Morgunblaðið - 29.11.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
27
Þetta skipulag þykir ekki sjálfsagt
hvar sem er í heiminum.
Sjávarútvegur og iðnaður hafa
fetað í fótspor landbúnaðarins í
þessu efni. Iðnráðgjafar lands-
hlutasamtaka sveitarfélaga eru
nýjasti sprotinn á þessum skipu-
lagsmeiði. Þetta skipulag er sér-
lega mikilvægt fyrir þau fyrirtæki
sem eru of smá til að ráða hvers
konar sérmenntaða menn til sín.
Bændur voru einnig brautryðj-
endur um skipulag afurðasölu og
tryggðu með því framleiðendum
jafna aðstöðu til að koma afurðum
í verð. Þetta gerðu þeir innan hér-
aðs með sláturfélögum, mjólkur-
samlögum og öðrum samvinnufé-
lögum sem tóku við afurðum til
sölu. Samtök þessara afurðasölu-
fyrirtækja tóku svo að sér útflutn-
inginn.
Ríkið skipulagði grænmetis-
verzlunina þannig að framleiðend-
ur hefðu sem jafnasta aðstöðu til
að koma afurðum sínum í verð, og
dreifing til neytenda um land allt
komst í fast horf. Aðrar búgreinar
hafa haft lausara skipulag. Dæmi
um það er eggjasalan sem nú er í
deiglunni. Viðskipti við afurða-
sölufélögin gefa lítil tækifæri til
undanbragða i skattframtali.
Fátt er mikilvægara í fámenn-
inu en friður og eindrægni meðal
nágranna. í sveitum landsins er
nú víðast hvar góður félagsandi
sem má mikið þakka því að sveit-
ungum er ekki mismunað við af-
urðasölu.
Útgerðarmenn, stórir og smáir,
skipulögðu útflutning sinn á svip-
aðan hátt og bændur með sölu-
sambandi fiskframleiðenda og
sölumiðstöð hraðfrystihúsanna.
Iðnaðurinn kom hér síðastur með
útflutningsmiðstöð sína. Þetta
skipulag er mikilvægt til að smá-
fyrirtæki langt frá markaðnum
fái notið sín.
Framtakssamir einstaklingar
hafa oft ráðið miklu um farsæld
síns byggðarlags. Sjaldan hefur
slíkt framtak enzt nema eina
kynslóð eða tvær. Þegar einstakl-
ingsframtakið eitt sér hefur
brugðizt, hafa sveitarfélög og
samvinnufélög með aðild reyndra
einstaklinga tekið á sig ábyrgð á
atvinnurekstrinum. Með þessu er
ekki sagt, að slíkur félagsskapur
leysi allan vanda, en erfitt er að
sjá hvernig ýmsum byggðarlögum
hefði reitt af, ef menn hefðu ekki
haft sveitarfélögin og samvinnu-
félögin að styðjast við.
Það hefur verið tiltölulega ein-
falt mál fyrir íbúa byggðarlag-
anna að fela sveitarfélögunum
ábyrgð á atvinnurekstri þegar
aðrir hafa brugðizt. Sveitarfélögin
hafa verið afmörkuð við nánasta
atvinnusvæði íbúanna. Málið hef-
ur þá legið beint við, þar sem það
hefur verið til augljóss ávinnings
fyrir alla íbúana. Kaupfélögin
hafa náð yfir stærra svæði, en
hafa þó mörg tekið þátt í atvinnu-
rekstri á verzlunarstöðunum. Þau
hafa m.a. getað boðið fram þjálfað
forystulið sem annars vantar oft á
minni stöðum.
Þetta rekstrarfyrirkomulag hef-
ur reynzt sérlega mikilvægt, þegar
byggðarlag hefur orðið fyrir efna-
hagslegu áfalli sem það hefði ekki
staðizt með öðru móti. Þegar þjóð-
félagið í heild verður fyrir efna-
hagslegu áfalli má mæta því með
ráðstöfunum eins og að hækka
gengi erlends gjaldeyris og
styrkja þar með stöðu þeirra sem
afla hans, en takmarka um leið
eyðsluna. Lítið byggðarlag sem
verður fyrir áfalli verður að mæta
því á annan hátt.
Ofangreint skipulag þykir nú
orðið svo sjálfsagt, að kostir þess
vilja gleymast, þegar mistök koma
í ljós. Áfram hlýtur að verða
byggt á þessum grunni.
Næst verður fjallað um byggða-
stefnu í þágu höfuðborgarsvæðis-
ins, um endurskipulagningu
byggðarinnar, um óhóflega fjár-
festingu og um veilur í skipulagi
atkvæðagreiðslu.
Björn S. Stefánsson dr. scient hef-
ur stundað þjóðfélagsrannsóknir.
ekki að takmarka aðgang að þeim.
Stjórnmálamenn verða að ein-
setja sér það að búa þannig um
hnútana að við þegnarnir þurfum
aldrei aftur að þola slíka einangr-
un frá umheiminum sem við urð-
um að þola í síðasta verkfalli.
Aðferðin, sem dugar til þess að
svo verði ekki aftur, er einföld.
Stjórnmálamennirnir þurfa ein-
ungis að fela ábyrgðina á að mata
okkur á fréttum og upplýsingum
nægilega mörgum og innbyrðis
óháðum aðilum sem aldrei gætu
hugsanlega sameinast um að ein-
angra okkur. Frjáls samkeppni er
öruggasta tryggingin fyrir því.
Hún lifi.
Rejnir Hugason er rafmagnsverk-
fræðingur og framkræmdastjóri
TiHrubúðarinnar hf.
Drengjasaga
frá Akureyri
Skjaldborg hf. á Akureyri hefur
geflð út barnasöguna Símon Pétur
eftir Martin Næs í þýðingu Þórodds
Jónassonar. Þóra Sigurðardóttir
myndskreytti bókina.
Martin Næs er Færeyingur, sem
starfar nú sem bókavörður á Ak-
ureyri. Hann hefur áður sent frá
sér bækur og þýtt af íslenzku. Ár-
ið 1981 hlaut hann barnabóka-
verðlaun bæjarstjórnar Þórshafn-
ar ásamt teiknaranum Martiní
Joensen.
Símon Pétur, drengurinn sem
sagan segir frá, er fjögurra ára og
á heima í Fjörunni, syðst á Akur-
eyri.
Bókin er 70 blaðsíður, unnin í
Prentsmiðju Björns Jónssonar.
Bók um
kyneðli
SKJALDBORG á Akureyri hefur
geflð út bókina „Kyneðli og kyn-
mök“ eftir Bandaríkjamennina Al-
ice Kahn Ladas, Beverly Whipple og
John Delbert Perry í þýðingu Giss-
urs Ó. Erlingssonar.
Brynleifur H. Steingrímsson
læknir Selfossi skrifar formálsorð
og segir m.a. „Þessi bók á að mín-
um dómi erindi til allra kvenna og
karla en þó alveg sérstaklega til
lækna, hjúkrunarfræðinga, sál-
fræðinga, félagsfræðinga og ann-
arra ráðgjafa. Það er ekki vansa-
laust fyrir þá sem stunda lækn-
ingar eða ráðgjöf að þekkja ekki
til innihalds þessarar bókar.
Vonandi verður bókin til þess að
kynfræðslu verði komið á í Há-
skóla Islands og öllum þeim skól-
um, sem fást við fræðslu á lífeðli
mannsins."
Bókin er 198 blaðsíður, unnin
hjá Prentsmiðju Bjöms Jónsson-
ar.
HVUNNDAGS
S P A U G
24 SKOPSÖGUR
UM ATBURÐI ÚR
DAGLEGA LÍFINU
KOSTABOÐ I KAUPFELAGINU
í eina viku frá föstudeginum 30. nóvember veröa heimilisvörur
frá eftirtöldum framleiöendum seldar á sérstökum vildarkjörum:
ACKMA
Finncrown stálpottar 1 V2 Itr. og 3 Itr.
,,Exclusive" 28 cm steikarpanna meö loki.
DURALEX
Púnssett fyrir 6. Kjörin tækifærisgjöf.
J.G.
Hrínglaga lausbotnaform í fprum stæröum.
Athene
Postulínsmatar- og kaffistell.
W-V'-
þjánusta er sérgreín okkar*
TRYGGING AMIÐSTÖÐIN ?
V:'v■■■■? ',í-. í.Tv- . i -■ V -•••■•V.: •" ’ ,.„A
' " ■■;V.'vv., .:' ' •'•••■v:;;.v' i..-..//.,<.J
rtUí&V V.v v';-T £■$$$?£&&'■ V
: ■■ •::::' ' ■ — ■. ■•'•■. •-.,
'•■■. ■ , .-v.: j.vvv';. :