Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 49

Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 49
MORGUNBLAÐID, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984 49 Þegar ský byrgja sól Bókmenntir Jenna Jensdóttir Vertu ekki med svona blá augu. Smásagnasatn Samtaka móðurmáls- kennara og Máls og menningar. Fyrra bindi. Ritstjóri: Heimir Páls- son. Kápumynd: Robert Guillem- ette. Reykjavík 1984. Gaman að Samtök móðurmáls- kennara réðust í að koma út smá- sagnasafni fyrir unglinga eftir að hafa efnt til verðlaunasamkeppni um smásögur. Vertu ekki með svona blá augu heitir fyrri bókin með smásögum er bárust í keppn- ina. Nafn hennar er frá samnefndri sögu þeirri er verðlaunuð var, höf- undur hennar er Olga Guðrún Árnadóttir. Tíu aðrir höfundar eiga sögur í bókinni. Sumir af þekktustu höfundum okkar, aðrir áður óþekktir að mestu. Það er at- hyglisvert hve vandaðir þeir eru í vinnubrögðum sínum og hve vel þeim tekst að leiða lesanda inn í hugarhcim sinn til skilnings á viðfangsefninu. Verðlaunasagan er snjöll í sam- blandi sínu af nútíð og fortfð. Að mínu mati einkennast flestar sög- urnar af erfiðu sálarlífi persón- anna, þar sem gleði og gáski æsk- unnar eru næsta óþekkt fyrir- brigði. Heimur fullorðna fólksins er bakgrunnurinn. Skilningsleysi þess og ráðvilla búa ungum sögu- persónum oft veröld líka myrkviði. Flest eru söguefnin sótt í heim stritandi fólks. Við sem áður ólumst upp í þessu umhverfi ham- ingjusöm og kát — þrátt fyrir allt, leyfum okkur að spyrja: Af hverju svona dökkt og gleðilaust? Einna bestu sögurnar í bókinni þykja VERTU EKKI MEÐ SVONA BLÁ AUGU mér sagan Hlemmur eftir Öddu Steinu Björnsdóttur og Á ferð í myrkri eftir Jón Dan. Adda þræð- ir tilfinningaheim söguper- sónunnar af innsæi og reynir hvergi að notfæra sér hugsanir hennar. Þess vegna kemur út hlý og sönn mynd af þeim sem vantar margt en á samt sínar gleðistund- ir. í sögu sinni lýsir Jón Dan til- finningalífi drengsins af djúpum skilningi og lesandinn verður átakanlega snortinn af þeirri and- legu kúgun sem hann er beittur af þeim er vilja honum best. Ég veit að þessi bók hefur verið tekin til kennslu í nokkrum framhalds- deildum og fagna því. En kennsluleiðbeiningar með svona bókum þykja mér óþarfar. Að minnsta kosti handa þeim sem stundað hafa bókmenntakennslu. Þeir vita að bestu leiðbeiningarn- ar koma frá nemendum sjálfum, margslungnar og skemmtilegar, blandast þannig þeirra eigin formi og frjáls hugsun hvers og eins í skoðanaskiptum ræður þá ríkjum. Mál og menning hefur hér sent frá sér bók sem skylt er að veita at- hygli. á sambandið Löggan unga, leikin af frönskum A1 Pacino, lætur til skarar skríða f Uppljóstraranum. Klippt Kvikmyndír Árni Þórarinsson Stjörnubjó: Uppljóstrarinn ☆ ☆ Frönsk. Árgerð 1983. Handrit eftir skáldsögu Roger Borniche. Leikstjóri: Serge Leroi. Aðalhlutverk: Daniel Auteuil, Thierri Lhermitte, Pascale Roch ard. Upphaf kvikmyndar er einatt til marks um það hvort hún nær tökum á áhorfanda eða ekki. Uppljóstrarinn hefst svona: Vfð- mynd framan á súlnagöng að kvöldlagi. Kona ekur manni í hjólastól inn göngin. Klippt f nærmyndir sniðhallt á fætur þeirra til skiptis, gangandi kon- unnar, farlama mannsins f stólnum. Skyndilega bætist þriðja fótaparið í þessa sam- klippingu, fætur karlmanns sem eltir. Tónlist og taktur hljóðs og myndar gefa til kynna hvað í vændum er. Sá sem eltir skýtur þann í stólnum i hnakkann en konan dregur sig í hlé. Morð í upphafi myndar er auð- vitað rakið til að ná tökum á áhorfanda, enda hefst trúlega helmingur allra sakamálamynda á morði. Og þetta upphafsatriði er, þótt ófrumlegt sé, skarplega stílað á allan hátt. Gallinn við það er sá, að það kemur mynd- inni f heild ósköp lítið við. Það leiðir að vísu saman tvær af að- alpersónunum við jarðarför hins myrta, unga stúlku og ungan glæpon, en eftirleikur morðsins, hefnd í innanhússtríði glæpa- manna í undirheimum Parísar, er algjört aukaatriði. Þetta er dálítið lýsandi fyrir þessa frönsku sakamálamynd. Efni hennar, samband ungu stúlk- unnar, unga glæponsins og þriðja mannsins, ungrar löggu, togstreita ástar og andstæðra póla, glæpa og réttvísi, verður hálfpartinn undir svölum, snöggklipptum myndstílnum. Uppljóstrarinn er of upptekinn af óvæntum sjónarhornum og klippingum, vel unnum en til- finngaköldum umbúðum, á kostnað innihaldsins. Svona get- ur góð fagkunnátta ekki siður hrundið áhorfanda frá í stað þess að innvígja hann í efnið. Uppljóstrarinn er aftur á móti síst verri en þær engilsaxnesku miðlungsmyndir sem hingað koma í stríðum straumum, vel leikin og spennandi á köflum, umfram allt tilbreyting í um- hverfi og efni. Hún mun vera sú síðasta í franska pakkanum sem Stjörnubíó keypti, en reyndar var dubbaður upp á amerfsku, því miður. Svo virðist sem þess- ar frönsku myndir, sem reyndar voru ekki nógu vel valdar, hafi ekki notið aðsóknar á við amer- íska meðalmynd. Og Stjörnubíó hyggst ekki endurnýja franska samninginn. Þetta er leiðinlegt. Er þá Regboginn orðinn eina kvikmyndahúsið í Reykjavík sem býður upp á eitthvað annað að ráði en enskar og amerískar myndir. Öll þróun í myndaúrval- inu í bíóunum hér hefur verið f jákvæða átt nema þetta: Hin engilsaxneska einstefna hefur aldrei fyrr verið jafn yfirgnæf- andi. Hún getur alvarlega þrengt kvikmyndasmekk okkar, dregið úr víðsýni, aukið van- þekkingu. ÞESSIR MENN STANDA Á MEININGU SINNI. . . m • • • • .ENDA Á SKÓM Þeir eru hlýir enda pelsfódradir • Þeir eru sterkir enda framleiddir úr besta fáanlega leðri, sem auk þess er sérstaklega vatnsvarid • Sólarnir veita viðnám á hálum fleti, þola olíur, sýrur og hita • ÆTskór ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.