Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 44
44
fclk í
fréttum
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
MARlA MANDA
FATAHÖNNUÐUR
„Klassísk föt með
tískuyfirbragði“
hún hefur alltaf verið óánægð og
afbrýðisöm út í kvennafansinn,
sem jafnan eltir David á röndum.
Einu sinni fór hún frá honum
vegna þessa en þau sættust þó
fljótt. Joan Collins tók því með
mestu ró þótt David færi ekki fá-
anlegur til að fara með henni upp
í rúm, hún veit sem er, að nógu
margir eru um boðið.
'
Fatahönnun skipar sífellt
stærri sess í framleiðslu hér á
landi. Aukin fjölbreytni og
frumleiki eru þættir í sögu sí-
vaxandi samkeppni á þessu
sviði. Blm. frétti af hönnuði
nýkomnum frá námi, sem er
„albúin“ að taka þátt í slagn-
um á markaðnum. Hún er
kunnugum þekkt undir nafn-
inu Mandý — en framleiðir
fatnað undir nafninu María
Manda.
Hvar stundaðir þú nám,
Mandý?
Eftir að hafa lokið námi hér-
lendis, fyrst stúdentsprófi og
síðan tækniteiknaraprófi lá
leiðin út til Kaliforníu í fata-
hönnun. Skólinn heitir „The
Pashion Institute of Design
and Merchandising í Los Ang-
eles (FIDM). Þetta var ofsalega
skemmtilegt og spennandi nám
þar sem aðaláherslan var lögð á
verklegt svið sem var mjög fjöl-
breytt. í raun er þetta tveggja
ára nám en skólinn býður upp á
sérstakt tólf mánaða prógr-
amm eða eitt og hálft kennslu-
ár fyrir þá nemendur sem hafa
stúdentspróf eða hliðstæða
menntun. Þetta er sú leið sem
ég fór og slapp þar af leiðandi
við almenn fög eins og ensku,
stærðfræði o.s.frv. Aðaluppi-
staðan í mínu námi var hönn-
un, tiskuteikning, tískusaga,
sníðagerð og fleira í þeim dúr.
Það er sérstaklega þægilegt
þegar skólar geta boðið upp á
svona valmöguleika og vantar
tilfinnanlega slíka valkosti hér-
lendis.
— Er erfitt að fá starf við
fatahönnun þegar heim er kom-
ið?
Það hefur nú ekki reynt mik-
ið á það hjá mér ennþá. Mig
langar mest til að vinna sjálf-
stætt og vinn þannig eins og er.
Annars hef ég heyrt að nokkrir
fatahönnuðir hafi ekki fundið
vinnu við sitt hæfi og starfi við
aðra grein.
Það hefur örlað nokkuð á því,
finnst mér, að fólk hafi ekki
réttan skilning á starfi fata-
í
hannaðarins. Þetta er náttúru-
lega tiltölulega ung starfsgrein
og á eflaust eftir að festa dýpri
rætur hér á komandi árum.
Það er ætlunin ef hægt er að
vinna sjálfstætt og síðan ég
kom heim hef ég bara unnið
heima við og haft meira en nóg
að gera í módelfatnaði. Yfir jól-
in hef ég samt sölubás á jóla-
markaði uppi á Fosshálsi en
hvað tekur við að því loknu veit
ég ekki. í rauninni langar mig
að gera eitthvað róttækt eftir
jólin, hefja framleiðslu á fatn-
aði, opna verslun jafnvel, en
maður verður bara að bíða og
hvernig málin þróast.
hugi minn beinist jafnt að
fjöldaframleiðslu og módel-
fatnaði og meiningin er að fara
út í hvort tveggja.
— Hvernig föt hannar þú að-
allega?
Mig langar til að fara út I
klassísk föt með tískuyfir-
bragði ef það er hægt að orða
það svo. Annars er ég ekki enn-
þá neitt fastmótuð, tíminn
verður að skera úr um þetta. Ég
á líka eftir að gera mér betur
grein fyrir því hvað hægt er að
gera hérna.
— Tolla íslendingar í tísk-
unni?
Það held ég að sé óhætt að
fullyrða. Islendingar fylgjast
mjög vel með því sem er að ger-
ast hverju sinni í klæðnaði og
hugsa yfirleitt mikið um það
hvernig þeir líta út. Við erum
jafnan fljót og ófeimin að taka
nýjungum og höfum gífurlega
fjölbreytni í fatnaði hérlendis í
dag. Það má kannski segja að
höfuðborgin bjóði okkur upp á
Mílanó, París og London.
Bandaríska sjónvarpsstjarnan
David Hasselhoff, sem er 31
árs gamall, hefur sagt nei takk við
tilboði, sem flesta karlmenn
dreymir um að fá, en það er að
vera nakinn upp í rúmi með Joan
Collins.
Rúmsenurnar eiga að fara i
myndinni „The Cartier Affair“ og
hafði Joan samþykkt en David
kom framleiðendunum á óvart
þegar hann neitaði að koma fram
allsber. „Konan mín vill það ekki,“
sagði hann.
David kvæntist f mars sl. leik-
konunni Catherine Hickland og
Má ekki
leika sér
við Joan
Collins
Taliö fré vinstri: Anna Sigurðardóttir, Guðrún Danelíusdóttir, Stella Stefánsdóttir, Kristín
Simonardóttir, Snjólaug Kristjánsdóttir, Elína Hallgrímsdóttir og formaður Framsóknar
Ragna Bergmann.
Verkakvennafélagið Framsókn 70 ára
Hinn 25. október sl. varð Verkakvennafélagið Framsókn 70 ára. Þess var minnst fyrir nokkru og voru á
fimmta hundrað gestir mættir. Mikið var um ræðuhöld og gjafir gefnar, auk þess sem MFA-kórinn söng
nokkur lög. Þessar myndir voru teknar í afmælishófinu sem var haldið á Hótel Sögu.
Á
fimmta
hundrað
konur
mættu
á fundinn
/0^mv r' '