Morgunblaðið - 29.11.1984, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 29. NÓVEMBER 1984
SMANDAR
Þótt suöurríkjarokkhljómsveitin
Blackfoot sé dottin í poppiö
skulum viö vona aö Molly Hatchet
sé enn viö sama heygaröshorniö.
Frá þeim bæ er aö koma ný plata
(sú sjötta í rööinni) sem heitir The
Deed is Done.
Hin gamalkunna rokkhljómsveit,
Triumph hefur sagt skiliö viö
útgáfufyrirtækiö RCA og gert
samning viö MCA. Fyrsta platan
undir nýju merki kemur út innan
tíöar og heitir Thunder Seven.
Upphaflega átti platan aö heita
Turn Of The Wheel en þar sem þaö
nafn þótti of li'kt titlinum á nýjustu
plðtu REO Speedwagon, Wheels
Are Turnin’ var nafninu breitt í
Thunder Seven. Nafniö Thunder
Seven er tekiö úr sögu James Jo-
yce, .Finnegan’s Wake“. Höfund-
urinn kynnti þrumurnar tíu fyrir
heiminum í þessari sögu. Fyrstu
sex eru fyrir iönaö en sú sjötta
kynnti þrefalda manninn. Og svo
vill til aö þessi plata er sjötta plata
Triumph.
I Love Rock ’n’ Roll söng Joan
Jett meö hljómsveit sinni The
Blackhearts og enn elskar stúlkan
rokkiö. Ný plata er aö koma frá
henni og sveinum hennar. Glorious
Results Of a Misspent Yoth heitir
skifan og geymir 11 lög plús gamla
slagarann New Orleans. Gary U.S.
Bonds söng og samdi þetta lag á
sínum tíma en síöan hefur fjöldinn
allur af listamönnum sungiö þaö.
En fæstir hafa notiö þess aö höf-
undurinn syngi bakrödd á útgáfum
þeirra eins og Joan Jett gerir.
Pat Benatar er búin aö senda
frá sér nýja plötu. Hún heitir Trop-
ico og geymir 10 ný lög.
David Donato geröi stutt stans
hjá Black Sabbath. Kappanum var
ætlaö aö fylla skarö lan Gillans en
eitthvaö gekk þaö ekki upp. Og
enn eru þeir félagarnir nú enn einu
sinni komnir á fullt í leit aö nýjum
söngvara. Þeir sem hafa áhuga
geta hring í 637 2111 í London.
Þetta hefur haft í för meö sér töf á
þvi aö hljómsveítin byrjaöi á aö
taka upp nýja plötu. Aö lokum má
geta þess aö Bill Ward hefur enn
gengiö til liös viö sveitina og mun
þaö vera í þriöja ef ekki fjóröa
skiptiö sem þaö gerist.
Einhver fugl sagöi aö búast
mætti viö óvæntu efni frá Super-
tramp. En eftir bestu fréttum er sá
flokkur hættur störfum. (Þannig
var þaö líka meö Deep Purple.) En
þangaö til eitthvaö gerist í þeim
málum getum viö látiö okkur
hlakka til sólóplötu frá Roger
Hodgeson sem heitir Eye Of The
Storm. öll lög og öll vinna, svo
sem spilamenska og útsetningar
David Donato átti stuttan stans
hjá Black Sabbath. Haföi hann út-
litiö á móti sér?
eru eftir hann sjálfan. Platan er
tekin upp í hans eigin stúdiói og
hefur lagiö Had A Dream veriö val-
iö á smáskífu og tólftommu.
Dave Edmunds er aö koma meö
nýja plötu sem heitir Riff Raff.
Honum til aöstoöar var Jeff Lynne.
Bernie Torme fyrrum gítarleikari
lan Gillan Band hefur loksins feng-
Jarðskjálfta-
hljómsveitin
I'rska hljómsveitin U2 hefur aö
undanförnu átt vaxandi fylgi aö
fagna hér á landi. A síöustu vikum
hefur lagiö „Pride" veriö ofarlega á
íslenska vinsældarlistanum og
einnig hefur vakið athygli sú (vafa-
sama) frétt, sem birtist í Moggan-
um um daginn, aö hljómsveitin hafi
komiö fram á jaröskjálftamælum í
Belgíu. Því ákvaö Þungamiöjan aö
fjalla örlítiö um þessa ágætu
hljómsveit og er stuöst viö viötöl í
„New Musical Express" og
„Melody Maker".
U2 var stofnuö í Dublin á irlandi
áriö 1979 af þeim Bono (söngur),
Adam Clayton (bassi), Larry Mull-
en (trommur) og Dave Evans (gítar)
sem þekktari er sem The Edge.
Þeir komu allir úr lágstéttarhverfi
Dublinar og höföu margir veriö at-
vinnulausir um skeiö. Eftir aö hafa
veriö litt þekktir í heimalandi sinu
komust þeir á samning hjá Island
Records og gáfu út sína fyrstu
plötu, „Boy". Hlaut hún ágætis
dóma hjá gagnrýnendum og sama
ár fóru þeir í sína fyrstu hljómleika-
ferö. Tónlist þeirra er frekar hrátt
rokk og höföar lítið til fjöldans
(non-commercial). Þrátt fyrir það
hlutu þeir ágætar undirtektir hjá
áheyrendum og um mitt ár 1982
gáfu þeir út aöra plötu, „October".
Hlaut hún ekki síöri dóma en „Boy"
og fór vegur þeirra vaxandi. Um
þaö leyti sem þeir gáfu út þriöji
plötuna, „War“, voru þeir orönii
töluvert nafn í poppheiminum
„War“ átti enn eftir aö auka vin-
sældir þeirra og merkilegt nokk
uröu tvö lög af þeirri plötu töluvert
vinsæl fyrir utan raöir forfallinna
U2-aödáenda. Þaö voru lögin
„New Years Day“ og „Two Hearts
Beat as One“. Hljómleikaferöin
sem farin var í kjölfar hennar
heppnaöist mjög vel og var gefin
út „live“-plata „Under A Blood
Red Sky“ og myndband meö sama
nafni.
Núna á þessu ári kom svo út
iö söngvara sér til aöstoöar. Sá
heitir Phil Lewis og er í hljómsveit
sem heitir New Torpedos.
The Lords Of The New Church
er hljómsveit sem sennilega fæstir
kannast viö. Flokkur þessi var
stofnaöur uppúr Wanderers og
Hellions sem höföu veriö stofnaöar
uppúr Stiv Bators Band, Brian
James and The Brains og Sham
69. Lords varö til í september 1981
og hefur sent frá sér tvær plötur.
Sú þriöja er um þaö bil aö bætast
viö og heitir The Method To Our
Madness. Eftir því sem erlend blöö
segja er þetta besta plata þeirra
hingaö til og er því örugglega
áhugaverö fyrir þá sem unna
kraftmiklu rokki.
Þaö fór mjög lítiö fyrir fyrstu
plötu þeirra Andy Summers og
Roberts Fripp sem kom út fyrir
tveimur árum. Þeir sem misstu af
henni ættu aö næla sér í eintak af
nýrri breiöskífu þeirra félaga. Hún
heitir Bewitched og inniheldur
meöal annars hiö stórgóöa lag
What Kind Of Man Reads Playboy.
Steve Howe er hættur í Asia.
Hann er gengin á vit sólóferils og
hefur fyrrverandi gítarleikari
svissnesku rokkhljómsveitarinnar
Krokus veriö ráöin í hans staö.
Mandy Maier heitir hann.
Þrátt fyrir sögusagnir um aö
Journey sé aö hætta er sveitin
byrjuö á aö taka upp nýja breiö-
skífu.
David Lee Roth söngvari Van
Halen er aö senda frá sér fimm
laga Mini plötu.
Moody Blues er enn aö. Ný
plata er á leiöinni og heitir Voices
In The Sky.
Saxon er aö senda frá sér nýja
plötu. Hún heitir Strong Arm Met-
al.
Umslag nýjustu plötu Lords Of the New Church.
Das Kapital
á Hótel Borg
Meö hvítan plastpoka í hendinni
sem geymdi tvær hljómplötur,
Eurythmics — 1984 og Gary
Moore — We Want Moorel, Rec-
orded Live in Concert og eintak af
málgagni breskra þungarokkara,
Kerrang! settist Þungamiöjan
niöur á Hótel Borg síöastliöinn
fimmtudag. I uppsiglingu voru
kynningartónleikar Das Kapital á
fyrstu plötu þeirra Lily Marlene.
Fyrsta lag dagskrárinnar var I
Fought The Law. Þennan frábæra
söng spilaöi hljómsveitin Clash inn
á fyrstu plötu sína 1977. Das Kap-
ital flytur þetta lag í næstum sömu
útsetningu og fer stórkostlega vel
meö. Hljómsveitin er hrá og tekst
mjög vel upp í lögum sem I Fought
The Law. En ekki eru öll lögin eins
Bono.
platan „The Unforgettable Fire“.
Hefur hún fengiö ágæta dóma þótt
ekki þyki hún þaö besta sem sveit-
in hefur sent frá sér. Nafniö á sór
skýringu í lýsingum eftirlifandi
kjarnorkusprenginganna í Hirosh-
ima og Nagasagi. Einnig höföar
nafniö til ægivalds heróínsins sem
hefur veriö ábyrgt fyrir eyöilegg-
ingu nokkurra vina Bonos. Hann
lýsir því þannig í NME: „Þetta lýsir
plötunni betur en fólk ímyndar sér.
Þaö haföi mikil áhrif á mig. Þegar
vinur þinn veröur dópisti hættir
hann aö vera vinur þinn, hann stel-
ur frá þér og berst viö þig.“ Annar
sterkur áhrifavaldur á plötunni er
óvefengjanlega Martin Luther
og þetta fyrsta lag. Inn á milli
slæöast lög sem annaöhvort eru á
röngum staö í upprööun laganna
eöa þá aö þau eiga ekkí heima í
dagskrá hljómsveitarinnar. Þannig
uröu þessir tónleikar frekar mis-
jafnir. Tvö dúndur góö lög í röö og
stemmning skapaöist. Síöan kom
ögn rólegra lag þar sem notast er
við eitthvaö annaö en heföbundna
rokkfrasa. Stemmningin dempaö-
ist niöur og byrjaöi aö byggjast
upp aftur í næsta hráa rokkara.
Þrátt fyrir aö tónleikarnir væru
misjafnir voru þeir engu aö síöur
hinir skemmtilegustu. Undir lokin
skapaöist gamla góöa Borgar-
stemmningin og sveitin var klöpp-
uö upp af krafti. Þrjú aukalög voru
gefin og var þar fleytt rjómanum af
dagskránni. I Fought The Law og
lag sem án vanvirðingar gæti veriö
hrá útgáfa af Cover Me, lagi Bruce
Springsteen. Þriöja og síðasta lag-
inu kann ég ekki aö gera skil.
Bubbi söng af krafti allan tim-
ann án þess aö láta nokkurn bil-
bug á sér finna. Hann sýndi meiri
tilþrif og fjölbreytni en ég minnist
aö hann hafi sýnt áöur. Jens Hans-
King. Þau áhrif koma annars vegar
fram í laginu „MLK“ og hins vegar
í „Pride“. í þessum lögum kemur
einng fram kristilegt viöhorf Bonos
sem segir: „Ég samdi „Pride“ upp-
runalega um Ronald Reagan og
þjóöardrambiö í Bandaríkjunum.
Þaö var upprunalega lýsing á þess
konar stærilæti sem gefur ekki
eftir, sem byggir upp kjarnorku-
herafla. En þaö gekk ekki. Ég
minntist gamals manns sem
sagöi viö mig, reyndu ekki aö
berjast viö myrkriö með Ijósi,
geröu Ijósiö sterkara. Þá fór ég
aö hugsa meira jákvætt og
MLK kom upp í huga mér sem
jákvætt andsvar viö Reagan.”
Þaö fer ekki hjá því aö hinn
írski uppruni hljómsveitarinn-
ar veki upp ýmsar spurningar
um viðhorf þeirra til ír-
landsmálsins. „War“ var aö
miklu leyti um það mál og
enn hefur Bono oröiö:
„Ég þekki þessi mál nokk-
uö vel þar sem ég á fööur
sem er mótmælandi og
móöur sem er kaþólsk.
Ég myndi gjarnan vilja sjá
sameinaö irland. En ég get ekki
veriö sammála þeim sem vilja
drepa annaö fólk vegna þess aö
þaö sé annarrar skoðunar. Ég vil
ekki deyja fyrir málstaöinn, óg tel
hann nógu góöan til aö lifa fyrir
hann.“ Svo mörg voru þau orö.
Vonandi hefur þessi grein varp-
aö nokkru Ijósi á uppruna og viö-
horf þessarar ágætu hljómsveitar
sem fyrir nokkrum árum var
óþekkt bílskúrshljómsveit í Dublin
en er í dag eitt af stóru nöfnunum í
rokkinu.