Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
47
Hótel Holt fékk „andlitelyftingu" í sumar þegar sett var upp
zink-skyggni yfir anddyri og alla framhlið hússins.
Morgunbladið/Friðþjófur
Hið nýja bókaherbergi, sem um er
rætt I greininni. Þar geta gestir
rabbað saman í ró og næði, unnið
við skriftir ojs.frv.
lega valin í samræmi við heildar-
litasamsetningu á hótelinu.
Síðast en ekki síst voru sett
Sharp-litsjónvörp i hvert her-
bergi, „enda er litsjónvarp krafa
dagsins í dag eins og sími var áð-
ur,“ segir Skúli. Að sögn Skúla
hafa þessar breytingar mælst
mjög vel fyrir hjá fastagestum
hótelsins.
í sumar var tekið í notkun á
götuhæð nýtt bókaherbergi, sem
nýtur mjög mikilla vinsælda.
Bókaherbergið er ætlað öllum
gestum hótelsins. Þar geta menn
setið í næði og rabbað saman, les-
ið, unnið við skriftir og fengið
framreitt kaffi eða aðra drykki að
loknum málsverði.
Bókaherbergið er afar vel búið,
veggir og bókaskápur úr dökku
mahogany. 1 bókahillum eru verð-
mætar bækur, sem hótelið hefur
eignast. Húsgögnin eru þægileg
leðurhúsgögn, valin af Skúla.
Hann hefur leitað lengi að réttum
húsgögnum og fann þau loks hjá
verksmiðju einni á ftalíu. Slík
húsgögn, ásamt glæsilegum lista-
verkum, eru eins konar vörumerki
hótelsins, og eru gott dæmi um þá
nákvæmni sem ríkir þegar
Tveggja manna herbergi, en þau eru
litasjónvarpi.
ákvarðanir eru teknar um búnað
og útlit Hótels Holts.
Utanhúss hefur hótelið einnig
fengið andlitslyftingu. Um það bil
2 m breytt zink-klætt skyggni með
innbyggðri lýsingu hefur verið
sett á alla götuhlið hússins og set-
ur það svip á hótelið.
Skúli Þorvaldsson hefur farið
víða um lönd og heimsótt hótel og
sýningar, er orðið gætu að kveikju
að nýjum hugmyndum fyrir Hótel
Holt. Hann hefur ákveðið allar
breytingar, sem gerðar hafa verið
að undanförnu, í samráði við
Gunnar Magnússon arkitekt.
Matsalur Hótels Holts er enn
sem fyrr óbreyttur með sínum
dökku viðarinnréttingum og
frægu listaverkum. Holt hefur allt
frá byrjun verið í fremstu röð ís-
lenskra veitingahúsa og þar hafa
séð dagsins ljós ýmsar nýjungar í
búin leðurhægindastólum og
matargerðarlist. Aðsókn hefur
verið jöfn og góð frá upphafi og
hefur aukist seinni árin.
Þingholt, sem aðallega er ætlað
til einkasamkvæma, var tekið í
notkun 1973. Nýtingin hefur verið
jöfn og góð og er nú um 78%.
Þingholt hæfir öðrum hlutum hót-
elsins, dökkar viðarinnréttingar,
þung og traust húsgögn og mikið
af listaverkum.
Starfsmenn Hótels Holts eru nú
um 50 talsins. Matreiðslumeistari
er Ingvar Jakobsson, yfirþjónn
Sveinjón Ragnarsson og móttöku-
stjóri Kaino Hjálmarsson.
„Erlendar hótelkannanir hafa
sýnt að hótelgestir leggja mest
upp úr góðu viðmóti. Við höfum
lagt kapp á að halda þessu við-
móti, allt annað hefur verið
endurnýjað," sagði Skúli Þor-
valdsson að lokum. — SS
öll
Aðalfundur Varðar
Aöalfundur Landsmálafélagsins Varöar veröur haldinn þriöjudag-
inn 20. nóvember kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu Valhöll viö Háaleit-
isbraut.
Dagskrá fundarins:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Gestur fundarins Sverrir Herms
iðnaðarráöherra flytur ræðu.
3. Önnur mál.
Varðarfélagar eru hvattir
til aö fjölmenna.
Stjórn Landsmálafélagsina Varðar.
Nýtt — Nýtt
Jólavörurnar eru komnar. Pils, peysur, blússur.
Glæsilegt úrval.
Glugginn, (Kúnsthúsinu),
Laugavegi 40, sími 12854.
Hjá Höganás hafa kröfur um
gæði alltaf verið settar á oddinn.
Úrvalið er fyrir þig ...
Hvort sem er á gólf eða veggi, úti eða inni þá finnur þú
Höganás flísar við þitt hæfi. Höfum einnig Höganás
flísalím, fúgusement og áhöld.
Skoðið úrvalið í sýningarsal verslunar okkar.
Nýtt sýningarkerfi. Myndasýning á staðnum.
= HÉÐINN =
SELJAVEGI 2, REYKJAVÍK.
Sígildu, vinsælu
OSWALD
í tveimur hælahæöum, þ.e.a.s. 50mm og 65mm.
Litir: hvítt, svart, blátt, brúnt, dðkkrautt, Ijósrautt.
Kr. 1.199.00