Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 01.12.1984, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984 19 Aðventukvöld í Áskirkju Fyrsta sunnudag í aðventu, 2. des- ember, verður aöventukvöld í Ás- kirkju kl. 20.30. Þetta er í fyrsta sinn sem auðið er að efna til slíkrar samkomu í Ásprestakalli, því aðstaðan er nú önnur með tilkomu kirkjunnar en áður var. Margir munu þó minn- ast aðventu- og jólafunda Safnað- arfélagsins í Norðurbrún 1, en þeir voru jafnan fjölsóttir, enda vandað til dagskrár. Á aðventukvöldinu nk. sunnu- dag mun Jón Helgason kirkju- málaráðherra flytja ræðu og Rut Ingólfsdóttir fiðluleikari leika á hljóðfæri sitt og Svala Nielsen syngja einsöng. Kirkjukór Ás- kirkju syngur aðventusálma og söngva tengda jólum undir stjórn Kristjáns Sigtryggssonar organ- ista, en sumir þeirra sálma eru dýrustu perlur tónbókmennta kirkjunnar. Ennfremur verður al- mennur söngur, en samkomunni lýkur með ávarpi sóknarprests. Er von mín að margur leggi leið sína í Áskirkju þetta kvöld til að njóta helgi stundarinnar og veita henni með návist sinni og þátt- töku og þess ekki síður að vænta, að foreldrar og eldri ástvinir stuðli að því að börnin komi til kirkjunnar til að fagna aðvent- unni og innri undirbúningi jól- anna. _ Árni Bergur Sigurbjörnsson SkáUfélagið Kópar beidur basar tíl styrktar félagsstarfsemi sinni sunnudaginn 2. des. kl. 14.00 ( Félagsheimilinu, Kópavogi. Á basarnum veröur fjöldi glæsilegra handunninna muna. Einnig veröur kökusala i staönum, happdretti og lukkupokasala. Aðventukvöld í Dómkirkjunni Kvenfélag Háteigsséknar: Kaffisamsæti fyrir eldra fólk Á morgun, fyrsta sunnudag í aö- ventu, kl. 15.15 býður Kvenfélag Hi- teigssóknar eldra fólki í Hiteigs- sókn til kaffisamsætis f Domus Medica. Eins og sóknarfólki er kunnugt hefir þetta kaffiboð verið árviss viðburður og vinsæll, þegar Kven- félag Háteigssóknar hefir boðið eldra fólki til samsætis og skemmtunar. Þessi samkoma hef- ir jafnan verið í ársbyrjun, en nú færist hún til og verður sem að- ventufagnaður og upplyfting í skammdeginu. Konurnar í félaginu hafa af áhuga og dugnaði undirbúið þessa samkomu með miklum góðvilja. Á þessari samkomu mun Elín Sigur- vinsdóttir söngkona syngja ein- söng við undirleik Hólmfríðar Sig- urðardóttur, Kirkjukór Háteigs- kirkju syngur aðventulög og Anna Guðmundsdóttir leikkona les upp. Enginn efi er á því, að þetta verður notaleg og ánægjuleg sam- vera. Óska kvenfélagskonurnar eftir því, að sem flestir sjái sér fært að þiggja þetta boð og eiga góðar stundir saman. Arngrímur Jónsson Á morgun hefst nýtt kirkjuár. Þi er fyrsti sunnudagur í aðventu eða jólaföstu. Aö kvöldi þess dags verö- ur aö venju aðventusamkoma í Dómkirkjunni og hefst hún kl. 20.30. ÞaÖ er Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunnar, sem stendur fyrir samkomunni eins og undanfarna áratugi og er óhætt að segja, aö aö- ventukvöldin í Dómkirkjunni séu orðin ómissandi þáttur í undirbún- ingi jólanna meðal þess mikla fjölda, sem þau sækir. I tali og tón- um erum við minnt á komu jólanna og þann boöskap friöar og frelsis, sem þau færa öllum mönnum. Dagskrá aðventukvöldsins er mjög fjölbreytt að vanda. Ræðu- maður kvöldsins er Helgi Skúli Kjartansson sagnfræðingur. Frið- björn G. Jónsson syngur einsöng. Guðrún Ásmundsdóttir les upp. Tveir kórar syngja: Skólakór Seltjarnarness undir stjórn Mar- grétar J. Pálmadóttur og Dómkór- inn undir stjórn Marteins H. Frið- rikssonar dómorganista, en Mart- einn leikur einnig einleik á orgel Dómkirkjunnar. Dómkirkjuprest- arnir flytja ávörp í upphafi og við lok samkomunnar, og einnig verð- ur aimennur söngur. Aðventukvöldið er í Dómkirkj- unni annað kvöld, sunnudag 2. des., og hefst kl. 20.30. Verið öll hjartanlega velkomin í Dómkirkjuna. Hjalti Guðmundsson Jólafundur Hvatar Hvöt, félag sjálfstæöiskvenna í Reykjavík, heldur sinn áralega jólafúnd mánudaginn 3. desember nk. í Lækjarhvammi, Hótel Sögu, og hefst hann Id. 20.30. Dagskráin hefst með því að Erna Hauksdóttir, formaður Hvatar, setur fundinn. Davíð Oddsson borgarstjóri flytur ávarp og sr. Karl Sigurbjörnsson flytur hugvekju. Tvær stúlkur úr Söngskólanum, þær Ingibjörg Marteinsdóttir og Kristin Sig- tryggsdóttir, syngja einsöng og tvisöng við undirleik Jórunnar Viðar. Að venju verður happ- drætti og fjöldi góðra vinninga. Kaffiveitingar verða á boðstólum og ennfremur jólaglögg. Kynnir á jólafundinum verður Sigríður Ragna Sigurðardóttir. Jólafundir Hvatar hafa ætíð verið mjög fjöl- sóttir af félagskonum og gestum þeirra og jólastemning rikjandi. (FrétUtilkrmmlaf) — e*ki& Pa a -*** K0í ° gOtt tJ/ —'JJÍ} S.'J/ ^y** * Xer*ð, Ko»sum s,u erí‘enn^,,^ »»? Su&u. (E322)’’ k^óSn,- i,n- b Síríus Konsum suóusúkkulaói Gamla góða Síríus Konsum súkkulaðið er í senn úrvals suðusúkkulaði og gott til átu. Það er framleitt úr bestu hráefnum, er sérlega nærandi og dijúgt til suðu og í bakstur, enda jafnvinsælt í nestispökkum ferðamanna og spariuppskriftum húsmæðra. Síríus Konsum er vinsælast hjá þeim sem velja bara það besta. JMOD xSj
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.