Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 47

Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 47 Réttur dagsins Margrét Þorvaldsdóttir Langlífi íslendinga og hreysti er að margra áliti mikilli fiskneyslu að þakka. Fiskur inniheldur æskileg næringarefni í réttum hlutfollum. Það er m.a. ástæðan fyrir því hve mjög nú er hvatt til aukinnar fisk- neyslu víða um lönd. Þurfum við hvatningu? Fiskbakstur með ostasósu 500 gr soðinn fiskur (2 bollar) 1 stk. egg Vt bolli rjómi eða kaffirjómi % bolli brauðmylsna Vt tsk. salt V* tsk. paprika 2 matsk. sitrónúsafi 1—2 matsk. bráðið smjör 3 matsk. söxuð steinselja (eða 1 matsk. þurrkuð persil) 2 matsk. rifinn laukur 1. Fiskurinn er soðinn á venju- legan hátt. í vatnið með fisk- inum er ágætt að setja 4 pipar- korn og lárviðarlauf brotið í sundur. Fiskurinn verður bragðmeiri og betri. 2. Hrærið síðan saman eggi, rjóma, brauðmylsnu, salti, papriku, sítrónusafa, bráðnu smjöri, steinselju og rifnum lauk. Þetta er síðan blandað með fiskinum. 3. Ofninn er síðan hitaður í 200°. Fiskblandan er því næst sett i velsmurt eldfast mót og bökuð við góðan hita í 30 mín. Þessi fiskréttur er mjög fljótlagaður og bragðgóður. Með honum er borin fram: Ostasósa 3 matsk. smjörvi eða smjör 3 matsk. hveiti 1 Vt bolli mjólk Sósan er bökuð upp. Smjörið brætt. Hveitinu bætt út i og mjólkinni hrært saman við. Þegar sósan er orðin jöfn og vel heit, þá er hitinn lækkaður og 1 bolli af rifnum osti (mildum) bætt í sós- una. Hrærið sósuna á meðan osturinn er að bráðna. Hún er síð- an bragðbætt með: Ví> tsk. salti Vt. tsk. papriku örlitlum pipar (Vt tsk. sinnepsdufti) Sem meðlæti eru soðnar kart- öflur ágætar svo og hrásalat t.d. úr gulrótum og eplum: 4 gulrætur rifnar fínt 2 epli rifin gróft 1 tsk. sykur sitrónusafi (afgangur af því er fór i fiskrétt) Vi bolli súrmjólk Sykur og sítrónusafi hrært með súrmjólk og blandað rifnum gul- rótum og eplum. í stað súrmjólk- ur, sykurs og sítrónusafa má auð- vitað nota ávaxtayógúrt. Lárviðarlauf til matargerðar þarf að velja vel. Þau eiga að vera græn og helst heil. Það er gæða- stimpill. Græn blöð geyma bragð- efnin, brún gefa beyskt bragð. Brotin blöð eru bragðminni en heil. Þau þarf samt að brjóta i sundur áður en þau eru sett i vökva til að losa um bragðefni sem þau geyma. Verð á hráefni Áætlið um 800 gr — 1 kg af ósoðnum fiski í fiskbaksturinn. 1 kg. ýsa 80.00 kr. 1 egg 6.50 kr. 1 sítróna 8.00 kr. V2 bolli rjómi 18.00 kr. 125 gr. ostur ca 100.00 kr. 100 gr. smjörvi 24.20 kr. Samtals 236.70 kr. LUX-KEF-SFO Alla miövikudaga Boeing 747-200 F Fiutningsgeta: 120tonn annarra landa. Cargolux hefur hafiö vikulegar áætlunarferöir milli Luxemborgar og San Fransisco/Seattle á vesturströnd Bandaríkjanna meö viökomu á íslandi. Viö þaö opnast miklir möguleikar í vöruflutningum milli íslands og Flugtími Keflavík - San Fransisco 8 klst Flutningamiðlun COSMOS á íslandi er umboðsaðili Cargolux hér á íslandi. Hafiö samband, leitið upplýsinga um nýjar lausnir á flutningamálum. III IMS4 VHIIII S CCS/WCS- \ ÉSI AM II I UMBOÐSMENN UM ALLAN HEIM HAFNARHÚSINU, 101 REYKJAVlK, SlMI (91)-15384

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.