Morgunblaðið - 29.11.1984, Síða 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
Frá verkfallssjóði BSRB
Afgreiöslu bóta sem Alþýðubankinn hefur annast
verður hætt 1. des. nk.
Verkfallssjóöur BSRB.
Ódýrar jólagjafir
Vorum aö fá nýja sendingu af okkar vin-
sælu Kínavörum. Verö viö allra hæfi.
Kínverskir kúlupennar 21.-
Kínverskir matarprjónar 28,-
Adressubækur 91.-
Appik. diskamottur 99.-
Silkibox 123.-
Handmálaöir nálapúöar 98.-
Gleraugnahús 93.-
Applk. gestahandklæöi 98.-
Skrautdúkkur 349.-
Silkislæöur 407.-
Dömuskinnhanskar 598,-
Viöarbox 174.-
Dagbækur 221.-
Sprellikarlar 234.-
Búddastyttur 338.-
Kínverskar silkimyndir 228.-
Barnaskór 147.-
Barnanáttföt 429.-
Dömunáttföt 659.-
Dömu- og herrasloppar.
stuttir 702.-
Dömu- og herrasloppar,
síöir 895.-
Opiö á laugardögum. CHlNAVÖIZtJlZ
SJÓNVAL Kirkjustræti 8 - Sími 22600
LAURA ASHLEY
Kistan
Laugavegi 99. Sími 16646.
'Ragnheiöur Ólafsdótt-
ir kennari — Minning
Fædd 9. mare 1912
Dáin 20. nóvember 1984
„Um héraðsbrest ei getur þó
hrökkvi sprek í tvennt ... og aðeins
lítill tregi en engin sorg á ferðum
þótt ekkja falli í valinn ... “
Samlíkingin, sprek af birki, talar
til okkar um við, sem hafði verið
lífrikur og sveigjusterkur fyrr. En
bjarkarævin leið, börkur tærðist
nokkuð og sprekunar gætti. Það hef
ég jafnt séð í mennskum skógi
þegna sem í Drangaskógi, sem
Ragnheiður unni.
Hún var kjarnamanneskja frá
því fyrsta sem ég sá hana í föður-
garði tvítuga. Fæðst hafði hún í
Drápuhlíð, Snæfellsnesi. En lengst
af búskap sínum sat ólafur Guð-
mundsson, faðir hennar, Dranga á
Skógarströnd, var einnig kunnur
landpóstur, leiðina milli Stykkis-
hólms og Staðar í Hrútafirði. Starf-
andi húsasmíðameistari var hann
og, sat þá f Stykkishólmi og siðar í
Kópavogi.
Risnuhjónin Kristín og ólafur á
Dröngum, foreldrar Ragnheiðar og
þriggja bræðra, voru náskyld í þá
ættina, sem við bæinn Elliða er
kennd. Afarnir tveir voru bræður
þaðan, voru bræður Kristjáns i
Hraunhöfn, föður Margrétar Þor-
bjargar (d. 1945), móður Thors-
bræðra. En faðir og föðurfaðir
Ólafs Drangabónda hétu Guð-
mundur og Olafur og höfðu alist
upp á næstu bæjum við Borg á Mýr-
um. Faðir hins eldra ólafs var Guð-
mundur sonur ólafs Snókdalins
hins ættfróða.
Ragnheiður var alla ævi fjöl-
hneigð til lestrar eins og hún átti
kyn til. Hún lauk prófi frá hér-
aðsskólanum i Reykholti 1934,
seinna gagnfræðaprófi og prófi
handavinnukennara við Kennara-
skólann. í millitið hafði hún þá ver-
ið farkennari i Miðdölum og á
Barðaströnd á árunum 1938—42.
En á ekkjuárum sinum var hún
handavinnukennari i barnaskólum
Kópavogs 1954—73. Ragnheiður
giftist 1945 Guðmundi Eggertssyni
frá Einholtum (1905—49) en missti
hann eftir tæpra 4 ára ástúðlega
sambúð. Guðmundur var þau ár
kennari og skólastjóri Kópavogs-
skóla, hafði áður kennt viða, var
öllum harmdauði.
Ekki skorti áhugamál, meðan
heilsa var, til að fylla út tóm-
stundir. Ekki skorti elju né hug-
kvæmni við undirbúning undir
kennslustundir og hún átti hylli
nemenda, tók einnig þátt i gleði
þeirra.
En Ragnheiður þurfti að fórna
atorku sinni og umhyggju fyrir
marga. Á hana kom mikið hlutverk
fyrir þrjú börn, sem hvert hafði
misst sína móður of ungt. Það var
1945 sem hún gekk þannig í móður
stað Ólafi Grími Bjömssyni, þá 18
mánaða gömlum frænda, sem bar
nafn föður hennar. önnur börn,
sem hún veitti fóstur, voru Magnús
Ásgeir Bjarnason aðalbókari,
Kópavogi, og Selma Gunnarsdóttir,
sem er látin. Og meðan foreldrar
Ragnheiðar lifðu, en þau náðu há-
um aldri, annaðist hún um þá af
sömu hlýju og festu sem hvarvetna
kom fram. Láti nú guð henni raun
lofi betri.
Útför Ragnheiðar Ólafsdóttur er
gerð frá Kópavogskirkju í dag,
fimmtudaginn 29. nóv. kl. 15.
Björn Sigfússon
Hjá okkur færðu öll tæki og efni til logsuðu og rafsuðu.
Við bjóðum aðeins viðurkenndar, vandaðar vörur.
ítf
Sænska gæðamerkið
AT
GASMÆLAR margar gerðir. Fyrir
Acetylen, Oxygen, Kolsýru, Argon
Blandgas og Própan.
WALLIUS
LOGSUÐUTÆKI til iðnaðar- og tóm-
stundastarfa. Mjög hentugttil nota við
allskonar viðgerðir og nýsmíðar t.d.
í landbúnaði.
Mjög meðfærileg tæki.
VANDAÐAR RAFSUÐUVÉLAR Marg-
ar gerðir. Transarar, jafnstraumsvélar
og Mig Mag vélar. Hentugartil nota
í smiðjum og á verkstæðum. Litlar
vélar til tómstundastarfa sem stórar
iðnaðarvélar.
Gott verð.
RAFSUÐUVÍR margartegundir.
Pinnasuðuvír og vír á rúllum.
Hátt í 40 tegundir.
olis
um land allt