Morgunblaðið - 05.03.1985, Page 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
| atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Bókhald
Vanir bókhaldarar geta bætt viö sig fleiri
bókhaldsverkefnum, ársuppgjörum og skyld-
um verkefnum.
Lysthafendur sendi fyrirspurnir til Morgun-
blaðsins merktar: „Bókhald I — 3260“.
Laus til umsóknar
er staða framkvæmdastjóra við Kísiliðjuna
hf., Mývatnssveit.
Umsóknarfrestur er til 18. mars. Nánari uppl.
gefur Sigurður Ragnarsson i síma 96-44190
og 96-44136.
Umsóknir sendist augl.deild Mbl. merkt:
„K - 10 55 87 00“.
Viöskiptafræðingur
Virt og vaxandi fyrirtæki óskar eftir að ráða
framsækinn og traustan viöskiptafræöing
(hagfræöing) til aö hanna og sjá um ný
starfssviö í rekstri þess.
Góö laun og framtíöarhorfur í boöi fyrir réttan
mann.
Umsóknir með viöeigandi uppl. sendist augld.
Mbl. fyrir 10. mars nk. merkt:
„Viðskiptafræðingur - 0449“.
Góð atvinna
Viö þurfum aö auka framleiösluna og þvi
óskum viö eftir aö ráöa saumakonu til starfa
strax. Vinna heilan eöa hálfan daginn.
Einstaklingsbónus. Góöir tekjumöguleikar
fyrir áhugasamt fólk. Góö vinnuaöstaöa.
Allar upplýsingar gefur verkstjóri á staönum
eöa í síma 82222 fyrir hádegi.
DÚKUR HF
Skeifan 13.
Mosfellshreppur —
forstöðumaður
vinnuskóla
Mosfellshreppur óskar eftir að ráöa forstöðu-
mann vinnuskóla. Starfstími, frá miöjum maí
fram í miðjan ágúst.
Leitað er eftir duglegum og áhugasömum
aðila, með hæfileika til stjórnunar, ásamt
reynslu varöandi hefðbundin störf vinnuskóla
(unglingavinnu).
Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, skal skila á skrifstofu Mos-
fellshrepps, Hlégarði, í síðasta lagi þriöju-
daginn 12. mars nk.
Allar nánari upplýsingar um starfið veitir
sveitarstjóri Mosfellshrepps, sími 666218.
Sveitarstjóri.
Verkstjóri í smiðju
Smiöja úti á landi sem þjónar útgerð og
fiskvinnslu óskar aö ráöa traustan verkstjóra
sem fyrst.
Upplýsingar í síma (91)621755.
óskast til starfa á vinnustofu Múlalundar, Há-
túni 10 C. Uppl. um menntun og fyrri störf
óskast sendar til Múlalundar, Hátúni 10 C,
Reykjavík.
Vélstjóri — vélvirki
Óskum aö ráða vélstjóra eöa vélvirkja. Þarf
aö geta unnið viö rennismíöi og járnsmíöi.
Hydraulik-þjónustan,
Hvaleyrarbraut 3, Hafnarfirði,
s. 50236.
Sjúkrahús Skag-
firðinga, Sauðár-
króki
óskar aö ráða eftirtalið starfsfólk:
Hjúkrunarfræðinga til sumarafleysinga og
lengri tíma
Ljósmæöur til sumarafleysinga
Sjúkraþjálfara nú þegar og til sumarafleys-
inga
Meinatækna, röntgentækni, sjúkraliöa og
læknaritara til sumarafleysinga.
Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor-
stjóri á staðnum og í síma 95-5270.
St. Jósefsspítali Landakoti
Lausar stööur á eftirtöldum deildum:
Hjúkrunarfræöingar:
— Handlækningadeild
— Augndeild l-B
— Gjörgæsludeild
— Lyflækningadeildum l-A og i-A
— Barnadeild
— Skurðdeild
Sjúkraliöar:
— Lyflækningadeild
— Handlækningadeild
Einnig oskast hjúkrunarfræðingar og
sjúkraliðar til sumarafleysinga.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir
nánari upplýsingar í síma 19600 frá kl.
11.00-12.00 og 13.00-14.00 alla virka daga.
Reykjavik, 26.2. 1985.
Skrifstofa hjúkrunarforstjóra.
Offsetskeyting
Offsetljósmyndari
óskast til starfa í vor eöa sumar.
Uppl. gefa Guöjón H. Sigurðsson eöa Jóhann
Karl Sigurösson i sima 96-24222.
Dagsprenthf.
Sendibílstjórar
Nokkrir sendibilstjórar meö stóra og góöa
sendibíla geta fengið stöövarleyfi á Nýju
sendibílastöðinni. Bilarnir verða aö vera meö
stórum hliðarhurðum og vörulyftu. Aörir bílar
koma ekki til greina.
Nýja sendibílastöðin,
Knarrarvogi 2, sími685000.
Húsgagnaframleiðsla
Húsgagnasmiöir — aðstoðarmenn
Viö viljum ráöa reglusama, vandvirka og
ábyggilega starfsmenn (karla eða konur) i
verksmiöju okkar, unniö er eftir bónuskerfi.
Upplýsingar veittar í verksmiðjunni aö Lág-
múla 7, Reykjavík.
áf/\ KRISTJflíl
wSIGGEIRSSOn HF.
Laust starf
Starf ritara í Fjármáladeild er laust til um-
sóknar.
Hér er um ritarastarf aö ræöa, sem felst í
almennum skrifstofustörfum og m.a. inn-
heimtu skuldabréfa.
Frekari upplýsingar og umsóknareyöublöð
hjá Starfsmannahaldi, Armúla 3, sími 81411.
SAMVINNU
TRYGGINGAR
ÁRMÚLA3 SÍMI81411
Staða hjúkrunar-
forstjóra
viö Sjúkrahús Akraness er laus til umsóknar.
Staöan veitist frá 1. maí nk.
Umsóknarfrestur er til 17. mars nk. og skulu
umsóknir sendast framkvæmdastjóra Sjúkra-
húss Akraness. Æskilegt er aö viðkomandi
hafi framhaldsmenntun í stjórnun.
Nánari upplýsingar veita hjúkrunarforstjóri
eöa framkvæmdastjóri sjúkrahússins í síma
93-2311.
Sjúkrahús A kraness.
Kjörið fyrir
diskófólkið
3
Hljóm
plotur
Siguröur Sverrisson
Ýmsir flytjendur
Lög úr kvikmyndinni Body Rock
EMI America/Fálkinn
Þá virðit enn eina tónlistar-
myndina eiga eftir að reka á
fjörur okkar íslendinga. Lög
með hinum ýmsu flytjendum úr
kvikmyndinni Body Rock hafa
nú verið fest í plast og sum
þeirra eiga vafaiítið eftir að
njóta vinsælda.
Upplýsingar um umrædda
kvikmynd hef ég engar en ef
marka má tónlistina er þetta
dans- og söngvamynd eitthvað í
ætt við Saturday Night Fever og
Grease og annað af þeim meiði.
Dansarnir og tónlistin þó vænt-
anlega fyllilega í takt við tímann
enda báðar hinar myndirnar
komnar til ára sinna.
Þau skötuhjú Nickolas Ash-
ford og Valerie Simpson, sem
nýverið hafa slegið í gegn með
laginu Solid, eiga tvö lög á plöt-
unni, en aðrir flytjendur eru
m.a. Laura Brannigan, Roberta
Flack og Maria Vidal. Hina
þekki ég lítt eða ekki enda flestir
úr röðum tónlistarmanna, sem
ég hefi lítinn gaum gefið undan-
farið. Hvað þau Ashford og
Simpson áhrærir eru þau hreint
ekki neinir nýgræðingar og ég sá
t.d. um daginn að þau eiga lag,
sem Diana Ross gerði vinsælt
1970, Reach Out. Hins vegar
hafa þau ekki reynt fyrir sér
sjálf fyrr en nýverið og þá með
þessum líka ágæta árangri.
Þótt fjöldi listamanna komi
við sögu á plötunni er öll tónlist-
in eftir sama manninn, Sylvester
Levay. Hann kemst vel frá sínu
hlutverki þótt stórt sé og lögin
eru mjög fjölbreytileg enda þótt
þau séu innan sama rammans.
Vafalítið skiptir upptökustjórn
miklu um útkomuna og þar á
Phil Ramone stóran hlut að
máli. Ég fæ ekki annað heyrt en
hér sé kjörin plata fyrir diskó-
fólkið og vafalítið á myndin eftir
að gera það gott þegar hún verð-
ur sýnd hér.