Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985 23 Morgunbladið/ól. K.M. Stjórn og framkvæmdastjóri Sambands íslenskra tryggingafélaga. Taldir frá vinstri: Hafsteinn Hafsteinsson, fram- kvæmdastjóri, Hallgrímur Sigurðsson, Gísli Ólafsson, formaður, og Ólafur B. Thors. Samband íslenskra trygg- ingafélaga tuttugu og fimm ára ild okkar varðar, og þá tel ég að þessi verðlaun missi verulega gildi sitt. Ég tel að þetta eigi að fara rétta boðleið og eigi að kom- ast á dagskrá í menningarmála- nefndinni, en hér er auðvitað spurning um það hverja áherslu við viljum leggja á bókmenntir og gildi þeirra yfirleitt." Eiður Guðnason sagði um ræðu Sverris Hermannssonar: „Vissulega væri það æskileg skipan mála að geta hrint því í framkvæmd að íslensku bók- menntaverkin fengju meðhöndl- un af íslenskumælandi mönnum í dómnefnd. E.t.v. verður það eitthvað erfitt í framkvæmd og gæti orðið erfitt að finna rétta menn í það hlutverk. Þýðing, hversu góð sem hún er, verður aldrei annað eða meira en þýð- ing og það hlýtur að vera eðli- legast að fjalla um bókmennta- verkin á frummálunum." Undir þessi orð tekur svo Halldór Asgrímsson í samtali við Morgunblaðið laugardaginn 13. mars 1982. Hann sagði: „Ég tek heilshugar undir málflutn- ing þeirra og er þeim fyllilega sammála. Það er náttúrlega afar slæmt að þeir sem eru að dæma bókmenntaverk skuli ekki skilja það mál sem þau eru skrifuð á,“ sagði Halldór Ásgrímsson for- maður íslenzku þingmanna- nefndarinnar á Norðurlanda- ráðsþingi þegar Morgunblaðið bar undir hann yfirlýsingar Stefáns Jónssonar og Eiðs Guðnasonar. Að gefnu tilefni skrifaði Stef- án Jónsson grein í Þjóðviljann 4. apríl þetta sama ár og sagði þá m.a.: „Ég læt sitja við að stað- hæfa þá skoðun mína að þekking á íslensku máli sé nauðsynleg til þess að geta lesið íslenskar bæk- ur og fellt dóm á gildi þeirra. Eins hitt að finnist ekki á Norð- urlöndum dómnefndarmenn utan illa læsir á íslensku sem riðlist á frumtextanum, þá ber að líta á það hvort íslenskir höf- undar skuli halda áfram að leggja sæmd sína í kjöltu er- lendra þýðenda svo sem þeir hafa verið látnir gera.“ Og ennfremur: „Ég þarf ekki að endurtaka hér neitt af því sem aðrir hafa skrifað skynsamlegt og af sæmilegum metnaði um sess íslenskrar tungu í norræn- um bókmenntum, en það er skoð- un mín að okkur beri að krefjast þess að staðið verði að dómum og verðlaunaveitingu af þess háttar alvöru að íslenskir rithöf- undar þurfi ekki að keppa þar í neins konar hafti...“ Tillaga Halldórs Blöndal og fleiri þingmanna nú er því beint framhald af fyrri umræðu um mál þetta bæði hér á landi og á Norðurlandaráðsþingi í Helsinki 1982. Það er augljóst að margir íslendingar hafa sitthvað að at- huga við það hvernig staðið er að úthlutun bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og vilja rétta hlut íslenzkra rithöfunda. f stað Íess að gera það að skilyrði að slendingar leggi bókmennta- verk sín fram á íslenzku er gert ráð fyrir því í þessari þings- ályktunartillögu að þeim sé heimilt að leggja fram þýðingar á ensku, frönsku eða þýzku engu síður en dönsku, norsku eða sænsku. Sumir hafa jafnvel talið að öll verkin sem lögð eru fram til verðlauna ættu að vera þýdd á eitthvert heimsmál svo að allir sætu við sama borð. En slíkt fengi vart byr. SAMBAND íslenskra tryggingafélaga varð 25 ára 1. mars, en sambandið var stofnað 1. mars 1960. Stofnfélagar voru tólf vátryggingafélög, en nú eru félögin sem að sambandinu standa 15. Tilgangur sambandsins er að stuðla að heilbrigðri vátryggingastarfsemi í landinu, þannig að hún skili sem best þjóðfélagslegu hlutverki sínu, að gæta hagsmuna aðildarfélaganna gagnvart opinberum aðilum og öðrum í þeim málum sem varða vátryggingafélögin sameiginlega og að fræða starfsfólk félagana og almenning um vátrygg- ingar og rekstur vátryggingafélagana meðal annars með rekstri trygginga- skóla, fyrirlestrum og umræðufund- um. Fyrstu stjórn sambandsins skip- uðu Ásgeir Magnússon, Gísli Ólafs- son og Stefán G. Björnsson, sem var formaður, en núverandi stjórn skipa Ólafur B. Thors, Hallgrímur Sig- urðsson og Gísli Ólafsson, sem er formaður. Framkvæmdastjóri er Hafsteinn Hafsteinsson, hrl. Sambandið hefur rekið Trygg- ingaskólann frá 1962 og eru haldin tvo til þrjú námskeið á hverjum vetri í hinum ýmsu vátrygginga- greinum og lýkur þeim með prófi, auk þess sem skólinn hefur gefið út kennslubækur um vátryggingar og erindi um tryggingamál eru haldin á hans vegum. Þá stofnuðu þau félög innan sam- bandsins, sem annast vátryggingar fiskiskipa yfir 100 brúttórúmlestir, Björgunarfélagið hf. árið 1964 og hafa þau rekið sérstakt björgun- arskip fyrir íslenska fiskiskipaflot- ann æ síðan. SÍT hafði forgöngu um fyrsta undirbúningin að lögum um vá- tryggingastarfsemi, sem urðu lög nr. 23/1973, sem með áorðnum breytingum eru lög nr. 50/1978. Sambandið er viðurkenndur aðili af löggjafarvaldinu og því eru send mál til umsagnar er varða aðildar- félögin. Það tilnefnir einnig fulltrúa í nokkrar stjórnir og ráð ríkisins, t.d. Brunamálastofnun Islands, stjórn viðlagatryggingar og Um- ferðarráð. Samband íslenskra tryggingafé- laga hefur ekkert að gera með ið- gjöld eða tjónauppgjör aðildarfé- laga sinna. Sambandið hefur gert tvo menn að heiðursfélögum fyrir mikilvæg störf í þágu íslenskrar trygginga- starfsemi, þá Stefán G. Björnsson, fyrrverandi forstjóra Sjóvátrygg- ingafélags íslands, og K. Guðmund Guðmundssonar, cand. act., fyrrver- andi forstjóra íslenskrar endur- tryggingar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.