Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIDJUDAGUR 5. MARZ 1985 Lögbrot kennara og lögskýringar Arnmundar Backman — eftir Magnús Óskarsson Komið er á daginn og flestum ljóst orðið, að hópur kennara hef- ur því miður kosið að heyja kjara- baráttu sína með lögbrotum. Opinberlega hefur aðeins verið gerð ein tilraun til að réttlæta gerðir þessara manna með laga- legum rökum. Á ég þar við álits- gerð Arnmundar Backmans hrl., til Hins íslenzka kennarafélags og grein hans í Morgunblaðinu sl. fimmtudag. Þótt Gunnlaugur Claessen ríkisiögmaður og Sigurð- ur Líndal lagaprófessor hafi gert skoðunum Arnmundar góð skil, langar mig til að bæta við athuga- semd um eitt atriði málsins, sem ég ætti öðrum fremur að þekkja, en það eru reglur Reykjavíkur- borgar sem Arnmundur vitnar mjög til. Reykjavíkurborg setti, í sam- ráði við félög starfsmanna sinna, reglur um réttindi þeirra og skyld- ur í árslok 1967, þegar nokkuð var liðiö á annan áratug frá því lög um réttindi og skyldur ríkis- starfsmanna gengu f gildi. Voru lögin að mörgu leyti lögð til grundvallar hjá borginni en í ýms- um greinum var þó frá þeim vikið. Dæmi um það er reglan um fram- lengingu uppsagnarfrests. Tvær reglur Ég var einn af höfundum þeirr- ar reglu, sem borgaryfirvöld sam- þykktu um þetta efni. Ég fullyrði, að engum okkar datt í hug að Reykjavíkurborg væri að túlka og lögleiða reglu ríkisins efnislega óbreytta. ÖUum var ljóst að verið var að setja nýja reglu, aðra en þá sem í gildi var hjá ríkinu. Eftir þetta voru því bersýnilega í gildi tvær reglur um uppsagnarfrest opinberra starfsmanna. Annars vegar lagaregla ríkisins um fram- lengingu frestsins hvenær sem er á þriggja mánaða tímabili og hins vegar regla Reykjavíkurborgar um framlengingu í fyrsta mánuð- inum. Arnmundur Backman telur reglu Reykjavíkurborgar skipta „verulegu máli varðandi túlkun á sambærilegu ákvæði í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins". (Tilv. í álitsgerð A.B.) Þetta stenzt ekki. Regla Reykja- víkurborgar skiptir ríkisstarfs- menn engu máli af þeirri einföldu ástæðu, að hjá þeim gildir önnur regla. Svo vill til að báðar þessar reglur eru skýrar og auðskiljan- legar og þarf hvorug á hinni að halda til skilningsauka. Þegar Arnmundur Backman kveður reglu Reykjavíkurborgar „rétta og sanngjarna", er hann í raun ekki að segja annað en það að hún ætti einnig að vera í gildi hjá ríkinu. Þar er hún hins vegar ekki í gildi og fær óskhyggja engu um það breytt, enda er hún afleit, þegar skýra þarf lög. Ósamhljóða niðurstöður Mér þótti rétt að gera fram- angreinda athugasemd um reglur Magnús Oskarsson Reykjavíkurborgar og gildi þeirra fyrir ríkisstarfsmenn. í leiðinni freistast ég til að huga lítið eitt að málflutningi Arnmundar Back- mans að öðru leyti. Arnmundur byrjar grein sína í Morgunblaðinu þannig: (málsgreinin er stytt en engu haggað efnislega). „í álitsgerð minni til Hins ís- lenzka kennarafélags ... er niðurstaða mín sú, eins og kunnugt er, að réttur mennta- málaráðuneytisins sé tæplega (lbr. hér) fyrir hendi ef honum er ekki beitt án ástæðulausrar tafar.“ Ef framangreind lýsing Arn- mundar Backmans á niðurstöðu Athugasemd frá Kristni Kristmundssyni skólameistara Menntaskólans að Laugarvatni f MORGUNBLAÐINU 2. mars, bls. 31, má lesa um Menntaskólann að Laugarvatni í fyrsta lagi, að 10 fast- ráðnir kennarar skólans hafi „gengið út“ morguninn I. mars og í öðru lagi, að flestir nemendur skólans hafi far- ið af staðnum sama morgun. Þar sem ég tel ofangreinda frétt geta gefið villandi hugmynd um skólann og viðbrögö hans við fjarvistum kennara 1. mars, bið ég Morgunblaðið að gera svo vel að birta eftirfarandi: 1. Við ML hafa í vetur, auk mín, starfað 13 kennnarar í bóklegum greinum. Af þeim hafa 8 sagt upp störfum. Þessir 8 kennarar hafa haft með höndum tæp 70% allrar bóklegrar kennslu í skólanum. íþróttakennsla við skólann er að öllu leyti á vegum íþróttakennara- skóla lslands. Mér er ekki fullljóst hvaða áhrif hugsanlegar fjarvistir íþróttakennara í HÍK kynnu að hafa á þá kennslu. 2.1. mars kl. 8.15 áttu 10 kennar- ar að koma til kennslu samkvæmt stundaskrá. Þrír komu en sjö vant- aði. 3. Við þessar aðstæður var ljóst að skólinn gat ekki staðið við skuldbindingar sinar við nemend- ur. Því þótti ekki fært að skylda þá til skólasóknar svo sem venja er. Nemendur voru hvattir til að stunda sjálfsnám eftir föngum og skýrt var tekið fram við þá að hús skólans stæðu þeim opin, þótt kennsla félli niður. í dag, 4. mars, eru um 30 heimavistarnemendur í skólanum. Tæplega 20 búa utan vistar. Nemendur alls eru tæplega 170. Kennarar, sem hafa ekki sagt upp störfum, munu koma til vinnu eftir atvikum og samkomulagi. Með þökk fyrir birtinguna. Kristinn Kristmundsson, skóla- meistari. HÁÞRÝSTI- HREINSITÆKI TÆKNI UPPIYSINGAR Form G-110 G-112 G-217 IvinnumVst. BAR 150 100 140 150 M/TURBO BAR 180 150 170 180 M/TURBO BAR 180 150 170 180 HREINSIAFKÖST KW 3.50 2.00 3.03 3J0 VATNSMAGN L/MlN 14 1.2 13 i.» MÖTOR KW 2.0 2.9 4.1 Gerni Eigum til afgreiðslu af lager hinar sívinsælu GERNI háþrýstihreinsidælur. Raf-, bensín- og traktors- mótorar. Mjög meðfærilegar á góðum hjólum. Skeifan 3h - Sími 82670 hans er borin saman við niður- stöðuna sjálfa eins og hún birtist í álitsgerð hans, versnar í því. Er mér illmögulegt að sjá að þar sé um sömu niðurstöðu að ræða. Álitsgerð Arnmundar lýkur þann- ig: „Ef menntamálaráðuneytið hefur ekki beitt fyrir sig heim- ild til framlengingar á upp- sagnarfresti án ástæðulausrar tafar, t.d. ekki innan mánaðar frá því að uppsagnir starfs- manna bárust og ljóst var orð- ið um afleiðingar þeirra, verð- ur að telja að sá réttur sé ekki fyrir hendi lengur“ (lbr. hér.) Erfitt er að koma þessum til- vitnunum heim og saman. Gjá er á milli fullyrðingar um að lagalegur réttur sé ekki fyrir hendi og efas- emda um það efni eins og orðið TÆPLEGA felur í sér. Er óskilj- anlegt og ekki traustvekjandi, að aðalatriði málsins, niðurstaðan sjálf, skuli taka á sig svo ólíkar myndir í höndum eins og sama höfundar. Vitnað í eigin verk Þessi sami munur varðandi kjarna málsins kemur einnig fram síðar í grein Arnmundar. Máli sínu til stuðnings vitnar hann í bók eftir sjálfan sig og segist þar halda fram sama sjónarmiði og í álitsgerðinni til kennarafélagsins. Það getur svo sem verið ágætt að vitna í sjálfan sig, en fer í verra, ef það er ekki rétt gert. í álitsgerðinni segir Arnmund- ur, eins og til er vitnað hér að framan, að réttur til framleng- ingar sé ekki fyrir hendi. í bók- inni, sem Arnmundur vitnar til, segir hins vegar hvergi að þessi réttur sé ekki fyrir hendi, þótt það sé á tveimur stöðum dregið í efa. Niðurstaðan í bók Arnmundar er á þessa leið: „Að öllu þessu athuguðu verð- ur að draga í efa (lbr. hér) að framlenging á uppsagnarfresti, senutilkynnt er á síðustu dög- um uppsagnarfrestsins, sé lögl- eg, en tekið skal fram að hér hafa dómstólar ekki skorið úr.“ (Vinnuréttur, bls. 140) Hér ber allt að sama brunni. Ekki ber nógu vel saman bók, blaðagrein og álitsgerð Arnmund- ar Backmans. Ólöglegt verkfall Ástæða væri til að ræða ýmis önnur lagaleg atriði þessa máls, eins og t.d. þá skoðun sem Harald- ur Blöndal, hæstaréttarlögmaður, hefur sett fram og enginn and- mælt, að aðgerðir kennaranna séu ekkert annað en ólöglegt verkfall. Er ég sammála þeirri skoðun og reiðubúinn að rökstyðja það, jafn- vel með tilvitnunum I bók Arn- mundar Backmans, þótt ég telji hana enga sérstaka fyrirmynd um fræðimennsku i vinnurétti. Magnús Óskarsson er borgarlög- madur í Reykjarík. Morgunblaöid/Kári Togarar Útgerðarfélags Skagfirðinga, Drangey, Hegranes og Skafti, bundnir við bryggju í Sauðárkrókshöfn. Frá Sauðárkróki Starfsmenn Sauðárkróksbæjar við gatnagerðarframkvæmdir 1. mars, sem er fátítt, en sýnir veðurblíðuna, sem hér er og verið hefur undan- farnar vikur og mánuði. Bæjarpósturinn á Sauðárkróki, lvar Antonsson, að leggja upp frá Póst- húsinu léttstígur og kátur í veðurblfðunni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.