Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
23
Dagur frímerk-
isins 6.
Frímerki
Jón Aöalsteinn Jónsson
Á þessu ári eru 60 ár síðan
Dagur frímerkisins var fyrst
haldinn. Gerðist það í Búdapest í
Ungverjalandi 25. sept. 1924.
Smám saman komu önnur lönd á
eftir, en ekki var þessi dagur ár-
legur viðburður framan af. Á
Norðurlöndum mun Dagur frí-
merkisins fyrst hafa verið hald-
inn í Svíþjóð, en það var árið
1944. Síðustu 16 árin hefur hann
verið fastur liður í árlegu starfi
sænskra frímerkjasafnara og
þátttakan stöðugt farið vaxandi.
Sænska póststjórnin hefur líka
lyft deginum upp með útgáfu
sérstakra arka (blokka) frá 1980,
þar sem hluti af söluverði þeirra
hefur runnið til samtaka frí-
merkjasafnara. Hefur þetta
reynzt drjúg tekjulind og mjög
örvað frímerkjasöfnun þar í
landi. Verður vonandi unnt að
gera eitthvað svipað hér á landi,
áður en mörg ár líða. Við sáum
vel árangurinn af sölu
„NORDIU-blokkanna þriggja.
Svíar taka eitthvert ákveðið
efni fyrir í hverri frímerkjaörk.
des. nk.
apríl það ár og tengdist þá út-
gáfu tveggja frímerkja. Sérstak-
ur póststimpill var gerður af
þessu tilefni og hefur svo verið æ
síðan. Það er því í 24. skipti, sem
FF minnist Dags frímerkisins í
næstu viku. Sérstimpill verður
notaður hér í Reykjavík og eins á
Akureyri, en engin frímerki
koma út sama dag. Er í rauninni
einkennilegt, að svo skyldi ekki
verða, þegar haft er í huga, að
póststjórnin gaf einmitt út síð-
ustu frímerki sín á þessu ári
réttri viku fyrir Dag frímerkis-
ins. Verður tæplega annað sagt
en það sé furðulegt tómlæti af
hálfu póstyfirvalda.
Stjórn FF hefur ákveðið að
minnast þessa dags með frí-
merkjakynningu nú á sunnudag-
inn kemur (2. des.). Verður hún í
gamla Sigtúni við Austurvöll,
sem Póst- og símamálastofnunin
á núna. Verður gengið inn frá
Thorvaldsensstræti. Er ætlunin
að hafa eina 14 til 16 ramma
með sýnishornum af ýmsum
söfnunarsviðum. Reynt verður
að hafa heildarsafn íslenzkra
frímerkja eða því sem næst.
Eins verður þarna hluti af átt-
Nú var það flugsaga Svíþjóðar.
Var Dagur frímerkisins haldinn
dagana 13. og 14. okt. sl. 205 fé-
lög safnara víðs vegar um landið
skipulögðu þennan dag og viða í
samvinnu við flugfélög, sem
stóðu m.a. fyrir flugmódelsýn-
ingum og flugi í loftbelgjum.
Frímerkjasýningar voru einnig
mjög víða.
í Noregi var Dagur frímerkis-
ins 5. okt. sl. og í Danmörku 21.
okt. í þessum löndum er fram-
kvæmd dagsins nokkuð önnur en
í Svíþjóð. I Danmörku er ákveðið
félag í landinu kjörið til þess að
minnast þess dags. Sú kynning,
sem honum er samfara, dreifist
því um landið með hverju ári. (
Noregi er dagurinn haldinn á
nokkrum stöðum í senn. I báðum
þessum löndum er einnig náin
samvinna við póststjórnir
þeirra.
Hér á landi er allt að vonum
minna í sniðum, enda verður að
viðurkenna, að Dagur frímerkis-
ins hefur aldrei náð sér verulega
á strik meðal íslenzkra safnara.
Til þess liggja vafalaust ýmsar
ástæður, sem ég treysti mér ekki
til að skýra nákvæmlega. Ákveð-
ið hafði verið, að halda þennan
dag 6. nóv. sl., en það gat hins
vegar ekki orðið vegna verkfalls
BSRB. Var dagurinn því fluttur
til 6. desember, sem er fimmtu-
dagur í næstu viku.
Félag frímerkjasafnara hefur
haft forgöngu um Dag frímerk-
isins síðan 1961. Var hann 11.
hagasafni og svo flugsafn.
Stimplasafn verður þar einnig
til sýnis og eins eitthvað af
skemmtilegum umslögum. Þá
munu væntanlega verða sýnd
margs konar afbrigði í frímerkj-
um lýðveldisins og svo verður
rammi með svonefndum dag-
setningarblokkum. Allt kemur
þetta efni frá félögum FF.
Frímerkjakynning FF verður
opin kl. 13.30 til 18.00 á sunnu-
dag og alls ekki lengur. Vil ég
hvetja alla áhugamenn um frí-
merki — og ekki sízt unglinga —
til þess að sjá þetta efni, sem
fram verður borið. Eigendur efn-
isins verða vafalaust á staðnum
til þess að kynna það og svara
spurningum gesta og benda á,
hvernig safna megi frímerkjum
og öðru efni þeim tengt.
Ekki verða sérstakar sýningar
í gluggum ýmissa verzlana, svo
sem eitt sinn tíðkaðist. Þó hef ég
hlerað, að einhverju efni verði
stillt upp í kjallaragluggum að-
alpósthússins í Austurstræti.
Svo skemmtilega vill til, að ár-
legur jólafundur Félags frí-
merkjasafnara verður haldinn 6.
des. í Risinu að Hverfisgötu 105.
Þannig tengist jólafundurinn
með nokkrum hætti Degi frí-
merkisins 1984, og ætti það ekki
að draga úr félögum FF að fjöl-
menna á fundinn um kvöldið.
Raunar þarf tæplega að hvetja
menn, því að jólafundir FF hafa
yfirleitt verið vel sóttir.
Námskeið fyrir þá sem
vilja hætta að reykja
ÍSLENSKA Bindindisfélagið með að-
stoð Krabbameinsfélags Reykjavíkur
heldur á næstunni námskeið fyrir þá
sem vilja hætta að reykja. Um er að
ræða svokallaða 5 daga áætlun gegn
reykingum. Námskeiðið hefst sunnu-
daginn 9. desember nk. kl. 20.30 og
stendur yfir fimm kvöld.
Háskóli íslands leggur húsiiæðið
til í Árnagarði stofu 201, gengið inn
frá Suðurgötu. Stjórnandi og aðal-
leiðbeinandi verður Jón Hjörleifur
Jónsson og með honum læknarnir
Sigurður Björnsson sérfræðingur 1
krabbameinslækningum, Sigurgeir
Kjartansson æðaskurðlæknir, Sig-
urður Árnason sérfræðingur í
krabbameinslækningum, dr. G.
Snorri Ingimarsson sérfræðingur í
krabbameinslækningum og Eric
Guðmundsson sjúkraþjálfari.
QPNUhN
IDAG
KL.19
Veitingahús og ölstofu a sama staö
OLKELDAN
KEISARINN
FRÁ KÍNA
LAUGAVEGI 22
Fallegt, eldfast gler, einföld og stjlhrein hönnun
Hentugt notkunargildi. Svona eiga góöir hlutir aö vera
Eigum fyrirliggjandi hin vinsælu
„Irish Coffee“-glös ____________
Einnig eldfastar skálar og flein ú
fallegar vörur frá
Boda-verksmiöjunum
Bankastræti 10