Morgunblaðið - 01.12.1984, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 1. DESEMBER 1984
27
Hampton t sjöunda himni
Bandaríski jazzsnillingurinn Lionel Hampton kampakátur i Paris-
arborg þar sem hljómsveit hans heldur tónleika um þessar mundir.
Hampton hefur ástaeðu til að auðsýna ánægju sina þvi hann var í
vikunni sæmdur heiðursorðu Parisarborgar og var myndin tekin er
hann var að leggja upp i ökuferð af þvi tilefni um miðborgina i opinni
glæsibifreið.
Kvikmynd um morðið á Aldo Moro:
Morðingjarnir aðstoða við
leiktjöld og handritagerð
Mfluó. 30. ■évember. AP.
Kvikmyndaframleiðendur nokkrir
á Ítalíu vinna nú að gerð myndar um
ránið og morðið á Aldo Moro, fyrr-
um forsætisráðherra landsins. Til
aðstoðar hafa þeir fengið tvo af
morðingjum hans, félaga úr rauðu
herdeildunum, sem afplána nú lífs-
tíðardóm fyrir hlutdeild sína að
ódæðinu sem framið var árið 1978.
Morðingjarnir, Valerio Morucci
og Adriana Farandasa, hafa sagt
að þeir vildu hjálpa til við gerð
leikmyndar og handrits „til þess
að leggja sitt af mörkum við að
skrá sagnfræðilegan sannleika,"
eins og haft er eftir þeim. ítalski
leikarinn Gian Maria Volonte
sagði að framleiðendur vildu
kappkosta að segja satt og rétt frá
hlutunum og því hefði verið leitað
til morðingjanna. „Þeir munu
segja okkur hvað fram fór meðan
Moro var í prísundinni, í „fangelsi
alþýðunnar" og aðdragandanum
að dauðadómnum," sagði Volonte.
Moro var í gíslingu í 55 daga áður
en hryðjuverkamenn rauðu her-
deildanna myrtu hann. Volante
mun fara með hlutverk Moros í
myndinni sem leikstýrð verður af
Liliana Cavani.
Gerð kvikmyndarinnar hefur
vakið nokkra úlfúð á Italiu og
telja ýmsir að illa sé farið að að-
standendum og fjölskyldu Moros,
enda aðeins fá ár síðan hið mikla
áfall dundi yfir fjölskylduna.
Framleiðendur myndarinnar segj-
ast hins vegar ekki skilja slík
viðhorf, því þeir séu að skrá
merkilegar heimildir í sögu Italíu.
Hong Kong:
Æ'
Ibúar ánægðir með sam-
komulag Breta og Kínverja
Hoig Kong, 29. nóvember. AP.
Yfirgnæfandi meirihluti ibúa Hong
Kong er sáttur við samkomulag
Breta og Kínverja um smáríkið, sem
gerir það að sérstöku stjórnsvæði í
kínverska alþýðulýðveldinu 1997,
samkvæmt upplýsingum opinberrar
stofnunar í Hong Kong.
Hermt er að menn hafi áhyggj-
ur af einstökum ákvæðum sam-
komulagsins, en í heildina séu ibú-
arnir ánægðir með að samkomu-
lag hafi náðst, þvi það sé betra en
ósamkomulag. Samkvæmt sam-
komulaginu fá Kínverjar öll yfir-
ráð í Hong Kong 1997, en tryggt er
að hið kapitalíska fyrirkomulag
þar verður við lýði a.m.k. til ársins
2047.
TILBOÐ:
Aðventoplattinn
4 aðventukerti ásamt
t skreytingum
| ítágapiatta.
' verðþessa helg'
kr. 390- _______
Blómuni
vióa verola
yerð f rá -----
Keramikaðventu-
hringir frá GU •
Hvítir og svartir.
Falleg sk^lm9kr
Verð fra640.-kr'
Hefðbundnir aðventu
kransar.Vafiðgrem
ásamt skreytingum.
Lágir, áborð.
Verð frá 490-‘
Hangandi.t.d. i
Verð9fará545.-kr.
Á borðstatívi
(sjá mynd).
\/orfS frá74b