Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.06.1985, Blaðsíða 44
44 MORGUNBLAÐIf), LAUGARDAGtJR 1. JÚNÍ Í9Ö6 HÆTTU AÐ REYKJA FRAMMI FYRIR ALÞJÓÐ FYRIR ÁTTA ÁRUM JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR BLAÐAMAÐUR í fríum reyki ég Vinsæll þar til ... Þegar þessi kappi stígur inn á skemmtistaði Lundúna verð- ur jafnan uppi fótur og fit og ungmeyjar á öllum aldri hlaupa til, falla í stafi og neita að sjá manninn í friði. Hann hefur held- ur ekki áhuga á því, hann kann athyglinni hið besta og segist bókstaflega þrífast á henni. Vin- sældir hans eru einna mestar meðan allar stúlkurnar halda enn að hér sé goðið sjálft, Barry Man- ilow, á ferðinni, en dvína óðfluga þegar það spyrst að maðurinn sé alls ekki ástarsöngvarinn með dúnmjúku röddina heldur tvífari hans. Einstaka láta sér þó tvífar- ann nægja eða ætla sér það uns í salinn stígur fönguleg stúika að nafni Helle. Hún er sambýliskona tvífarans, sem í raun og sannleika heitir Gary Davies og er plötu- snúður... Bo og Pia saman í kvikmynd? Nú hefur það spurst út, að kvikmyndað verði framhald á gamanmyndinni 10 þar sem Bo Derek og Dudley Moore fóru með aðalhlutverk. Framhaldið verður framleiðsla Johns Derek og mun myndin bera nafnið: 10 nr. 2. Að sjálfsögðu mun Bo Derek leika aðalhlutverkið og sýna stæltan líkama sinn eins og í öðrum myndum eiginmannsins Johns. En að þessu sinni verður annað stórt kvenhlutverk og að sögn fróðra manna verður hnátan litla Pia Zadora með það hlutverk í sínum verkahring, önnur ófeimin leikkona þar á ferðinni. Tilhlökk- un eftir myndinni er sögð bland- in. Þeir sem unna fögrum kven- líkama bíða myndarinnar með óþreyju, en aðrir sem gera meiri kröfur til leikaranna, m.a. að þeir geti leikið, eru ekki eins spenntir. „Þetta var ekki svo erfitt til að byrja með, en fór síversn- andi,“ sagði Elsa eru hún var spurð hvort ákörðunin um að hætta að reykja hefði reynst henni erfið viðureignar. „Eftir níu mánuði gafst ég upp og hef ekki hætt aftur. Ég fékk ekki tækifæri til að fylgjast með þáttunum hennar Sigrúnar sem stóðu yfir nú fyrir skömmu og er jafnvel ekki viss um að ég hefði reynt að hætta þó ég hefði séð þá, allavega ekki sem stendur." — Attu ráð til þeirra sem eru að reyna að hætta? „Ég vildi auðvitað að ég hefði aldrei byrjað að reykja og það er ráð mitt til þeirra sem eru ekki fallnir í gryfjuna. Hinsvegar fyrir þá sem eru að reyna að hætta þá er um aö gera að láta freistinguna ekki ná tökum á sér. Að reykja er svo mikill ávani að það er um að gera að finna sér ný viðfangsefni og dreifa huganum svo það grípi ekki um sig leiði og eirðaríeysi þann tíma sem venjulega var eytt í reyk- ingar." Mér fannst afar erfitt að hætta reykingum á sínum tíma og það var haft á orði að ég kvartaði mest í þessum þáttum í apríl 1977. Samt geri ég ráð fyrir að einmitt það hafi hjálpað mér á sinn hátt. Eg hafði engin áform um að hætta reyking- um, gerði það mest fyrir bænarstað Sigrúnar Stefánsdóttur að vera með „Þú getur þá bara byrjað aftur eftir viku,“ sagði hún. Ég uppgötvaði að svo auðvelt var það raunar ekki. Það var hreint makalaust hvað menn fylgdust með okkur fjórum. Sumar- ið eftir var ég til dæmis ein á ferð á Jökuldal. Það sprakk á bílnum, um nótt, og ég kunni ekki aö skipta um dekk. Eg gekk nokkra kílómetra til næsta bæjar að sækja aðstoð og dró bóndann þar úr bólinu. Við fórum svo á svæðið og hann skipti um dekk og þegar hann var í miðju kafi leit hann allt í einu upp og sagði: „Ertu byrjuð aftur?“ Og þurfti auðvitað ekki að skýra nánar við hvað var átt. Mér fannst þessi pressa leiöin- leg og allt að því óþolandi þegar tímar liðu fram, en var hinsvegar dús við að hafa hætt. — Reykirðu í dag? Löngu seinna fór ég að reykja mér til skemmtunar, skulum við segja. Þcgar ég er í fríum reyki ég, ef ég fæ mér í glas reyki ég. Hins vegar fæ ég mér ekki i glas til að reykja né heidur hef ég efni á að fara í frí til að reykja. Það sem í upphafi mun hafa verið ráð til að fæla burtu ásæknar flugur varð að leiðum miður hollum vana al- mennings. Víða er farið að sporna við eiturblæstri reyk- inganna, jafnvel íslenska sjónvarpið hefur gert tilraunir til að fá fólk að venja sig af reykingum frammi fyrir alþjóð. En hvernig farnaðist þeim sem hættu á skermin- um fyrir átta árum? ELSA ÞORSTEINS- DÓTTIR „Eftir níu mánuði gafst ég upp“ „Allt í lagi að fá sér einn vindil ... “ „Eftir þessa þáttaröð fyrir átta árum hætti ég í háift annað ár, en byrjaði svo aftur og fékk mér vindil. Ég taldi sjálfum mér trú um að það væri allt í lagi að fá sér einn vindil... Þ e 11 a vatt upp á sig, ég fór að fá mér vindil öðru hvoru og það var stutt í sígarettureykingarnar. — Hefurðu hætt síðan? „Já, já, oft hvílt mig í 3 til 4 mánuði og það er ekkert erfitt því þá er ég hreinlega að hvíla mig, en ekki að hætta." — Þú ert ekki að hugleiða að hætta alveg? „Ekki að sinni. Ef ég ákveð það einhverntíma þá verður það ekki gert nema í einrúmi," sagði Stefán að lokum. STEFÁN JÖKULSSON SIGHVATUR BJÖRGVINSSON „Ekkert mál, hef staðist freistinguna hingað til“ „Það eru nú orðin átta ár síðan ég hætti og hef staðist freistinguna hingað til,“ sagði Sighvatur Björgvinsson. „Þetta er ósköp einfalt. Ef maður er staðráðinn í að hætta af einhverjum ástæðum og á ekkert undanfæri þá er þetta ekkert mál. Aftur á móti ef sífellt er verið að velta hlutunum fyrir sér og halda jafnvel að maður geti fallið í freistni, þá gerist málið flóknara og erfiðara. Ég gat í rauninni ekki leyft mér í því opinbera starfi sem ég gegndi þá að byrja aftur, fyrst ég fór að hætta fyrir framan alþjóð á annað borð. Þetta vissi ég frá byrjun." — Áttu ráð fyrir reykingamenn sem eru að glíma við að hætta núna? „Já, það er bara þetta: Ef þið byrjið aftur verðið þið ykkur til stórskammar. Þetta er engin spurning um kar- akter heldur hvort það er raunveruleg ákvörðun að hætta. Ef svo er þá verður þetta ekkert stórmál." ffclk í fréttum Hafa þau fallið fyrir freistingunni?
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.