Morgunblaðið - 05.03.1985, Qupperneq 44
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1985
„Meira — meira — meira“
Sé hlustað eftir óskum fólks
og litið yfir land og borg verður
yfirskrift þessarar greinar „við
gluggann" eins og bergmál alls
staðar.
Kröfur eru gerðar allt frá hin-
um lægst launuðu til hinna
hæstu í þrepum eða turnum
magns og mennta.
Minnst er á neyð meðal
margra, þótt vart finnist skort-
ur, nema þar sem efnislegt og
andlegt eitur hefur náð öllum
völdum á vegi einstaklingsins.
Við, þetta svonefnda eldra
fólk, sem höfum lifað tíma
tveggja heimsstyrjalda og til
viðbótar bæði örbirgð og at-
vinnuleysi, erum oft undrandi
yfir öllum kröfum og engum
þökkum hinnar háskólamennt-
uðu kynslóðar nútímans á okkar
ágæta landi.
Satt að segja höfum við um
áratugi bókstaflega lifað guð-
spjallið um mettun þúsundanna
í auðninni forðum. Það varð enn
kveikjan að þessum hugleiðing-
um mínum, þegar það kvaddi sér
hljóðs í kirkjum á föstunni.
Sannarlega er það orðum ofar,
hve íslenzkt þjóð nýtur nú og
hefur notið lengi mikillar hag-
sældar. En aldrei skyldi samt
gleymast áminning Meistarans
að veizlunni lokinni:
Takið saman leifarnar, sem
afgangs eru, svo að ekkert fari
til ónýtis."
Það hefði nú líklega verið rök-
rænna að hugsun þeirra, sem
taka söguna bókstaflega um
„mat af hirnni" handa fimm þús-
undum, að Jesús hefði sagt og
þeir hugsað á þessa leið:
„Uss, verið ekki að hugsa um
þessa mola og fisktætlur. Ég bý
til nógan mat úr skýjum, grasi
og grjóti næst þegar okkur van-
hagar um veizluföng."
Nei, mannvinurinn miklu frá
Nazaret hélt sig alltaf við veru-
leikann, að ekki sé sagt hvers-
dagsleikann á lífsbraut sam-
ferðafólks og mannkyns alls,
þótt hann notaði táknrænar
myndir til að greipa hugsjónir
sínar í vitund og hjörtu vina
sinna. Þess vegna eru kenningar
hans kröftugar og lifandi um all-
ar aldir, meðal allra þjóða, sem
njóta þeirra.
Væri því ekki full ástæða til
að hyggja að þessari áminningu
einmitt nú á þessum tímum alls-
nægtadjúpsins og offramleiðsl-
unnar i stað þess að hrópa
„meira, meira, meira“, allt frá
skipum úti á hafi til háskóla í
landi?
Svo mikils virði, sem verkföll
gátu verið í neyð, geta þau orðið
gagnslaus og ógeðsleg í verð-
þensluvanda nútímasamfélags-
ins, þar sem allir ættu að þakka
allt, sem unnist hefur á þessari
öld.
Gleyminn hlýtur þessi gáfaða
þjóð að vera á staðreyndir sinn-
ar eigin lífsreynslu, þar eð ekki
eru liðin fimm ár síðan allmarg-
ir, já, flestir voru milljónamær-
ingar í landinu. Allt var blekk-
ing og skrípaleikur. Eyririnn
gerður að krónu eða öfugt. Allt
gull horfið og að engu gert og
við
gluggann
eftirsr. Árelíus Nielsson
núllin farin að ræna sálirnar
sannleiksást og manngildi. Væri
því ekki rétt að nema staðar og
líta fyrst í eigin barm og hætta
að hrópa „meira" I skugga öf-
undar og græðgi? Gera fyrst og
fremst kröfu á eigin hag og hönd
og heimta sem minnst af öðrum.
Þar er enn hægt að vitna í heilög
fræði, sem minna á helgustu
dyggð íslensku þjóðarinnar um
aldir örbirgðar:
„Gleymum ekki gestrisninni.
Á hennar vegum hafa margir
óafvitandi hýst engla."
Og þó ekki síður:
„Takið eftir hvernig fyrir yður
fer. Þér sáið miklu, en safnið
litlu. Etið en verðið aldrei sadd-
ir, drekkið, en þyrstir sífellt
meira, klæðist en er þó aldrei
hlýtt og launin leggið þér í
botnlausa pyngju."
Það er vandi að vera ríkur, svo
að gnægðin geri ekki góðan
dreng að álfi eða apa. Sumir
missa auð sinn bókstaflega í
greipar þjófa og svikara. Það er
vont.
Annað getur verið enn verra.
Þar má nefna veizlur með svign-
andi borð handa söddu fólki, svo
heilar þjóðir glata lífskrafti sín-
um í offitu, sem skapar heilsu-
leysi og feigð fyrir tímann.
Það mætti meira að segja
minna á bifreiðir með mjúkum,
djúpum sætum, sem ræna eig-
endur sína orku og æsku löngu
fyrir tímann og gera þá að
makráðum vesalingum á bezta
blómaskeiði.
Svipað geta jafnvel hús og
hallir, sem miða allt við óhóf og
þægindi, verkað eigendum sínum
til handa.
Samt mætti segja, að þetta
væru smámunir einir í saman-
burði við ofdrykkju og eitur-
neyzlu, þar sem óhóf og græðgi
rænir aurum út um göt hinnar
vönduðustu leðurpyngju.
Og það sem vinnst er eyðing
líkama og sálar, einkum hinna
beztu, fallegustu og fíngerðustu,
einkum kvenna, síðan þær fóru
að apa eftir körlum alla helztu
heimsku þeirra, ekki sízt reyk og
drykk. Lungun, lifrin og hjartað,
já, allt hið fíngerðasta, lífræn-
asta og dýrmætasta í lífsmagni
líkamans að heilanum, sjálfum
bústað sálarinnar meðtöldum,
allt fer þetta sömu leið og aur-
arnir — týnist, glatast, óðar en
varir.
Hættum því hrópunum
„meira, meira, meira", unz vel
hefur tekizt að safna saman leif-
um þeirra allsnægta, sem við
höfum til að byggja fegri heim,
heilsusamlegt mannlíf, án óhófs
og græðgi. Hyggið að gjöfum til
Eþíópíu. Þar er fyrirmyndin.
Burt með eiturneyzluna og
allt, sem af henni leiðir, svik,
þjófnað, innbrot og árásir.
Þar verður að „stemma á að
ósi“. Þeir, sem hafa sýnt sig sem
afbrotamenn á vegum eiturs
verða að teljast sjúklingar undir
ströngu eftirliti á þar til gerðum
stofnunum.
Þar þarf enga sérstaka refsi-
dóma, heldur algjört eftirlit,
auðvitað með prófum eða prófun
á sjálfstjórn.
Það verður að gæta þeirra sem
óvita eða smitsjúklinga, unz þeir
og þær — því þarna eru konur
einnig á ferð — geta sannað
manngildi sitt til starfs og lífs í
samfélaginu að nýju.
Fíknilyfin og þau áfbrot, sem
þau hafa í för með sér, eru nú að
verða ægilegasta bölið á vegum
auðugra þjóða, næst sjálfri
atómsprengjunni og vopnakapp-
hlaupinu.
Þar eru hrópin: „Meira, meira,
meira" að verða hin óvissa dauð-
ans leið. Þar verður að vernda
íslenzka æsku. Hún er nú ennþá i
allri sinni fæð hreinasta gull
manngiidis og drengskapar í víðri
veröld. Megi svo æ verða um ald-
ir.
Rvík, 28. febr. 1985.
Axel Thorsteins-
son — Minningarorð
Fæddur 5. mars 1895
Dáinn 3. desember 1984
Nú í tilefni þess að 90 ár eru
liðin frá fæðingu Axels Thor-
steinssonar vil ég minnast hans t
fáeinum orðum. Hann fæddist 5.
mars 1895 í Reykjavík og var son-
ur hjónanna Birgittu Guðríðar
Eiríksdóttur og Steingríms
Thorsteinssonar skálds. Þau áttu
saman sex börn og var Axel yngst-
ur þeirra. Var snemma ætlun Áx-
els „að íslensk sveit skyldi verða
vettvangur ævistarfsins“ eins og
hann sjálfur komst að orði og um
tvítugsaldur lauk hann búfræði-
námi frá bændaskólanum á
Hvar.neyri í Borgarfirði. En það
fór á annan veg og starfaði hann
lengstum við frétta- og blaða-
Fædd 1. ágúst 1902
Dáin 25. febrúar 1985
Frænka mín, Ágústa Þórðar-
dóttir frá Súgandafirði, er látin,
hún lést á Hrafnistu þann 25.
febrúar sl.
Það eru svo ótal margar minn-
ingar sem leita á hugann þegar ég
minnist Gústu, eins og hún var
alltaf kölluð. Hún fæddist í Súg-
andafirði 1. ágúst 1902, var næst-
elst sex barna sæmdarhjónanna
Sigríðar Einarsdóttur og Þórðar
Þórðarsonar hreppstjóra og sím-
stjóra um árabil. Hún ólst upp í
föðurhúsum og vann alla vinnu,
sem til féll, var dugleg og hraust
að hverju sem hún gekk. Hún gift-
ist Gísla Maríassyni frá Súganda-
firði þann 20. september 1924 og
eignuðust þau fjögur börn. Hans-
ínu, gifta Niels Guðmundssyni,
búsett á ísafirði, Þórð Ástvin, lést
ungur, Hrein, giftist Ásbjörgu
fvarsdóttur, þau skildu, og Herdísi
mennsku hjá Vísi, Morgunblaðinu
og útvarpinu. Var hann einn af
frumkvöðlum á því sviði hérlendis
og vann það starf vel. Axel var
eins og faðir hans skáld gott og
samdi hann margar sögurnar og
ljóðin, einnig fékkst hann mikið
við þýðingar og gaf út tímaritið
Rökkur sem innihélt Ijóð hans og
sögur, bæði frumsamdar og þýdd-
ar.
En sérstaklega vil ég þó hér
minnast Axels sem góðs vinar
míns og minnar fjölskyldu, vinar
sem hélt við okkur tryggð og
reyndist okkur alltaf vel þau tæpu
tuttugu ár sem við þekktumst.
Sem eitt dæmi af mörgum um
tryggð hans og hlýhug fannst mér
vera það hversu annt hann lét sér
um velferð mína þegar ég fyrir ári
Guðrúnu. Hjónaband þeirra
Gústu og Gísla var mjög gott, þau
voru einstaklega samhent og mikl-
ir vinir. Það var þung raun fyrir
þau, þegar Þórður sonur þeirra
lést, aðeins 18 ára gamall, mikill
efnispiltur, hafði þá nýlokið prófi
frá Núpsskóla. Ég held, að sú sorg
hafi markað djúp spor í sálarlíf
hennar.
Gústa var einstaklega félags-
lynd og glaðsinna kona, hafði
gaman af að skarta íslenska bún-
ingnum og vera vel klædd. Hún
tók virkan þátt í starfi kirkjukórs-
ins og var dugleg félagskona í
kvenfélaginu Ársól, þar sem hún
var í stjórn um árabil. Hún var
ætíð reiðubúin að baka ef halda
átti kaffisölu eða réttarkaffi, og
voru vel þekktar „Gústukleinurn-
ar“. Hún var ákaflega gjafmild og
rausnarleg heim að sækja, hafði
gaman af að hekla og prjóna og
mörgum hosum og vettlingum var
laumað í litla lófa. Ég á margar
lá á fæðingardeild Landspítalans
og var að fæða mitt fyrsta barn.
Þá var honum farið að hraka
heilsan, en ekki var hann þó að
telja það eftir sér að líta inn til
mín, huga að líðan minni og skoða
litla strákinn minn, og svo aftur
um vorið eftir að ég var komin
heim, en það var þá í síðasta
skiptið sem við hittumst.
Axel var hæglátur maður og
friðsamur, gætinn í orði og hallaði
aldrei á nokkurn mann. Gott var
að fara í heimsókn til hans á
Flókagötuna, þar leið manni vel og
var gaman að heyra hann segja
frá, hvort sem það var úr sögunum
hans eða frá liðnum atburðum.
Sjaldan fór ég þaðan burt án þess
að hann gæfi mér bók eða bækur
að skilnaði, bækur sem mér þykir
vænt um að eiga og lesa. Áxel
sagði mjög skemmtilega frá og
bera sögur hans og ljóð þess vitni
hve næmt auga hann hafði fyrir
því sem fagurt er og gott, hvort
sem um var að ræða eitthvað sem
góðar minningar um þessa frænku
mína, frá því ég var að alast upp í
næsta húsi. Faðir minn og Gísli
áttu saman tún og kartöflugarð,
svo það varð hlutskipti okkar
systkinanna að vinna mikið með
þeim hjónum og voru þau alltaf
reiðubúin að leiðbeina okkur.
Gústa var mjög árrisul kona. Ef
hún þurfti að vinna einhver stærri
verk var hún oftast langt komin
þegar aðrir voru að vakna. Hún
var mikil vinkona móður minnar,
vildi allt fyrir hana gera, skulu
henni færðar alúðarþakkir fyrir
það sem hún var henni.
snart menn og dýr eða náttúru
landsins.
Að lokum vil ég þakka Axel
kærlega fyrir hlýhug hans og vin-
áttu með óskum um velfarnað í
nýjum heimkynnum. Þykir mér
vel við hæfi að hér sé birt eitt af
Þau Gústa og Gísli fluttu til
Reykjavíkur árið 1966 og keyptu
íbúð á Leifsgötu 27. Með þeim
flutti þá móðir Gústu, Sigríður, þá
háöldruð, var hún á heimili þeirra
meðan hún lifði og naut mikillar
umhyggju þeirra. Þau bjuggu með
Herdísi og Gísla syni hennar á
Leifsgötunni, var sú sambúð til
mikillar fyrirmyndar, því Dísa
hugsaði einstaklega vel um for-
eldra sína.
Fyrir þremur árum fluttu þau á
Hrafnistu, þar sem Dísa fylgdist
með þeim af ástúð og umhyggju.
Ég veit að hún varði mestu af frí-
tíma sínum til að vera með þeim
og gleðja þau.
Mig langar til að færa Gústu
sérstakar þakkir frá Þórði, syni
mínum, sem hún fylgdist svo vel
með og gladdi á svo margan hátt.
Góð kona er horfin yfir móðuna
miklu, ég veit að heimkoman verð-
ur góð. Við sendum Gísla og öllum
aðstandendum innilegar samúðar-
kveðjur.
Guð blessi minningu góðrar
konu.
„Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
Stína
ljóðum hans sem hann orti ungur
og ber nafnið „Bæn“. Finnst mér
ljóðið sýna þá ósk hjá Axel að
hann hafi viljað láta sem best af
sér leiða í lífinu, ósk sem varð að
veruleika.
Lífsins faðir, lát mig finna
Ijóss þíns magn í sál og hjarta,
finna hita handa þinna,
hingað gegnum skugga svarta.
Lát mig finna lífsins gleði
Ijúfa og sanna í trú og verki;
auktu von í veiku geði,
vertu hjá mér, þú, hinn sterki.
Lífsins herra! Lát mig deyða
lágar hvatir sálar minnar,
láttu trú í sál mér seiða
sólskin, blíðu ástar þinnar.
Gef mér kraft að kremja ið lága
kross þíns sonar helgan við;
gef mér styrk að steypa og fága
stoðir lífs míns. Veit mér lið.
Veit mér lið og ljóss þíns bjarma
láttu signa hverja þrá,
svo ég fái huggað harma
hvers og eins, er sorgir þjá;
svo eg bræðum mínum megi
miidi þinni segja frá.
Faðir! Þeim að vera á vegi
varða lítil er mín þrá.
A.Th. 1921.
Hrefna Sigríður Bjartmannsdóttir
Birting
afmœlis- og
minningar-
greina
ATHYGLI skal vakin á því, að
afmælis- og minningargreinar
verða að berast blaðinu með góð-
um fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði, að berast í síðasta lagi
fyrir hádegi á mánudag og hlið-
stætt með greinar aðra daga. f
minningargreinum skal hinn
látni ekki ávarpaður. Þess skal
einnig getið, af marggefnu til-
efni, að frumort Ijóð um hinn
látna eru ekki birt á minningar-
orðasíðum Morgunblaðsins.
Handrit þurfa að vera vélrituð og
með góðu línubili.
Minning:
Ágústa Þórðardóttir
frá Súgandafirði