Morgunblaðið - 18.11.1984, Side 68
68
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984
Texti: BERGUÓT INGÓLFSDÓTTIR
Guy de Rothschild, höfud ættarinnar ( París, ásamt konu Éui
Rothschild-ættin
Rithöfundar koma fram á sjónarsviðið
Víða um lönd setjast menn niður og rita æviminningar sínar, en það er líkast til
ekki oft að út eru gefnar bækur eftir þrjá einstaklinga af sömu ætt á einu og sama
árinu.
Sú er þó raunin með Rothschild-ættina. í sumar komu út í París bækurnar
„Contre bonne fortune" (Þrátt fyrir góð efni) eftir Guy de Rothschild, „La Baronne
rentre a cinq heures" (Barónessan kemur aftur kl. fimm) eftir Nadine de Rothschild
og í London bókin „Myladi Vine“ eftir Philippe de Rothschild. Sú síðastnefnda er
væntanleg á markað í Bandaríkjunum undir nafninu „Baron Philippe".
Þegar nafnið Rothschild er nefnt, koma fyrst í hugann bankar og
peningalánastofnanir. En þeir ættmenn hafa komið víða við sögu, svo sem við alls
konar framkvæmdir, svo og við lista- og menningarmál, að ógleymdum
mannúðarmálum.
Forfaðirinn
Forfaðirinn hét Meyer Amsch-
el Bauer og var gyðingur, fæddur
í Frankfurt árið 1743. Hann
komst úr fátækt til efna við að
lána út peninga. Eftir að hann
tók að sér að varðveita og ávaxta
auðæfi Williams prins og kjör-
manns í Hesse-Cassel, þegar
hann þurfti að flýja eftir orrust-
una við Jena árið 1801, óx hann
mjög í áliti. Meyer Amschel
auðgaðist vel og tók sér nafnið
Rothschild (þ.e. rautt sverð á
þýsku) vegna þess að rautt sverð
hékk yfir dyrum fyrirtækis
hans. Hann lagði því bæði
grunninn að miklum auðæfum
eftirkomenda sinna og gaf þeim
nafn, sem orðið hefur þekkt um
allan heim.
Fimm synir
Við dauða föðurins árið 1812
skiptist auðurinn á milli fimm
sona, sem hver fyrir sig tók við
útibúum í sitt hvoru landinu.
Synirnir voru:
f. d. tók við i
Meyer Amschel 1773 1855 Frankfurt
Solomon 1774 1855 Vín
Nathan Meyer 1777 1836 London
Karl 1788 1855 Napólí
James 1792 1868 París
Þeir bræður urðu óhemju
voldugir er fram liðu stundir
vegna hins mikla auðs, sem þeir
réðu yfir, þeir urðu nær einráðir
á peningamörkuðum í Evrópu á
nítjándu öld. Vegna áhrifa á
fjármálasviðinu blönduðust þeir
í stjórnmál og lánuðu ríkis-
stjórnum fé sem öðrum.
Nathan Meyer, sem þótti um
margt bera af þeim bræðrum,
veitti t.d. Bretum ómetanlega
hjálp í baráttunni við Napóleon.
Þeim bræðrum var veitt aðals-
tign við austurríska keisara-
dæmið árið 1822. Þeir komu allt-
af fram sem heild í viðskiptum
og styrkti það stöðu þeirra og
völd og yfirmenn í fyrirtækjun-
um voru allir ættingjar þeirra.
Þeir bræður fikruðu sig upp eftir
þjóðfélagsstiganum og blönduðu
geði við fyrirfólk á hverjum stað,
andstætt því sem yfirleitt var
með gyðinga. Þeir gleymdu þó
ekki uppruna sínum og lögðu lið
ýmsum málefnum gyðinga. Þeg-
ar fram liðu stundir varð það al-
gengt að ættingjar gengju í
hjónaband og viö það hélst auð-
urinn innan fjölskyldunnar, svo
voru þeir lagnir við að velja sér
auðugt kvonfang.
Sonur Nathans Meyer í Lon-
don, Lionel, f. 1803 d. 1879, var
fyrsti gyðingurinn sem kjörinn
var á breska þingiö. Lögum, sem
stönguðust á við trúarbrögð gyð-
inga, var breytt 1858 til að gera
honum kleift að taka þingsæti.
Sonur Lionels, Nathaniel Mey-
er, f. 1840 d. 1915, var svo fyrsti
gyðingurinn sem hlaut aðalstign
í Bretlandi. Hann beitti sér mjög
fyrir mannúðarmálum og var
forseti breska Rauða krossins
þegar hann lést. Elsti sonur
hans, Lionel Walter, f. 1868 d.
1937, varð annar baróninn af
Rothschild.
í París tók við, að föður sínum
látnum, Alphonse, f. 1827 d.
1905. Bróðir hans Edmond, f.
1845 d. 1934, var þekktur sem „le
Baron“, hann var stjórnarfor-
maður í Frakklandsbanka og að-
stoðaði gyðinga við landnám
þeirra í ísrael.
Þeir Rothschild-menn létu til
sín taka á mörgum sviðum, eins
og áður er vikið að. Þeir söfnuðu
listaverkum, studdu hverskonar
menningar- og mannúðarmál,
þeir voru framarlega í ræktun
veðhlaupahesta og byggðu hallir
Nathan Rothschild, sem lagði
grunninn að ættarauðnum f Lon-
don.
og glæsileg stórhýsi, járnbrautir
o.n.
Baron Louis de Rothschild var
fjármálamaður í Þýskalandi á
þriðja áratugnum þegar Hitler
komst til valda. Hann var tekinn
höndum af nasistum og haldið
sem gísl. Lausnarféð, 21 millj.
dalir, var það hæsta sem farið
hafði verið fram á fyrir nokkurn
mann fram að þeim tíma.
Eftir heimsstyrjaldirnar báð-
ar dró mjög úr umsvifum ættar-
innar, það er h.íst að völd þeirra
hafi haldist í Bretlandi.
Kithöfundarnir
Guy de Rothschild sem skrif-
aði bókina „Contre bonne for-
tune“ var yfirmaður Roth-
schild-bankans í París þar til
Mitterrand þjóðnýtti alla banka
árið 1981, þá fluttist hann til
New York. í bók hans kennir
margra grasa. Hann segir þar
frá æsku sinni og uppvexti meðal
annars. Hann var alinn upp i
höllinni Ferriéres, sem langafi
hans, James de Rothschild, reisti
á miðri nítjándu öld, og var þar
flest allt með sömu ummerkjum
og á fyrri tíð. Höllin er um 20
mílur frá París og þótti óhemju-
glæsileg híbýli, sem skrýdd voru
með málverkum eftir meistar-
ana Rubens, Van Dyke og Gains-
borough. Til að annast húshaldið
þurfti hvorki meira né minna en
þrjátíu manns þegar allt var tal-
ið. Þegar Ferriéres var byggt,
var rafmagn ekki komið til sög-
unnar, en í hverju svefnherbergi
var komið fyrir bjöllum, sem
tengdar voru við vistarverur
þjónustufólks. Hvert herbergi
hafði sinn ákveðna hljóm, þann-
ig að hægt var að greina hvaðan
kallið kom.
Höllin var gefin franska rík-
inu árið 1970 og flutti þá Guy
með fjölskyldu sína í stórhýsi
við Place de la Concorde, það var
áður eign Talleyrand, en hýsir
nú bandaríska sendiráðið.
Á árum seinni heimsstyrjald-
arinnar flúði Guy með fyrri
konu sinni til Bretlands, þar sem
hann starfaði um tíma sem liðs-
foringi í útlagaher Frakka undir
stjórn de Gaulles.
Eftir stríðið tók hann við
störfum í Rothschild-banka í
París. Einn af starfsmönnum
bankans var Georges Pompidou
og hélst vinátta þeirra alla tíð.
Seinni kona Guy de Rothschild
heitir Marie-Héléne, fædd Zuyl-
ens, og er af þekktri bankaeig-
enda-ætt í Hollandi. Frúin er
þekkt samkvæmiskona, mikil
hestakona og hefur látið til sín
taka á listasviðinu. Meðal tíðra
gesta þeirra hjóna hafa verið
margir þekktir menn og frægar
konur. Þar má nefna Pompidou-
hjónin, Malraux, Visconti,
Onassis, Serge Lifar, Coco Chan-
el og Maria Callas. Meðan þau
bjuggu í höllinni bauð hún eitt
sinn átta hundruð gestum til
svokallaðs Proust-dansleiks.
Gestir áttu allir að koma klædd-
ir í gervum persóna úr skáld-
sögum Proust.
Þau hjón eru nú búsett í New
York, eins og áður segir, og hafa
reynt að halda „le style Roth-
schild" í híbýlum sínum þar. Bók
Guy de Rothschild hefur orðið
metsölubók í Frakklandi.
Nadine de Rothschild
Æviminningar Nadine de
Rothschild heita „La Baronne
rentre a cinq heures" (Baróness-
an kemur aftur kl. 5) og kom
bókin út í París í sumar. Hún er
ekki fædd með silfurskeið í
munni eins og margar þær konur
er tengst hafa ættinni. Nadine er
af fátæku fólki komin, fædd í
iðnaðarbæ I Norður-Frakklandi.
Hún hætti í skóia fjórtán ára
gömul og gerðist fyrirsæta
listmálara í París. Sjálf segist
hún hafa komist áfram á snotru
andliti og viljastyrk sínum. Síð-
ar fékk hún smáhlutverk í
kvikmyndum og við kabarett-
sýningar á skemmtistöðum.
Þegar hún kynntist manni sín-
um, Edmond de Rothschild, var
hann kvæntur maður og talinn
einhver alauðugasti maður ætt-
arinnar. Hún varð hjákona hans
og það var ekki fyrr en Nadine
var orðin rúmliggjandi og komin
Vk mánuð á leið að hann gekk
að eiga hana, 1963. Hún var alin
upp í kaþólskri trú, en skipti yfir
og tók gyðingatrú og varð brátt
formaður í alþjóðlegum samtök-
um zionistakvenna. Hún hefur
einnig tekið þátt i hjálparstarfi
við ýmis mál viðkomandi gyðing-
um, svo sem fyrir fötluð börn og
munaðarlaus, innflytjendur til
ísrael og fleira.
Þau hjón búa í húsi sem hefur
útsýni yfir Elysée-hallargarðinn
í París, auk þess eiga þau heimili
á fleiri stöðum.
Hún segist álíta það aðal-
markmið sitt að gera mann sinn
hamingjusaman. Hann er talinn
skapmikill maður og heldur laus
á kostunum. Kona hans lætur
sér fátt um finnast og segist
sammála því sem Beumarchais
sagði: „að byrðar hjónabandsins
væru svo þungar að ekki veitti af
tveimur, ef ekki þremur til að
bera þær.“ í bókinni, sem orðið
hefur metsölubók í Frakklandi,
þykir hún opinská, jafnvel full
berorð á köflum. Höfundur er
fullur aðdáunar á ættingjum
manns sins, sem hún telur alla
búna góðum kostum, og telur að
ýmsir þættir skapgerðar ein-
kenni þá alla upp til hópa.
Philippe de Rothschild
Bók Philippe de Rothschild
heitir „Myladi Vine“ og kom út í
London í júní sl. Bandarísk út-
gáfa er væntanleg á næstunni en
hún mun heita „Baron Philippe",
eins og áður segir.
Höfundurinn er fæddur í
Frakklandi árið 1896 og alinn
upp við enska tungu eins og
margir ættmenna hans. Hann er
sonur manns sem var hálfgerður
ævintýramaður í fjármálum og
tókst að glutra niður stórum
hluta auðæfa sinna.
Hann gerði soninn að bústjóra
á vínræktarsetrinu Mouton við
Medoc árið 1922, en sú eign hafði
verið í eigu fjölskyldunnar síðan
1853. Philippe lagði sig fram við
að koma framleiðslunni á mark-
að og greip til ýmissa bragða. Á
þeim tíma var ekki farið að
flytja inn vín til Bandaríkjanna
og í Evrópu voru kokkteilar að
leggja vínmarkaðinn undir sig.
Hann þurfti líka að standa i
samkeppni við frændur sína á
næsta vínræktarsetri, Lafite.
Philippe greip meðal annars til
þess ráðs að fá fræga listamenn
til að gera merkimiðana á vínið
og fékk t.d. Matisse og Picasso
til slíks. Hann kom upp vínsafni
á setrinu og byggði upp með
endurskipulagi. En vinnan var
ekki það eina, sem hann hugsaði
um á unga aldri. Hann var ein-
hver alræmdasti kvennamaður í
París á sínum tíma. Hann segir
sjálfur að sigrar hans í dyngjum
kvenna hafi orðið sér undrunar-
efni, en viðurkennir að nafnið
gæti hafa hjálpað til stöku sinn-
um og enn kveðst hann njóta
kvenhylli.
Málakunnáttu sína notaði
hann til að snúa á frönsku mörg-
um fegurstu ljóðum breskum frá
Elizabethar-tímanum.
{ bókinni kveður við dálítið
annan tón en í þeim tveimur,
sem fyrr eru nefndar. Hann leyf-
ir sér að gagnrýna Rothschild-
ættina á mörgum sviðum.
Það er reiknað með að bók
Philippe de Rothschild eigi eftir
að verða metsölubók eins og hin-
ar.
Óhætt er að segja að bækurn-
ar séu stór skammtur af lesmáli
um Rothschild-ættina á einu ári.
Það er ekki að efa að mörgum
leikur forvitni á því að kynnast
hvernig stórauðugt fólk lítur á
tilveruna og bækurnar því kær-
komnar þeim sem áhuga hafa
fyrir Rothschild-ættinni.