Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
21
Kirkjudagur Ár-
bæjarsafnaðar
Hinn 2. desember, 1. sunnudag i
aðventu verður Kirkjudagur Ar-
bæjarsafnaðar hátíðlegur haldinn
í safnaðarheimili Árbæjarsóknar
og hátíðarsal Árbæjarskóla. Það
er orðin árviss hefð í söfnuðinum
að halda kirkjudag í aðventubyrj-
un, bæði til þess að minna á mál-
efni kirkjunnar í sókninni og hefja
andlegan undirbúning fyrir komu
hátíðar ljóss og lífs, jólanna. Jafn-
framt hefur þessi dagur verið einn
stærsti fjáröflunardagur kirkj-
unnar og hafi oft áður verið þörf,
þá er nú nauðsyn að afla fjár til
kirkjubyggingarinnar svo að hægt
sé að ganga frá húsinu að utan-
verðu fyrir jól. Samkomur kirkju-
dagsins hafa ævinlega verið mjög
fjölsóttar og safnaðarfólk sýnt
þessum degi áhuga og fjáröflun-
arstarfi hans mikla velvild. Það er
von okkar og ósk að svo verði enn
á þessum kirkjudegi, þegar svo
sýnilegur er orðinn árangur bygg-
ingarstarfsins og menn jafnvel
farnir að eygja þann dag, er kirkj-
an verður vígð og tekin í notkun.
Dagskráratriði kirkjudagsins
verða sem hér segir:
KL. 10.30 verður barnasamkoma
í safnaðarheimilinu. Fullorðnir
eru velkomnir með börnum sínum.
Kl. 14 verður guðsþjónusta í safn-
aðarheimilinu fyrir alla fjölskyld-
una. Sérstaklega er vænst þátt-
töku fermingarbarna og foreldra
þeirra. Kirkjukórinn syngur undir
stjórn organistans Jóns Mýrdal.
Kolbrún á Heygum syngur ein-
-
í
■IjJI I
■3'-
‘•Í.V
/ : *
söng í messunni. — Að lokinni
guðsþjónustu kl. 15 verður siðan
haldið út í hátíðarsal Árbæjar-
skóla en þar verður kaffisala
Kvenfélags Árbæjarsóknar og
veislukaffi á borðum fram eftir
degi. Jafnframt verður efnt til
glæsilegs skyndihappdrættis með
um 100 góðum vinningum. Má þar
t.d. nefna málverk eftir Jóhannes
Geir listmálara, stól, útigrill,
vöruúttektir, myndatöku, ölkassa
og margt annarra góðra muna.
Safnaðarfólk í Árbæjarprestakalli:
Tökum öll þátt i dagskrárliðum
kirkjudagsins.
Eignumst helga og hljóða stund
í safnaðarheimilinu okkar á fyrsta
sunnudegi nýs kirkjuárs i upphafi
aðventunnar og styðjum um leið
starfið, að kirkjan megi sem fyrst
komast í notkun öllum til heilla og
blessunar. Verið öll hjartanlega
velkomin í safnaðarheimilið og
Árbæjarskólann á sunnudaginn
kemur.
Guðmundur Þorsteinsson
SYNING
í dag frá
Nýársfagnaður
Bústaðakirkju
Eins og á liðnum árum verður
efnt til sérstakrar hátíðar i Bú-
staðakirkju á fyrsta sunnudegi i
aðventu við upphaf kirkjuársins á
sunnudaginn kemur. Er nú sér-
stakt tilefni hátíðahalda, þar sem
lokið er við að ganga frá listaverki
Leifs Breiðfjörð i kórglugga kirkj-
unnar og verður það formlega vígt
við messuna kl. 2 síðdegis. Hefur
verkið staðið yfir nú á fjórða ár og
var gerður sérstakur samningur
við listamanninn um að hann ynni
tvær einingar á ári hverju og skil-
aði þeim fyrir páska og fyrir jól
hvert þessara þriggja ára. Er að
vísu eftir að hanna krossinn, sem
á að vera fyrir innan kórgluggann
og er það gert af listamanni og
arkitekt kirkjunnar, Helga
Hjálmarssyni. Skal öllum þeim
þakkað, sem eflt hafa gluggasjóð-
inn með góðum gjöfum. En eftir er
að taka ákvörðun um, hvort ráðizt
verður í að fá litað gler í fleiri
glugga kirkjunnar, en teikningar
Leifs Breiðfjörð liggja fyrir.
Hátíðahöldin hefjast kl. 11 ár-
degis með barnasamkomu, síðan
er messan kl. 14 og henni fylgir
afmæliskaffi Kvenfélagsins en
kirkjan var vígð fyrsta sunnudag í
aðventu 1971. Til að auka enn á
yndi þeirrar samverustundar yfir
kræsingum kvennanna mun
organisti kirkjunnar, Guðni Þ.
Guðmundsson, og Þorvaldur
Steingrímsson flytja tónlist i
Rætt um brunavarn-
ir á fundi JC Ness
4. félagsfundur JC Nes, sem jafn-
framt er jólafundur, verður haldinn í
félagsheimilinu Nýjabæ v/Sefgaróa
mánudaginn 3. desember og hefst
hann klukkan 20.30 stundvíslega.
JC-hreyfingin hefur m.a. á
stefnuskrá sinni þetta starfsár, að
kynna fyrir fólki aukið öryggi á
heimilum og þá einkum það sem
safnaðarsölunum. En eins og
ævinlega áður eru konurnar beðn-
ar að koma kökunum í safnaðar-
heimilið árdegis á sunnudaginn
eða um leið og fjölskyldan kemur
til messu.
Aðventuhátíðin er undirbúin af
Bræðrafélaginu og flytur formað-
ur þess, Guðmundur Hansson,
ávarp, en hátíðarræðumaður verð-
ur Þorsteinn Pálsson, alþingis-
maður. Kirkjukórinn syngur auk
einsöngvara, og hljóðfæraleikarar
flytja tónlist og aðstoða við söng-
atriðin. En m.a. eru sungnir nýir
sálmar eftrir sr. Árelius Níelsson
og Ingólf Jónsson frá Prestbakka
og lag eftir Sigfús Halldórsson.
Og að lokum eru kertin tendruð,
en sú athöfn hefur unnið sér
þakkláta hefð hinna fjölmörgu,
sem á liðnum árum hafa sótt slík-
ar aðventusamkomur, en hin
fyrsta þeirra var í hátíðarsal Rétt-
arholtsskólans 1964.
Ólafur Skúlason
snýr að börnum. í tilefni af þessu
verða gestir fundarins þeir Hös-
kuldur Einarsson og Þórir Gunn-
arsson frá Landssambandi
slökkviliðsmanna og fjalla þeir
um brunavarnir á heimilum al-
mennt, en þó einkum þær sem
tengjast jólum og áramótum.