Morgunblaðið - 05.03.1985, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLADIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1986
In memoriam:
Ragnheiður Boga-
dóttir frá Búðardal
Látin er í Reykjavík, eftir mjög
langdregin og seigdrepandi veik-
indi, amma mín Ragnheiöur Boga-
dóttir, fyrrum húsfreyja á
Frakkastíg 6A hér í bæ. Við vor-
um á tímabili farin að halda að
Almættið hefði hálfvegis gleymt
þessu örveika skari, sem hélt
áfram að blakta daufum loga
hvert árið af öðru, í rauninni
löngu hætt að lifa og þó án þess að
geta dáið. Sem betur fer reyndist
það þó ekki vera svo.
Það er síst að taka of djúpt í
árinni, þótt sagt sé um ömmu, þar
sem hún þreyði sína löngu sjúk-
dómslegu, að þar færi kona, sem
muna mætti sinn fífil fegri. Hún
fæddist vestur í Búðardal hinn 27.
ágúst 1901 og voru foreldrar henn-
ar hjónin Ragnheiður Sigurðar-
dóttir Johnsen frá Flatey á
Breiðafirði og Bogi Sigurðsson,
bóndi og kaupmaður í Búðardal.
Ragnheiður Johnsen var dóttir
Sigríðar Brynjólfsdóttur Bogason-
ar Benediktsen í Flatey og manns
hennar Sigurðar Johnsen, kaup-
manns í Flatey. Bogi, maður henn-
ar, var sonur Sigurðar Finnboga-
sonar, bónda á Sæunnarstöðum í
Hallárdal, og konu hans, Elísabet-
ar Björnsdóttur. Hann rak verslun
{ Búðardal og búskap á Fjósum.
Þau Ragnheiður eignuðust fjögur
börn er upp komust, en þau eru nú
öll látin. Elstur var Jón, bryti á
Dettifossi. Hann fórst þegar skip-
inu var sökkt í hafi í febrúarmán-
uði 1945, átti fyrr Þórdísi Finns-
dóttur og síðar Friðmeyju Ósk
Pétursdóttur. Jón var barnlaus, en
þau Þórdís ættleiddu dreng
nýfæddan, Ólaf Jónsson, blaða-
mann á Þjóðviljanum. Næstelst
var Sigríður Bogadóttir, gift Jóni
Halldórssyni, söngstjóra Fóst-
bræðra. Þau eignuðust eina dótt-
ur, Ragnheiði J. Ream, listmálara.
Næstyngst var Ragnheiður, sem
hér er minnst, og yngstur Sigurð-
ur Bogason, bæjarskrifstofustjóri
í Vestmannaeyjum, átti Matthildi
Ágústsdóttur, sem lifir mann
sinn, og með henni sjö börn, þau
Guðrúnu, Ragnheiði, Boga, Hauk,
Þórdísi, Þorstein og Sigurð.
Frá Búðardal átti amma góðar
og skemmtilegar minningar. Það
þurfti enginn að láta sér leiðast í
fjörunni niðrundan kaupmanns-
húsinu. Stundum fóru börnin inn
til pabba síns, þar sem hann sat í
þykku skýi af vindlareyk að yfir-
fara óskiljanlega reikninga og yf-
irskilvitleg fylgiskjöl. Þegar þau
báðu um brjóstsykur, máttu þau
einlægt fá þrjá mola. Brjóstsykur-
inn var geymdur í háum, sívölum
stömpum úr blikki. Svo var aftur
farið niður í fjöru að fleyta kerl-
ingar á sjónum ellegar tína skelj-
ar og kuðunga. Stundum beit
krabbi í tána á manni. Eða maður
datt af baki á honum Rauð.
Amma missti móður sína, þegar
hún var tíu ára. Ragnheiður John-
sen lést 5. október 1911, aðeins 44
ára að aldri. Hún þjáðist af hja-
rtveiki og leitaði sér lækninga
bæði í Reykjavík og í Kaupmanna-
höfn, þaðan sem hún skrifaði
ömmu mjög fallegt og vel stílað
bréf, sem amma geymdi alla ævi
síðan. Ragnheiður var mjög fögur
kona.
Bogi kvæntist öðru sinni hinn 3.
júní 1913 frænku sinni, Ingibjörgu
Sigurðardóttur, kennslukonu,
dóttur hjónanna á Kjalarlandi í
Vindhælishreppi í Austur-Húna-
vatnssýslu. Bogi og Ingibjörg voru
systrabörn. Ingibjörg hafði numið
í Kvennaskólanum á Ytri-Ey og í
Reykjavík og kenndi börnum í 11
vetur um og eftir aldamótin, þar
af 4 vetur í Höskuldsstaðasókn.
Hún kenndi við Kvennaskólann á
Blönduósi 1908 til 1913. Þá gekk
hún að eiga Boga i Búðardai og
reyndist stjúpbörnum sínum fjór-
um hin besta móðir og naut mikils
ástríkis af þeim. Þau Bogi ólu upp
dótturson hans, Boga Þorsteins-
son, flugumferðarstjóra á Kefla-
víkurflugvelli.
Ragnheiður Bogadóttir flutti
ung til Reykjavíkur og nam
tannsmíðar; starfaði við þá grein
um hríð. Hinn 8. janúar 1921 gift-
ist hún afa mínum, Gunnari
Ólafssyni, læknabílstjóra, syni
Ólafs kaupmanns Ásbjarnarsonar
frá Innri-Njarðvík og Vigdísar
Ketilsdóttur hreppstjóra og
dannebrogsmanns Ketilssonar i
Kotvogi í Höfnum. Afi fæddist
hinn 18. febrúar 1891, nú nýorðinn
94 ára og dvelur í góðu yfirlæti hjá
dóttur sinni og tengdasyni í
Kvistalandi 19 í Reykjavík. Hann
var bifreiðarstjóri í 60 ár og öku-
kennari, en lærði í öndverðu hús-
gagnasmíði hjá Jóni Halldórssyni
og co. á Skólavörðustíg 6, lauk
prófi í þeirri grein 1913. Afi ók
læknabílnum af helgri köllun, tók
starf sitt alvarlega og var vinsæll
mjög af næturlæknunum, enda
mun hann hafa séð svo til, að þeir
sofnuðu ekki á verðinum. Við síð-
ustu talningu reyndust góðkunn-
ingjar afa í læknastétt 86 talsins,
flestir dauðir nú.
Afi heldur því fram, að Ingi-
björg hafi sent Boga suður, þegar
fréttist um samdrátt þeirra
ömmu, að skoða gripinn. Þeim
tengdafeðgum samdi óðara vel og
eitt er víst, að þegar Ingibjörg frá
Búðardal flutti suður eftir að hafa
verið ekkja fyrir vestan í 12 ár
(það var árið 1942) þá vildi hún
hvergi annars staðar vera en hjá
Ragnheiði og Gunnari á Frakka-
stígnum og var henni þar búið
virðulegt ævikvöld. Hún geymdi
dýrgrips, styttu af tré, sem lengi
var talin mynd Ólafs helga Nor-
egskonungs og hétu menn á stytt-
una sér til árs og friðar; loguðu
ljós fyrir styttuna dag og nótt að
kalla, og það jafnt fyrir því, þótt
afi væri manna eldhræddastur.
Síðar gerði Kristján Eldjárn þá
uppgötvun, að myndin væri þriðji
parturinn af helgimynd af heil-
agri þrenningu, föður, syni og
heilögum anda. Hún er nú geymd í
Þjóðminjasafni í heillegri mynd.
Afi ávarpaði tengdamóður sína
aldrei öðru vísi en frú Ingibjörgu,
póstmeistara og símstöðvarstjóra
frá Búðardal, en hún sparaði ekki
titlatogið að sínu leyti og kallaði
afa herra næturlæknabílstjóra
ólafsson. Frú Ingibjörg lést hinn
5. október 1970.
Afi og amma eignuðust fimm
myndarleg börn, Jóhönnu (lést 12.
janúar 1985), Ingibjörgu, Ragn-
heiði, Elísabetu og Olaf. Þau
reyndust hvort öðru vel og var
heimili þeirra jafnan mikil miðst-
öð mannfunda í þessari stóru fjöl-
skyldu og frá því stafaði blessun,
sem margir urðu aðnjótandi, svo
skyldir sem óvandabundnir. Þau
voru alltaf fundvís á það, sem öðr-
um kom vel, hvort heldur voru
börn eða fullorðnir. Margir þeirra,
er nú hjara, eiga fagrar og góðar
minningar af Frakkastfgnum og
sumarbústaðnum góða við Hólms-
árbrú. Þeim var lagið að vekja í
kringum sig stemmningu, sem var
einkar heilnæm og traustvekjandi
fyrir unga drengi og stúlkur. Áður
hafði afi eignast dóttur, Huldu.
Amma bar alla tíð með sér góð
ummerki uppruna síns. Hún hafði
mikið yndi af fögrum listum og
bar með sér þetta aristókratíska
yfirbragð, sem verður til í góðum
húsum. Hún var orðvör og með af-
brigðum umtalsgóð, en hafði þó
kímnigáfu í besta lagi. Ég heyrði
hana aldrei leggja nema gott til
manna og málefna og hún hafði
kórrétta lífsskoðun að mínu viti;
ég var ekki hár í loftinu, þegar
hún kenndi mér bænir og vers.
Hún hafði sérstakt uppáhald á
bænarversi síra Hallgríms Pét-
urssonar: Hveitikorn þekktu þitt/
þá upprís holdið mitt/ í blindni
barna þinna/ blessun láttu mig
finna.
Ógleymanleg eru kvöldin á
Frakkastígnum, þegar við sátum
inni í stofu að hlusta á útvarpið.
Amma hafði mikið uppáhald á
Þorsteini Ö. Stephensen og MA-
kvartettinn var eftirlætis söng-
grúppa hennar, eins og sagt væri
nú á dögum.
Sjálfur ólst ég upp hjá afa og
ömmu, þangað til ég var á fjórða
árinu og foreldrar mínir gengu í
hjónaband og stofnuðu heimili.
Fyrir allt hið góða atlæti þeirra og
hlýhug í minn garð, bæði þá og
síðar æ, vil ég nú þakka heitu
hjarta.
Mér fannst amma mjög
skemmtileg kona. Og ég held að
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLl skal vakin á því, að
afmælLs- og minningargreinar
verða að berast blaöinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast i í miöviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. í
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
t
Móöir okkar,
ÓLÖF HALLDÓRSDÓTTIR
frá Miövík,
Steinageröi 14, Reykjavfk,
lést i Öldrunardeild Borgarspitalans föstudaginn 1. mars.
Börn.
t
Móöir min, tengdamóöir og amma,
HALLBJÖRG INGVARSDÓTTIR,
lóst i Hafnarbúöum laugardaginn 2. mars.
Árni I. Magnússon, Guöfinna Gissurardóttir,
Jón A. Árnason, Sigurveig Björgólfsdóttir,
Halla Margrét Árnadóttir.
t
Móöir okkar,
GUÐRÚN EYJÓLFSDÓTTIR,
lést á Sólvangi, Hafnarfiröi, 3. mars sl.
Lilja Eygló Karlsdóttir,
Sigrföur Karlsdóttir,
Ingigeröur Karlsdóttir,
Ingibjörg Karlsdóttir.
Systir okkar t GUDBJORG INGVARSDÓTTIR
frá Klömbrum,
Austur-Eyjafjallahreppi,
lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund þann 3. mars. ,
Brssöur hinnar látnu.
t
Eiginkona min, móðir og tengdamóöir,
KRISTÍN ÓLAFSDÓTTIR,
Vesturgötu 37,
lést aö Hrafnistu sunnudaginn 3. mars.
Oddur Oddsson,
Gunnar Oddsson, Erna Magnúsdóttir
og fjölskylda.
t
STURLA STEINDÓR LAMBERT STEINSSON,
lést hinn 1. mars.
Aóstandendur.
t
Sonur okkar og bróöir,
EINAR ÞÓR AGNARSSON,
lést þann 1. mars.
Elfnborg Þórarinsdóttir,
Agnar Einarsson,
Ævar Agnarsson,
Ragnar K. Agnarsson,
Erna Agnarsdóttir.
t
Eiginmaöur minn, faöir, tengdafaöir og afi,
JENS HÓLMGEIRSSON,
Kleppsvegi 10,
lóst 1. mars.
Olga Valdimarsdóttir,
Anna Jensdóttir, Siguróur Jónsson
og barnabörn.
Eiginmaöur minn. t HÁLFDANHELGASON, bifvélavirki, Fálkagötu 25, Reykjavfk,
lóst 2. mars sl. Þórdfs Hansdóttir.
Faöir okkar. t INGVAR PÁLMASON, skipstjóri, Barmahlfð 20, Reykjavfk,
lóst 2. mars sl. Auöur Ingvarsdóttir, Pálmi Ingvarsson, Siguröur Ingvarsson.