Morgunblaðið - 29.11.1984, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
AFRÍKA
Breska sjónvarpsþáttaröðin
„The Story of Africa“ eða Saga Afr-
íku er að mínu mati einstök fyrir
þá sök, að þar er brugðið upp
myndum af þróunarsögu heillar
heimsálfu á svo listilegan hátt að
áhorfandanum opnast nýr og áður
ókunnur heimur. í það minnsta
hafði ég ekki hugmynd um hversu
fjðlbreytt mannlífið er í raun og
veru í þessari miklu álfu. Hingað-
til hafa fræðslumyndir frá Afríku
einkum snúist um hið fjölskrúð-
uga dýralíf álfunnar, og þar hafa
innfæddir gjarnan leikið hlutverk
burðarmannsins. í Sögu Afríku er
hinsvegar beint sjónum að mann-
lífi álfunnar og athugað hið sögu-
lega baksvið þess mannllfs sem nú
er lifað í sólarbreyskju álfunnar
svörtu. Þannig var til dæmis i 6.
þætti, á þriðjudaginn var, tekið
fyrir eitt myrkasta skeið afrískrar
sögu, timabilið frá 1880 til loka
siðari heimsstyrjaldar, en á þessu
skeiði skeiðuðu hvitir Evrópu-
menn yfir lendur blökkufólksins
og hnepptu það i viðjar nýlendu-
stefnunnar, en sú stefna sigldi i
kjölfar iðnbyltingarinnar er
krafðist nýrra markaða og hrá-
efna.
Áhrif
nýlendustefnunnar
í þessum sjötta þætti Sögu Afr-
íku fannst mér koma skýrt fram,
hve djúptæk áhrif nýlendustefnan
hefur haft á allt mannlif i Afríku.
Hungur hinnar evrópsku iðnbylt-
ingar i hráefni, gerði það að verk-
um, að i raun raskaðist allt
mannlíf á þessum slóðum. Svert-
ingjarnir voru reknir til og frá
einsog sauðfé, oni lífshættulegar
námur eða út á bómullarakra að
tína bómull. Hráefnisöflunin
krafðist vinnuafls, og engu skeytt
um þá atvinnuvegi er fyrir voru.
Þannig varð sérhæfing landbún-
aðarframleiðslunnar i raun til
þess að kippa fótunum undan mat-
vælaframleiðslu Afríkubúa. Hinar
landlægu afrísku hungurplígur,
sem við sjáum svo ljóslifandi i
fréttum þessa dagana héldu inn-
reið sina í kjölfar nýlendustefn-
unnar.
Þungur er sá kross
Svo sannarlega bera Evrópubú-
ar þunga ábyrgð á vesöld þeirri er
nú ríkir á sumum svæðum Afríku,
það var ekki nóg með að þeir
tæmdu heilu landsvæðin af
hraustum negrum, er vesluðust
upp á fjarlægum plantekrum, og
kipptu þannig stoðum undan
rótgrónum afriskum samfélögum,
heldur skiptu þeir síðar álfunni á
milli sín og tóku þannig á vissan
hátt upp þrælahald á ný, þótt lög
um slíkt hefðu verið afnumin og
enn þann dag i dag er slíkt þræla-
hald við lýði í Suður-Afríku.
Þessi helstefna Evrópumanns-
ins var auðvitað framkvæmd í
nafni Guðs og góðra siða. Afríku-
búarnir voru apalegir í útliti
svartir eins og erfðasyndin og að
auki heiðnir. Var ekki gustuk að
siðmennta þetta lið, og koma þvi í
almennilega vinnu, i þágu hinnar
glæstu iðnbyltingar. Því miður
held ég að fyrrgreind viðhorf sé
enn að finna á Vesturlöndum, i
það minnsta heyrði ég hér á dög-
unum hreyft þeirri kenningu, að
aðeins heiðið fólk dæi nú í
Eþíópíu, enginn hefði dáið úr hópi
hinna kristnu. Ég hef grun um að
þessi skoðun eigi sér fylgjendur í
trúarsöfnuði er tilheyrir þjóð-
kirkjunni. Ég spyr þetta sann-
kristna fólk, hvers eiga litlu börn-
in að gjalda sem nú eru að deyja í
fangi mæðra sinna austur í
Eþíópíu. Hvað hafa þau til sakar
unnið, framyfir hin er lifa sökum
trúarinnar?
ólafur M.
Jóhannesson.
ÚTVARP / S JÓN VARP
Andrés Björnsson
Á bóka-
markað-
inum
14
00
í dag les And-
rés Björnsson
útvarpsstjóri
úr nýjum bókum, en þætt-
ir þessir hafa verið árviss
viðburður í jólabókaflóð-
inu undanfarin ár. Að
sögn Dóru Ingvadóttur,
sem sér um kynningu bók-
anna, eru þættir þessir
alla virka daga og er yfir-
leitt lesið úr þremur bók-
um í hverjum þætti, eða
15 bókum á viku. „Það
gengur nokkuð treglega
að afla efnis í þáttinn
núna,“ sagði Dóra, „en það
stafar af því að bókaút-
gáfur eru seinni á ferðinni
nú en áður vegna verk-
fallsins. Við fórum samt
seinna af stað en venju-
lega, en jafnvel þótt bók-
aflóðið skelli snögglega á,
þá ættum við að geta ann-
að því. Það hefur yfirleitt
verið lesið úr 130 bókum í
þessum þáttum undanfar-
in ár og ég reikna með að
sú tala haldist óbreytt."
Eins og fyrr sagði eru
þættir þessir bara virka
daga, en þó eru þar und-
antekningar á, t.d. verður
einnig þáttur á sunnudag.
Rokkrásin:
DEEP PURPLE
Skúli Helgason
16
00 og Snorri Már
Skúlason verða
með Rokkrásina á sínum
stað í dag á rás 2. Að
þessu sinni ætla þeir fé-
lagar að kynna aldnar
kempur sem þó eru ekki á
þeim buxunum að gefast
upp, Deep Purple.
Hljómsveitin Deep Purple
starfaði á árunum
1968— 1975 og voru þá
framverðir þungarokksins
svokallaða. Tíðar manna-
breytingar voru í
hljómsveitinni, en vinsæl-
asta útgáfa hennar og
jafnframt sú langlífasta,
sem starfaði á árunum
1969— 1973, verður kynnt
á Rokkrásinni. Þeir sem
skipuðu hljómsveitina á
í þættinum Rokkr&sin í dag verður hljómsveitin Deep
Purple kynnt. Á myndinni má sjá eitt umslaga um plötu
þeirra félaga, en plata þessi hefur selst f milljónum eintaka
frá því að hún kom út árið 1970.
þessum árum voru þeir
Ian Gillan, Richie
Blackmore, Jon Lord, Ian
Paice og Roger Glover og
voru allir þessir kappar
mikil átrúnaðargoð
ungmenna á tímum síða
hársins. Nú hafa þessir
menn tekið sig til og
endurvakið Deep Purple
og hafa þegar gefið út
eina hljómplötu, en áður
höfðu þeir farið víða og
m.a. stofnað eigin
hljómsveitir. Skúli og
Snorri ætla að leika af
nýju hljómplötunni í dag,
svo og gömlum plötum
þeirra purpurarauðu og
kvaðst Skúli vonast til að
þungarokksaðdáendur
hefðu gaman af.
Utvarp
■i í kvöld verður útvarpað beint frá Alþingi
00 íslendinga. Þá fer fram þriðja umræða í
neðri deild þingsins um lagagildi samnings
milli ríkisstjórnar íslands og Alusuisse um álbræðslu
við Straumsvík. Umræðan skiptist f tvær umferðir og
fær hver þingflokkur 30 mínútna ræðutíma samanlagt.
Umræðan stendur í rúma þrjá tíma og verða eflaust
Alþingi
fjörugar umræður um álmálið, sem hefur verið eitt
helsta deiluefni manna undanfarið. Vegna þessarar út-
sendingar í kvöld mun Betlaraóperan falla niður enn
einu sinni og er allt útlit fyrir að henni verði ekki
útvarpað fyrr en eftir áramót, að sögn starfsmanns
dagskrárdeildar Ríkisútvarpsins.
ÚTVARP
v
FIMMTUDAGUR
29. nóvember.
7.00 Veöurfregnir. Fréttir.
Bæn.
A virkum degi. 7.25 Leikfimi.
7.55 Daglegt mál. Endurt.
þáttur Sigurðar G. Tómas-
son frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregn-
ir.
Morgunorð: — Sigurveig
Georgsdóttir talar.
9Æ0 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Dularfullir atburðir I Flnu-
vlk“ eftir Turid Balke. Matthl-
as Kristiansen les þýðingu
slna (3).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynn-
ingar. Tónleikar. 9.45 Þing-
fréttir.
104» Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir. Forustugr. dagbl.
(útdr.). Tónleikar.
11.00 .Ég man þá tlð“. Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Her-
mann Ragnar Stefánsson.
11.30 .Sagt hefur það verið”.
Hjálmar Arnason og Magnús
Glslason sjá um þátt af Suð-
urnesjum.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
1220 Frétfir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar
1320 Barnagaman. Umsjón
Gunnvðr Braga.
13.30 Tónleikar
144» A bókamarkaðinum.
Andrés Björnsson sér um
lestur úr nýjum bókum.
Kynnir: Dóra Ingvadóttir.
1420 A frlvaktinni. Sigrún Sig-
uröardóttir kynnir óskalög
sjómanna.
1520 Tilkynningar. Tónleikar.
19.15 A döfinni
Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
Kynnir Birna Hrólfsdóttir.
1925 Veröld Busters
Fjórði þáttur.
Danskur framhaldsmynda-
flokkur I sex þáttum.
Þýðandi Ólafur Haukur Slm-
onarson.
(Nordvision — Danska sjón-
varpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
2020 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kastljós
Þáttur um innlend málefni.
15.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15
Veðurfregnir.
1620 Slödegistónleikar
a. Rðlusónata nr. 12 I B-dúr
K. 454 eftir Wolfgang Ama-
deus Mozart. Georges Oct-
ors og Jenny Solheid leika.
b. Pianókvartett I D-dúr op.
23 eftir Antonln Dvorak.
FÖSTUDAGUR
30. nóvember
Umsjónarmaður Ólafur Sig-
urösson.
21.15 Grlnmyndasafnið
Skopmynd frá árum jjöglu
myndanna.
2120 Aðeins eitt barn
(China’s Child)
Bresk heimildamynd um við-
leitni stjórnvalda I Kfna til að
takmarka barneignir. Þótt
ýmsum þyki hart að sæta
ströngum reglum, sem settar
hafa verið I þessu skyni, er
Klnverjum Ijóst aö án þeirra
væri fyrirsjáanleg offjölgun
þjóðarinnar og hungursneyð
innan fárra ára.
Þýðandi Helgi Skúli Kjart-
ansson.
Flæmski planókvartettinn
leikur.
17.10 Slödegisútvarp
Tilkynningar
18.45 Veöurtregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Daglegt mál. Sigurður G.
Tómasson flytur þáttinn.
2240 I iðrum Apaplánetunnar
(Beneath the Planet of the
Apes)
Bandarlsk blómynd frá
1969, framhald .Apaplánet-
unnar" sem sýnd var I sjón-
varpinu I aprll slöastliönum.
Leikstjóri Ted Post.
Aðalhlutverk: James Franc-
iscus, Charlton Heston,
Linda Harrison og Kim Hunt-
er.
Nokkrir geimfarar hafa lent
eftir langa ferö á framand-
legri plánetu þar sem mann-
apar ráða rlkjum en menn
eru ánauöugir.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
00.10 Fréttir I dagskrárlok.
20.00 Beint útvarp frá Alþingi.
3. umræða I neðri deild um
samning rlkisstjórnarinnar
við Alusuisse.
2320 Tónleikar.
2345 Fréttir. Dagskrárlok.
RÁS 2
FIMMTUDAGUR
29. nóvember
10.00—12.00 Morgunþáttur
Fyrstu þrjátlu mlnúturnar
helgaöar Islenskri tónlist.
Kynning á hljómsveit eöa
tónlistarmanni. Viðtöl ef svo
ber undir.
Stjórnendur: Kristján Sigur-
jónsson og Sigurður Sverr-
isson.
144»—154» Dægurflugur
Nýjustu dægurlðgin.
Stjórnandi: Leopold Sveins-
son.
15.00—16.00 I gegnum tlðina
Stjórnandi: Þorgeir Ast-
valdsson.
164»—174» Rokkrásin
Kynning á þekktri hljómsveit
eða tónlistarmanni.
Stjórnendur: Snorri Már
Skúlason og Skúli Helgason.
174»—184» Einu sinni áður
var
Vinsæl Iðg frá 1955 tll 1962
— Rokktlmabilið.
Stjórnandi: Bertram Möller.
SJÓNVARP