAÁRSKVÖLD:
Þátttakendum stendur til boða glæsilegur kvöldverður og skemmtun
á gamlaárskvöld. Dagskrá: Kampavlnslystauki, fjögurra rétta
málsverður, borðvln að eigin ósk. Eftirréttur: Kaffi m/köku og glas af
koníaki. Eftir miðnætti: Léttur náttverður, skemmtiatriði, tónlist og
dansað til morguns. Verð: 560 dkr.
VIKA: HELGI HELGI
5 nætur 3 nætur
11.980 9.048 7.935
SKEAN DHU HOTEL****
Tvíbýli m/baði og morgunmat
INNIFALIÐ: Flug og gisting. — BROTTFÖR: Vikurferðir, þriðjudaga.
Helgarferðir — 5 nætur fimmtudagar. Helgarferðir — 3 nætur
laugardagar.
Flugvallarskattur kr. 250,- ekki innifalinn. — Barnaafsláttur 2 — 11 ára.
Vikuferð kr.5.000.- Helgarferðir kr.4.000.- 0-2ja ára greiða kr.800.-
LADBROKE DRAGONARA HOTEL VIKA: HELGI HELGI
Belford Road 5 nætur 3 nætur
Tvíbýli m/baði og morgunmat 12.997 9.774 8.370
Einbýli m/baði og morgunmat 15.707 13.888 9.532
INNIFALIÐ: Flug, Keflavík—Glasgow— Keflavík og gisting.
BROTTFÖR: Vikurferðir þriðjud. — Helgarferð 5 nætur, fimmtud. -
Helgarferð 3 nætur, laugard. — Flugvallarskattur kr. 250.- ekki
innifalinn. — BARNAAFSLÁTTUR: 2—11 ára. Vikuferð kr. 4000.-
Helgarferð kr. 3.000.- 0 — 2ja ára greiða kr. 800,- Ferðir milli
Glasgow og Edinborgar eru ekki innifaldar, en þar á milli eru mjög
góðar rútu- og lestarferðir. Miðað við skráð gengi 1/11 '84.
=! FERÐA
i!l MIDSTODIN
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133