Morgunblaðið - 18.11.1984, Síða 72
OPIÐ ALLA DAGA FRA
KL. 11.45 - 23.30
AUSTURSTRÆTI 22
INNSTRÆTI, SÍMI 11633
TIL DAGLEGRA NOTA
SUNNUDAGUR 18. NÓVEMBER 1984 VERÐ f LAUSASÖLU 25 KR.
Verður gjaldeyrisdeild-
um lokað á mánudag?
Búizt við um 10% gengislækkun næstu daga
Loðnan
fundin
fyrir austan
NokkuÖ á undan „áætlun“
Loónusjómennimir telja sig hafa
fandiA loðnuna sem Hjálmar Vil-
hjálmsson fiskifrsAingur fann og til-
kynnti aA væri undan Langanesi.
LoAnan er dreifð um stórt svæAi og
finnst allt suAur undir Glettinganes
en svo sunnarlega hefur loAnan
sjaldan eAa aldrei veriA komin i
þessum irstíma. Kristinn Lund hji
loAnunefnd sagAi að venjulega væri
hún ekki komin svo sunnarlega fyrr
en í janúar eða febrúar.
Prá miðnætti til hádegis i gær,
laugardag, tilkynntu 13 loðnubát-
ar um afla til loðnunefndar, sam-
tals rúm 8 þúsund tonn. Á föstu-
dag tilkynntu 6 bátar um 2.600
tonn. Loðnan er dreifð og stendur
djúpt þannig að bátunum hefur
gengið illa að ná henni. Bátarnir
landa allir á Austfjarðahöfnum
nema þrír sem sigla með loðnuna
til Færeyja.
Til miðnættis á föstudag til-
kynntu þessir bátar um afla: Eld-
borg 750 tonn, Sigurður 600, Guð-
mundur Ólafsson 50, Erlingur 100,
Harpa 620 og Bergur 510 tonn. Frá
miðnætti til hádegis á laugardag
tilkynntu þessir um afla: Jón
Finnsson 590 tonn, Þórshamar
600, Keflvíkingur 520, Gullberg
600, Albert 600, Víkurberg 540,
Rauðsey 570, Magnús 540, Bjarni
Ólafsson 750, Hilmir II. 550, Svan-
ur 700, Júpíter 1.000 og Súlan 500
tonn.
Bíllinn
heimtaði
bensín
VAKTMAÐUR í vöruskemmu
Eimskipafélagsins þurfti í vik-
unni að færa til bfl sem þar var
geymdur. Hann settist undir
stýri og startaði — en bri illilega
þegar bíllinn ivarpaði hann á
ensku, bauð góðan dag, heimtaði
bensín og skipaði manninum að
loka vélarhólfínu betur.
Bíllinn er franskur fimm
manna fólksbíll, af gerðinni
Renault 25, og er sá eini sinnar
tegundar á Islandi. Innflytj-
andi er Renault-umboðið,
Kristinn Guðnason hf. Kominn
á götuna eftir helgina kostar
bíllinn um 760 þúsund krónur,
skv. upplýsingum Mbl. Það er
tölva, sem stjórnar þvi að
mannsrödd á segulbandi gefur
til kynna að hann sé að verða
bensín- eða olíulaus, býður
góðan dag eða gott kvöld og
sitthvað fleira.__
Bankamenn
sömdu ekki
SAMNINGAR tókust ekki með
bankamönnum og stjórnendum
bankanna i samningafundi i föstu-
dagskvöldið en lítið ber í milli aðila,
að sögn Hinriks Greipssonar, sem
sæti i í samninganefnd Sambands
íslenskra bankamanna.
Hinrik sagði að væntanlega yrði
haldinn fundur formanna aðildar-
félaga sambandsins á mánudag og
að þar yrði tekin ákvörðun um
framhaldið. Gert er ráð fyrir að
samningurinn verði svipaður þeim
samningum, sem gerðir hafa verið
á vinnumarkaði að undanförnu.
BÚAST má við, að gjaldeyris-
deildum bankanna verði lokað
á morgun, mánudag, skv. upp-
lýsingum, sem Morgunblaðið
hefur aflað sér. Væntanlega er
þessi lokun undanfarin ákvörð-
unar um gengislækkun, sem
GRÍMUKLÆDDUR maður réðst á
16 ára gamla stúlku við heimili
hennar í Seljahverfi í fyrrinótt, en
stúlkan gat kallað á hjálp og komu
foreldrar henni til hjálpar og flúði
árásarmaðurinn út í náttmyrkrið.
Stúlkan var að koma af unglinga-
staðnum Traffík og var ekið áleiðis
beim í rútu. Hún fór úr bifreiðinni
í Kambaseli, nokkurn spöl frá
heimili sínu. Til móts við dagheim-
ilið Hálsaborg mætti hún manni,
en veitti honum enga sérstaka at-
hygli, enda ekkert'í fari hans þá
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins verður um eða yfir
10%.
Ríkisstjórnin og þingflokk-
ar stjórnarflokkanna hafa að
undanförnu fjallað um ástand
og horfur í efnahagsmálum í
sem vakti grunsemdir hennar.
En maðurinn veitti henni eft-
irför og varð stúlkan hans vör
þegar hún hugðist opna útidyr
að heimili sínu. Hann hafði þá
sett upp grímu til þess að hylja
andlit sitt. Stúlkan náði að opna
hurðina og kasta sér inn í for-
stofuna, en maðurinn veitti
henni eftirför og dró hana nauð-
uga út. Hann greip um munn
hennar svo hún gæti ekki kallað
á hjálp og sagði; „Ekki öskra —
ekki öskra". En stúlkan náði að
kjölfar þeirra kjarasamninga,
sem gerðir hafa verið á þessu
hausti. Er gert ráð fyrir að
lækkun á gengi krónunnar
verði þáttur í þeim aðgerðum.
Á síðstu vikum hefur gengi
krónunnar lækkað að meðal-
tali um 4'á—5%. í fjárlaga-
frumvarpi fyrir næsta ár er
kalla á hjálp og heyrðu foreldr-
ar, sem gengið höfðu til náða,
skerandi neyðaróp dóttur sinnar.
Móðir stúlkunnar varð fyrri til
þar sem árásarmaðurinn hélt
dótturinni í helgreipum. Þó hún
kæmi á vettvang, þá sleppti
árásarmaðurinn ekki takinu og
það var ekki fyrr en móðirin
náði tökum á úlpu árásarmanns-
ins að hann sleppti takinu og
hvarf út í náttmyrkið, en í sömu
svifum kom faðirinn á vettvang.
Stúlkan fékk taugaáfall og
gert ráð fyrir að svigrúm til
breytinga á gengi verði um
5% til eða frá. Nú má sem
sagt búast við um eða yfir
10% gengislækkun á næstu
dögum, sem þýðir, að gengi
krónunnar hefur þá lækkað
um nálægt 15% á nokkrum
vikum.
minni háttar áverka og var flutt
í slysadeild. Rannsóknarlögregla
ríkisins hefur rannsókn málsins
með höndum og hefur ekki tekist
að hafa hendur í hári árásar-
mannsins. Honum er lýst sem
manni milli tvítugs og þrítugs,
hann sé meðalmaður á hæð með
ljóst slétt hár, grannur klæddur
í beige-brúna vatteraða úlpu.
RLR biður þá sem kunna að
búa yfir upplýsingum um mál
þetta vinsamlega að láta sig vita.
Grímuklæddur maður rést á 16 ára stúlku:
Réðst á stúlkuna á heimili
hennar og dró nauðuga út
Jaki skal hann heita
NÝJA gámakrananum í Sundahöfn var í gær gefið nafnið Jaki. Hlýtur það að teljast réttnefni því með krananum er hægt að lyfta 32,5
tonnum í einu. Reiknað er með að full afkastageta verði 20—30 gámar á klukkustund. Kraninn setur svip á hafnarsvæðið í Sundahöfn þar sem
hann skagar að minnsta kosti 26 metra yfir hafnarbakkann en þegar bóman er reist getur hún farið í 61 metra hæð. Jaki, sem er eign
Eimskipafélags íslands, var tekinn í notkun fyrir réttum mánuði. Fyrri hafnarkrani í Reykjavík, Hegri, var í notkun í liðlega 40 ár — frá 27.
febrúar 1927 til 16. febrúar 1968.