Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
ítarleg kjaramálaumræða á ASÍ-þingi:
„Heímtum of mikið
af alltof fáum“
MIKLAR umrædur urðu um kjara-, atvinnu- og efnahagsmál á ASÍ-þinginu í
gær. í ræðum tuga ræðumanna kom fram mikil óánægja með nýgerða kjara-
samninga, einkum vöntun á kauptryggingar- og uppsagnarákvæðum, og áhyggj-
ur af stöðu og stefnu verkalýðshreyfingarinnar. Fjölmargar tillögur komu fram
til viðbótar ályktunardrögum forystunnar, sem þeir Guðmundur J. Guð-
mundsson, formaður Verkamannasambandsins og Björn Björnsson, hagfræð-
ingur ASÍ, mæltu fyrir.
Guðmundur og Björn röktu gang
kjaramála undanfarin misseri og
lýstu vonbrigðum ASl með að ekki
hafi tekist að fara þá leið í nýgerð-
um kjarasamningum, sem Verka-
mannasambandið hafði forystu um.
Guðmundur J. Hallvarðsson frá
Dagsbrún sagði innviði verka-
lýðshreyfingarinnar veikburða og
einingu hennar í hættu. Samning-
arnir hefðu skapað fleiri vandamál
en þeir leystu. Oánægjan græfi nú
um sig meðal launafólks. Það yrði
að standa saman gegn fjandsam-
legri ríkisstjórn og frjálshyggju-
stefnu, sem væri óframkvæmanleg
nema lögð væri í rúst sú þjóðfélags-
gerð, sem verkalýðshreyfingin hefði
átt mikinn þátt í að byggja upp.
Hansína A. Stefánsdóttir frá Versl-
unarmannafélagi Árnessýslu hvatti
til að verkalýðsfélögin berðust gegn
yfirborgunum og bónusgreiðslum,
sem ekki væru annað en „þrælabón-
us“ og blekking. Launþegar ættu að
geta lifað af dagvinnulaunum sín-
um. Baldur Óskarsson frá VR sagð-
ist ekki hafa merkt það af fram-
söguræðunum að á þinginu ætti að
hefja upp sókn gegn Vinnuveit-
endasambandinu, SlS, Sjálfstæðis-
flokknum og Verslunarráðinu. Full-
trúar markaðskreddunnar ætla að
rústa verkalýðshreyfinguna, gera
þá ríku ríkari og þá fátæku fátæk-
ari, sagði Baldur. Erna Gunnars-
dóttir úr Keflavík gagnrýndi samn-
ingana harðlega og sagði að enn
sæti fiskvinnslufólk á botninum.
„Öngþveitið í okkar málum má
rekja til þess, að við heimtum of
mikið af of fáum,“ sagði Erna.
Hrafnkell Jónsson frá Eskifirði
sagði það sorglega staðreynd, að
margir hefðu nú ekki lengur til
hnífs og skeiðar. „Annáll kjara-
mála, sem hér liggur á borðum, er
óslitin saga ósigra verkalýðshreyf-
ingarinnar," sagði hann. Kolbeinn
Friðbjarnarson frá Siglufirði
beindi gagnrýni sinni inn á við,
sagði forystumenn verkalýðshreyf-
ingarinnar alls ekki hafa staðið sig
nógu vel; ýmislegt af því, sem um
hefði verið samið á undanförnum
fáum árum, svo sem tvöfalda kerf-
ið, unglingataxtinn og lágmarks-
laun væri til skammar, „mest fyrir
okkur sjálf“. Hann sagði að verka-
lýðshreyfingin hefði aldrei látið
reyna á samstöðuna. Það hefði
BSRB gert með glæsilegum árangri.
Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ tók undir sjónarmið um að
kjaramálastefna sambandsins væri
ekki nógu markviss og mótuð. „VSl
og Verslunarráðið hafa unnið sam-
fellt og öflugt að pólitfskri stefnu-
mótun. Þeir hafa tekið pólitískt
frumkvæði. Sjálfstæðisflokkurinn
og Framsókn hafa siglt í kjölfar
þeirra,“ sagði hann. „Atvinnurek-
endur hafa her manns í samfelldri
stefnumótun í atvinnu- og efna-
hagsmálum. Ég held að við gætum
ýmislegt af þeim lært. Við verðum
að ná pólitísku frumkvæði. Við get-
um ekki sótt pólitísku lfnuna út f
bæ. Við verðum sjálf að móta okkar
stefnu.“
Margt fleira kom fram í umræð- MorgunblaJii/Ól.K.M.
rekia^hér ^ gefSt rÚm ^ að Guðríður Elíasdóttir tekur á móti blómum samherja og vina á Alþýðusam-
J ___________________ bandsþingi í gær.
Hef aldrei verið forréttindakona
— segir Guðríður Elíasdóttir 2. varaforseti Alþýðusambandsins
„SEM UNG manneskja mótaðist ég af jafnaðarstefnunni og verkalýðshreyf-
ingunni og hef reynt að leggja hvoru tveggja lið eftir þvf sem ég hef getað í 35
ár,“ sagði Guðríður Elfasdóttir, formaður verkakvennafélagsins Framtíðar-
innar í Hafnarfirði, sem í gærmorgun var einróma kosin 2. varaforseti
Alþýðusambands íslands á 35. þingi sambandsins í Reykjavík. Ásmundur
Stefánsson var endurkjörinn forseti ASÍ og Björn Þórhallsson var kosinn 1.
varaforseti.
Guðríður Elíasdóttir er lágvaxin,
kvik og brosmild kona. Kynsystur
hennar á þinginu risu úr sætum og
fögnuðu kosningu hennar með lófa-
taki. Hún sagði í spjalli við blaða-
mann Mbl. eftir kosninguna að hún
væri „varla farin að átta mig á
þessu en víst leggst þetta ljómandi
vel f mig. Það má kannski segja að
þetta hafi verið möguleiki i nokk-
urn tíma en þó var ekkert víst að
þingið kærði sig um 2. varaforseta.
Nú verð ég að standa mig — og ekki
bara fyrir konur, heldur alla. Ég er
engin forréttindakona.“
Hún er komin af verkafólki á
Akranesi, næstelst í hópi fjórtán
systkina, „svo víst þurfti maður að
taka til hendinni heima í gamla
daga. En ég átti gott og heilbrigt
heimili. Þar mótaðist ég og hef
aldrei dregið dul á, að ég er jafnað-
armanneskja. Og það er heldur ekk-
ert leyndarmál, að ég heillaðist
mest af Sveinbirni Oddssyni, sem
var stórmerkur verkalýðssinni og
foringi á sinni tíð heima á Skaga.
Hjá honum fékk ég mitt pólitíska
uppeldi."
I stríðslok kom til róðra á Akra-
nesi ungur sjómaður úr Hafnar-
firði, Jónas Sigurðsson. 1945 voru
þau Jónas og Guðríður gift og flutt-
ust til Hafnarfjarðar. Fjórum árum
síðar var hún „nörruð til að verða
gjaldkeri í Framtfðinni f eitt ár en
þau urðu nú talsvert fleiri,“ sagði
hún. Nú hefur Guðríður verið for-
maður Framtíðarinnar í sautján ár.
Hún sagðist ekki reikna með að á
sínum högum yrðu breytingar þótt
hún væi i nú orðin varaforseti í Al-
þýðusambandi íslands. „Nei,“ sagði
hún, „ég er búin aö druslast þetta í
mörg ár og reyni að halda áfram að
vinna eftir bestu getu. Ég hef alla
tið verið sjómannskona, ól upp tvö
börn og hef fengið mína lífsfyllingu
sem móðir og verkalýðskona."
Fjölmennasti klúbbur landsins
og aörir góðir gestir, velkomnir
KLÚBBURINN
A UTSYNARKVOLD
FRÍ-KLÚBBSSTEMMNINGU í BRCADWAr
sunnudaginn
2. desember
1984
Kl. 19.00 HúsíO opnaö, Frf-klúbb»*tarf«menn aumars-
ins taka á móti gestum og bjóða þá velkomna.
Kl. 19.30 „Fríklúbburinn á sólarströndum ’84“
Frumsýning nýrrar kvikmyndar. Ingólfur Guöbrands-
son forstjóri Utsýnar kynnir.
Kl. 20.00 Veislan hefst með suö-
rænu sniöi, gómsætum róttum og
Frí-klúbbsfjöri.
Fjölbreytt skemmtiatriöi, m.a.
. ... \ TÍSKUSÝNING, Modelsamtökin
^Fri-klubbsfelagar og gestir kveöja \ ^ nýjustu vetrartlskuna frá
. sumariö og heilsa vetri a glæsilegri \ 1 Jírkuhúsi
Frí-klúbbshátíð með bráöhressu og '
fjörugu fólki.
Rúllugjald Frí-klúbbsins er aðeins
kr. 100,- í staö kr. 170,-.
Fríklúbbskjör:
Kvöldverður á kr. 385,-
luai uenuiia vra
Hinn síhressi
Hermann Gunnars-
son kynnir.
Framkvstj.
Frí-klúbbsins,
Pálmi ________
Pálmason stjórnar, honum til aö-
stoðar veröa hinir rómuöu Frf-
klúbbsfararstjórar: Erlingur Karlsson
(Spánn), Katrín Pálsdóttir (Portúgal),
Ingibjörg Hjaltalín (jtalía) Hildigunn-
ur Gunnarsdóttir (Portúgal), Hrafn-
hildur Valbjörnsdóttir (ítalía) og Jón-
ína Benediktsdóttir.
næsta árs í verö-
DANSSYNING, sérsaminn dans frá Dansnýjung Kol-
brúnar Aöalsteinsd.
STÓR-BINGÓ meö Útsýnarferöum
laun, heildarverö
mæti vinninga
kr. 63.000,-
Fjölbreyttir feröamögu-
leikar vetrarins kynntir
meö nýrri feröaáætlun.
Frf-klúbbsfararstjórar
bregöa á leik með þátt-
töku gesta.
Dansinn stiginn með Frí-
klúbbsfjöri til kl. 01.00. Ný
8 manna hljómsveit
Gunnars Þórðarssonar
og söngvararnir Björgvin
Halldórsson, Sverrir Guö-
jónsson og Þuriöur Sig-
uröardóttir.
MATSEÐILL A:
Serstakur þriþrettaður
sælkeramatseöill á sér-
verði. kr. 650,-
Koníakslöguö humarsúpa.
Lambabuffsteik m/ristuö-
um sveppum, bacon-
steiktum kartöflum, gljáö-
um gulrótum, blómkáli
m/ostabráö, salati og
rauövínssósu.
Fyllt bökuö epli m/kókos-
fyllingu og rjóma.
MATSEOILL B:
Modelkeppnin
Ungfrú og
Herra
Útsýn
1985 hefst.
Odyr en Ijuffengur Fri -
klubbsmatseðill i spænsk
um grisaveislustil: Aðeins
kr 385,-
Svínakjöt, kjúklingar
m/salati, sósu og blönd-
uöu grænmeti.
Sérstakt Frí-klúbbstilboð
ATH.: Ákveðið hvorn
matseöilinn þið veljiö
um leiö og pantaö er.
Tryggðu þér pláss í
tíma í síma 77500,
því húsið fyllist
fljótt. Borðapant-
anir og míöasala í
Broadway daglega
á milli kl. 11—19.