Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ. SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
Gagngerum breytingum og endurbót-
um lokið á Hótel Holti:
„Allt
endurnýjað
— segir Skúli Þorvaldsson hótelstjóri
0r matsal. Þar hafa minnstar breytingar orðið.
NÝLEGA var lokið gagngerum
endurbótum og breytingum i Hótel
Holti í Reykjavík. Þi var öllum
herbergjum hótelsins gjörbreytt, og
mi segja að þegar því verki lauk
hafí öllu hótelinu verið breytt f nú-
tímalegra horf. „Hji þjónustufyrir-
Ueki eins og Hótel Holti er sífellt
verið að breyta og baeta og því vil ég
fremur tala um að ikveðin þittaskil
hafi orðið hji okkur,“ sagði Skúli
Þorvaldsson hótelstjóri, þegar hann
kynnti blm. Mbl. þær endurbetur,
sem gerðar hafa verið i hóteli hans.
Hótel Holt var tekið í notkun 16.
febrúar 1965. Stofnendur og eig-
endur voru Þorvaldur Guð-
mundsson veitingamaður og kona
hans, Ingibjörg Guðmundsdóttir.
Sonur þeirra, Skúli, tók hótelið á
leigu fyrir fjórum árum.
Þegar Hótel Holt var tekið í
notkun fyrir tæpum 20 árum var
það mjög nýtízkulegt og svaraði
vel þeim kröfum, sem þá voru
gerðar til ferðamannahótels. En
þróunin hefur orðið sú, að Hótel
Holt varð fyrst og fremst að hóteli
þeirra, sem leið eiga til Reykjavík-
ur í viðskiptaerindum. Á starfs-
tíma sínum hefur hótelið eignast
stóran hóp fastra viðskiptavina úr
viðskiptalífinu, bæði innlendra og
erlendra. í samræmi við þessa
þróun þótti brýnt að gera breyt-
ingar á hótelinu.
Fyrirtækið Síld og fiskur, sem
Þorvaldur Guðmundsson á og rek-
ur, hafði um árabil verslun í sama
húsi og hótelið, við Bergstaða-
stræti. Fyrir fjórum árum flutti
Hótelanddyrió eins og þaó Iftur út eftir breytingarnar. Það er mjög glæsilegt,
marmari á gólfnm, dökkir vióarveggir, djúpir hægindastólar og veggirnir
skreyttir listaverkum. Fyrir mióju má mx sjá verk eftir Gunnlaug Scheving
og Finn Jónsson.
nema
viðmótiÖ“
Skúli Þorvaldsson hótelstjóri fyrir framan hótel sitL Horgunblaaið/ól.K.Magn.
fyrirtækið alla sína starfsemi til
Hafnarfjarðar og skapaðist þá
möguleiki til breytinga og endur-
bóta á götuhæð hótelsins. Fyrst
var hafist handa við stækkun
gestamóttöku og setustofu, sem
áður var bæði lítil og óhentug.
Jafnframt var innréttaður rúm-
góður og vistlegur bar. Lítill bar
var áður inn af matsal, en það
fyrirkomulag var óhentugt. Hefur
gamli barinn nú verið innréttaður
sem viðbót við matsalinn, en jafn-
framt má nota hann fyrir allt að
15 manna lokaða hádegis- eða
kvöldverðarfundi. Voru þessar
breytingar mjög til bóta að sögn
Skúla.
í janúar á þessu ári var sett ný
hitalögn f húsið og síðan hófst
vinna við breytingar á herbergjum
og göngum hótelsins. Herbergjum
var þá fækkað úr 53 í 50, en „svít-
um“ jafnframt fjölgað úr 1 í 4.
Sett voru ný húsgögn i öll her-
bergi, þ. á m. tvíbreið rúm í stað
tveggja aðskildra áður. Við það
fækkaði rúmum úr 98 í 64.
Lýsingu var gjörbreytt með það
í huga að gestir nota ekki herberg-
in eingöngu til hvíldar heldur
einnig til að vinna að ýmsum verk-
efnum við skrifborð.
í öllum herbergjum var komið
fyrir þægilegum leðurhæginda-
stólum. Erlendar kannanir hafa
einmitt sýnt, að hótelgestum hef-
ur oft þótt vanta þægilega stóla f
hótelherbergi og t.d. hefur verið
algengara að þeir lægju uppi f
rúmi við lestur heldur en sætu f
stólum.
Ný gluggatjöld og gólfteppi eru
á öllum herbergjum og raunar öllu
húsinu og voru þau, ásamt rúm-
ábreiðum á herbergjum, sérstak-
NÝJA LÍNAN FRÁ ORION