Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 + Bróöir okkar, STEFÁN traustason, prantari, Kloppavagi 60, Raykjavfk, andaöist fimmtudaginn 29. nóvember. Pállna Björnsdóttir, Ingibjörg Björnsdóttir. Ástkær faöir minn, HJÖRVAR KRISTJÁNSSON, Skipaaundi 69, Reykjavlk, sem andaölst 23. þ.m., veröur Jarösunginn frá Askirkju mánudaglnn 3. desember kl. 13.30. Fyrir hönd okkar systkinanna og annarra aöstandenda, Kjartan Hjörvarsson. + GUÐRÚN GUNNAR8DÓTTIR frá LJÓtunarstööum andaöist í Landakotsspítala 27. nóvember. Jarösett veröur aö Hofi f Vopnafiröl mánudaglnn 3. desember kl. 2. Gunnar Sigurósson, Ragnhildur Gunnarsdóttir, Anna Sólveig Gunnarsdóttir. + Móölr okkar, tengdamóölr, amma og langamma, SIGRfÐUR GUDMUNDSDÓTTIR, Kötlufelli 3, fyrrum húsfreyja á Brekku, Seltjarnarnesi, er látin. Útförin hefur farið fram í kyrrþey aö ósk sinnar látnu. Guómundur Hinriksson, Júlfana Hinriksdóttir, Hjörleifur Hafliðason, Sigrföur Hinriksdóttir, Páll Sigtryggsson, Jón Hinriksson, Unnur Björnsdóttir, Guölaug Hinriksdóttir, Unnur Björnsdóttir, Guðlaug Hinriksdóttir, barnabörn og langömmubörn. + Innilegar þakklr fyrir auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför BÖÐVAR8 EMILSSONAR, Þorsteinsstöðum, Lýtingsstaöahreppi. Vandamenn. + Þökkum auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og jaröarför sonar okkar BRYNJÓLFS INGÓLF88ONAR, hjúkrunarfraaóings, Laufey Halldórsdóttír, Ingólfur Th. Guömundsson. + Þökkum innilega auösýnda samúö og hlýhug viö andlát og útför bróöur okkar GUÐMUNDAR HELGASONAR, Túngötu 18, Kaflavlk. Matthlas Helgason, Jóhanna Helgadóttir, Haukur Helgason, Marla Helgadóttir, Ólafur Helgason, Sigurlaug Helgadóttir. + Þökkum innilega öllum þelm sem sýndu okkur samúö og vinarhug viö andlát og útför INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR, Framnesvegi 50. Jón H. Grlmsson, Kolbrún Jónsdóttir, Bergur Guðnason, Magnús Jónsson, Jóhanna Kristjánsdóttir, Valgeröur Jónsdóttir, Óli Ingvarsson, Jón H. Jónsson, Helga Ólafsdóttir, Karl Jónsson, Asta Skaptadóttir og barnabörn. Minning: Gísli Guðbjörns- son frá Fagurhóli Gísli Guðbjörnsson frá Fagur- hóli á Hellissandi lést í Landa- kotsspitala að kvöldi dags þann 26. nóvember sl., 83 ára að aldri. Hann verður jarðsunginn í dag frá gömlu sóknarkirkjunni hans á Ingjaldshóli. Gísli fæddist 1. ágúst 1901 í Brekkubúð, en ólst upp að Fögru- brekku á Hellissandi. Foreldrar hans voru þau hjónin Sólveig Bjarnadóttir og Guðbjörn Gríms- son. Fullu nafni hét hann Gísli Björn Kristján. Þegar á unga aldri gekk Gísli að þeirri vinnu, sem í boði var, hvort heldur það var á sjó eða landi. Hann átti ekki annarra kosta völ. Strax í upphafi kom sá ásetningur hans skýrt í ljós, að skila af sér hverju verki svo vel, sem hann var frekast maður til. Þessi ásetning- ur hans fylgdi honum svo ævina á enda. Á þeim árum, sem oft var enga atvinnu að fá, varð Gísli eins og fjöldi annarra, að sækja eftir at- vinnu víðs fjarri heimahögum. öllu jöfnu var það örðug leið og ekki ætíð ábatasöm, en full nauð- syn til þess að nýta alla þá mögu- leika sem buðust. Það varð Gísla mikið lán, að öllum ókunnugur vann hann sér það álit, að hann fékk vinnu á sama vinnustað ár eftir ár, og það segir vissulega sína sögu. Um langt skeið átti Gísli all- margar kindur, eins og var siður margra á Hellissandi, og víst er um það, að hann fóðraði þær vel. Honum var þessi iðja mikið áhugamál og aldrei sá hann eftir öllu amstrinu, sem þetta hafði i för með sér til viðbótar fullri at- vinnu. Gísli kvæntist eftirlifandi konu sinni, Kristjánsínu Elimundar- dóttur, 21. maí 1934 í Reykjavík. Þau voru þá bæði i atvinnu hér syðra. Kristjánsína er dóttir hjón- anna Sigurlaugar Cýrusdóttur og Elimundar Ögmundssonar, sem allan sinn búskap bjuggu i Dvergasteini á Hellissandi. Gísli og Kristjánsína bjuggu alla tíð á Hellissandi þar til þau fluttu á Dvalarheimili aldraðra sjómanna í Reykjavík fyrir nokkr- um árum. Þau höfðu byggt sér myndarlegt hús, sem þau nefndu Fagurhól. Þau eignuðust fimm börn, eitt þeirra, drengur að nafni Sölvi, dó i bernsku, en hin eru öll uppkomin og mesta myndarfólk, þau eru Guðmundur, kona hans er Birna Axelsdóttir, Sigurlaug, maður hennar er Ingi Einarsson, Heimir, kona hans er Erla Sig- þórsdóttir, og Pétur, kona hans er Guðrún Bjarnadóttir. Barna- börnin eru 16 og barnabarnabörn- in 4. Það sem einkenndi heimili þeirra Kristjánsinu og Gísla öllu öðru fremur, var sú einlæga gest- risni sem þar ríkti alla tíð. Hversu þröngt sem var i búi tóku þau hjónin hverjum þeim sem að garði bar, opnum örmum. Menn urðu þess strax varir, að það var ekki litið á þá sem gesti, heldur ein- faldlega heimamenn. Þau veittu ætið af mikilli rausn og gleði. Þau voru bæði þannig gerð, að þau vildu öllum gott gera og greiða úr hvers manns vanda. Konur okkar Gísla eru systur og við vorum þvi svilar. Okkur varð gott til vina og það leiddi þvi af sjálfu sér, að náið samband var i milli fjölskyldnanna um langt árabil og er enn. Frá liðnum samverustundum eigum við öll hlýjar og heillandi endurminn- ingar. Nú þegar Gísli er fallinn frá, verða okkur öllum efstar i huga einlægar þakkir fyrir óvenjulega góðvild og trausta tryggð. Jafnframt sendum við Kristán- sínu, börnum þeirra og öllum af- komendum innilegar samúðar- kveðjur. Með Gisla Guðbjörnssyni er nú genginn einn af þegnum þagnar- innar, sem skilaði mikilsverðu lifsstarfi sinu í kyrrþey. Það er sennilegt, að hann hafi nú eignast sína Fögrubrekku og sinn Fagur- hól i nýrri veröld, handan hafs og nauða. Guðjón Halldórsson Minning: Guðmundur Sig- urðsson Breiðási Fátt er fjær í hugum manna en dauðinn, þegar allt leikur i lyndi og starfsglaðar hendur og hugur vinna að úrlausnum liðandi stund- ar. En hversu oft rekum við okkur ekki á nálægð hans. Þá finnur maður best hve óvæg- inn og miskunnarlaus hann er. Mér kemur þetta i hug þegar ég minnist vinar og samferðamanns i fulla þrjá áratugi, Guðmundar Sigurðssonar frá Breiðási í Hreppum. Guðmundur var fæddur 11. febrúar 1920 að Stekkjarkoti i Innri-Njarðvík. Sonur hjónanna Sigurðar Böðvarssonar og Stein- unnar Magnúsdóttur, en hann varð bráðkvaddur við vinnu sina i límtrésverksmiðjunni að Flúðum mánudaginn 26. nóv. sl. Guðmundur lagði gjörva hönd á marga hluti, enda frábær til allra verka og því eftirsóttur til vinnu. Hann var vandvirkur og vinnufús með afbrigðum svo að aldrei féll honum verk úr hendi. Glaðvær í vinahópi og ljúfur i allri umgengni enda átti hann stóran vinahóp, en fáa óvildarmenn ef þá nokkra. Guðmundur giftist 20. júnf árið 1942 Guðrúnu Guðnadóttur frá Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð. Þau eignuðust þrjá syni, þeir eru: Helgi, starfsmaður Þjóðleikhúss, býr í Kópavogi, Guðni, starfar hjá Hveragerðishreppi og býr þar, og Samúel sem býr í Kaupmanna- höfn. Þau Guðrún og Guðmundur slitu samvistir þegar drengirnir voru komnir á legg, en ávallt var gott samband á milli þeirra. Um árabil starfaði Guðmundur hjá fyrirtækinu BYKO í Kópavogi, þar til nú fyrir um sex árum. Þá hafði hann einast nýjan lifsföru- naut, Elínu Jónsdóttur frá Hrepp- hólum og fóru þau að búa í Breið- ási i túnjaðri Hrepphóla. Þar þróaðist upp sannkölluð vinátta, ást og virðing fyrir mannlegu samfélagi. Þar spunn- ust saman fjölskylduþræðir svo sterkir að fátítt mun vera nú til dags, en Elín á einnig börn frá fyrra hjónabandi. Heimili þeirra Elínar og Guðmundar var fyrir- mynd um samvinnu karls og konu til að byggja upp unaösreit til samveru á hvildarstundum. Þetta kunnu börnin að meta, ættingjar og vinir. Þessum stóra hópi er fráfali Guðmundar mikið áfall, ekki síst Elínu og móður hans, sem nú lifir í hárri elli í Kópavogi. Ég bið þann guð, sem sólina skóp að ylja öllum hans ættingj- um og vinum og gefa honum sinn frið. SigurAur Ingimundarson. Jónína Armanns- dóttir — Minning Ennþá einu sinni höfum við ver- ið minnt á fallvaltleik lífsins. Það er með þungum trega og söknuði að ég kveð æskuvinkonu mína, Jónínu Ármannsdóttur, sem nú er fallin frá aðeins 35 ára gömui. Frá bernsku lékum við okkur saman er heimilin stóðu næstum hlið við hlið hér í eyjum, ávallt síðan hélst órofa vinátta, sem eng- an skugga bar á, þótt leiðir skildi. Fyrir nokkrum vikum átti ég sem fyrr yndislega stund á heimili hennar, og síst hefði mér dottið í hug, að feigðin væri svo skammt undan. Jonna var listhneigð og velvirk með afbrigðum, og hafði sérstakt lag á að fegra umhverfi sitt og öllum leið vei í návist hennar. I starfi utan heimilis var húh sjúkraliði, og naut þess að líkna og hjálpa þeim, er bágt áttu. Jonna fór ekki varhluta af erfið- leikum lífsins og hafði margt reynt, þótt aldurinn væri ekki hár. Og enginn má sköpum renna. Jonna hefur kvatt lífið, og við söknum vinar, sem veitti okkur margar ógleymanlegar samveru- stundir og órofa tryggð. Við ferðalok leitar hugurinn til barna hennar, Margrétar, Árna Gunnars og Hafsteins, aídraðra foreidra og allra ástvina, sem nú eiga um svo sárt að binda. Bið ég þeim blessunar Guðs og huggunar. „Láttu nú ljósið þitt loga við rúmið mitt. Hafðu þar sess og sæti. Signaði Jesú mæti.“ Jóna vinkona
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.