Morgunblaðið - 29.11.1984, Side 4

Morgunblaðið - 29.11.1984, Side 4
4 MORGUNBLADIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 SH semur við Eimskip um flutninga: Lækkun um 40 millj. kr. miðað við síðasta ár UNDIRRITAÐUR hefur verið samn- ingur milli Eimskipafélags íslands og SölumiAstöðvar hradfrystihúsanna um flutninga á frystum fiski til Bret- Björgun ungmenn- anna þriggja: Hjörtur tók þátt í leitinni í SAMTALI blaóamanns Morgunblaðsins við Hjört Guðbjarts- son, föður Gunnars Hjartarsonar, sem var í hópi ungmennanna þríggja sem lentu í hrakningunum við Prestsvatn, var um að ræða misskilning í frásögn- inni þar sem sagt er frá ferð Hjartar á leitarsvæðið á mánudag. Hjörtur tók þáttí leitinni á mánudag og kom ekki í bæinn fyrr en um klukkan tvö um nóttina, og ók þá jeppanum sem ung- mennin voru á og höfðu yfirgefið. Guðbjartur ólason, faðir Hjartar, starfar hjá Ásbirni ólafssyni hf., en forstjóri þess fyrirtækis, Björn Guðmundsson, bauðst til að fara á fjallabíl sínum austur á mánudag- inn og bauð hann Hirti að koma með sér. Báðir tóku þeir þátt í leitinni fram á nótt, en Hjörtur fór þá með jeppann í bæinn og ók Björn á eftir honum. Entist bensínið þar til þeir komu að Rauðavatni og tók Björn þá jeppann i tog á sínum bfl síðasta spölinn. Það er því ekki rétt sem fram kemur í frásögninni, að Hjört- ur hafi snúið við er hann frétti í talstöð að jeppinn hefði fundist mannlaus. Eru hlutaðeigendur beðnir velvirðingar á þessum mis- skilningi, sem birtist í frásögn Morgunblaðsins. Fræðslufundur um vaxtamál KAUPÞING hf. efnir í kvöld til al- menns fræðslufundar um efnið: Kaup- hækkanir — gengisfelling: óverð- tryggðir bankareikningar og önnur sparnaðarform. Á fundinum verða flutt þrjú er- indi. Dr. Sigurður B. Stefánsson hagfræðingur mun spá um verð- bólgu næstu mánuði og nauösynlega óverðtryggða vexti. Höskuldur Jónsson ráðuneytisstjóri fjármála- ráðuneytisins mun svara þeirri spurningu hvort spariskírteini rík- issjóðs séu betri en bankareikn- ingar. Brynjólfur Helgason rekstr- arhagfræðingur Landsbanka ís- lands mun fjalla um óverðtryggða vexti bankanna í vaxandi verðbólgu. Á eftir framsöguerindum verða almennar umræöur og fyrirspurnir. Fundurinn verður haldinn f Krist- alssal Hótels Loftleiða og hefst kl. 20.30. lands, meginlands Evrópu og Norður- landa. Samningurinn gildir til árs- loka 1985 og felur I sér 30 til 40% lækkun fiutningsgjalda eftir vöru- fiokkum. Samningurinn er gerður á grundvelli tilboðs, er Eimskipafé- lagið gerði í umrædda flutninga samkvæmt útboði SH, en auk Eim- skipafélagsins bauð færeyska skip- afélagið Star Shipping í þessa flutninga. Að sögn Jóns Ingvars- sonar stjórnarformanns SH felur samningurinn í sér mismikla lækk- un á flutningsgjaldi eftir vöru- flokkum og tilhögun flutninga. Á hinum helstu vörutegundum sem SH flytur hefði verðið verið um 140 dollarar á tonn, en miðað við tilboð Eimskips væri verðið 86 dollarar á tonn miðað við afgreiðslu á hafnar- bakkann, en 96 dollarar miðað við afgreiðslu alla leið. Jón Ingvarsson sagði ennfremur að árið 1983 hefðu verið flutt um 28 þúsund tonn til umræddra landa, og hefði flutningskostnaður numið um 140 milljónum íslenskra króna. Miðað viö hina nýgerðu samninga næmi flutningskostnaður á sama magni um 90 til 100 milljónum króna. Lækkunin á hinum nýgerðu samningum byggist m.a. á aukinni hagræðingu, notkun nýrrar flutn- ingatækni svo og samkeppni skipa- félaga. æ: Leitar- og björgunarþyrlan TF SIF. TF SIF notuð til leitar- starfa í fyrsta skipti LEITAR- og björgunarþyrlan TF SIF sem Landhelgisgæslan tók á leigu 1 Frakklandi í október, var 1 fyrsta sinn notuð hér til leitarstarfa við leit ungmennanna þriggja sem á svo giftusamlegan hátt björguðust á þríðju- dag, heil á húfi. Landhelgisgæslan hefur sem kunnugt er fest kaup á samskon- ar þyrlu í Frakklandi en þar sem hún er ekki væntanleg til lands- ins fyrr en næsta sumar, tók gæslan TF SIF á leigu hjá verk- smiðjunni þangað til. Þyrlan sem gæslan hefur fest kaup á, tekur átta farþega líkt og TF SIF og verður búin tækjum sem miðast við íslenskar aðstæður. Að sögn flugmanna þyrlunnar, þeirra Páls Halldórssonar og Benónýs Ásgrimssonar, hafa þeir verið við æfingar á þyrlunni frá því að hún kom til landsins. Flugu þeir bæði á mánudag og þriðjudag i leit að ungmennun- um þremur en gátu litið aðhafst fyrir þoku. Sögðust þeir muna fást við allt leitarflug en aðeins sjúkraflug inni á landi enn sem komið væri, þar sem þeir teldu sig ekki tilbúna til að annast slikt á sjó úti. Kópavogur: Undirbúningur hafinn að bygg- ingu stærstu sundlaugar landsins UNDIRBÚNINGUR er nú hafinn að breytingum og endurbyggingu sund- laugar á Rútstúni í Kópavogi og samkvæmt þeim hugmyndum sem fyrir liggja verður hér um að ræða stærstu sundlaug landsins, 50 metra langa og 25 metra breiða. Að sögn Jóns Ármanns Héðinssonar, formanns undirbún- ingsnefndar, er jafnframt unnið að skipulagningu útivistarsvæðis í tengslum við byggingu laugarinnar á túninu, sem gefið var af beiðurshjónum Kópa- vogs, Huldu Jakobsdóttur og Finnboga Rúti Valdimarssyni. Forsögu þessa máls má rekja ingsaðstöðu. Samkvæmt tillögum allt aftur til ársins 1958, en þann Högnu verður sundlaugin sú 18. júní það ár var lagt fram bréf á stærsta á íslandi, 50 metra löng og fundi bæjarráðs Kópavogs frá 25 metra breið. Við hliðina verður vogskaupstaðar, næsta vor, verði fyrsta skóflustungan tekin að þessu glæsilega mannvirki, sem fyrirhugað er að reisa á Rútstúni. 1 undirbúningsnefnd sitja auk Jóns Ármanns þeir Alexander Al- exandersson, Bragi Michaelsson, Páll Helgason og Snorri S. Kon- ráðsson. f umfjöllun og ákvarð- anatöku varðandi þessar fram- kvæmdir hefur nefndin fengið til liðs við sig Steinar Lúðvíksson íþróttakennara og forstöðumann Sundlaugar Kópavogs, Skúla Norðdal arkitekt og skipulags- stjóra Kópavogs og Guðmund Halldórsson verkfræðing, sem hefur sérhæft sig í sundlaugar- mannvirkjum. þeim hjónum Huldu Valdimars- dóttur og Finnboga Rúti Valdi- marssyni þar sem þau ánöfnuðu Kópavogskaupstað alla ræktun og mannvirki á umræddu ræktunar- landi við Kópavogsblett. Sú ósk fylgdi gjöfinni að landið yrði gert að skemmtigarði fyrir Kópavogs- búa. Síðan var reist sundlaug á túninu og var þá aðeins ráðist f að byggja hluta af sundlaugarmann- virkjum, þ.e. núverandi aðstöðu, sem verið hefur óbreytt í liðlega 20 ár. f febrúar síðastliðinn ákvað bæjarstjórn Kópavogs að skipa nefnd til að annast undirbúning að endur- og viðbótarbyggingu sundlaugarinnar á Rútstúni. Högna Sigurðardóttir arkitekt, hefur gert frumtillögu að viðbót- arsundlaug með tilheyrandi bún- lítil vaðlaug fyrir börn og einnig er gert ráð fyrir góðri útiaðstöðu umhverfis sjálf laugarmannvirk- in. Hin fyrirhuguðu mannvirki munu tengjast þeirri sundaðstöðu sem nú er fyrir hendi, þannig að samnýting verður á sundlaugun- um þremur. Gamla sundlaugin verður eingöngu kennslusundlaug, en þegar kennsluálagið er sem mest verður hluti af nýju lauginni tekinn fyrir sundkennslu. Fyrirhuguð sundlaugargerð hef- ur verið kynnt bæjarráði og rædd í bæjarstjórn Kópavogs ásamt því að skólanefnd og íþróttaráð hafa getað fylgst með þróun þessara mála, að sögn Jóns Ármanns Héð- inssonar. Hann sagði ennfremur að undirbúningsnefnd gerði sér vonir um að á 30 ára afmæli Kópa- „Gefum bílinn hvað sem tautar og raular“ — segir Davíð Sch. Thorsteinsson um ályktun Verðlagsráðs ÞAU MISTÖK áttu sér stað við vinnslu blaðsins í gær að niður féll svar Davíðs Scheving Thorsteinssonar, framkvæmdastjóra Sólar hf., við þeirri ályktun Verðlagsráðs að auglýsing fyrirtækisins á Soda Stream-vélum bryti í bága við góða viðskiptahættL Biðst Morgunblaðið velvirðingar á þessum mistökum en ummæli Davíðs fara hér á eftin „Það er alrangt að það komi niður á neytendum í hækkuðu vöru- verði þó að við gefum heppnum Soda Stream-eiganda bíl að gjöf, því hann er greiddur með ágóða fyrirtækisins,“ sagði Davíð. „33. grein sú sem Verðlagsráð vitnar í í ályktun sinni, stangast að mínu mati á við ákvæði stjórnarskrár- innar þar sem sagt er aö allir séu jafnir fyrir lögum. Hér er útgefend- um blaða og tímarita heimilt það sem okkur er bannað. Við ættum kannski að gefa út „Soda Stream- tíðindi” til að geta gefið fólki gjafir í friði. Verið getur að okkur verði bann- að að auglýsa bílinn, en við munum efna loforð okkar og gefa hann hvað sem tautar og raular," sagði Davíð Scheving Thorsteinsson. Ólympíuskákmótið í Grikklandi: Rivas mætti ekki til leiks gegn Jóhanni En það dugði íslensku skáksveitinni ekki til sigurs gegn Spánverjum Ftí Axkeli Kinqni á Ólyropfiukákmótiou I GrikkUndi. SPÁNVERJINN Rivas mætti ekki til leiks gegn Jóhanni Hjartarsyni þegar íslenska skáksveitin mætti Spáni í 9. umferð Ólympfuskákmótsins í gær. Þeir áttu að eigast við á 1. borði, en einhver óánægja kom upp { spönsku sveitinni sem olli þvf að Rivas mætti ekki til leiks. Þar með fékk íslcnska sveitin auðfenginn vinning, en það dugði þó ekki til sigurs gegn Spáni, jafntefli varð í viðureign þjóðanna, 2—2. Það var skarð fyrir skildi, að Margeir Pétursson og Helgi Ólafsson gátu ekki teflt gegn Spánverj- um, eru báðir veikir en vonir standa til að þeir mæti til leiks í 10. umferð. Jón L. Árnason var lengst af dóttir og Sigurlaug Friðþjófs- með gjörunnið tafl gegn Bellon á 2. borði en Spánverjinn náði að þráskáka. Jón var þá í miklu tímahraki — átti aðeins 4 mín- útur á sfðustu 16 leikina. Guð- mundur og Fernandez gerðu jafntefli á 3. borði og Karl Þor- steins tapaði á 4. borði. íslenska sveitin er nú í nfunda sæti með 22 vinninga. Það hefur vakið mikla athygli að tveir efstu menn Júgóslav- anna hafa ekki teflt f síðustu umferðum hér í Þessalóníku. Þeir hafa setið meðal áhorfenda. íslenska kvennasveitin sigraði þá japönsku 2—1. ólöf Þráins- dóttir gerðu jafntefli og Guðlaug Þorsteinsdóttir vann. Sovétmenn halda öruggri for- ustu á mótinu og hafa enn ekki tapað leik. 1 5. umferð munaöi þó litlu og vakti skák Jusupovs og Nigels Short mikla athygli. Þeir sátu að tafli í 11 klukkustundir og átti Sovétmaðurinn mjög í vök að verjast, en á undraverðan hátt tókst honum að halda jafn- tefli. Þá vakti það athygli að Sovétmenn sluppu naumlega fyrir horn í viðureign sinni við Svía, en henni lauk með jafn- tefli, 2—2. Þannig mátti Bely- avski þakka fyrir jafntefli við Ulf Anderson á 1. borði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.