Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 59
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
59
Aðalfundur Landssambands lífeyrissjóða:
Stjórnvöld fjár-
magni lífeyri
ófélagsbundinna
Á AÐALFUNDI Landssambands líf-
eyrissjóða, sem haldinn var hinn 2.
október 1984, voru samþykktar eftir-
farandi ályktanir:
★ aðalfundur Landssambands líf-
eyrissjóða bendir á, að lögin um
eftirlaun til aldraðra renna út
um næstu áramót. Telur sam-
bandið, að sá 15 ára umþóttun-
artími, sem ákveðinn var 1969
sé orðinn fullnægjandi og að
hver lífeyrissjóður eigi að sinna
félagslegri skyldu sinni við
aldraða félagsmenn viðkom-
andi stéttarféiags og hefja
greiðslur til þeirra frá næstu
áramótum.
Jafnframt telur fundurinn að
stjórnvöld eigi að taka á sig
fjármögnun lífeyris til þeirra
lífeyrisþega, sem ekki hafa átt
aðild að stéttarfélagi og taka
lífeyri frá Umsjónarnefnd eft-
irlauna.
★ Landssamband lífeyrissjóða
skorar á stjórnvöld að fella
niður þá skattlagningu á lífeyr-
isgreiðslur, sem felst í því, að
lífeyrisgreiðslur sjóðanna
skerða tekjutryggingu al-
mannatrygginga.
Dæmi: Eitt hundrað krónum
hærri lífeyri frá lífeyrissjóði
getur valdið 45 krónu lækkun á
tekjutryggingu viðkomandi líf-
eyrisþega.
★ Aðalfundur Landsambands líf-
eyrissjóða haldinn 2. október
1984, samþykkir að fara þess á
leit við stjómvöld, að skattalög-
um verði breytt í þá átt að
heimilt verði að gjaldfæra á
rekstrarreikningi iðgjöld at-
vinnurekenda eins og áður var.
Á aðalfundinum kom ennfrem-
ur fram, að í Landssambandi líf-
eyrissjóða eru 43 lífeyrissjóðir. Á
aðalfundinum héldu Hallgrímur
Snorrason hagfræðingur og dr.
Pétur H. Blöndal stærðfræðingur
erindi um æskilegustu skipan líf-
eyrismála á íslandi.
Bjarni Þórðarson trygginga-
fræðingur, sem verið hefur for-
maður Landssambandsins í 15 ár,
baðst undan endurkjöri. Voru
honum þökkuð mikil og ósérhlífin
störf í þágu landssambandsins.
Stjórn Landssambands lífeyr-
issjóða skipa nú: Pétur H. Blöndal
formaður, Hermann Þorsteinsson
varaformaður, Gunnar Zoega rit-
ari, Guðmundur H. Garðarsson
Austfirðinga-
félagið 80 ára
UM ÞESSAR mundir er Austfirð-
ingafélagið í Reykjavík 80 ára. Það
var í þorra 1904 að nokkrir kunnir
Austfirðingar búsettir f Reykjavík,
komu saman til gleðskapar og til að
minnast átthaganna. Það varð til
þess að félag var stofnað.
Austfirðingafélagið mun því
elsta starfandi átthagafélag í
borginni. Austfirðingafélagið hef-
ur ætíð látið málefni Austurlands
til sín taka og stutt ýmis málefni
viðkomandi fjórðungnum. Félagið
stofnaði Sögusjóð Austurlands
1944 og hefur staðið að útgáfu
„Austurlands", safni austfirskra
fræða.
Félagið var aðalútgefandi að
Ættum Austfirðinga eftir sr. Ein-
ar Jónsson. Þá hefur félagið m.a.
veitt UÍA og „Vonarlandi" á Eg-
ilsstöðum góðan stuðning.
Til að minnast þess að Austfirð-
ingafélagið er orðið 80 ára verður
hóf að Hótel Sögu föstudaginn 23.
nóvember og hefst það með borð-
haldi kl. 20.00.
Dagskrá verður fjölbreytt. Þess
er vænst að Austfirðingar fjöl-
menni.
meðstjórnandi, Haraldur Hannes-
son meðstjórnandi, Eyþór Þórð-
arson varamaður og Loftur Al.
Þorsteinsson varamaður.
Framkvæmdanefnd Lands-
sambands lífeyrissjóða skipa:
Bjarni Þórðarson, Hermann
Þorsteinsson, Pétur H. Blöndal.
(PréCUtilk jBBÍag)
Kolbrún Svavarsdóttir sjúkraþjálfari ásamt starfsfólki sínu.
Ný endurhæf-
ingarstöð
NYTT fyrirtæki, Endurhæfingarstöð
Kolbrúnar, hóf starfsemi sína hinn
30. maí sl. að Bolholti 6, Reykjavík.
Eigandi fyrirtækisins er Kolbrún
Svavarsdóttir löggiltur sjúkraþjálf-
ari.
Tilgangur fyrirtækisins er
rekstur sjúkraþjálfunar- og
endurhæfingarstöðvar. Hjá fyrir-
tækinu starfa 3 löggiltir sjúkra-
þjálfarar útskrifaðir frá Háskóla
Islands og einn aðstoðarmaður.
Daglega koma um 45 manns í
sjúkraþjálfun og er aðsókn mjög
mikil. Kemur fólk eftir tilvísun
frá lækni og greiðir fyrir sam-
kvæmt samningstaxta Félags ís-
lenskra sjúkraþjálfara við Trygg-
ingastofnun ríkisins.
(Frétutilkrniiing.)
VOGIR
TIL ALLRA NOTA
S
um fyrirtaeki þurfa staðlaða vog fyrir starfsemi sína. önnur þurfa flókið vogakerfi til gagnasöfnunar og
framleiðslustýringar, sérstaklega aðlagað starfsemi þeirra.
I hvoru tilvikinu um sig hefur Toledo réttu vogina eða vogakerfið. Toledo er einn stærsti framleiðandi
iðnaðarvoga í heiminum, og starfar nú í yfir 60 löndum.
Toledo þróar og framleiðir vogir og vogakerfi fyrir allar greinar iðnaðar s.s. fyrir kjötvinnslur, fiskvinnslur,
almennan iðnað og þungaiðnað.
«BB PALLVOCIR
Pallvogir af ýmsum
gerðum, fyrir borð eða
gólf, vogarþol frá 3 kg.
upp í 10 tonn.
KJÖTVINNSLU"
VOGIR
Hengivogir eru sérhannaðar
með þarfir sláturhúsa og
kjötvinnslustöðva í huga. Þær
bjóða upp á nákvæmt eftirlit
með nýtingu afurða. Geta
tengst loftbrautum.
BRETTA VOGIR
Snjöll lausn á brettaviktun, sem
nú verður mun auöveldari. Þjónar
líka sem venjuleg gólfvog.
fOIUHPO
EINKAUMBOÐ
Á ÍSLANDI
VOGAKERFI
Toledo þróar og framleiðir
hugbúnað til gagnasöfnunar og
framleiðslustýringa í flestum
greinum iðnaðar. Getur aðlagað
hugbúnað þörfum hvers fyrirtækis.
ÞJONUSTA
Tæknimenn Plastos h.f. munu sjá um allt viðhald Toledo voga á
islandi. Samstarf verður við Toledo í Svíþjóð um breytingu og þróun
hugbúnaöar.
Ilastos liF