Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 Aldnir hafa orðið Bókmenntir Sigurlaugur Brynleifsson Aldnir hafa orðid. Frásagnir og fróð- leikur. 13. bindi. Erlingur Davíðsson skráði. Bókaútgáfan Skjaldborg, Ak- ureyri, 1984. Þetta er þrettánda bindið í geysimiklum frásagnaflokki. í þessu bindi eru sögumenn sjö tals- ins, sex karlar og ein kona. Eru þá sögumenn orðnir 91 alls, að því er mér telst til. Það eitt er þeim sam- eiginiegt að vera komnir á efri ár og horfa til baka yfir farinn veg. Að öðru leyti eru frásagnirnar jafnan margvíslegar og mennirnir eru margir. Vissulega er mikinn fróðleik að finna í þessu mikla rit- safni, og mun óvíða saman komin jafn mikil vitneskja um aldarfar, lífsvenjur, viðhorf, atvinnuhætti og kjör manna á fyrri hluta þess- arar aldar. Og enda þótt þarna tali margur maðurinn, sem annars staðar er ýtarlega getið, geyma þessi rit mynd allmargra, sem að öðrum kosti myndi einungis varð- Erlingur Davíðsson veitast í huga þeirra, sem þekktu þá. Þarna hefur því verið unnið gagnmerkt og þarft verk, sem bæði er ljúft og skylt að þakka. Hvað er svo um þessa þrettándu bók að segja? Fyrst skal þess get- ið, að ég las hana i einni striklotu Kynngi lífsins í vaknandi ástarþrá Bókmenntir Jenna Jensdóttir Eðvarð Ingólfsson: Fimmtán ára á föstu. Skáldsaga. /Eskan 1984. ICðvarð Ingólfsson er þegar kunnur fyrir sögur sínar um æskufóik og og unglingaþætti í út- varpi. Það er umhugsunarvert hve Eð- varð sér umhverfi sitt og þá sem í því hrærast björtum og raunar hamingjusömum augum, þótt hann sé einnig næmur fyrir hinum dökku hliðum tilverunnar. Þessir eiginleikar lýsa er höf- undurinn, Eðvarð, segir frá sam- skiptum unglinga sem skynja af fullum krafti kynngi lífsins í vaknandi ástarþrá sinni. Aðalpersónur sögunnar eru þau Lísa og Árni 15 ára bekkjarsystk- ini og 17 ára pilturinn Kiddi. Margir aðrir koma við sögu, bæði ungir sem gamlir. Eðvarð notar mikið frásagn- armátann og víkur þá til skiptis inn í hugarheim presóna sinna. Segir fremur frá því sem gerðist og gefur lesandanum því ekki færi á að lifa atburðina með söguper- sónunum sjálfum. Frásögnin er hrein og opinská. Skoðanir höfundar á mannlífi og mótun þess eru ákveðnar og af- dráttarlausar og raunar áréttar hann þær svo oft að þær verða rauður þráður gegnum allt skáld- verkið. Þeir sem um áratugi hafa unnið með unglingum á þessum aldri CROSFIELD 540 LASER LYKILLINN AÐ VANDADRI LITPRENTUN MYNDAMOT HF Eðvarð Ingólfsson hvern skóladag, þekkja ofurvel persónuleika þá sem höfundur lýs- ir í sögu sinni. Mannlífið í skólun- um er fjölbreytt. Lísa og Árni eru samnefnarar fyrir nokkurn hóp á þeirra aldri. Hóp sem kemst ekki alltaf í sviðsljósið af þvi að hann hefur ekki hátt og fremur engar uppá- komur. Þess vegna er hljótt um hann og kemur hann sumum þeim er úr fjarlægð horfa — en telja sig þekkja æskuna oní kjölinn — harla ókunnuglega fyrir. Einmitt í þessum hópi finnast nemendur sem oft hafa svo þjóð- félagslega þroskað viðhorf að hægt er að furða sig á. Heimili og foreldrar sögupersóna eru eins og gerist og gengur og ekki er líf þeirra allra dans á rósum í sam- skiptum við sína nánustu. En einmitt í þeim lýsingum koma glöggt fram varfærni og for- dómaleysi höfundar gagnvart breyskleika mannsins g hann leit- ar hlýrra tilfinninga á reynslu- stundum — og finnur þær. Ljóst dæmi er móðir Lísu og viðbrögð hennar er Lísa segir henni að hún sé ófrísk: Staðföst trú á hið góða í mann- eskjunni og umhverfinu er hinum unga höfundi nærtæk, þess vegna ráða bjartsýni og hamingja ríkj- um, þótt mótlæti og erfiðleikar fléttist þar sem og í veruleikanum inn í hið daglega líf sögupersóna. Eg held að ástarsaga þessi verði vinsæl meðal unglinga. Gleði og hamingja eru æskunni f raun hugleiknari en svartsýni og von- leysi. Því leitar hún gjarnan á vit þeirra eiginleika mannlegs lífs bæði í daglegu lífi og skáldsögu — ef allt er með felldu. á einu kvöldi og hafði óblandna ánægju af. Líklega telja höfundur og útgefandi að allverulegum hluta tilgangsins sé náð, ef þeir fanga þannig hug lesenda. Til allra þessara sjö sögumanna ber ég hlýjan hug eftir lesturinn, enda er sú kynning sem þeir hafa látið í té af sjálfum sér bæði geðþekk og yfirlætislaus. Það fer ekki á milli mála, að allt hafa þetta verið hinir mætustu menn. Af öllum hefur margt mátt læra og með sumum hefði ég gjarnan kosið lengri sam- verustundir. Þetta þýðir þó ekki það, að ekkert sé að bókinni að finna sem ritverki, því fer fjarri. Einkum er það ritstjórn bókarinn- ar sem ég er ekki í öllum greinum sáttur við. Veit ég þó vel, skoðanir minar í því efni kunna að orka tvímælis. Allir eru þættirnir samdir með sama hætti. Var það nayðsynlegt? Fyrst segir ritstjórinn deili á sögumanni á u.þ.b. tveimur blað- síðum, og síðan gefur hann honum sjálfum orðið. Talar því hver og einn í fyrstu persónu. Engu að síð- ur verður að ætla, að ritstjórinn hafi sjálfur skrifað frásögnina á grundvelli viðtala. (Enda hlýtur það að felast í orðinu „skráði"). Að öðrum kosti væri naumast sami stíll og orðalag á öllum frásögnun- um, enda þótt mennirnir séu næsta ólíkir og víðs vegar af land- inu. óneitanlega hefði ég kosið að heyra tungutak hvers og eins. Málfar og málsérkenni eru nú einu sinni svo snar þáttur í persónu- leika hvers og eins, að mikils er misst ef það vantar. Bágt á ég einnig með að trúa því, að sumir, kannski allir, þeirra sem hér koma fram séu ekki allvel ritfærir. Hinu er svo ekki að neita, að vissulega er þessi hátturinn mun hagkvæm- ari, ef hafa þarf hraðan á um út- gerð bókar. En ætla má, að með þessu móti hafi bókin orðið ein- hæfari og litminni en annars. Að vísu verður hvorki að málfari né rithætti fundið, því að hvoru tveggja er rétt og hreint. Stillinn verður þó hvorki talinn rismikill né litríkur. Flestar eru frásagnirnar í sama fari. Uppvöxtur og æskuár eru einatt fyrirferðarmest. Þar er sumu e.t.v. lýst nákvæmar en þyrfti, því að margt smátt er tínt til, enda þótt sitthvað sé auðvitað allrar athygli vert. Þegar svo fram á fullorðinsárin kemur verður frásögnin oft brotakenndari og snubbóttari (raunar eru frávik), og stundum er jafnvel eins og botninn detti úr í miðju kafi. Hefði mann þó fýst meira að heyra. Hér hefði ég kosið að rit- stjórinn hefði beitt áhrifum sínum meira til að jafna frásögnina. Þá er eitt fremur undarlegt: Einkalíf sögumanna er svo til alveg snið- gengið. Var það virkilega sam- kenni allra þessara sjömenninga, að vilja ekkert minnast á maka sína, börnin, uppeldi þeirra og samskipti við þau eða var hér um að ræða ákvörðun ritstjórans? Aftur á móti er þeim mun meira talað um dulræna reynslu. í einu tilvikinu svo mjög, að hún skyggir algjörlega á frásögn af mann- dómsárum mikilhæfs athafna- manns. Nú er dulræn reynsla og frásagnir af yfirnáttúrlegum • fyrirbærum að sjálfsögðu allra góðra gjalda verð, en ekki fæ ég séð að það eigi að koma í stað ævisögu, hafi ætlunin verið að skrifa æviþátt. Líklegast er þetta ritstjórnarslagsíða. Þetta eru þó nokkrar aðfinnslur, en þær hnika þó ekki þeirri stað- reynd að um gagnmerkt rit er að ræða, einkum ef öll bindin þrettán eru skoðuð sem heild. Ritstjórinn hefur greinilega mótaðar skoðanir á því hvernig standa beri að slíku verki. Við það geta menn verið sáttir eða ósáttir. Eitt er þó víst að hann hefur sýnt mikla elju og lofsverðan áhuga. ÖIl útgerð þessarar bókar er með sama hætti og hinar fyrri, eins og vera ber. Frágangur allur er hinn smekklegasti og sárafátt er um prentvillur. Halldór Haraldsson Leifur Þórarinsson Sinfóníutónleikar Tónlist Egill Friðleifsson Háskólabíó 30.11/84 Stjórnandi: Póll P. Pálsson. Einleikari: Halldór Haraldsson. Efnisskrá: Leifur Þórarinsson, Sinfónía nr. 1. Franz Liszt, „Malédic- tion“ fyrir píanó og strengjasveit, og „Tot- entanz“ fyrir píanó og hljómsveit Alexander Skrjabin, Sinfónía nr. 2 í c-moll. Það var sinfónía nr. 1 eftir Leif Þórarinsson, sem var fyrst á efnisskrá Sinfóníuhljómsveitar íslands á tónleikunum í Há- skólabíói sl. fimmtudagskvöld. Þetta verk var frumflutt fyrir um tuttugu árum. Ég man vel eftir því. Það var dálítið sérstak- ur konsert. Þar voru eingöngu leikin samtímaverk. Það þóttu tíðindi þá. Sem strákur í tónlist- arskóla fékk ég tækifæri til að fylgjast með hljómsveitaræfing- um. Mér fannst þá sem þessi sin- fónía Leifs höfðaði meira til höf- uðsins en hjartans. Ég er enn sömu skoðunar. Fyrir mér er þetta erfið tónlist. Hún virðist erfið fyrir hljóðfæraleikarana og hún er erfið fyrir hlustendur. I tónleikaskrá má m.a. lesa „að sinfónían innihaldi ýmsar hugmyndir úr andstæðutafli sónötunnar“. Þó ég væri allur af vilja gerður tókst mér ekki að finna neinn skyldleika með þessu verki og sónötunni, ef orð- ið sónata er notað í hefðbundinni merkingu, enda er „vinnuaðferð- in serial, þannig að allir þættir tónbyggingarinnar eru dregnir úr seinni röð tólf tóna“, svo vitn- að sé aftur í tónleikaskrá. Verkið skiptist í þrjá þætti. Á mig virk- aði annar þátturinn best og var raunar launkíminn á köflum og myndar þægilega andstæðu við öll þau útspekúleruðu seriölu al- varlegheit, sem er að finna í sin- fóníunni (e.t.v. má kalla það són- ötuandstæðutöfl). Síðan þetta verk var frumflutt hefur mikið vatn til sjávar runnið og margt breyst, m.a. hefur Leifur Þórar- insson samið mun hjartnæmari músík. Nægir þar að nefna Sálmforleikinn um Liljulag, mystískt verk og spennandi, sem er að finna á nýrri hljómplötu, er ber heitið „íslensk orgeltón- list“. Svo aftur sé vikið að sin- fóníunni, þá var það Páll P. Pálsson, sem leiddi hljómsveit- ina, hress að vanda. Mér fannst hljómsveitin, einkum strengirn- ir, spila bæði sárt og hrátt í þessu verki, en e.t.v. átti þetta bara að vera svona. Það var stórt stökk frá sin- fóníu Leifs til „Malédiction" (formæling) fyrir píanó og hljómsveit eftir F. Liszt, sem við heyrðum næst. Þetta er sjald- heyrt æskuverk og sérkennilegt og stenst varla samanburð við síðari verk höfundar. Raunar er „Malédiction" ekki annað en glæsilegar umbúðir um lítið efni. Það gerir eigi að síður óvægnar kröfur til píanóleikarans, sem hér var Halldór Haraldsson. Halldór er vandaður músíkant. Hann býr yfir staðgóðri tækni, ætlar sér aldrei um of, og skilar jafnan hlutverki sínu með sóma. Svo var einnig nú. „Totentanz" lék Halldór einnig með hljóm- sveitinni. „Dauðadansinn“ er mun safaríkara verk en „For- mælingarnar" (voðalegir titlar eru þetta annars), og þó sam- vinna Halldórs og hljómsveitar- innar væri ekki með öllu hnökra- laus, var heildarflutningur ágætur. Páll P. Pálsson býr yfir þeirri hæversku að taka tillit til einleikarans. Það er meira en hægt er að segja um ýmsa koll- ega hans. (Þó það komi þessu máli ekki beinlínis við, langar mig að senda Halldóri bestu þakkir fyrir þátt í útvarpinu fyrir nokkru, þar sem hann lék Chopin-scherzo af mikilli prýði). Tónleikunum lauk svo með sinfóníu nr. 2 eftir Alexander Skrjabin, stórt verk og mikið í fimm þáttum. Páli tókst vel til við stjórnun á þessu síðróman- tíska, dálítið angurværa verki, og mátti þar heyra marga góða spretti, einkum hjá blásurunum. Þó verkið búi yfir vissum töfr- um, er ekki alveg ljóst af hverju það varð fyrir valinu. Að mínu áliti stenst það engan saman- burð við sum tónaljóð Skrjabins. Spilabók frá Vöku VAKA hefur gefíð út Spilabókina, en Guðni Kolbeinsson valdi spilin og skýrir þau. Bókin skiptist i þrjá aðalkafla; barnaspil með 9 spilum, fjöl- skylduspil með 26 spilum og pen- ingaspil, en í þeim kafla eru 7 spil. Efni bókarinnar er fengið frá Politiken-forlaginu danska og eru teikningar í bókinni eftir Ib With- en, en myndir á kápu eru eftir Þorstein Eggertsson og S.A.V. Andersen. Bókin er 95 síður, prentuð og bundin í Eddu hf. Guðni Kolbeinsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.