Morgunblaðið - 18.11.1984, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
45
samleik. Bru nú starfandi i blásara-
deild a.m.k. sex hljómsveitir. Skýr-
ingin á fjölda þeirra er sú, að nem-
endur á sama námsstigi mynda alltaf
sína eigin hljómsveit. Eftir þriggja
til fjögurra ára nám koma þeir síðan
inn í blásarasveit skólans. Þá starfar
kammerblásarasveit, sem bæði er
skipuð kennurum og þeim nemend-
um, er lengst hafa náð. Þeir, sem
leika á tréblásturshljóðfæri, mynda
kvintett. Þá má ekki gleyma þeirri
nýlundu, að stofnuð hefur verið sér-
stök jass-deild og hafa nemendur
hennar myndað hljómsveit.
í strengjahljóðfæradeild starfa
einnig sjálfstæðar strengjasveitir.
Þar er sérstök sveit yngri nemenda,
en þeir eldri skipa sér í hljómsveit
skólans, sem er fyrsti vísir að sin-
fóníuhljómveit. Hún er allfjölmenn
og hefur haldið sjálfstæða tónleika
og jafnframt tekið þátt i uppfærslu á
tónverkum, m.a. meö Passíukórnum
og Kirkjukór Lögmannshliðar. Þá
má geta þess sem nokkurs konar
aukabúgreinar, að nemendum hefur
gefist kostur á að starfa við leikhús
bæjarins. Á liðnum vetri lék
hljómsveit kennara og nemenda und-
ir stjórn Roars Kvam við sýningar á
My Fair Lady og Kardimommubæn-
um. Það veldur okkur þó ósjaldan
nokkrum áhyggjum, að nemendur
geti ofreynt sig þegar þeir taka þátt i
svo fjölþættu hljómleikahaldi með
ströngum æfingum, en auk tónlist-
arnámsins eru þeir flestir einnig i
fullu námi f grunn- og framhalds-
skólum. Óttumst við, að eitthvað
hljóti þá að sitja á hakanum. Reynd-
in er þó sú, að þessir nemendur eru
yfirleitt ótrúlega duglegir og spjara
sig vel á ðllum sviðum. Þeir njóta
þess einnig í almennu námi, að iðkun
tónlistar gerir kröfur um mikinn
sjálfsaga og gott verklag. Það kemur
jafnan í Ijós, að iðni, áhugi og sam-
viskusemi vega jafn þungt og hæfi-
leikarnir, þó þeir verði nauðsynlega
að vera fyrir hendi.
Samstarf
skólanna
Þessu næst vék Jón Hlöðver að
samvinnu skólanna. Taldi hann það
mikilvægt fyrir framtiðarskipan
tónlistarskóla að auka samstarfið við
barna- og framhaldsskóla með tilliti
til skipulags á starfstfma nemend-
anna. Eins og málum er nú háttað
myndast oft óæskilegar eyður á
starfsdeginum við það að óviða eru
nokkur samráð höfð milli skólanna
við gerð stundaskrár. Hins vegar er
því víða svo háttað í fámennri byggð-
arlögum, ekki sfst til sveita, að nem-
endur njóta tónlistarkennslunnar á
sama stað og annarar fræðslu og
skóladagurin verður samfelldur. Það
er sérstaklega mikilvægt fyrir
yngstu nemendur, sem eru miklu við-
kvæmari fyrir „dauðum" tfmum eða
tímum, sem raska eðlilegu samhengi
í leik og starfi. Sú jákvæða breyting
hefur orðið á högum margra eldri
nemenda, t.d. þeirra sem stunda hér
menntaskólanám, að þeir geta valið
tónlistarbraut og þurfa þá ekki að
stunda nám í jafn mörgum greinum
þar, en fá aukinn tfma fyrir tónlist-
arnámið hér. Þetta er mjög mikil-
vægt fyrir þá, sem hafa í hyggju að
gera tónlist að ævistarfi, t.d. sem
kennarar á þvf sviði, tónlistarflytj-
endur eða tónskáld. Ekki er hægt að
kanna til hlftar, hvort nemandinn á
erindi á þennan vettvang, fyrr en
hann getur stundað tónlist f sam-
ræmi við þær kröfur, sem hún gerir.
Má geta þess til nánari glöggvunar
að sá, sem stundar nám á æðri svið-
um tónlistar, þarf að verja a.m.k.
þrem til fjórum klukkustundum á
degi hverjum til æfinga og þjálfunar.
Það er varla hægt nema hann helgi
sig eingöngu tónlistarnámi eða tekið
sé mikið tillit til þess f öðrum skóla,
eins og nú er gert á fyrrnefndri tón-
listarbraut.
Tónlistarár
Evrópu 1985
í Tónlistarskólanum á Akureyri er
lögð áhersla á það, aö menn fái eins
fljótt og auðið er að leika fyrir áheyr-
endur. Þess vegna er þar haldið uppi
allfjölbreyttum tónleikum. M.a. eru á
hverjum laugardegi svonefndir laug-
ardagstónleikar, sem eru öllum
opnir. Sjá kennarar til skiptis um
skipulag þeirra. Þá má geta tónleika
blásarasveitarinnar nær jólum og
nýárstónleika skólahljómsveitarinn-
ar.
Þegar minnst er á nýjárstónleika
má minna á tónlistarár Evrópu, sem
gengur í garð um næstu áramót. Er
ástæða til þess að hvetja fólk víðs
vegar um landið að verða við þeim
tilmælum Evrópuráðsins, að gera ár-
ið 1985 að upphafi mikilla athafna á
tónlistarsviði. Er þess vænst, að þá
verði teknar ákvarðanir og sfðan
hafnar framkvæmdir, er efli tónlist-
aruppeldi, auki tónleikahald og bæti
aðstöðu til tónlistarlífs.
Tónlistarbandalag
íslands
Jón Hlöðver hefur átt þess kost að
taka þátt f undirbúningi stofnunar
Tónlistarbandalags íslands, sem
væntanlega verður formlega stofnað
við upphaf næsta árs. Þar er gert ráð
fyrir að sameina félög tónlistar-
áhugamanna, starfandi tónlistar-
manna og áhugasama einstaklinga 1
heildarsamtök, sem leggi sig fram
um að gera veg tónlistar sem mestan
og bestan. Það á að stuðla að bættu
skipulagi og auknum samskiptum á
sviði tónlistar hvarvetna. Þá er
bandalaginu ætlaö að verða ráðgef-
andi m.a. fyrir yfirvöld, um stefnu-
mörkun í tónlistaruppeldi og tónlist-
arlffi. Einnig á það að rækja sam-
skipti við önnur lönd, bæði til þess að
við getum notið þess f auknum mæli,
sem þar er að gerast, og jafnframt
komið eigin tónlist og tónlistar-
mönnum á framfæri erlendis. Þá
mun bandalagið taka þátt f umræð-
um um tónlistarnám á alþjóðavett-
vangi. Getur engum blandast hugur
um, að hér er stórmál á döfinni.
Hér vantar
hús
Ef vikið er að aðstöðu til hljóm-
leikahalds á Akureyri er það fremur
leiðinlegt til afspurnar, að f þeim
söngelska bæ eru aðstæður langt frá
þvf að vera viðunandi. Þar er enginn
salur, sem hægt er að nota til venju-
legs tónleikahalds, ef undan eru skil-
in kirkjan, sem er mjög gott hljóm-
leikahús, og Borgarbíó. Auðvitað er
þess ekki aö vænta, að kirkjan sé
alltaf til reiðu og Borgarbió er aðeins
falt, þegar ekki eru þar kvikmynda-
sýningar, sem er þá helst eftir hádegi
á Iaugardögum. Þetta ástand vekur
athygli á þvf, að á Akureyri er ekkert
félagsheimili, sem fjölmargir smærri
staðir geta státað af. Sætir þaö nokk-
urri furðu, að f svo stórum kaupstað
skuli þessi mikilvægi þáttur menn-
ingarmála hafa verið vanræktur svo
lengi. Þá vék Jón Hlöðver að þvf, að
um þessar mundir er fyrir hendi hús,
sem getur bætt úr þessu ófremdar-
ástandi. Er það Nýja bíó, sem áður
fyrr þjónaði tónlistinni áratugum
saman og þótti þá gott til hljómleika-
halds. Það er nú falt til kaups. Er
vart hægt að trúa öðru, en að með
samstillingu og góðum vilja félaga og
forráðamanna, Akureyri megi
byggja í kringum Nýja bfó þá að-
stöðu í hjarta bæjarins, sem getur
þjónað bæði sjónlist og tónlist, félög-
um og ráðstefnuhaldi um langa
framtíð. Við Jón Hlöðver, erum
sammála um, að enginn efi leiki á
því, að skólabæinn Akureyri beri að
gera að verðugum stað lista og
mennta. Þá er næsta eðlilegt að
gamli miöbærinn verði helsta at-
hafnasvæði þeirra þátta.
Þess vænti ég, að sú hugmynd
verði reifuð hér sfðar, er aukinna
fanga verður aflað.
Setja verðbólga og verkföll
Biblíubréfaskólinn, Pósthóif 60, 230 Keflavík.
Álfheimabakarí
Alfheimum 6 og Hagamel 67
í TILEFNI AFMÆLIS
verðum við með sérstakan afmælisbakstur
um helgina. Við bökum sérstök
ÁLFHEIMABRAUÐ og
AFMÆLISVÍNARBRAUÐ á
laugardeginum.
Eins ætlum við að sýna hinum fjölmörgu
viðskiptavinum okkar þakklæti með því
að setja ávísun á 2.500 kr. í IO
ÁLFHEIMABRAUÐ, 5 verða í hvorri
verslun, þannig að nokkrir viðskiptavinir
eiga von á afmælisgjöf á laugardaginn.
Auðvitað gefum við að smakka.
AFMÆLISTERTA Á
SUNNUDEGINUM
í tilefni þessara tímamóta fyrirtækisins,
bjóðum við upp á sérstaka afmælistertu,
og vonumst við til að viðskiptavinir okkar
komi og þiggi tertusneið.
Að sjálfsögðu verða búðirnar fullar af
allskonar kökum og öðru meðlæti, þannig
að allir fá við sitt hæfi. Komdu við í
Álfheimum eða á Hagamel.
SKEMMTIDAGSKRÁ
SUNNUDAG
ALFHEIMUM 6
Lúðrasveit Rcykjavtkur
kl. 15.30
Kór Lanqholtskirkju
kf. 16.00
HAGAMEL 67
Lúðrasveit Reykjavikur
kl. 14.45
Kór Lanpholtskirkju ffytur
sérstaka afmælisdagskrá
kl. 15.15