Morgunblaðið - 01.06.1985, Síða 1
56 SÍÐUR OG LESBÓK
STOFNAÐ 1913
121. tbl. 72. árg.____________________________________LAUGARDAGUR 1. JÚNÍ 1985_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Grísku þingkosningamar:
Caramanlis
varar við
sósíalistum
AP/Símamynd
Hermadur úr liði shíta heldur á lítilli Palestínustúlku og nokkur börn Palestínumanna koma upp úr sprengjubyrgi
eftir að shítar náðu Sabra-flóttamannabúðunum í Beirút á sitt vaid í gsr.
Shítar hertóku Sabra-búðimar í Beirút:
Sýrlendingar í
viðbragðsstöðu
Beirút, 31. maí. AP.
Aþenu, 31. maí. AP.
CONSTANTINE Caramanlis, fyrr-
um forseti Grikklands, sagði í dag
að úrslit þingkosninganna í landinu
á sunnudag gætu leitt nýjar hættur
yfir þjóðina. Hvatti hann kjósendur
til að vera á varðbergi.
Ljóst er að með þessum orðum
er Caramanlis að vara menn við
að greiða Sósíalistaflokki Pap-
andreous forsætisráðherra at-
kvæði og hafa ummæli hans vakið
mikla athygli.
Það var afsögn Caramanlisar í
marsmánuði sem varð þess vald-
andi að boðað var til kosninga.
Caramanlis. sem er 78 ára að
aldri, er einn reyndasti og virtasti
stjórnmálaleiðtogi Grikkja.
Sjá: „Umræða um heilsufar
Papandreous", á bls. 24.
Vítaspyrnan
í Briissel:
Fyrirfram
ákveðin?
BrtiHHpl, 31. maí. AP.
BELGÍSKA ríkissjónvarpið kvaðst í
dag hafa traustar heimildir fyrir því,
að fámennur hópur embættismanna
hafi ákveðið að láta dæma víti á Liv-
erpool í hinum sögulega leik á móti
Juventus í Bríissel á miðvikudag, til
þess að koma í veg fyrir frekari
óspektir á knattspyrnuvellinum.
Vítaspyrnan, sem Juventus fékk,
leiddi til þess að liðið sigraði í
leiknum og vann í fyrsta sinn Evr-
ópukeppni meistaraliða.
Ákvörðun dómarans um að
dæma vítið á Liverpool er afar um-
deild óg kvikmyndir, sem teknar
voru á vellinum, leiða ekki í ljós að
fyrir því hafi verið nein ástæða.
Andre Daina, svissneski dómar-
inn sem dæmdi vítið á Liverpool,
hefur vísað fréttinni á bug. Hann
segir að þetta séu svívirðilegar að-
dróttanir, sem eigi sér enga stoð í
veruleikanum.
EITT helsta vígi skæruliða
Palestínumanna í Beirút,
Sabra-flóttamannabúðirnar, féll í
dag í hendur hermanna shíta. Bar-
dagar höfðu staðið um búðirnar í
tólf daga. Herma fregnir að shítar
hyggist jafna búðirnar við jörðu og
hafi þegar byrjað að sprengja þær
upp.
Frá Bekaa-dal, sem er í um 50
km fjarlægð frá Beirút, berast
þær fréttir, að herlið Sýrlendinga
þar sé í viðbragðsstöðu. Þykir
þetta renna stoðum undir getsakir
um að Sýrlendingar hafi fallist á
að fara með her inn í Beirút og
skakka leikinn þar. Amin Ge-
mayel, forseti Líbanons, kom í dag
frá Damaskus þar sem hann
ræddi við Assad Sýrlandsforseta
og er talið að hann farið fram á
hernaðaraðstoð.
Ekki er vitað hve margir féllu í
átökum um Basra í dag, en út-
varpsstöðvar í Beirút sögðu að 80
skæruliðar Palestínumanna hefðu
verið skotnir til bana er þeir
reyndu að flýja búðirnar í dögun.
Þá er talið að shítar hafi handtek-
ið 30 Palestínuskæruliða er búð-
irnar féllu. Talsmenn Rauða
krossins í Beirút sögðu að hjálpar-
sveitir biðu fyrir utan Sabra eftir
staðfestingu á því að bardögum
væri hætt. Þegar hún fengist færu
þær inn í búðirnar til að líkna
særðum.
Árás á
þorp í
Pakistan
Islanubad, 31. maí. AP.
HERÞOTIIR Afgana vörpuðu í dag
sprengjum á þorpið Sweer í Pakistan
og herma fregnir að a.m.k. tíu
manns hafi látið lífið.
Sweer er skammt frá landa-
mærum Afganistan. Sovétmenn
og hermenn leppstjórnar þeirra í
Kabúl hafa undanfarna daga
haldið uppi öflugri sókn gegn and-
spyrnuhreyfingu Afgana í Kun-
ar-héraði, sem liggur að landa-
mærum Pakistan og er markmið
þeirra að loka fyrir leynilega
flutninga á vopnum og vistum til
andspyrnumanna frá Pakistan.
Englendingar verða ekki
með í næstu Evrópukeppni
BriÍKNe! og Lundúnum, 31. maí. AP.
ENSKA knattspyrnusambandið hef-
ur ákveðið að knattspyrnulið frá
Englandi taki ekki þátt í Evrópu-
keppninni í knattspyrnu á næsta
keppnistímabili. Núverandi keppn-
istímabili lauk á Heysel-velli í
Briissel á miðvikudag, en þar urðu
hinír hörmulegu atburðir, sem leitt
hafa til þessarar ákvörðunar.
„Þetta er hræðilegsta ákvörðun,
sem ég hef orðið að taka,“ sagði
Bert Millichip, formaður enska
knattspyrnusambandsins, er
hann hitti fréttamenn eftir að
hafa átt fund með Margaret
Thatcher, forsætisráðherra.
Thatcher segir, að hún telji þessa
ákvörðun rétta og sé sannfærð
um, að breska þjóðin sé sömu
skoðunar.
Samþykkt knattspyrnusam-
bandsins tekur til allra liða á
Englandi, en ekki til knattspyrnu-
liða annars staðar á Bretlandseyj-
um og ekki heldur til landsliðsins,
sem nú er að keppa í Mexíkó.
Áður en tilkynnt var um
ákvörðun enska knattspyrnusam-
bandsins hafði John Smith, for-
maður Liverpool, greint frá því að
liðið tæki ekki þátt í Evrópu-
keppninni á næsta keppnistíma-
bili.
Ríkisstjórn Belgíu ákvað í dag,
að banna öllum breskum knatt-
spyrnuliðum, jafnt atvinnu-
mönnum sem áhugamönnum, að
keppa á belgískri grund um
óákveðinn tíma. Það var Wilfreid
Martens, forsætisráðherra Belgíu,
sem skýrði frá þessu eftir fund
ríkisstjórnar landsins i morgun,
þar sem atburðurinn á Heysel-
velli var til umræðu.
Rannsókn á kvikmyndum sem
teknar voru á knattspyrnuvellin-
um hefur nú leitt í ljós, að maður,
sem talinn er vera ítalskur,
hleypti af skammbyssu á lög-
reglumenn, sem voru að kljást við
óeirðaseggi á vellinum. Saksókn-
arinn í Brussel hefur staðfest að
** v y. — watasg
AP/Slmamynd
Bert Millichip, formaður enska knattspyrnusambandsins (Lv.), og Ted Crok-
er, ritari sambandsins, koma á fundinn þar sem ákveðið var aö Englend-
ingar tækju ekki þátt í Evrópukeppni meistaraliða á næsta keppnistímabili.
fundist. hafi notuð skothylki úr
neyðarbyssu á sama stað á vellin-
um og myndin sýnir manninn
hleypa af skoti. Skothylki úr ann-
arri tegund byssu hafa einnig
fundist annars staðar á vellinum.
Sjá: „Einnar minútu þögn ... “ á
bls. 24.