Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985 39 HOLLANDSPISTILL/Eggert H. Kjartansson Freyðibað í Rotterdam Með aukinni mengun og meiri skilningi margra á mikilvægi þess að meðhöndla umhverfi okkar með nærgætni og virðingu spretta upp ýmsar tegundir hreinsistöðva. Hreinsistöðvar sem ætlað er það hlutverk að vinna úr úrgangi framleiðslu okkar mannanna þau efni sem geta talist alvarlegur mengun- arvaldur. Ein slík hreinsistöð er að rísa í Rotterdam. Þessi hreinsistöð er á margan hátt frábrugðin þeim sem hingað til hafa verið reistar í Hollandi. Hún verður t.d. að öllu leyti byggð neðanjarðar og það undir miðri borginni. Stöðinni er ætlað það hlutverk að hreinsa allt skít- ugt vatn sem kemur frá um 500 þúsund manns. Ástæða fyrir þessari byggingu er að um þess- ar mundir rennur um 80% af öllu skítugu vatni Rotterdam- borgar óhreinsað út í fljótið Ma- as. Samanborið við aðrar borgir hér í Hollandi er þetta frekar há prósenta því að meðaltalið sýnir að aðrar borgir hér hreinsa um 80% af sínu frárennslisvatni. Byggingarframkvæmdir þessar- ar nýju stöðvar munu kosta um 3.300 miljónir króna eða um 6.600 á hvern þann einstakling sem ætlunin er að hreinsa frá. Kostnaðurinn er nokkuð meiri en ef byggingin hefði verið reist ofanjarðar. I hreinsistöðvum er ferillinn sem vatnið verður að fara í gegnum almennt mjög svipaður. Fyrst eru allar stærri einingar sigtaðar úr vatninu. Því næst fer vatnið í gegnum kerfi þar sem allur sandur sem til staðar er sest á botninn. Þessu næst er lofti dælt af miklum krafti í vatnið og við það mynd- ast mikið freyðibað. í þessum hluta er bakteríum bætt í vatnið sem nærast á úrganginum í því. Til þess að bakteríurnar geti unnið starf sitt þarf að vera gott loft til staðar. I fyrstu atrennu hreinsast um 60% af öllum óhreinindum úr vatninu. I næstu atrennu þar sem enn öðrum bakteríum er bætt í hreinsast svo til öll önnur óhreinindi út. Vatnið streymir síðan út í fljótið Maas. Úrgangurinn sem mynd- ast í þessum ferli er komið fyrir í þar til gerðum tönkum og þar gengur hann í gegnum gerjunar- feril þar sem hann er einnig hreinsaður. Þessi neðanjarðarbygging verður búin mörgum nýjungum. Þannig verður t.d. miklu fé varið í lofthreinsitæki enda þarf loftið sem notast hefur verið við að fara aftur út í umhverfið þ.e. íbúðarhverfið þarna í nágrenn- inu. Salirnir, þar sem vatnið verður hreinsað, verða einangr- aðir frá öllum öðrum vinnusvæð- um enda munu þar verða fram- leiddir um 165 þúsund rúmmetr- ar af mjög alvarlega menguðu lofti á klukkustund. Þetta lotloft verður þvegið nokkrum sinnum og á þann hátt vonast fram- kvæmdaaðilar til þess að öll óhreinindi hverfi úr því. Hvort sú ósk á eftir að rætast er svo annað mál. Þar sem ekki er vitað nákvæmlega um það hversu mengað vatnið er sem þarf að hreinsa og loftmengunin ræðst svo til algerlega af því, er bara að bíða og sjá til. Síðan í október 1983 þegar framkvæmdir hófust keyra vörubílar stöðugt inn og út úr þessum neðanjarðarhelli. Framkvæmdum verður lokið um mitt árið 1986 og þá er gert ráð fyrir því að um 90.000 hlössum hafi verið ekið út. Ofan á þakinu á þessari bygg- ingu i Dokhaven í Rotterdam verður búinn til garður fyrir íbú- ana sem er svipaður á stærð og fótboltavöllur. Metraþykkt jarð- lag verður sett þar og þar munu blóm, grös og trjágróður skjóta rótum. Þegar framkvæmdum verður lokið mun ekkert minna á hreinsistöð nema lítil bygging ofanjarðar og 12 hlerar á göng- um sem ætlað er það hlutverk að vera flóttaleið starfsmanna þessarar stöðvar, ef þeir þurfa snögglega að flýja. RITVIHH5LA Yfír 600 manns hafa þegar sótt rítvinnslunámskeið okkar. A næstunni verða haldin eftirfarandi námskeið: • Word • Easywriter II • Wordstar (Ritvinnsla II) • Hugriti • Appleworks Upplýsingar og skráning í síma 82930 ATh! Starfsmannafélag Reykjavíkur, Starfsmenntunarsjóö- ur starfsmannafélags ríkisstofnana og Verslunarmannafélag Reykjavíkur styrkja félagsmenn sína til þátttöku á þessum námskeiöum. STJÓRNUNARFÉLAG ISLANDS IIKo23 fltofgtittirljiMfr Metsölublad á hvetjum degi! Dominova húsgögn Með ótal mögu- leikum má byggja upp að eigin vild Smíðuö úr massívri furu meö hvítlökkuöum hliö- um og baki. Þessi hús- gögn eru jafnvönduö og þau eru glæsileg. Verðiö ótrúlega hagstætt. Hér á vel viö aö segja: „Lengi býr aö fyrstu gerð“. . . . TlMABÆR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.