Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
Uppsagnir 450 framhaldsskólakennara afhentar:
Vegið að menntun í
landinu með núver-
andi kjörum kennara
— segja þeir Kristján Thorlacius, formaður
HÍK, og Heimir Pálsson, menntaskólakennari
UPPSAGNIR um 450 framhalds-
skólakennara í Hinu íslenzka kenn-
arafélagi voru í gsr afhentar
menntamálaráðuneytinu. Taka upp-
sagnirnar gildi hinn fyrsta marz á
na-sta ári. Er þetta um 70% fram-
haldsskólakennara í HÍK, en þeir
kenna flestir í fjölbrautaskólum og
menntaskólum.
Að sögn Kristjáns Thorlacius,
formanns HlK, og Heimis Páls-
sonar, menntaskólakennara, eru
uppsagnirnar að mestu frá yngra
fólki í félaginu, sem á frekari
möguleika á annarri og betur
launaðri vinnu en eldri félagarnir.
Þeir sögðu uppsagnir þessar eig-
inlega uppsafnaðan vanda, þar
sem laun kennara hefðu dregizt
aftur úr launum annarra laun-
þega, en vinnuálag aukizt. Með nú-
verandi kjörum kennara væri veg-
ið að menntun í landinu og fyrir-
sjáanlegur væri mikill flótti úr
stéttinni, yrði ekkert að gert. Á
Sigurjón
Björnsson
skrifar um
bókmenntir
Sigurjón Björnsson, prófess-
or, hefur verið ráðinn einn af
ritdómurum Morgunblaðsins.
Sigurjón er lesendum Mbl. að
góðu kunnur, hann hefur skrif-
að greinar í Lesbók og auk þess
bækur, þar á meðal bók um
Fjallkirkju Gunnars Gunn-
arssonar.
Fyrsti ritdómur Sigurjóns
birtist á bls. 14 f blaðinu í dag.
þeim flótta væri reyndar þegar
farið að bera.
„Þetta er spurning um að viður-
kenna staðreyndir, viðurkenna
nauðsyn menntunar, ef við eigum
ekki að dragast aftur úr öðrum
þjóðum heimsins hvað þekkingu
varðar. Meðan kennurum eru ekki
greidd mannsæmandi laun er ekki
hægt að búast við því, að menn
fáist til að sinna þessu mikilvæga
starfi. Okkur er alvara og því er
óvíst hver viðbrögð okkar verða, ef
gripið verður til þess að fram-
lengja uppsagnarfrest okkar. Vel
getur komið til greina að menn
gangi út þrátt fyrir það og þá
verður erfitt að fá menn til baka
að nýju. Við höfum nú krafizt
þess, að laun okkar hækki í 85% af
launum sérfræðinga með sam-
bærilega menntun í þjónustu
ríkisins. Meðaltalslaun kennara í
HÍK eru 21.000 krónur fyrir dag-
vinnu og hve mikil hækkun sú er,
sem með þessu er farið fram á, er
enn ekki vitað. Til þess þarf að
kanna nánar launagreiðslur til
sérfræðinga hjá ríkinu. Það hlýtur
að teljast eðlilegt að laun félags-
manna í HÍK miðist að einhverju
leyti við laun sérfræðinganna,"
sögðu þeir Kristján og Heimir.
íslandsviku að ljúka
Símamynd/AP.
ÍSLANDSVIKUNNI f Bretlandi lýkur í dag með lista- og menningarkynn-
ingn í Royal Festival Hall á vegum íslendingafélagsins í London. Síðdeg-
is á fimmtudag efndi Einar Benediktsson, sendiherra, til móttöku f
Churchill-hótelinu í London þar sem kynntar voru íslenskar framleiðslu-
vörur og ferðir hingað til lands.
Myndin var tekin f móttöku sendiherrans. Honum til sitt hvorrar
handar eru frá vinstri: Anna Margrét Jónsdóttir, fulltrúi ungu kynslóðar-
innar, Unnur Steinsson, fegurðardrottning fslands 1983, Guðrún Möller,
fegurðardrottning íslands 1982 og Berglind Johansen, fegurðardrottning
íslands 1984.
Þrír enn frá
vinnu í gær
SJÖ lögreglumenn leituðu til
slysadeildar Borgarspítalans eftir
stökkæfingu á vegum Lögreglu-
skóla ríkisins vestur á Seltjarnar-
nesi á þriðjudag, að sögn Williams
Möller, aðalfulltrúa lögreglustjór-
ans í Reykjavík. Fjórir lögreglu-
mannanna, sem slösuðust á æfing-
unni hafa mætt til vinnu, en þrír
voru enn frá vinnu í gær. William
Möller vildi ekki gefa nánari upp-
lýsingar á meðan málið er í rann-
sókn.
Skipulag ASÍ:
Afskiptum
Alþingis
mótmælt
ÞING ASÍ lagðist gegn frumvarpi
því um skipulag verkalýðshreyf-
ingarinnar, sem þingmenn Banda-
lags jafnaðarmanna hafa lagt fram á
Alþingi.
í ályktun ASÍ segir að frum-
varpið feli í sér bein afskipti
löggjafans af skipulagsmálum
verkalýðssamtakanna og er því
einarðlega mótmælt. í ályktuninni
segir að það sé einstaklega
ómsekklegt að flytja málið inn í
sali Alþingis á sama tíma og
verkalýðshreyfingin sé á fullum
krafti að leita leiða í skipulags-
málum sínum.
Kjaramálaályktanir AlþýÖusambandsþings:
Brýnt að breyta pójítískum
valdahlutföllum á íslandi
— verðbætur á laun ófrávíkjanleg krafa í næstu samningum
35. ÞINGI Alþýðusambands íslands lauk í Reykjavík síðdegis í gsr. I
ályktun, sem samþykkt var með 244 atkvæðum gegn 6, segir að brýnt sé að
„pólitískum valdahlutföllum á íslandi verði breytt. I því skyni þarf tvennt að
gerast: í fyrsta lagi verða verkalýðsfélögin að móta víðtæka stefnu í kjara-,
félags- og efnahagsmálum, sem yrðu skýrt andsvar við markaðskreddum
atvinnurekenda. í öðru lagi verður launafólk að samfylkja öllum, sem aðhyll-
ast hugsjónir félagshyggju til að mynda fylkingu sem yrði í samvinnu við
verkalýðshreyfinguna nýtt landstjórnarafl.“
Segir í ályktuninni að skort hafi
á „samstillingu og forystu f
stefnumótun innan verkalýðs-
hreyfingarinnar og flokkar og
samtök sem aðhyllast jafnrétti og
félagsleg sjónarmið ekki náð sam-
an.“ Þetta hafi gerst á undanförn-
um árum á meðan samtök at-
vinnurekenda hafi beitt sér æ
meira á vettvangi stjórnmálanna
og mótað ítarlegar tillögur I ein-
stökum málaflokkum. „Náin sam-
vinna hefur tekist með forystu-
mönnum Framsóknarflokksins og
Sjálfstæðisflokksins, sem mynda
núverandi ríkisstjórn, og helstu
leiðtogum VSÍ, Verslunarráðsins
og SÍS. Það er þetta bandalag, sem
hefur stjórnað hinni miklu aðför
að kjörum launafólks. Ljóst er að
atvinnurekendur munu í framtið-
inni kappkosta að auka pólitísk
„Handtökin mörg
á langri ævi“
segir Pálína Daníelsdóttir á Akureyri, sem er 100 ára
Akareyri, 30. oÓTember.
„MfeR líAur vel miðað við aldur,
hef enn nokkra beyrn og sæmilega
sjón. Handtökin hafa veríð mörg á
langri ævi, en Guð hefur verið mér
góður og mér líður vel í ellinni. Er
hjá dóttur minni og tengdasyni,“
sagði Pálína Daníelsdóttir, Stekkj-
argerði 7 á Akureyri í samtali við
Mbl., en Pálína verður 100 ára á
morgun, fullveldisdaginn 1. des-
ember.
Pálína fæddist á Viðborði á
Mýrum í Hornafirði. Hún giftist
ung Páli Bergssyni og bjuggu
þau allan sinn búskap að Rauða-
bergi á Mýrum, en Páll lést árið
1946. Þau hjón eignuðust fimm
börn og komust þrjú þeirra upp,
Sigurbergur, Daníel og Þóra.
Synirnir búa í Reykjavík, en Pál-
ína dvelst á heimili dóttur sinn-
ar, Þóru, og manns hennar,
Sæmundar G. Jóhannessonar,
ritstjóra Norðurljóssins á Akur-
eyri.
G.Berg.
Pálína á heimili dóttur sinnar og
tengdasonar.
ítök sín í valdakerfinu," segir
einnig í ályktuninni.
Jafnframt var samþykkt ein-
róma ítarleg ályktun um kjara-,
atvinnu- og efnahagsmál, þar sem
segir m.a., að „með pennastriki
gengisfellingar hefur ríkisstjórnin
nú ákveðið að skerða verulega þá
kjarasamninga, sem undirritaðir
voru fyrir þremur vikum." Segir
að þótt lengi hafi verið talað um
„skattalækkunarleið" í kjara-
samningunum hafi rfkisstjórnin
ekki haft áhuga á þeirri leið, þegar
til kastanna hafi komið. Þess í
stað hafi ríkisstjórnin gengið sjálf
til samninga á öðrum grundvelli,
sem lagði línur fyrir heildina. Það
hljóti því að vera á ábyrgð rfkis-
stjórnarinnar að tryggja kaup-
mátt samninganna. „35. þing ASÍ
vill undirstrika þá skoðun sína, að
kjarasamningar án verðbóta eru
afar haldlítil vörn fyrir launafólk.
Þótt ýmsir gallar hafi reynst vera
á þeim verðbótakerfum, sem í
gildi hafa verið, þá hafa þau, að
mati þingsins, reynst mikilvæg
vörn launafólks gegn verðbólgu og
kjararánsaðgerðum ríkisvalds og
atvinnurekenda. Það er skoðun
þingsins, að kröfur um verðbætur
á laun hljóti að verða ófrávíkjan-
legar í næstu kjarasamningum.“
í niðurlagi ályktunarinnar seg-
ir: „35. þing ASÍ skorar á öll aðild-
arfélög sfn og sérhvern félags-
mann, sem skipar raðir samtak-
anna, að nota komandi mánuði til
undirbúnings markvissrar sóknar
f kjaramálum launafólks. Þingið
leggur áherslu á, að tíminn verði
notaður til allsherjar umræðu í
samtökunum, stéttarfélögunum og
vinnustöðum um markvissa áætl-
un fyrir endurheimt þess kaup-
máttar, sem tapast hefur. 35. þing
ASÍ leggur áherslu á, að samhæfð
stefna og einhugur er það sem
gildir í þessari baráttu."
Ólöf Halldórsdóttir
Lést af völdum
umferðarslyss
KONAN, sem varð fyrir bifreið í
Hamrahlíð laust eftir klukkan 21 i
fimmtudagskvöldið, lést í slysadeild
Borgarspítalans laust fyrir miðnætti
sama kvöld. Hún hét Ólöf Hall-
dórsdóttir, til heimilis að Stigahlíð
20. Hún var 76 ára gömul, fædd 17.
nóvember 1908.
ólöf heitin var á leið norður yfir
Hamrahlfð skammt fyrir vestan
Stigahlíð þegar slysið varð.
Trabant-bifreið var ekið vestur
Hamrahlfð og lenti ólöf heitin á
vinstra framhorni bifreiðarinnar.
Neyðarbifreið slysadeildar Borg-
arspítalans með lækni kom
skömmu síðar á vettvang og var
Ólöf heitin flutt í slysadeild, en
lést þar nokkru sfðar.